Morgunblaðið - 17.03.1996, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýninga kvikmyndina Dead Man Walking
-------------——— ----------———————-—————————————■ >»
með Susan Sarandon og Sean Penn í aðalhlutverki. Þau eru bæði tilnefnd til Oskarsverð-
launa fyrir leik sinn í myndinni eins og leikstjórinn, Tim Robbins.
í biðsal
dauðans
SUSAN Sarandon leikur systur Helen Prejean og Sean Penn
leikur hinn dauðadæmda Matthew Poncelet.
DEAD Man Walking, Dauða-
maður nálgast, fjallar um
málefni sem er ofarlega á baugi
í Bandaríkjunum; dauðarefsingu.
Kannanir benda til þess að dijúg-
ur meirihluti Bandaríkjamanna sé
hlynntur dauðarefsingu og að-
standendur myndarinnar hafa við
kynningu á henni meðal hins refsi-
glaða almennings lagt áherslu á
að hana beri ekki að skilja svo
að þeir taki afstöðu með eða á
móti dauðarefsingu heldur leggi
þeir ekki síður áherslu á að koma
á framfæri sjónarmiðum aðstand-
enda fómarlamba ofbeldismanna
en málstað þeirra sem beijast
gegn dauðarefsingu.
Ahorfendum myndarinnar fær
þó varla dulist sú niðurstaða að
aftakan megnar síður en svo að
lina sársauka eftirlifendanna og
færir þeim ekki það réttlæti sem
þeir sóttust eftir með baráttu sinni
fyrir því að hún færi fram.
Aðalleikarar myndarinnar,
Susan Sarandon, sem leikur syst-
ur Helen Prejean, og Sean Penn,
sem leikur hinn dauðadæmda
Matthew Poncelet, sem gerst hef-
ur sekur um að myrða tvö saklaus
og vamarlaus ungmenni, eru
bæði tilnefnd til Óskarsverðlauna
fyrir leik sinn í myndinni sem og
leikstjórinn, Tim Robbins, sem
jafnframt framleiddi myndina og
samdi handrit eftir samnefndri
bók systur Helen.
í bókinni fjallar nunnan um
kynni sín af dauðadæmdum föng-
um og aðstandendum fómar-
lamba þeirra en hún hefur verið
sálusorgari og andlegur ráðgjafi
þriggja dauðadæmdra og líflát-
inna glæpamanna í Louisiana-
fylki þar sem hún er búsett. Jafn-
framt hefur hún tengst og kynnst
fjölskyldum fómarlamba mann-
anna, sem takást á við missi sinn
án stuðnings yfirvalda og andlegr-
ar aðhlynningar og trúa því oft
að aftakan muni færa þeim rétt-
læti sem geri sorgina og sársauk-
ann léttbærari. I skrifum sínum
þykir systir Helen sýna sjón-
armiðum og tilfinningum beggja
einlæga og raunverulega samúð
og skilning.
Sá Matthew Poncelet sem varð
til í handriti Tim Robbins er sam-
sett persóna úr lýsingu systur
Helen á tveimur mannanna sem
hún hafði kynni af. Þetta gerði
Tim Robbins til að varast að gefa
myndinni heimildarblæ og jafn-
framt til þess að komast hjá því
að gera morðingjann að geð-
felldri söguhetju. Það var ekki
ætlunin að draga taum hans og
gera lítið úr voðaverki hans held-
ur bregða raunverulegri birtu á
umíjöllunarefnið; dauðarefsing-
una. Tim Robbins, leikstjóri
myndarinnar, og eiginkona hans,
aðalleikkonan Susan Sarandon,
eiga allan heiðurinn af því að
myndin Dead Man Walking var
gerð. Þegar Susan vann að gerð
myndarinnar The Client í New
Orleans hitti hún systur Helen
Prejean, og hreifst af konunni
og skrifum hennar.
Susan gaf manni sínum bókina
með þeim orðum að úr sögunni
mætti e.t.v. vinna kvikmynd.
Robbins hreifst strax með, skrif-
aði handritið og gekk vel að fá
menn hjá PolyGram til að fjár-
magna gerð kvikmyndar eftir
handritinu. Auk þess að vera
eftirsóttur leikari hefur Robbins
notið virðingar sem leikstjóri og
kvikmyndahöfundur eftir frum-
raun sína á því sviði, myndina
Bob Roberts, þar sem hann lék
aðalhlutverk, skrifaði handrit,
leikstýrði og samdi tónlist, með
eftirminniiegum árangri. Kvik-
myndaiðnaðurinn í Bandaríkjun-
um beið þess að Robbins léti
næst á sér kræla með eigin kvik-
mynd og því leið ekki nema ár
frá því að hann las fyrst bókina
þar til kvikmyndatökum var lok-
ið, sem er ótrúlega skjót fram-
vinda mála í Hollywood.
Val leikara í aðalhlutverkin
vafðist ekki fyrir Tim Robbins.
Susan Sarandon, sambýliskona
hans og bamsmóðir, var sjálfkjör-
in í hlutverk systur Helen, og um
leið voru vinsældir hennar ákveðin
trygging fyrir því að myndin stæði
undir kostnaði. Sean Penn var sá
eini sem talað var við um að leika
Matthew Poncelet. „Ég hef lengi
verið aðdáandi hans og sá engan
annan fyrir mér í þessu hlut-
verki,“ segir Robbins. „Sean Penn
er einn sárafárra góðra leikara
sem eru óhræddir við að leika
ógeðfellt fólk,“ segir Susan Sar-
andon og lofar mótleikara sinn,
sem er eitt óreglusömu vandræða-
barnanna í Hollywood, en hefur
skilað eftirminnilegum leik í The
Falcon And The Snowman, At
Close Range og Carlito’s Way,
auk þess að vekja á sér athygli
sem leikstjóri í myndinni The Indi-
an Runner.
í lykilhlutverk í tækniliði sínu
valdi Robbins menn sem hann
hefur góða reynslu af að vinna
með; Roger Deakins myndatöku-
mann, sem Robbins vann með við
gerð Shawshank Redemption og
Richard Hoover leikmyndahönnuð
myndarinnar um Bob Roberts.
Afraksturinn er myndin Dauða-
maður nálgast, Dead Man Walk-
ing, sem gagnrýnendur og áhorf-
endur vestanhafs tóku tveim
höndum og talin er til lítils hóps
mynda sem kalla má markvert
framlag kvikmyndaborgarinnar í
Hollywood til málefnis sem skiptir
raunverulegu máli í Bandaríkjun-
um. Endanlega kemur í ljós hver
uppskera Tim Robbins og félaga
verður annan mánudag þegar
Óskarsverðlaunin verða afhent.
Kvikmyndastj ömur
í hjónabandi
SUSAN Sarandon og Tim
Robbins búa saman og eiga
þrjú börn. Þau kynntust fyrir
einum níu árum við gerð mynd-
arinnar Bull Durham, þar sem
bæði voru í stóru hlutverki, en
hafa síðan varla unnið saman,
ef undan er skilin myndin Bob
Roberts, frumraun Robbins
sem leikstjóri. Þau hafa nú sam-
einað krafta sína við gerð
myndarinnar Dauðamaður
nálgast og fá bæði að vita ann-
an mánudag hvort bandaríska
kvikmyndaakademían telji
framlag þeirra til hennar Ósk-
arsverðlauna virði.
Tim Robbins ólst upp i
Greenwich Village í New York,
sonur þekkts þjóðlagasöngv-
ara, Gil Robbins úr hljómsveit-
inni The Highwaymen. 12 ára
gamall var hann farinn að troða
upp á götum úti með tilrauna-
leikhópum. 19áragamall
ákvað Tim að hleypa heimdrag-
anum og flytjast til Los Angeles
þar sem hann innritaðist í leik-
listardeild UCLA-háskóIans.
Á námsárunum gekkst hann
fyrir stofnun tilraunaleikhúss
nemenda, var listrænn stjórn-
andi hópsins um skeið og lið-
lega tvítugur var Tim Robbins
tilnefndur sem Ieikstjóri til eft-
irsóttustu leikhúsverðlauna
stórborgarinnar.
Robbins hefur fengist við
kvikmyndaleik í á annan áratug
og leikið í myndum á borð við
Bull Durham, Jacob’s Ladder,
Cadillac Man, Miss Firecracker,
Five Corners, Erik the Viking,
The Sure Thing, Tapeheads
(þar sem hann samdi einnig
tónlistina), og farið með smá-
hlutverk í Top Gun og Jungle
Fever.
Undanfarin ár hefur vegur
Robbins farið vaxandi, bæði
sem leikara og leikstjóra. Und-
ir sljórn Roberts Altmans hefur
hann sýnt stórkostlegan leik í
þrígang, fyrst í The Player, en
fyrir aðalhlutverk í þeirri mynd
var hann valinn besti leikarinn
á kvikmyndahátíðinni í Cannes
árið 1992 og var tilnefndur til
Golden Globe-verðlauna. Sama
ár hlaut hann frábæra dóma
fyrir fyrstu kvikmyndina sem
hann leikstýrði og ritaði hand-
rit við, myndina um lýðskrum-
arann Bob Roberts og klifur
hans upp metorðastigann í
bandarískum stjórnmálum.
Árið 1993 sló Robbins enn f
gegn undir stjórn Altmans, nú
í Short Cuts, sem enn er sýnd
hér á landi og þá getur enginn
kennt frammistöðu hans í aðal-
hlutverki Hudsucker Proxy eft-
ir Coen-bræður um það að sú
mynd stóð ekki undir vænting-
um.
1994 var svo frumsýnd
myndin Shawshank Redempti-
on þar sem Robbins fór á kost-
um ásamt Morgan Freeman.
Þriðja verkefni hans í mynd
eftir Robert Altman var í fyrra
í myndinni Pret Porter.
Tilnefning hans til Óskars-
verðlauns sem leiksljóri Dauða-
maður nálgast er fyrsta tilnefn-
ing hans til þessara eftirsóttu
verðlauna en auk þess að leik-
stýra myndinni framleiddi
hann hana og skrifaði handrit-
ið.
Fjórar tilnefningar
á fimm árum
Susan Sarandon hefur sex
sinnum verið tilnefnd ti lÓsk-
arsverðlauna, þar af fjórum
sinnum á síðustu fimm árum,
sem besta leikkona í aðalhlut-
verki. Styttunni eftirsóttu hef-
ur hún hins vegar enn ekki
hampað. Fyrstu tilnefninguna
hlaut hún árið 1979 fyrir leik
á móti Burt Lancaster í mynd-
inni Atlantic City. Árið 1991
var hún tilnefnd fyrir hlutverk
sitt í Thelma & Lousie og árið
eftir fyrir Lorenzo’s Oil.
1994 varð leikur hennar
myndinni Client, þar sem hún
lék á móti Tommy Lee Jones,
til þess að tryggja henni fimmtu
tilnefninguna og nú bætir hún
enn einni rósinni í hnappagatið
með tilnefningunni fyrir leik
sinn í Dauðamaður nálgast. Það
verður því æ erfiðara fyrir
meðlimi akademíunnar að
ganga fram hjá þessari gæða-
leikkonu.
Susan Sarandon fæddist í
New York, eins og Tim Robb-
ins, en ólst upp í New Jersey.
Eins og Robbins er hún dóttir
dægurlagasöngvara en faðir
hennar gerðist síðar framleið-
andi sjónvarpsþátta og forsljóri
auglýsingastofu.
Fljótlega eftir háskólanám
þar sem hún lagði m.a. stund á
leiklist, en einnig stærðfræði,
heimspeki og hernaðarlist,
hlotnaðist Sarandon fyrsta
kvikmyndahlutverkið, í kvik-
mynd Johns G. Avildsens, Joe,
sem gerð var 1970. Hún lék í
TIM Robbins og Susan Sarandon ásamt Sean Penn.
TIM Robbins ásamt systur Helen Prejean, fyrirmynd
aðalpersónunnar í myndinni.
fjölda kvikmynda næstu árin.
Áf fyrstu myndum hennar má
nefna The Great Waldo Pep-
per, Lovin’ Molly, The Front
Page og The Rocky Horror
Show sem gerð var 1975.
Árið 1978 lék hún mömmuna
í mynd Lois Malle, Pretty Baby,
og árið eftir í Atlantic City, sem
Malle leikstýrði einnig. Hún
sneri sér síðan að sviðsleik um
nokkurra ára skeið, en sneri
aftur til Hollywood þegar hún
lék í Nornunum frá Eastwick.
Á eftir fylgdi Bill Durham,
Sweet Heart’s Dance og The
January Man. I White Palace
lék hún miðaldra gengilbeinu
sem verður ástfangin af ekkli
sem er 14 árum yngri en hún,
ekki ósvipað hlutverki hennar
í Bull Durham. Árið 1994 lék
hún í Little Women og næst
sést hún væntanlega á hvítu
tjaldi í í myndinni Safe Passage
á móti Sam Shepard.