Morgunblaðið - 17.03.1996, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 17.03.1996, Qupperneq 34
34 SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ IGHTYEARi TVEIR vinir; kúrekinn og geimfarinn lenda í ævintýrum. TIIKNIMYNDIR eru gerðar í höndunum og þannig hefur það verið frá því löngu áður Walt Disney gerði fyrsta ævintýrið um Mikka mús. Þar til núna. Fyrsta tölvuteiknaða teikni- myndin í fullri lengd var frumsýnd um síðustu jól í Bandaríkjunum. Hún heitir Leikfangasaga eða „Toy Story“, er framleidd af Disn- eyfyrirtækinu, sögufrægum fram- leiðanda teiknimynda, og græddi meira en Pocahontas, nýjasta Dis- neyteiknimyndin sem gerð er með hefðbundnum hætti. Kvikmynd- imar hafa fyrir margt löngu tekið tölvutæknina í þjónustu sína en aðeins litlir hlutar þeirra hafa ver- ið unnir í tölvu; Tortímandinn 2 og Júragarðurinn eru skínandi góð dæmi um hvemig tölvumar hafa losað um allar hömlur svo nú er hægt að kvikmynda það sem hug- urinn girnist. En bíómynd í fullri lengd gerð að öllu leyti á lykla- borði er nýmæli sem boðar bylt- ingu í gerð teiknimynda framtíðar- innar og jafnvel bíómynda al- mennt. Kúreki og geimfari Leikfangasaga var framleidd eins og hver önnur kvikmynd. Leikmyndir vom smíðaðar og Leikfangasaga er fyrsta teiknimynd Disney- fyrirtækisins sem gerð er alfarið í tölvu. Arnaldur Indriðason kynnti sér hvemig tölvumar bjuggu til teiknimynd, sem reyndist vinsælasta jólamyndin í Banda- ríkjunum og verður sýnd með íslensku tali hér á landi um páskana. MYNDIN er unnin að öllu leyti í tölvu; starfsmaður Pixar við skjáinn. málaðar og valin voru sjónarhorn fyrir upptökuvélar nema allt var það gert í tölvum. Persónur og leikmunir voru lýstir upp og yfír- borði þeirra breytt með tölvuskip- unum. Þegar teiknimyndir eru gerðar á hefðbundinn hátt liggur ómæld vinna að baki hverrar sek- úndu. Það sama á við um tölvu- teikningarnar. Myndin var fjögur ár í vinnslu en höfundar heniiar, sem höfðu getið sér góðan orðstír fyrir auglýsingar og stuttmyndir gerðar í tölvum, gengu með það í maganum áratugum saman að búa til bíómynd í fullri lengd. Þeir stjórna tölvufyrirtækinu Pixtar sem er í eigu Steven Jobs, stofn- anda Apple tölvufyrirtækisins, og gengu á fund yfírmanna Disney- fyrirtækisins árið 1991, sem tóku hugmynd þeirra vel. Joss Whedon („Speed“, „Alien 4“) er skrifaður fyrir lokahandriti en sagan varð til meðal starfsmanna Pixar og snerist.um sérstakt áhugamál leik- stjórans Johns Lasseters, leikföng. Aðalpersónumar eru tvær, kú- rekinn Woody, sem Tom Hanks talar fyrir, og geimfarinn Buzz ljósár, sem Tim Allen leikur. Wo- ody er af gamla skólanum verandi hefðbundinn kúreki. Hann er vin- sælasta leikfangið í eigu hins sex ára gamla Andys þar til Buzz kem- ur til sögunnar. Sá er ævintýraper- sóna úr geimnum búinn stillanleg- um vængjum, leysibyssu, arm- bandstalstöð og gæjalegri tölvu- gerðri röddu. Það fer einstaklega mikið í taugarnar á venjulega kú- rekanum þegar Buzz heldur því fram að hann sé ekki leikfang heldur geimferðalangur sem orðið hefur strandaglópur í leikfanga- safni Andys. Aðrir í leikfangasafn- inu eru m.a. Kartöfluhausinn (Don Rickles) og taugaveikluð grameðla (Wallace Shawn). Atvikin haga því svo til að Woody og Buzz lenda Qarri heimili Andys og þurfa að fmna leiðina heim og komast framhjá óteljandi hættum m.a. skemmdarvargnum Sid, sem hefur yndi af að eyðileggja leikföng. Fínstillingar og smáatriði Þungamiðjan í tölvumyndagerð- inni er fínstilling hreyfínganna. „Fínstillingin er það sem fær per- sónumar til að lifna við; þú bætir hálfri sekúndu við hreyfingu handleggs eða færð handlegginn til að snúast,“ segir Lasseter. „Að því leyti er vinnan með tölvuteikn- ingar einstök. Þú þarft ekki að byrja upp á nýtt og henda hundr- uðum teikninga ef þú vilt hnika einhveiju til.“ Listin er falin í smáatriðunum. „Maður þarf að hugsa fyrir öllum fylgihlutunum með hverri persónu. Buzz hefur t.d. vængi sem spretta aftur úr honum og glóa í myrkri og hann er góður í karate. Síðan er unnið með „leikinn“, hvernig Buzz gengur og tjáir sig. Þá er komið að gerð yfirborðsins og fundið út hvernig birta lendir á honum og hvernig hann lítur út þegar hann t.d. glóir í myrkrinu." Rétt eins og í hefðbundinni teiknimynda- gerð er unnið með grófteiknaðar hugmyndir í byijun. Tölvuteikn- ararnir fullkomna þær á tölvuskj- ánum með beinagrindum af fígúr- unum sem síðan eru alskapaðar í tölvunum. Um leið og byijað var að vinna við handritið var „útlit“ myndar- innar ákveðið. Höfundarnir leituð- ust við að hafa það eins raunveru- legt og unnt var með því að leggja áherslu á einskonar myndasögu- raunsæi þar sem farið var oní hvert smáatriði lýsingar og ann- arra tæknilegra atriða varðandi útlitið sem miðuðu að því að líkja mjög eftir raunveruleikanum. „Við unnum með hluti sem ekki voru raunverulegir en gerðum þá eins raunverulega og hægt var,“ er haft eftir Lasseter. „Markmiðið var ekki að láta alla halda að við hefðum farið út og tekið myndir á hefðbundinn hátt en útkoman er samt raunverulegra útlit en í öðrum teiknimyndum." Þegar gerðar eru teiknimyndir á hefð- bundinn hátt er búin til „biblía“ fyrir hveija persónu sem teiknar- amir geta gengið í þar sem geymdar eru allar upplýsingar um hreyfíngu og einkenni hennar frá öllum sjónarhornum. í Leikfanga- sögu var búið til „safn“ fyrir hveija persónu, hreyfingar hennar, göngulag og andlitsfall sem hægt var að kalla fram í tölvunni og laga að ólíkum kringumstæðum og sviðsbúnaði. Bætafjöldinn Hugbúnaðurinn sem notaður var við gerð Leikfangasögu var ÚR beinagrind í bíómynd; kúrekinn og umhverfi hans verður til í Leikfangasögu. c < í i i i < < ( ( ( I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.