Morgunblaðið - 17.03.1996, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Fósturmóðir mín,
ODDNÝ ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Hofströnd,
andaðist í Sjúkrahúsi Suðurnesja
15. mars.
Hún verður kvödd í kirkjunni í Ytri Njarð-
vík föstudaginn 22. mars kl. 13.00.
Sigmar Ingason.
t
Eiginmaður minn, faðir og afi,
KRISTJÁN SIGURÐUR AÐALSTEINSSON
fyrrv. skipstjóri á Gullfossi,
Kleifarvegi 7,
Reykjavfk,
lést í Landspítalanum 14. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Bára Ólafsdóttir,
Erna Kristjánsdóttir,
Kristján S. Guðmundsson,
Ólafur S. Guðmundsson.
Ástkær móðir^ okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
LÁRA QUÐMUNDSDÓTTIR,
Dalbraut 27,
áður Hringbraut 87,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
mánudaginn 18. mars kl. 15.00.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Gylfi Jónsson, Guðrún Bergsveinsdóttir,
Ólafur Rafn Jónsson, Danielle Somers,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum sýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför
HJARTAR JÓHANNSSONAR
fyrrv. vörubifreiðastjóra,
er lést 3. mars sl.
Guðmundina Guðmundsdóttir,
Unnur Hjartardóttir, Jóhann Guðmundsson,
Oddur R. Hjartarson, Soffía Ágústsdóttir,
Sigrún Hjartardóttir, Guðbjörg Guðjónsdóttir.
t
Alúðarþakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
JÓHANNS HÓLM JÓNSSONAR,
Réttarholtsvegi 35,
Reykjavík.
Elin Bjarnadóttir,
Kristinn B. Jóhannsson, Sigrún Einarsdóttir,
Hrönn G. Jóhannsdóttir, Gunnar Jóhannsson,
Jón A. Jóhannsson, Ólöf Stefánsdóttir,
Pétur Jakob Jóhannsson, Sigurborg I. Sigurðardóttir
og barnabörn.
t
Alúðarþakkir til ykkar allra, sem sýnduð
okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KARLS F. THORARENSEN
frá Gjögri,
Vallholti 20,
Selfossi.
Regína Thorarensen,
Hilmar F. Thorarensen, Ingigerður Þorsteinsdóttir,
Guðbjörg K. Karlsdóttir, Búi Þór Birgisson,
Guðrún E. Karlsdóttir, Rúnar Kristinsson,
Emil Thorarensen, Bára Rut Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
NOEL
JOHNSSON
+ Noel Johnsson
fæddist 7. júlí
1899. Hann lést á
heimili sínu í Pac-
ific Beach í Banda-
ríkjunum 21. jan-
úar síðastliðinn.
Þann 21. janúar
síðastliðinn lést Noel
Johnsson á heimili
sínu í Pacific Beach í
Bandaríkjunum, 96
ára að aldri. Hann
fæddist þegar meðal-
aldur karlmanna var
47 ár og kvenna að-
eins hærri. Foreldrar hans voru
bændur af norskum uppruna og í
æsku tók hann fullan þátt í erfiðum
bústörfunum líkt og aðrir í íjöl-
skyldunni. Lífið á smábænum ein-
kenndist af mikilli vinnu, hreinu
lofti og útvist en mataræðið var
óholit; sætar kökur, feitt kjöt, mest
brasað og steikt.
Noel gekk í herinn árið 1919 um
það leyti sem Bandaríkin hófu þátt-
töku sína í fyrri heimsstyijöldinni.
Hann tók hins vegar aldrei þátt í
bardögum því vopnahléi var komið
á áður en hann lauk þjálfun sinni.
í hemum hóf hann að stunda hnefa-
leika og æfði reglulega fram til
ársins 1941 að hann hætti alveg
skipulegri líkamsrækt. Noel reykti
og drakk töluvert magn af bjór líkt
og margir samlandar hans. Hann
sagði síðar að 38 ára gamall hafi
hann verið verulega mæðinn og oft
átt í öndunarerfiðleikum af völdum
reykinga.
Sjötugur var Noel Johnsson svo
illa farinn af hreyfingarleysi, röngu
mataræði og hjartasjúk-
dómi að hann sagðist
varla hafa getað lyft
sígarettunni að vörun-
um. Kona hans Zola og
hann höfðu ætíð verið
mjög samrýnd og
dreymt sameiginlega
dagdrauma um ferðalög
og ánægjulegt líf á eftir-
launaaldri. Þegar til
kom var Noel hins vegar
svo slappur að hann
varla treysti sér út úr
húsi. Zola veiktist alvar-
lega og dó.
Syni hans þótti nóg
komið og hvatti föður sinn til að
láta ekki fara eins fyrir sér. Noel
tók mark á orðum hans, leit á sjálf-
an sig í spegli og sá gamlan, of
feitan karl. Hann vildi ekki verða
byrði á fjölskyldu sinni og sneri
blaðinu við hóf líkamsæfingar af
miklum móð og gætti vel að matar-
æði sínu. Hann kynntist fljótlega
High Desert blómafrjókornum,
drottningarhunangi og propolis og
kvaðst þá hafa fundið æskubrunn-
inn. „Frjókomin eru hin fullkomna
fæða,“ sagði hann. Þá varð ekki
aftur snúið og frá sjötugu og fram
að níræðisaldri hljóp hann 21 mara-
þon og setti fjölmörg heimsmet í
sínum aldursflokki á hlaupabraut-
inni.
Níutíu og tveggja ára kláraði
hann New York maraþonið elstur
allra til að hafa lokið marþoni. Af
því tilefni sagði hann við frétta-
menn: „Við sköpum okkar eigin
örlög og getum orðið það sem við
viljum. Flest fólk á mínum aldri
getur ekki einu sinni gengið og
ÞORGRÍMUR
JÓNSSON
+ Þorgrímur Jónsson fæddist
í Höfn á Akranesi 27. mars
1913. Hann lést 10. mars síðast-
liðinn og fór útför hans fram
frá Akraneskirkju 15. mars.
Fyrir mörgum ámm kynntumst
við heiðurshjónunum Þorgrími og
Margréti á Kúludalsá.
Sameiginlegt áhugamál, hest-
amir, leiddu til langra og ánægju-
legra kynna. Oft var lagt af stað
úr Kalmannsvík og haldið sem leið
liggur að Kúludalsá. Móttökurnar
voru alltaf jafn hlýjar og góðar.
Þorgrímur og Margrét áttu marga
góða hesta og þó að hann væri að
mestu hættur að fara á bak, þá
hafði hann mikið yndi af því að
tala um hrossin sín og oft fórum
við með þeim að skoða hópinn
þeirra, einkum á vorin þegar litlu
folöldin voru komin.
En allt er þetta líf breytingum
háð.
Þú upplifðir mikla sorg við sonar-
missinn og varst þá orðinn sjúkur
sjálfur. Þá fundum við sem þekktum
þig vel að þú trúðir á hið eilífa líf,
svo styrkur varstu.
Við hjónin og böm okkar þökkum
þér allt, þú varst traustur maður
og vinur vina þinna.
Margrét mín og fjölskylda. Við
vottum ykkur innilegustu samúð
og biðjum guð að styrkja ykkur.
Samúel og Fjóla, Linda
og Guðni, Ólöf og Árni.
t
Eiginkona mín,
GUÐRÍÐUR GÍSLADÓTTIR,
Sléttuvegi 15,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum 4. mars sl.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Haraldur Einarsson.
t
Faðir okkar,
EGILL SIGURGEIRSSON
hæstarréttarlögmaður,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 14. mars.
Edda Urbancic,
Agla Egilsdóttir,
Ingibjörg Egilsdóttir,
Jón Axel Egilsson,
Guðrún Egilsdóttir.
Ásta Egilsdóttir.
þeir segja að ég hafi náð stórkost-
legum árangri. Hvað þýðir það?
Hvers vegna er það? Þannig þarf
það ekki að vera.“
Þessa lífsspeki sína áréttaði hann
í bók sinni Lifandi sönnun (The
Living Proof) sem við félagarnir
gáfum út í sameiningu í Bandaríkj-
unum árið 1989. Við kynntumst um
það leyti sem ég sjálfur fór að nota
fijókornin og drottningarhunangið
sem hann taldi sig eiga svo mikið
að þakka og á tveggja ára tímabili
ferðuðumst við um heiminn til að
kynna afurðir býflugunnar og
árangur Noels af notkun þeirra.
Við gerðum víðreist um Bandaríkin,
víða um Evrópu, meðal annars fór-
um við til allra Norðurlandanna og
síðast alla leið niður til Ástralíu.
Þar tóku allar sjónvarpsstöðvar
Ástrala á móti okkur og fjölluðu
mikið um allt sem við tókum okkur
fyrir hendur. Reyndar var sú raun-
in hvar sem við komum að fólk
flykktist um hann, spurði, spáði og
spekúleraði út í þennan einstaka
árangur sem þessi maður náði.
Eitt New York maraþon Noels
var mér heiður að kosta. Hann var
einstaklega kurteis og þægilegur í
viðkynningu og verður kannski best
lýst þannig að hann hafi verið hvers
manns hugljúfi. Noel kom til ís-
lands árið 1983 og hljóp Reykjavík-
ur maraþon. Margir Íslendingar
eiga góðar minningar um dvöl hans
hér.
Noel trúði því að svarið við flest-
um kvillum sem hijá mennina væri
að finna í náttúrunni. Læknar höfðu
dæmt hann nánast vesaling þegar
hann var 65 ára og hjartað svo
veilt að ekki væri vert að hann
reyndi einu sinni að slá blettinn við
húsið sitt og líftryggingarfélagið,
hans hafði ógilt trygginguna. Noel
sannaði að hægt er að snúa óheilla-
þróuninni við og taka sér tak á
hvaða aldri sem er. Hann taldi að
blómafijókomin innihéldu öll nær-
ingarefni sem líkaminn þarfnaðist
til endumýjunar og uppbyggingar
og sú vinna sem hann lagði í líkams-
rækt legði svo til það sem á vantaði.
Vísindamenn rannsökuðu hann
oft og gerðu á honum ótal tilraun-
ir. Áður hafði verið talið að hjarta
og æðaskemmdir gætu ekki gengið
til baka eða batnað eftir sjötugsald-
ur en Noel neyddi rannsóknarmenn
til að endurskoða þá kenningu.
Sjálfur sagðist hann ekki sjá neina
ástæðu gegn því að menn næðu 150
ára aldri og trúði því að blómafijó-
kornunum væri að þakka sú bót sem
orðin var á hjarta hans og krans-
æðakerfi. Fijókornin væru ein besta
fýrirbyggjandi meðferð sem völ
væri á en læknisfræðin væri of
upptekin af að greina og lækna
einkenni til að gefa gaum að slíku.
Vísindamenn og læknar kölluðu
hann Superman en Noel var alla
tið argur út í þann titil. Hann sagði:
„Sterkasta aflið í mannskepnunni
er sjálfsbjargarviðleitnin og ef þú
heldur áfram að gera það sama
alla tíð verður þú ætíð hinn sami.“
Hann var sannfærður um að hver
sem er gæti náð sama árangri og
hann sjálfur, vilji væri allt sem
þyrfti. I upphafi hefði hann oft ver-
ið kominn að því að gefast upp og
renna í sama farið aftur. „Versti
óvinur minn var ég sjálfur,“ sagði
hann, „en ég gerði mér grein fyrir
að ég yrði að hugsa sjálfstætt og
taka sjálfur ábyrgð á eigin heilsu.
Enginn annar gæti gert það fyrir
mig.“
Nú er þessi merki afreksmaður
látinn, af völdum hjartaáfalls að
vísu, en þijátíu árum seinna en
læknar spáðu fyrir um. Hann dó í
svefni án nokkurra veikinda og
aðeins örfáum árum frá því tak-
marki sínu að lifa tvenn aldamót.
Við hér á landi eigum góðar minn-
ingar um heimsókn hans hingað og
ekki síst þau okkar sem kynntumst
honum náið. Þessum orðum er ætl-
að að rifja upp gömul kynni og
mæra einstakan ljúfling. Lífsspeki
hans og viðhorf verða þeim sem
kynna sér þau ógleymanleg. Hann
á það sameiginlegt með norræna
guðinum okkar Þór að hafa tekist
á við Elli kerlingu og knésett hana.
Ragnar Þjóðólfsson.