Morgunblaðið - 17.03.1996, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
nVtnlonrlí arífnf
ÞÆR eru að spyrja hvað hr. biskup haldi að þurfi margar elli-gellur
til að koma hæstvirtum fjármálaráðherra frá.
Deilumar um vegamál í Reykholtsdalshreppi
Þingmenn marka
afstöðu í næstu viku
STURLA Böðvarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi,
ætlar eftir helgina að óska eftir fundi
þingmanna Vesturlands þar sem
rætt verði um vegamál í Reykholts-
dalshreppi. Hann segir misvísandi
skýringar á niðurstöðu þingmanna-
hópsins hafa komið fram og það sé
algjörlega óviðunandi að afstaða
þeirra liggi ekki Ijós fyrir.
Sturla sagði að meirihluti hrepps-
nefndar Reykholtsdalshrepps hefði
haft skýra afstöðu í þessu máli og
sér hefði þótt eðlilegt að þingmenn
kjördæmisins stæðu á bak við
ákvörðun meirihluta hreppsnefndar.
I haust hefðu þingmenn gert grein
fyrir þeirri afstöðu samgönguráð-
herra að reynt yrði að ná samkomu-
lagi í deilunni eða að beðið yrði eft-
Hannyrðir
heim i stofu
Fáið sendan frian bækling!
PRIMAVERA / The Craft Collection
Útsaumspakkar
Saumapakkar
Prjónapakkar
Pöntunarsími:
587-0554 kl. 14-18 virka daga.
f\|7 A P.O.BOX 9305
LJ I L.r\ 129 REYKJAVÍK
ir niðurstöðu um svæðisskipulag
áður en hann staðfesti útboð eða
framkvæmdir.
„Nú þegar kemur að því að við
þurfum að taka afstöðu til vegaáætl-
unar, liggur það fyrir að engar sætt-
ir hafa náðst og langt að því er virð-
ist í að svæðisskipulag liggi fyrir.
Auk þess liggur alveg fyrir að sveit-
arstjóm Reykholtsdalshrepps er ekki
samstiga meirihluta svæðisskipu-
lagsstjómar. Okkur þingmönnum
var því vemlegur vandi á höndum
og á fundi sem við áttum í fyrri viku
með aðstoðarvegamálastjóra og
umdæmisverkfræðingi sýndist okk-
ur þingmönnunum eftir mjög ræki-
lega skoðun skynsamlegasti kostur-
inn í þröngri fjárhagsstöðu og í ljósi
þeirra miklu deilna, sem þarna væm,
að byggja upp brúna á Flóku og
endurbyggja gömlu leiðina. Þar með
væri slegið varanlega á frest öðrum
leiðum.
Niðurstaða okkar var samt sem
áður sú að við myndum halda þeirri
venju að funda með samgöngunefnd
Samtaka sveitarfélaga áður en við
tækjum ákvörðun. Samgöngunefnd
SSV tók síðan afstöðu á gmndvelli
þess að okkar tillaga snúist um ein-
hverja bráðabirgðalausn með engu
slitlagi, en slíkt var ekki rætt af
okkar hálfu. Við þingmennimir verð-
um að taka afstöðu í þessu máli því
okkar er ábyrgðin varðandi vegaá-
ætlun,“ sagði Sturla.
Ofbeldi beitt til að
keyra málið í gegn
Gísli S. Einarsson, þingmaður
Alþýðuflokksins á Vesturlandi, segir
að þingmennirnir hafl verið búnir
að ná samkomulagi við Vegagerðina
um að sett yrði brú á Flóku og í
næsta áfanga yrði gamli vegurinn,
efri leiðin, endumýjaður fullkomlega
og gert við þá staði sem taldir eru
varasamir, þ.e. við Flóku og við
Rudda. í þriðja áfanga yrði svo far-
ið frá Flóku að Hnakkatjöm.
„Þetta var það sem þingmenn
ásamt Vegagerðinni ákváðu að
kynna, nema Ingibjörg [Pálmadóttir,
þingmaður Framsóknarflokks], sem
sagðist hafa fyrirvara, en hún tiltók
ekkert um hvað,“ sagði Gísli.
„Formaður samgöngunefndar
SSV, Davíð Pétursson, hefur beitt
sér alveg gífurlega í þessu máli og
fékk samgöngunefnd til að sam-
þykkja bókun sem engan vegin
stenst miðað við fyrirætlanir þing-
manna. Þessi bókun hljóðar upp á
að þama sé um að ræða einhveija
bráðabirgðaaðgerð, en þetta er var-
anleg lausn sem við vorum að ræða
um. Þama er höfuðágreiningur. Síð-
an er það nánast að segja ólíðandi
að menn beita hreinu ofbeldi í að
keyra þessa hluti í gegn.
Það sem mér þykir harðast er að
það eru oddvitar annarra hreppa sem
ganga í fararbroddi í þessu máli og
virða að vettugi vilja Flókdælinga.
Það flnnst mér ótrúlegt, og sú undir-
skriftasöfnun sem þama fór fram
er mikil blekking, en ég tek þó
kannski meira mark á því að það
eru 70 íbúar af 170 sem ekki skrif-
uðu undir og það eru nokkrir íbúar
sem hafa dregið til baka sína undir-
skrift þegar þeir áttuðu sig á hvað
í rauninni var verið að gera. Það er
mjög alvarlegur hlutur að mínu
mati,“ sagði Gísli.
Hann sagði að ef menn veldu að
fara neðri leiðina [um land Stóra-
Kropps, Runna og Ásgarðs] þá gengi
það næst skipulagsslysi.
„Hlutverk Vegagerðarinnar er að
benda á besta valkost í vegagerð en
hlutverk þingmanna er að fara sem
best með fjármuni. Við teljum að
með þessari aðgerð séum við bæði
að leysa mjög alvarlega innansveitar-
deilu ásamt því að spara fjármuni
upp á yflr 50 milljónir sem munu
nýtast til áframhaldandi slitlagsgerð-
ar upp Borgarfjörðinn," sagði Gísli.
Sendiherra Argentínu
Samskipti Is-
lands og Argent-
ínu ávallt góð
FEDERICO Mirré af-
henti á síðasta ári
trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra Argentínu á Is-
landi, með aðsetur í Ósló.
Hann kom í vikunni í aðra
heimsókn sína til íslands og
segir það hafa verið góða
vinnuferð.
„Ég stefni að því að fjölga
komum mínum hingað. Með
alþjóðavæðingu heimsins
verðum við að eiga tíðari
samskipti við samstarfsríki
okkar. Samskipti íslands og
Argentínu hafa ávallt verið
góð en fjarlægðarinnar
vegna ekki verið eins mikil
og ég hefði helst kosið. Nú
er orðið mun auðveldara en
áður að auka samskipti ríkja
á milli. Mér sýnist einnig sem
íslendingar líti nú sífellt í
auknum mæli út á við og
reyni að efla samskipti sín við fjar-
Iægari ríki.“
Mirré segir það ekki síst vera
sterk menningartengsl sem setji
svip sinn á samskipti ríkjanna.
„Rithöfundurinn Jorgé Luis Borg-
es hafði mikil áhrif á mína kyn-
slóð og miðlaði þekkingu á ís-
landi, sögu landsins, goðafræði
og bókmenntum, til okkar. Við
sem lásum Borges í gagnfræða-
skóla eigum það flest sameiginlegt
að vilja efla tengslin við Island.
Ég held að ekkert ríki í rómönsku
Ameríku geti státað af jafngóðri
tengingu við ísland og við, og það
er Borges að þakka.“
Mirré kynntist sjálfur Borges
þegar hann var ungur maður og
hitti hann nokkrum sinnum. I vik-
unni flutti hann fyrirlestur um
Borges í Háskóla íslands þar sem
hann ræddi meðal annars um
hvaða áhrif íslendingasögumar
og Snorri Sturluson höfðu á skáld-
skap Borges. Segir hann marga
vini sína og samstarfsmenn hafa
þráð að gera hið sama og að hann
hafl verið mjög ánægður með hve
mikil þekking á Borges væri
greinilega meðal nemenda í há-
skólanum. „Borges kom sjálfur til
íslands árið 1976 og hafði sú ferð
mikil áhrif á hann,“ segir Mirré.
Aðspurður um hvaða hugmynd-
ir hann og aðrir Argentínumenn
hefðu gert sér um ísland í gegnum
Borges sagðist sendiherrann líta
á ísland á ríki sem hefði tekist
að varðveita þjóðareinkenni sín
þrátt fyrir utanaðkomandi áhrif.
„ísland er eitt fárra ríkja sem
geta vísað til sterkra og einstakra
þjóðareinkenna. Þetta verðið þið
að varðveita því að áhrif íslenskr-
ar menningar eru mikilvæg upp á
fjölbreytileikann. Við Argentínu-
menn leggjum nú áherslu á að
varðveita okkar þjóða-
reinkenni, sem eru þó
mun yngri en ykkar og
hafa verið að þróast
allt fram á þessa öld.
Það heillar mig einnig
hversu opnir og alþjóðlegir íslend-
ingar eru, þrátt fyrir sterka þjóð-
emistilfinningu, og lausir við út-
lendingaótta,“ segir Mirré.
„Sjávarútvegur tengir ekki síð-
ur þjóðir okkar. Þið hafið sótt sjó-
inn í tólf aldir en okkar sjávarút-
vegur varð til upp úr 1880 þegar
margir portúgalskir sjómenn sett-
ust að á suðurströnd Argentínu."
Hann segir að upp úr aldamót-
um hafi sjávarútvegurinn stöðugt
verið að eflast og sé nú orðinn
mjög mikilvæg atvinnugrein. „Nú
er svo komið að fiskútflutningur
okkar er nær sambærilegur að
verðmæti við kjötútflutning okk-
► Federico Mirré er fæddur í
Argentínu árið 1941. Hann lauk
prófi í lögfræði frá háskólanum
í Buenos Aires, þar sem að hann
sérhæfði sig í alþjóðalögum, og
fór að því búnu í framhaldsnám
í Diplómataakademíu Argent-
ínu. Að Ioknu námi hóf hann
störf í utanríkisráðuneyti Arg-
entínu. Hann hefur I gegnum
tíðina m.a. starfað í sendiráðum
og ræðismannsskrifstofum í
London, Frankfurt, Róm og
París. Áður en hann tók við
embætti sendiherra Argentínu
í Noregi og á íslandi var hann
sendiherra á Fílabeinsströnd-
inni í Afríku.
ar. Margir landar mínir hafa ekki
áttað sig á þessu og það kemur
Argentínumönnum yfirleitt í opna
skjöldu þegar þeir heyra þessar
tölur. Árlegt útflutningsverðmæti
sjávarafurða okkar er nú á bilinu
900-950 milljónir dollara."
Að sögn Mirré má ekki síst
rekja þróun síðustu ára í sjávarút-
vegsmálum til samninga sem
gerðir hafa verið við Evrópusam-
bandið og Bandaríkin. Þeir hafí
opnað nýjar leiðir fyrir Argentínu-
menn og meðal annars leitt til
góðs samstarfs við Spánveija.
„Fiskneysla okkar er hins vegar
enn ekki ýkja mikil og 85% fram-
leiðslunnar fara í útflutning. Arg-
entínumenn hafa ávallt verið kjöt-
neysluþjóð fyrst og fremst þó að
neysla sjávarafurða hafí aukist
með árunum. Þessi þróun í argent-
ínskum sjávarútvegi gæti verið
athyglisverð út frá sjónarhorni
íslendinga. Það gæti jafnvel
reynst góður kostur fyrir íslensk
fyrirtæki að taka þátt í argent-
ínskum sjávarútvegi á einn eða
annan hátt. Hef ég
fundið fyrir töluverðum
áhuga á þeim fundum,
sem ég hef átt hér í
Reykjavík og menn
munu vega þetta og
meta á næstu misserum. Ég von-
ast til að koma hingað aftur í
október, og bind vonir við að þá
muni fulltrúar viðskiptadeildar-
innar vera með í för.“
Tvíhliða samskipti íslands og
Argentínu segir sendiherrann
ávallt hafa gengið snurðulaust
fyrir sig en nú séu menn að velta
fyrir sér hvort mögulegt sé að
fella niður vegabréfsáritunar-
skyldu milli ríkjanna. „Það er allt-
af að færast í aukana að íslenskir
sjómenn starfi á Suður-Atlants-
hafi og það gæti auðveldað þeim
mjög starfið og dregið úr skrif-
finnsku ef þetta yrði gert.“
„Borges
hafði mikil
áhrif“