Morgunblaðið - 17.03.1996, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 17.03.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 11 1. Dæmi: Vistmaður hefur engar tekjur Tekjur Bætur almannatr. Vasapeningar kr.O Ellilífeyrir kr. 12.921 Tekjutrygging 23.773 Dvalarheimilisuppbót 50.385 kr. 10.658 í Samtals 87.079 vasapeninga Tiyggingastofnun greiðir ailan kostnað og vistmaður fær óskerta vasapeninga. Hafi vistmaður aðrar tekjur umfram frítekjumark vasapeninga, kr. 36.000 á ári, skerðast vasapeningar um 65% þeirra tekna. 2. Dæmi: Vistmaður hefur kr. 23.792 í tekjur Bætur Tekjur almannatr. Vasapeningar Ellilífeyrir kr. 12.921 Tekjutrygging 23.773 Dvalarheimilisuppbót 50.385 á ekki rétt til Samtals 87.079 vasapeninga Tryggingastofnun greiðir alian kostnað og vistmaður heldur eftir tekjum sínum. Hafi vistmaður aðrar tekjur umfram frítekjumark tekjutryggingar, kr. 217.319 á ári, skerðast tekjutrygging um 45% þeirra tekna. 3. Dæmi: Vistmaður hefur kr. 58.331 í tekjur Tekjur Bætur almannatr. Vasapeningar kr. 58.331 Ellilífeyrir kr. 12.921 Tekjutrygging 8.790 Dvalarheimilisuppbót 37.875 á ekki rétt til Samtals 59.586 vasapeninga Vistmaður greíðir sjálfur kr. 32.023 á mánuði til stofnunarinnar en heldur eftir stofnunar frítekjumarkinu, kr. 26.308. 4. Dæmi: Vistmaður hefur kr. 115.064 í tekjur Tekjur Bætur almannatr. Vasapeningar kr. 115.064 Ellilífeyrir • kr. 12.921 Tekjutrygging 0 Dvalarheimilisuppbót 7.285 á ekki rétt til Samtals 20.206 vasapeninga Vistmaður greiðir sjálfur mest ailan kostnað til elliheimilisins. sem sértekjur og eru áætlaðar í fjár- lögum. Eðlilegl heimilislíf Fyrsta heildarlöggjöf um málefni aldraðra tók gildi í ársbyrjun 1983 og byggðist á þeirri meginstefnu að aldrað fólk geti sem lengst búið við eðlilegt heimilislíf og að þjónusta sé veitt á því þjónustustigi sem eðli- legast og hagkvæmast ér miðað við þörf og ástand viðkomandi. I skýrslu, sem unnin var af Hagsýslu ríkisins að beiðni heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og fjár- málaráðuneytis, er bent á að álita- mál sé hvort uppbygging öldrunar- þjónustu hafi verið í samræmi við þessi heildarmarkmið. Mun hærra hlutfall aldraðra búi í stofnanahús- næði hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum og eigi það ekki síst við um aldurshópinn innan við áttrætt. Ólíklegt sé að heilsufar eða aðstæður aldraðs fólks og almennur aðgangur að heilsugæslu á íslandi séu frábrugðin því sem geriðst á öðrum Norðurlöndum. Ekki væri hægt að útiloka að á vissum svæðum hafi hátt hlutfall vistrýma dregið úr uppbyggingu heimaþjónustu. Opin öldrunarþjónusta Heilbrigðisráðuneytið bendir á að bæði fagleg og fjárhagsleg rök væru fyrir því að leggja meiri áherslu á svokallaða opna öldrunarþjónustu en stofnanaþjónustu þegar litið sé til kostnaðar. Bjóða mætti upp á verulega þjónustu við einstaklinga í heimahúsum með minni tilkostnaði en með stofnanavistun. Hagsmunir hinna öldruðu væru að geta búið sem lengst á eigin heimili, þar sem sjálfsákvörðunarréttur þeirra er óskertur. Opin öldrunarþjónusta samræmdist vel þeim markmiðum og gæti dregið verulega úr þörf á stofnanarýmum, að sögn Emmu R. Marinósdóttur, deildarstjóra. Enn- fremur segir í skýrslu um forgangs- röðun verkefna í öldrunarmálum í Reykjavík að „þröskuldurinn inn á stofnun" sé mjög lágur í borginni samanborið við það sem tíðkist víða á öðrum Norðurlöndum. Til opinnar öldrunarþjónustu telj- ast sérhannaðar sjálfseignaríbúðir, svo og leigu- og búsetuíbúðir. íbúar greiða sjálfir leigu- ogþjónustugjald fyrir þá þjónustu sem í boði er og eru slíkar íbúðir að því leyti frá- brugðnar þjónustuíbúðum, sem falla undir stofnanaþjónustu. Heimaþjónusta skiptist annars vegar í félagslega heimaþjónustu sveitarfélaga og hinsvegar í heima- hjúkrun, sem veitt er af starfsfólki heilsugæslustöðva. Kostnaður vegna félagslegslegrar heimaþjón- ustu sveitarfélaga greiðist af við- komandi sveitarfélögum. Þeim er aftur á móti heimilt að setja gjald- skrá þar sem kveðið er á um þátt- töku einstaklinga í kostnaði. Þeir einstaklingar, sem ekki hafa aðrar tekjur en ellilífeyri og tekjutrygg-' ingu almannatrygginga, skulu þó vera undanskildir gjaldskyidu. Fyr- irkomulag greiðslna fyrir þessa þjónustu mun vera mismunandi eft- ir sveitarfélögum. í Reykjavík er Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks Kerfið hvetur til ábyrgðarleysis „VIÐ búum við kerfi, sem margskattleggur sama stofninn, og það kemur mjög víða fram, m.a. í útreikn- ingum á kostnaðar- hlutdeild þjónustu- þega á elliheimilum. Þetta er aðeins einn angi af því velferðar- kerfi, sem búið er að byggja upp og égvil meina að við höfum ekki efni á að reka miðað við þann mikla ríkissjóðshalla, sem við er að etja og verð- ur ekki stöðvaður nema með róttækum og skilvirkum að- gerðum," segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Pétur segir að nú sé komið að þeim tímapunkti að þjóðin fari að horfast í augu við niðurskurð í ríkisrekstri þar sem ekki sé hægt að ganga lengra í skattlagningu en orðið er. „Tekju- og eignateng- ing í almannatryggingakerfinu er í reynd ekkert annað en viðbótar- skattlagning og oft er hún svo dulin að erfitt er að sjá í gegnum það hvort um raunverulega skatt- lagningu er að ræða eða ekki. Oréttmætið felst, í því að þeir, sem sýnt hafa fyrirhyggju, sitja ekki við sama borð í al- mannatrygginga- kerfinu og hinir. Ég tel að við séum komin langt út fyrir allt vel- sæmi í þessu. Það þarf að fínkemba lögin frá grunni og hætta að taka tillit til tekna og eigna að öðru leyti en með beinum og sýni- legum tekju- og eign- asköttum. Tekjuteng- ing á ekki rétt á sér í bótakerfinu eftir að fólk hefur borgað skattana sína upp í topp.“ Pétur segist þó gera sér fyllilega grein fyr- ir því að óvinnandi vegur væri að kippa allri tekjutengingu í burtu allt í einu áður en bönduin væri komið á ríkissjóðshallann, sem væri orðin uggvænlegur og ekkert annað en framtíðarskattur á börn- in okkar. „Vaxtagreiðslur ríkis- sjóðs á síðasta ári voru jafnháar og öll húsbréfaútgáfan þá og jafn- iniklar og allir beinir tekjuskattar landsmanna. Við erum komin út á ystu nöf hvað þetta varðar og orðið brýnt að snúa þróuninni við. Það gerum við að sjálfsögðu ekki með auknum útgjöldum. A meðan við náum ríkissjóðshalianum ekki Pétur Blöndal. niður, verður sú skattlagning, sem fólgin er í tekjutengingu, að vera áfram til staðar, nema liægt sé að gera félagslega kerfið skilvirk- ara en nú er,“ segir Pétur. „Manni sýnist oft og tíðum að þeir, sem komið hafa ár sinni þokkalega fyrir borð með því að leggja fyrir, séu verr settir við- víkjandi opinberri þjónustu en hinir, sem ekki hafa sýnt fyrir- hyggju. Og með tekjutengingu þjónustugjalda er í raun verið að refsa því fólki, sem sýnt hefur útsjónarsemi og sparnað, en sparnaður myndast yfirleitt ekki vegna hærri tekna heldur vegna minni eyðslu. Bótakerfið er mjög svo letjandi og hvetur fólk til að haga sér ábyrgðarlaust. A sama tíma er verið að þenja út opinbera þjónustu, sem ríkið hefur ekki efni á nema undan- skilja þá, sein hafa tekjur og eign- ir sem jafnframt eru greiðendur þjónustunnar. Sá, sem borgar bæturnar, má aldrei hafa það verra en sá, sem fær bæturnar. Mér sýnist að búið sé að snúa þessu lögmáli við. Kannanir hafa m.a. sýnt að sá skattpíndi býr í mörgum tilfellum við verri lífs- kjör en sá, sem nýtur bóta. Vandamálið snýst um það hvernig við förum að því að hemja út- gjöld velferðarkerfisins þannig að okkur takist að endurheimta viljann til að vinna á móti letjandi og stórhættulegri þróun. Skiln- ingur fólks á nauðsyn niðurskurð- ar er aftur á móti enginn. Það hefur berlega komið í ljós í um- ræðum um niðurskurð í heilbrigð- ismálum að undanförnu. Astandið virðist ekki nógu slamit í huguin fólks til að það líti á ástandið sem katastrófu og í stjórnsýslunni rík- ir geysileg andstaða við skatta- lagabreytingar. Á meðan höldum við áfram að síga niður á við,“ segir Pétur Blöndal. t.d. miðað við að þeir, sem hafa tekjur undir tilteknum mörkum, fái þjónustuna endur- gjaldslaust, en hinir greiði fyrir veitta þjón- ustu, þó aldrei meira en 75% af því sem umfram mmmm er þessum tekjumörk. Aldraðir, sem njóta mánaðarlega ijárhagsaðstoðar frá Félagsmála- stofnun, fá heimaþjónustu endur- gjaldslaust. Heimahjúkrun heilsu- gæslustöðva er greidd af rekstrarfé viðkomandi heilsugæslustöðva og er veitt án endurgjalds fyrir sjúkl- inginn. Þá greiðir Tryggingastofnun ríkisins kostnað vegna sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðinga. Greitt er fyrir hveija vitjun eftir hjúkrunar- þyngd. Dagvist aldraðra Víða er boðið upp á sérstaka dag- vist fyrir aldraða. Um er að ræða stuðningsúrræði fyrir aldraða, sem búa í heimahúsum og felur það í sér flutning að og‘ frá heimili, tóm- stundaiðkun, aðstöðu til léttra lík- amsæfinga, fæði, hvíldaraðstöðu og aðstoð við böðun svo eitthvað sé nefnt. Dagvist aldraðra er rekin sjálfstætt eða í tengslum við aðra starf- semi hjúkrunar- eða dvalarheimila. Heilbrigðisráðherra ákveður daggjald fyrir dagvist aldraðra annarra en þeirra, sem hafa skil- yrt rekstrarleyfi eða þeirra, sem eru í starfs- tengslum við sjúkra- stofnanir, sem reknar eru með beinum fjár- framlögum úr ríkissjóði. Daggjald fyrir dagvistun nemur nú 2.110 kr., þar af er hlutur þjónustu- þegans sjálfs 500 kr. á dag og sjá stjórnendur dagvista um innheimt- una fyrir hvern dvalardag. Gjald þetta má þó aldrei verða hærra en sem nemur einstaklingsgrunnlífeyri Tryggingastofnunar ríkisins. Skv. reglugerð um dagvist aldraðra getur ráðherra veitt dagvist skilyrt rekstr- arleyfi. Það hefur í för með sér að TR greiðir ekki kostnað vegna dag- Nauðsynlegt er að einfalda greiðslu fyrirkomulag öldrunar- þjónustu vistar, heldur greiða hinir öldruðu sjálfir all- an kostnaðinn. Samhæfinga- markmið Hærra hlut- fall aldraðra býr í stöfn- anahúsnæði hér en á hin- um Norður- löndunum Hagsýsla ríkisins ■*■* telur nauðsynlegt að einfalda greiðslufyrir- komulag þeirrar öldrunarþjónustu, sem veitt er. Ekki væri hægt að fullyrða hvaða greiðsluform hentaði best til að tryggja nauðsynlega þjónustu og jafnframt rekstrarlegt aðhald. Kosturinn við að setja stofnanir á föst fjárlög væri m.a. sá að kostnaður yrði sýnilegri og eftirlit auðveldara. Stofnanir á dag- gjöldum hefðú hinsvegar fjárhags- lega hvatningu til að nýta öll rými en síður er um slíka hvatningu að ræða í stofnunum á föstum fjárlög- um. Einnig væri tryggt að vistun færi fram á grundvelli vistunar- mats, þar sem TR gæti að öðrum kosti stöðvað daggjaldagreiðslur til heimilis. Mikilvægt væri að móta skýrari stefnu um þá stofnanaþjón- ustu, sem ríkið greiddi fyrir. Skil- greina þyrfti hvaða þjónustu skal veita í dvalarrými annars vegar og hjúkrunarrými hinsvegar, en um- talsverður munur virtist vera á því hvaða þjón- usta væri í boði á stofn- unum sem þó ættu að heita sambærilegar. Þrátt fyrir að megintil- - gangur heildarlöggjafar um málefni aldraðra hafi verið að skipuleggja og samhæfa þjónustu fyrir aldraða, hefur reynst erf- itt að ná fram samhæf- ingarmarkmiðum lag- ________ anna þar sem þau taka : til ólíkra þjónustukerfa, sem rekin eru bæði af ríki og sveitar- félögum.' Sjúkrahús og hjúkrunar- heirnili eru rekin á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu og þjónustu- húsnæði á grundvelli laga um félags- þjónustu sveitarfélaga. Opin öldrun- arþjónusta er rekin á grundvelli beggja þessarra laga og bent hefur verið á að þessi tvískipting heimaþjón- ustu leiði til skorts á samhæfingu. Án skipulagsbreytinga geti reynst erfitt að leysa þann vanda. í' • • Ossur Skarphéðinsson, þingmaður Alþýðuflokks Skapar vissa fátæktargildru ÖSSUR Skarphéð- insson, þingmaður Alþýðuflokks og formaður lieilbrigð- is- ogtrygginga- málanefndar, segist vera þeirrar skoð- unar að tekjuteng- ing þjónustugjalda almennt hafi gengið of langt og ekki bæri að refsa fólki fjárhagslcga fyrir að sýna fyrirhyggju og leggja fyrir. Best væri að þjónusta stæði öilum þjóðfé- lagsþegnum til boða án tillits til þjóðfé- lagsstöðu, eigna eða tekna. „Við erum að hugsa þessa hluti dálítið upp á nýtt í minum flokki og erum, að mér finnst, að færast frá þessari tekjuteng- ingarhugmynd. Okkur finnst að tekjutengingin, þó við eigum talsverða sök á henni sjálfir, orðin alltof rík almennt. Og ég er persónulega þeirrar skoðun- ar að tekjutengingin hafi gengið of langt I því bótakerfi, sem við nú búuin vid. Hún hefur að vissu leyti skapað ákveðna fátæktar- gildru, t.d. hjá yngra fólkinu. Menn geta ekki náð sér upp úr ákveðnu fari og við erurn á móti þvi. Við alþýðuflokksmenn erum nú að endur- meta viðhorf okkar til tekjutengingar og erum með vinnu í gangi sem miðar að því að við leggj- um fram frumvarp, sem tengjast mun þessum málum, á næsta þingi,“ segir Össur. Hann segh’ að á tímum mikilla þrenginga sé skijjanlegt að þeir, sem meira mega sín, séu látnir borga fyrir afnot af stofn- unum að einhverju marki, „en eins og bent hefur verið á er þetta fólk búið að borga skatta af sinurn eignum og tekjum auk þess að hafa sýnt fyrirliyggju og lagt fyrir. Ég set því spurningarmerki við hversu langt hægt er að ganga í þessum jaðarsköttum“. Einnig sagði Óssur að mikil öfugþróun væri fólgin í því ef bótaþegar væru í einhveijum tilfellum betur settir en hinir. Sér vitandi væri sú staða ekki komin upp, en ef svo væri í einhveijum þjóðfé- iagshópum, væri ekki þar með sagt að draga þyrfti úr bótmn. Slíkt segði ef til vill meira um launaþróunina en bæturnar. Össur Skarphéðinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.