Morgunblaðið - 17.03.1996, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 17
)
)
)
í
►
I
I c
>
&
W
s
i
i
g*
;
LISTIR
ÖWUKIÖR
tÖUIUUWSLUN OPNRR i SKHFUHMIEFTIR NOKKRRORöj
Myndlistar-
sýning leik-
skólabarna í
Bakkahverfi
MYNDLISTARSÝNING á verkum
leikskólabarna í Bakkahverfi verð-
ur opnuð þriðjudaginn 19. mars
kl. 14. Sýningin verður í húsnæði
SVR í Mjódd. Opnunarhátíð verður
haldin í göngugötunni og þar verða
einnig hópverkefni. Sýningin er
árlegur menningarviðburður og er
liður í samstarfi þriggja leikskóla:
Arnarborgar, Bakkaborgar og
Fálkaborgar í Neðra-Breiðholti.
I kynningu segir: „Börn á leik-
skólaaldri hafa ríka þörf fyrir að
tjá sig á myndmáli á skapandi
hátt. Leikskólarnir gegna hér mik-
ilvægu hlutverki. Fjölbreytileg
myndgerð og myndsköpun skipar
veglegan sess í uppeldisstarfi leik-
skólanna og tengjast öðrum þátt-
um þess með ýmsum hætti.
Myndlistarsýningin er afrakstur
vetrarstarfsins á leikskólunum.
Sýningar undanfarinna ára hafa
lífgað upp á húsnæði SVR og vak-
ið athygli þeirra sem lagt hafa leið
sína í Mjóddina. í ár stendur sýn-
ingin frá 19. mars til 12. apríl.“
Dagskrá opnunarhátíðarinnar
19. mars kl. 14 er eftirfarandi:
Ávarp, bamakór, gestum boðið að
skóða sýninguna.
-----»-■»■ ♦-
Islendinga-
kvöld
í GÆR var íslendingakvöld í Jóns-
húsi. Tilgangurinn er tvíþættur.
Annars vegar að kynna starfsem-
ina í þessu sögufræga húsi, en hún
er nokkuð margþætt, og hins veg-
ar sá að fólk hittist og skemmti
sér saman. Boðið var upp á kvöld-
verð og lék Pétur Pétursson píanó-
leikari létta tónlist undir borðhald-
inu.
Tveir ungir menn, Elvar Logi
Hannesson og Róbert Snorrason,
sáu um skemmtiatriði og kynn-
ingu dagskrár. Þeir stunda nám
við einkarekinn skóla í Kaup-
mannahöfn, Commedia, en sá
skóli sérhæfir síg í trúða og lát-
bragðsleik og tekur námið 1-2 ár.
Einnig kom Böðvar Guðmundsson
rithöfundur við sögu og kór safn-
aðarsins söng.
-----♦ ♦ ♦---
Skólahljómsveit
heimsækir
Kópavog
ÞESSA helgi hefur Skólalúðrasveit
frá Selfossi verið í heimsókn hjá
vinum sínum ú Skólahljómsveit
Kópavogs.
Hljómsveitirnar hafa æft saman
nokkur lög og ætla í framhaldi af
því að halda sameiginlega tónleika
í dag, sunnudaginn 17. mars.
Tónleikarnir verða í Hjallaskóla
í Kópavogi og hefjast kl. 14. Að-
gangur er ókeypis og öllum heim-
ill.
Ljóðakvöld
endurtekið
á Hótel
Hveragerði
Leikfélag Fljótsdalshéraðs
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
DÓRÓTHEA (Margrét Stefánsdóttir), pjáturkarlinn (Ólafur Magnús Sveinsson)
og fuglahræðan (Benedikt Benediktsson).
Hveragerði. Morgunblaðið.
LEIKFÉLAG Hveragerðis stóð fyrir
námskeiði í ljóðalestri fyrir skömmu
og fékk Guðrúnu Ásmundsdóttur
leikkonu til að leiðbeina á námskeið-
inu. Að námskeiðinnu loknu bauð
leikfélagið á ljóðadagskrá á Hótel
Hveragerði. Dagskráin hlaut nafnið
„Leikið af fingrum fram“ og saman-
stóð af ljóðalestri með söng og grín-
atriðum á milli. Skemmst er frá því
að segja að húsfyllir var á skemmt-
uninni og skemmti fólk sér hið besta.
Þátttakendur í ljóðadagskránni voru
ellefu talsins, á aldrinum 13-95 ára.
Að öðrum ólöstuðum vakti athygli
frábær flutningur elsta þátttakand-
ans Stefáns Sigurðssonar kennara,
á Vísum Kvæða-Önnu eftir Fornólf.
Vísurnar eru 29 erindi alls og flutti
Stefán, sem verður 95 ára nú í vik-
uni, kvæðabálkinn utanbókar. Vegna
fjölda áskorana hefur Leikfélag
Hveragerðis nú ákveðið að endurtaka
dagskrána í kvöld klukkan 20.20 á
Hótel Hveragerði.
Aðgangur að skemmtuninni er
ókeypis.
Galdrakarlinn í Oz
N emendasýning
í Þjóðleikhúsinu
HIN árlega nemendasýning List-
dansskóla íslands verður í Þjóð-
leikhúsinu þriðjudaginn 19. mars
kl. 20.
Efnisskráin er fjölbreytt; t.d.
ævintýrið „Áfmælisgjöfin“ þar
sem allir nemendur skólans koma
fram. Þar verða dansaðir meðal
annars þjóðdansar frá ýmsum
löndum. Ennfremur eru atriði úr
þekktum dansverkum s.s. Svana-
vatninu, Þyrnirós o.fl. Þá verða
fluttir frumsamdir dansar eftir
kennara Listdansskólans.
í vetur hafa rúmlega 80 nem-
endur stundað nám við Listdans-
skóla Islands og eru þeir yngstu
9 ára.
Fastir kennarar við skólann í
vetur er: Nanna Ólafsdóttir, Mar-
grét Gísladóttir, en auk þess hafa
kennt í vetur Lauren Hauser, Birg-
itte Heide, David Greenall, Hany
Hadaya og Ásta Arnardóttir. í
byijun janúar kom gestakennarinn
Tom Bosma frá Konunglega b'all-
ettskólanum í Haag, en sérgrein
hans er þjóðdansar.
Skólastjóri Listdansskólans er
Ingibjörg Björnsdóttir.
HIN árlega nemendasýning Listdansskóla íslands
verður I Þjóðleikhúsinu á þriðjudag.
Egilsstöðum, Morgunblaðið.
LEIKFÉLAG Fljótsdalshér-
aðs sýnir um þessar mundir
leikritið Galdrakarlinn í Oz í
leikstjórn Asdísar Þórhalls-
dóttur. Fjöldi barna hefur
tekið þátt í að skapa þessa
sýningu en börn eru bæði í
hlutverkum og hafa unnið að
undirbúningi, m.a. við gerð
búninga, leikmynd o.fl.
Margrét Stefánsdóttir leik-
ur Dórótheu. Hún er 13 ára
og hefur aðeins stigið á fjal-
irnar, bæði í skólanum og svo
lék hún kisu í Kardemommu-
bænum hjá Leikfélagi Fljóts-
dalshéraðs. Margrét hefur
ennfremur leikið í mynd sem
gerð var í kringum Lagar-
fljótsorminn og sýnd var í
Stundinni okkar fyrir nokkr-
um árum. Aðrir leikarar eru
Benedikt Benediktsson sem
leikur fuglahræðuna, Olafur
Magnús Sveinsson sem leikur
pjáturkarlinn, Jón Gunnar
Axelsson sem leikur ljónið,
en þeir leika allir aukahlut-
verk að auki, og Sigrún Lár-
usdóttir sem leikur Vestan-
nornina. Sigurgeir Baldurs-
son leikur galdrakarlinn í Oz
auk fleiri hlutverka og Þór-
halla Snæþórsdóttir leikur
Norðan-nornina góðu auk
Emmu frænku. Putalingarnir
eru leiknir af þrettán krökk-
um. Ásdís Þórhallsdóttir leik-
sljóri hefur sett upp sýningar
hjá MH, leikhópnum Érlendi,
Kaffileikhúsinu og Frú Emil-
íu. Ennfremur hefur hún
starfað að fjölmörgum sýn-
ingum hjá Þjóðleikhúsinu.
Galdrakarlinn í Oz er fyrsta
verkefni Ásdísar hjá áhuga-
leikfélagi.
Morgunblaðið/Aldís
STEFÁN Sigurðsson, sem
varð 95 ára nú í vikunni, flyt-
ur Vísur Kvæða-Onnu eftir
Fornólf.