Morgunblaðið - 17.03.1996, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 17.03.1996, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ JEVIKVÖLDIfJ 06 AFKOMAK ^jGreiðendur öl ul Framlag aldraðra drut íarþ V# jónu Æ stu fA rekstr fé arkos yi/ tnaðu /é 1 Grunnlífeyrir V V Tekjutrygging v V Aðrar tekjur V * Framlag sveitarfélags V V Framlag ríkisins Tryggingastofnun V Aðrar greiðslur y/ V Framkvæmdasjóður s/ V Hagsmunir hinna öldruðu felastíþví að geta búið sem lengst á eigin heim- ili, þar sem sjálfs- ákvörðunarréttur þeirra eróskertur. Að mati Jóhönnu Ingvarsdóttur á þetta ekki síst við um þá, sem verið hafa forsjálir ífjár- hagslegu tilliti og sjá fram á tekjuafgang á elliárum. Inni á elli- heimilum fá þeir ekki notið þeirrar forsjálni þarsem aðtrygg- ingakerfið tekjuteng- ir þátt þjónustuþega ívistgjöldum. Sumir þurfa því að greiða allan kostnað sjálfir á meðan ríkið sér um greiðslu fyrir aðra, þráttfyrir samskonar þjón- ustustig. MIKIL uppbygging hef- ur átt sér stað í stofn- anaþjónustu aldraðra sl. aldarfjórðung. Á tímabilinu hefur heildarfjöldi dvalar- og hjúkrunar- rýma fyrir aldraða meira en tvöfald- ast og eru þau nú um 3.300 talsins. Svo virðist sem jafnvægi hafi að mestu náðst milli framboðs og vist- unarþarfar á landinu ef höfuðborgin er undanskifin. Á sama tíma hefur svokölluð opin öldrunarþjónusta eflst verulega, en þar er um að ræða heimaþjónustu og aðra félags- þjónustu sveitarfélaga, svo og heimahjúkrun heilsugæslustöðva. Þörf aldraðra fyrir stofnanavistun getur verið mismikil og svo er fjár- hagslegur ávinningur einnig, sé tek- ið tillit til þess tryggingakerfis, sem við búum við. Þrátt fyrir að vistunar- rými á elliheimiium kosti alls staðar það sama, fellur mismikill kostnaður á vistmennina sjálfa. Hér er ætlunin að kafa eilítið ofan í þann flókna frumskóg stofnanavistunar er lýtur að fjárreiðum aldraðra. Ríki og þjónustuþegar Stofnanaþjónusta fyrir aldraða skiptist annars vegar í þjónustu- DAGUR á dvalarheimili fyrir aldraða kostar 2.898 krónur. Hjúkrunarrými eru breytileg eftir hjúkrunar- þyngd, en algengt daggjald er 6.328 krónur. Daggjald vegna dagvistunar aldraðra kostar 2.110 krónur. rými, sem heyra undir lífeyristrygg- ingar, og hinsvegar í hjúkrunar- rými, sem heyra undir sjúkratrygg- ingar. Rekstraraðilar dvalar- og hjúkrunarheimila eru sveitarfélög og einkaaðiiar, en rekstrarfé kemur að mestu leyti frá ríkinu og þjón- ustuþegunum sjálfum. Vistmenn greiða hluta kostnaðar vegna rekst- urs dvalarheimila með grunnlífeyri, tekju- tryggingu og öðrum tekjum en til viðbótar greiðir Tryggingastofn- un ríkisins sérstaka dvalarheimilisuppbót. Hjúkrunarheimili fá mmmm framlag af fjárlögum eða með daggjöldum sjúkratrygg- ingardeildar TR í samræmi við fjölda rúma og nýtingu. Hjúkrunardeildir samrekinna dvalar- og hjúkrunar- heimila fá allar framlög á grund- velli daggjalda sjúkratryggingar- deildar TR. Kostnaður vegna öldr- unarlækningadeilda sjúkrahúsa er greiddur af fjárlögum. Hið opinbera greiðir rekstrar- kostnað stofnana skv. sérstökum kostnaðarútreikningum, sem hingað til hafa verið gerðir ársfjórðungs- Vistmenn gefa stofnun- um umboð til að taka við bótum lega en frá árinu 1996 verða gerðir árlega. Skv. útreikningum heilbrigð- isráðuneytis, ákvarðar heilbrigðis- ráðherra hver vistgjöld skulu vera hveiju sinni og eru vistgjöld í þjón- usturými þau sömu fyrir öll dvalar- heimili, en vistgjöld fyrir hjúkrunar- rými, ætluð öldruðum sem eru of lasburða til að dveljast í þjónustu- húsnæði, eru breytileg eftir stofnunum og hjúkrunarþyngd. Vasapeningar Hafi vistmaður litlar sem engar tekjur, getur mma^m hann fengið vasapen- inga frá Trygginga- stofnun. Fullir vasapeningar nema riú 10.658 krónum á mánuði. Tekjur umfram 3.000 krónur á mánuði sem svarar til 36 þúsund kr. á ári skerða vasapeninga. Reglan er sú að 65% þeirra tekna, sem eru umfram þetta mark, skerða vasapeninga og falla þeir alveg niður þegar tekjur vist- manns hafa náð 19.397 krónum á mánuði. Þeir vistmenn, sem hafa tekjur umfram þetta svokallaða frí- tekjumark að frádreginni stað- greiðslu, greiða með þeim tekjum, sem umfram eru, af dvalarkostnaði sínum að hluta eða öllu leyti, þó aldrei hærra en sem nemur dvalar- gjöldunum. Ef vistmaður á maka skiptast tekjur, aðrar en tekjur al- mannatrygginga, jafnt á milli þeirra og eru bætur reiknaðar út frá helm- ingi samanlagðra tekna hjóna. Þjónusturými Eins og áður sagði, heyra þeir vistmenn, sem dvelja í þjónusturými elli- eða dvalarheimila undir lífeyris- tryggingar og skv. lögum um al- mannatryggingar er það í verka- hring: heilbrigðisráðherra að ákveða vistgjöldin. Sem stendur nemur dag- gjald í þjónusturými 2.898 krónum sém þýðir 1.057.770 kr. á ári. Dag- gjaldi er ætlað að standa undir eðli- legum rekstrarkostnaði, miðað við þá þjónustu sem stofnuninni er ætl- að að veita. Ellilífeyrir og tekjutrygging vist- manna renna beint upp í dval- arkostnaðinn frá Tryggingastofnun ríkisins til viðkomandi stofnana og fara þeir fjármunir þar af leiðandi aldrei um hendur vistmanna sjálfra. Það, sem upp á vantar, er bætt upp með svokallaðri dvalarheimilisupp- bót, sem reiknuð er út með því að draga grunnlífeyri og tekjutrygg- ingu frá mánaðarvistgjaldi. Dvalar- heimilisuppbót fer þó eftir því hvort vistmenn njóta einhverrar tekju- tryggingar eða sértekna að öðru leyti. Vistmenn með tekjur umfram grunnlífeyri og tekjutryggingu skulu halda eftir 26.308 kr. að frá- dreginni staðgreiðslu; Það, sem er umfram þetta, skal ganga upp í dvalarkostnað og skal greiða hann með þeim tekjum að hluta eða öllu leyti. Hinsvegar segir í rúmlega árs- gamalli úttekt Hagsýslu ríkisins á stofnunum aldraðra að fátítt sé að vistmenn greiði til dvalarheimilis af öðrum tekjum en tryggingabótum. Vistmenn gefa viðkomandi stofn- un umboð til að taka við bótum al- mannatrygginga og sér stofnunin einnig um að innheimta það sem á vantar. Vistmenn á dvalarheimilum hafa því ekki ráðstöfunarrétt yfir þessum fjármunum. Rétt er að minna á að sækja þarf um allar bætur, sem viðkomandi telur sig eiga rétt á. Ellilífeyrir og tekju- trygging eru skattskyldar tekjur. Dvalarheimilisuppbót og vasapen- ingar eru aftur á móti framtals- skyldar tekjur. Hjúkrunarrými Vistmenn í hjúkrunarrýmum elli- eða dvalarheimila, öðru nafni lang- legusjúklingar, heyra undir sjúkra- tryggingar, sem greiða að öllu jöfnu dvalarkostnaðinn fyrir þá, sem þar dvelja. Kostnaður vegna hjúkrunar- rýma er breytilegur og fer gjarnan eftir hjúkrunarþyngd og vaktafyrir- komulagi. Aftur á móti eru legu- gjöld hjúkrunarheimila á föstum fjárlögum nokkru hærri en hinna sem eru á daggjöldum. Algeng dag- gjöld eru nú 6.328 krónur sem þýð- ir rúmar 2,3 milljónir kr. á ársgrund- velli, skv. upplýsingum heilbrigðis- ráðuneytis. Hafi vistmaður í hjúkrunarrými eigin tekjur, sem að frádregnum staðgreiðsluskatti eru hærri en 21.136 kr. á mánuði, skal hann þá með þeim tekjum sem umfram eru taka þátt í dvalarkostnaði frá þeim tíma sem bætur almannatrygginga falla niður. Þó skal hann í hveijum mánuði aidrei greiða hærri fjárhæð en sem nemur dvalarkostnaði í þjón- usturými, eins og hann er ákveðinn af ráðherra hveiju sinni, en eins og áður hefur komið fram er daggjald þjónusturýmis nú 2.898 kr. Ef vistmaður, sem dvalið hefur á þjónustudeild dvalarheimilis, flyst yfir á hjúkrunardeild falla bætur hans niður þegar samanlögð dvöl í þjónustuhúsnæði og hjúkrunarrými nær fjórum mánuðum. Með öðrum orðum, ef vistmaður hefur dvalið lengur en fjóra mánuði á þjónustu- deild dvalarheimilis, falla bætur hans strax niður. Aftur á móti ef hann hefur aðeins dvalið í tvo mán- uði á þjónustudeild, fellur dvalar- heimilisuppbót strax niður, en aðrar bætur greiðast þangað til fjögurra mánaða tímanum er náð. Hafi hlut- aðeigandi hinsvegar innan við 3.000 kr. í tekjur á mánuði, er heimilt að greiða honum 10.658 kr. á mánuði í vasapeninga, en tekjur umfram 3.000 kr. á mánuði skerða vasapen- inga, eins og gildir um þá, sem búa í þjónusturými. Tryggingastofnun sér um að reikna út framlög sjúklings á dag- gjaldastofnun á grunni upplýsinga, sem viðkomandi stofnanir senda, og skattframtala. Stofnanir á föstum fjárlögum sjá sjálfar um innheimtu framlaga sjúklinga umfram frítekju- mark og bókfærast tekjur þessar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.