Morgunblaðið - 17.03.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 9
FRÉTTIR
Skátafélagið Hraunbúar semur við bæinn um byggingu skáta- og farfuglaheimilis
698 fm bygging
við Víðistaðatúnið
SKÁTAFÉLAGIÐ Hraunbúar hef-
ur skrifað undir verksamning við
Friðjón Skúlason byggingarmeist-
ara um byggingu 698 fm skáta-
og farfuglaheimilis ásamt geymslu
við Víðistaðatún á mótum Hjalla-
brautar og gamla Garðavegsins í
Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær
hefur með samstarfssamningi frá
því í maí 1994 við Hraunbúa skuld-
bundið sig til að greiða 80% af
kostnaði við bygginguna næstu
fimm árin. Framlag bæjarins verði
hins vegar aldrei meira en 50 millj-
ónir. Byggingarkostnaður hefur
verið áætlaður 68 milljónir króna.
Hraunbúar bera fulla ábyrð á verk-
inu og sjá um framkvæmdir. Þeim
á að verða lokið um mitt árið 1998.
Hið glæsilega hús verður nýtt
Hraunbyrgi Hraunbúa og skiptist
í megindráttum í íjóra hluta, þ.e.
ijölnýtissal, aðstöðu fyrir skáta,
farfuglaheimili og tjalda- og
áhaldageymslu. Inngangur fjölnýt-
issalarins blasir við þegar komið
er inn í húsið. Hugmyndin að fjöl-
nýtissalnum er sótt í stór hringlaga
tjöld skátanna. Grunnflötur salar-
ins verður átthyrningur og hallast
útveggir 15 gráður innávið. Mikil
lofthæð stuðlar að góðum hljóm-
burði og veldur því að hægt verður
að koma fyrir náttúrulegri loft-
ræstingu. Lofthringrás verður
mynduð með því að opna glugga
neðst á veggnum og upp undir loft.
Hraunbúar telja að fjölnýtissal-
urinn gæti orðið tekjulind fyrir
skátafélagið í framtíðinni enda
væri t.d. hægt að leigja hann út
fyrir jólatréskemmtanir, brúðkaup,
söngskemmtanir og jafnvel ættar-
mót og fleira í tengslum við tjald-
stæðið.
Á vinstri hönd úr forstofunni
tekur við rúmgóður gangur skáta-
heimilisins. Gangurinn verður að
hluta setustofa og í honum verður
komið fyrir skátaminjum. í skáta-
heimilinu verða m.a. bókasafn,
fundarsalir dróttskáta, ljósálfa og
yflinga, flokksherbergi og aðsetur
félagsstjórnar. Fundarsalina má
sameina í einn stóran sal með því
að draga saman svokallaðan drag-
vegg.
Farfuglaheimili
Á hægri hönd úr forstofunni er
farfuglaheimilið. Hluti þess, snyrt-
ingar og fatahengi þjóna öllu hús-
inu. Inn af snyrtingum verða bað-
herbergi með tveimur steypiböðum
hvert og utan- og innangengt verð-
ur í herbergi með þvottaaðstöðu
fyrir tjaldsvæðið. Fyrirhugað er að
nýta þennan hluta byggingarinnar
til gistiaðstöðu á sumrin. Skátarn-
ir nýti hann hins vegar yfir vetrar-
tímann.
Tjalda- og áhaldageymsla verður
í sér byggingu norðan við aðalbygg-
inguna. I byggingunni verður lítið
verkstæði og þar ofan á verður
Loftteikning af skátaheimil-
inu við Víðistaðatún.
geymsluloft. Aðkoma vélknúinna
ökutækja verður frá Hjallabraut.
Arkitektar byggingarinnar eru
Sigríður Magnúsdóttir og Hans
Olav Andersen.
Skátáfélagið Hraunbúar var
stofnað fyrir 70 árum og eru félag-
ar orðnir 300 fyrir utan öflugan
hóp 100 gildisskáta. Félagið er því
orðið eitt stærsta skátafélag á land-
inu. Þeir hafa rekið rekið tjaldstæði
á Víðistaðatúninu í nokkur ár.
Islendingar flykkjast í sumarleyfið með Plúsferðum
BILLUND, DANMÖRK
Vinsæll fjölskyldustaður
ALLT AB SELJAST UPP!
Vegna mikillar eftirspurnar og sölu til Billund höfum við aukið sœtaframboð þangað.
Ennþá eru til laus sœti til Billund. Bókið strax!
5.júní 8 SÆTl LAUS
12. júní 10SÆT1LAUS
19. júní UPPSELT
26. iúní UPPSELT
27.júní UPPSELT
3. júlí 2 SÆTILAUS
4 • júlí 10 SÆTI LAUS
10. júlí 8 SÆTILAUS
ll.júlí LAUS SÆTI
17. júlí ÖRFÁ SÆTI LAUS
18. iúlí UPPSELT
24. júlí UPPSELT
25. júlí LAUS SÆTI
31. júlí UPPSELT
ÁGÚST
1. ágúst UPPSELT
14. ágúst LAUS SÆTI
21. ágúst LAUS SÆTI
28. ágúst LAUS SÆTI
SERSTMT FERÐATILBOÐ
-gildir í stuttan tíma!
BILLUND: Brottför 4. júlí.-11. júlí og 25. júlí
Verð pr.mann:
*Verð dæmi: Miðað við 2 fullorðna og 2 böm
2-11 ára sem ferðast saman. Flugv.skattar innif.
24.410.-
Verð pr.mann:
Flugv.skattar innif.
• •
NU FÆRIST FJ0R
í SÓUNA...
pr. mann.
I vika á Pil Lari Playa
í nuií. júní og
• kj, r—y»«n.i september.
Verð miðað við 2 Jullorðna og 1 barn 2-11 ára.
Innifalið: Flug, gisting og jlugv.skattar.
1 vika á Ondina í maí, júní og sept.
Verð miðað við 2 fullorðna (tveggja
manna herb. Innifalið: Flug, gisting
hálft fœði og flugv.skattar.
• v v
pr. mann.
Verð miðast við farbókun og greiðslu fyrir 29. mars.
Farþegar PLÚSferða fljúga
eingöngu með Flugleiðum.
FERÐIR
Faxafeni 5 108 Reykjavík. S(mi: 568 2277 Fax: 568 2274
pr. mann.
1 vika á Feliz Choro
( maC jún( og
september.
Verð miðað við 2 fidlorðna og 2 börn 2-11 ára saman í (búð.
Innifalið: Flug, gisting ogflugv.skattar.
1 vika á Feliz Choro ( ma(,jún( og sept.
Verð miðað við 2 fullorðna (Studíó
r QfJ \J y 0 Innifalið: Flug, gisting og
pr. mann.
flugv.skattar.
OTTÓ AUOLÝSINGAR