Morgunblaðið - 05.03.1996, Page 41

Morgunblaðið - 05.03.1996, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 41 Norðmenn- irnir byrja best SKAK Skákmiöstöðin Faxafcni 12 REYKJAVÍKURSKÁK- MÓTIÐ 2.-10. MARS Teflt frá kl. 17 daglega. Aðgangur í dag ókeypis fyrir áhorfendur í boði Urvals Utsýnar TVEIR íslendingar eru í hópi níu skákmanna sem unnu báðar skák- ir sínar í fyrstu umferðum Reykja- víkurskákmótsins um helgina. Það eru stórmeistararnir Helgi Ólafs- son og Hannes Hlífar Stefánsson, Norð- menn eru fyrirferð- armestir á toppnum, allir íjórir fulltrúar þeirra á mótinu eru með fullt hús vinn- inga. Þeir koma hingað gráir fyrir járnum með alla stór- meistara sína. Greinilegt er að Norðmenn ætla sér stóra hluti í VISA Nordic Cup bikar- keppninni. Reykja- víkurmótið er fyrsta mótið í henni. í fyrstu umferð var mikill stigamunur á milli tef- lenda og ekki mikið um óvænt úrslit. Norðurlandameistarinn Curt Hansen sá sér þó þann kost vænst- an að bjóða jafntefli snemma í skák sinni við Björn Frey Björns- son úr Hafnarfirði. Kvenstórmeist- arinn öflugi, Anna Aksharumova Gulko, eiginkona Borisar Gulko, tapaði fyrir Stefáni Þór Sigurjóns- syni. Daginn eftir tefldi hún glæsi- lega sóknarskák gegn Bergsteini Einarssyni, skákmanninum unga og efnilega, en endaði með því að falla á tíma með unnið tafl. Anna hefur lítið teflt undanfarin ár, en var í hópi öflugustu skákkvenna í heimi Jón Garðar Viðarsson átti unna stöðu í annarri umferð gegn hol- lenska stórmeistaranum Paul Van der Sterren, en missti hana niður í jafntefli. Staðan eftir 2 umferðir: 1.-9. Simen Agdestein, Jonat- han Tisdall, Rune Djurhuus og Einar Gausel, allir Noregi, Helgi Ólafsson, Hannes Hlífar Stefáns- son, Predrag Nikolic, Bosníu, Stu- art Conquest, Englandi og Jonny Hector, Svíþjóð 2 v. 10.-23. Nikolaj Borge og Curt Hansen, Danmörku, Davíð Bron- stein, Rússlandi, Boris Gulko og John C. Yoos, Bandaríkjunum, Helgi Áss Grétarsson, Margeir Pétursson, Jóhann Hjartarson, Jón Garðar Viðarsson og Sævar Bjarnason, Heini Olsen, Færeyjum, Eduardas Rosentalis, Litháen, Paul Van der Sterren og Mark Van der Werf, Hollandi 1 ‘/2 v. 24.-44. Guðmundur Gíslason, Andri Áss Grétarsson, Þröstur Þórhallsson, Stefán Þór Siguijóns- son, Einar K. Einarsson, Páll Agn- ar Þórarinsson, Bragi Halldórsson, Jón Viktor Gunnarsson, Benedikt Jónasson; Kristján Eðvarðsson, Áskell Örn Kárason, Ólafur B. Þórsson, Magnús Örn Úlfarsson og Bergsteinn Einarsson, Alexand- er Raetsky, Rússlandi, Patrick Lyrberg, Bo Berg og Emanuel Berg, Svíþjóð, Lutz Pinkus, Þýska- landi, Per Andreasen, Danmörku og Esther de Kleuver, Hollandi 1 v. o.s.frv. Þessi laglega skák var tefld í fyrstu umferð mótsins: Hvítt: Einar Gausel, Noregi Svart: Stefán Briem Hollensk vörn 1. d4 - f5 2. g3 - Rf6 3. Bg2 - e6 4. c4 - d5 5. Rf3 - c6 6. 0-0 - Bd6 7. Rc3 - 0-0 8. Bf4 — Bxf4 9. gxf4 — b6 10. Hcl — De7 11. Re5 — Bb7 12. cxd5 — exd5 13. Da4 — a5 14. a3 — Re4 15. Db3! Leggur stórglæsilega gildru fyr- ir andstæðinginn með því að þykj- ast leika af sér skiptamun. Svartur bítur á agnið: 15. - Rd2? SJÁ STÖÐUMYND 16. Rxd5!! — cxd5 Eða 16. - Rxb3 17. Rxe7+ - Hannes Hlífar _ Helgi Stefánsson. Ólafsson Kh8 18. Hc3! og 18. - Rxd4 19. R5g6+! — hxg6 20. Hh3 er mát 17. Bxd5+ - Kh8 Gefur kost á glæsilegum lokal- eik, því 17. - Bxd5 18. Dxd5+ - Kh8 19. Dxa8 var vonlaust með öllu. 18. Rg6+! og svartur gafst upp því mátið blasir við, 18. — hxg6 er svarað með 19. Dh3+. Einar Gausel varð stórmeistari í haust er hann sigraði óvænt á öflugu móti í Danmörku. Um ára- mótin bættist Norðmönnum svo fjórði stórmeistarinn er Rune Djur- huus varð efstur á alþjóðlegu móti í Gausdal. Fjórða umferð Reykjavíkur- skákmótsins fer fram í dag í Skákmiðstöðinni Faxafeni 12 og er aðgangur ókeypis fyrir áhorf- endur í boði ferðaskrifstofunnar Úrvals-Útsýnar. Margeir Pétursson Frímerkingavélar. Ending og gæði í öndvegi. Áratuga reynsla. Otto B.Arnar ehf. ÁRMÚLA 29, 108 REYKJAVÍK SÍMI: 588 4699 • FAX: 588 4696 FRÉTTIR Norræn vika ungs fólks í Hafnarfirði NORRÆNA félagið í Hafnarfirði ásamt Æskulýðs- og tómstundar- áði Hafnarfjarðarbæjar efna vik- una 5.-12. mars til Norrænnar viku í Félagsmiðstöðinni Vitanum, Strandgötu 11, Hafnarfirði. Til- gangur þessarar viku er að efia áhuga ungs fólks á aldrinum 14-16 ára á Norðurlöndunum og norrænni samvinnu sem og að auðga norræna sögu- og menning- arvitund meðal unglinganna. Norræna vikan er styrkt af verkefninu NORDLIV - norræn vitund í nútíð og framtíð, sem er verkefni sem stofnað var til af frumkvæði Sambandi Norrænu félaganna á Norðurlöndum og fjármagnað af Norrænu ráðherra- nefndinni. Verkefninu er ætlað að auka við þekkingu fólks og þá sérstaklega ungs fólks á norrænni sögu og samfélagsháttum á Norð- urlöndunum með það að markmiði að draga fram það sameiginlega í norrænni menningararfleið sem og það sem skilur að. Norræna vikan í Vitanum er skipulögð með fræðslusjónarmiðið að leiðarljósi auk þess sem sýna á frarn á hinar skemmtilegu hliðar við menningu Norðurlandanna. Hresstu upp á minni húðar þinnar Nýtt frá Clinique Moisture On-Call Það sem húðin gerði einu sinni getur hún gert aftur. Ef hún gleymir, þá er svarið Moisture On-Call. Það betrum bætir hæfileika þurru húðarinnar til að halda rakanum. Einnig ver það húðina gegn skaðlegum áhrifum umhverfisins. Gefur raka, sefar og styrkir húðina. 100% ilmefnalaust. Hreinsikrem 30 m rakakrem 15 ml og varalitur fylgir Moisture On-Call á sérstöku kynningartilboði. Moisture On-Call er fáanlegt í öllum CLINIQUE Clinique-verslunum. FÉIAC; LÖC.GI1.TRA BlFKI lDASAI.A NÝJA BÍLAHÖLUN FUNAHÖFOA 1 Ss 567-2277 Félag Löggiltra Bifrl.iðasala MANAÐA SP-BILALAN TIL ALLT AÐ 61 NU VANTAR OKKUR NYLEGA BILA A STAÐINN - FRÍAR AUGLYSINGAR Kláradu dæmid med SP-bilaláiii Með SP-bflalán inní myndinni kaupir þú bíl sem hæfir greiðslugetu þinni m Sími 588-7200 l&UFIARMOGNUN hf Toyota Landcruiser VX árg. '87, ek. 187 þús. km., dökkgrár, 36" dekk, 100% læstur. Verð 1.990.000. Ath. skipti, toppbíll. Ford Econoline 250 XLT dísel Turbo árg. '92, ek. 44 þús. km., dökkblár/hvít- ur. Sá flottasti á landinu. Einn meö öllu. Verð 6.800.000. Ath. skipti. Ford Econoline 150 Cargo árg. '94, ek. 56 þús. km., hvítur, vsk.- bíll. Verð 1.850.000. Ath. skipti. Honda Civic Sl árg. '95, ek. 7 þús. km., dökkgrænn, 5 dyra, 5 gira. Verð 1.250.000. Nýr kostar kr. 1.375.000. Volvo 460 GL árg. '94, ek. 6 þús. km. vín rauður, 5 gíra. Verð 1.550.000. Ath. skipti. Toyota Corolla 1.6 GL árg. '92, ek. 60 þús. km, hvítur. Verð 800.000. M. Benz 350 SDL dísel Turbo árg. '91, ek. 160 þús. km., svartur, leöur, álfelgur, cen. Verð 3.500.000. Ath. skipti. Góður í leigu akstur. MMC Lancer GLXi árg. '91, ek. 75 þús. km., rauöur, sjálfsk. Verð 870.000. Ath. skipti. 9603

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.