Morgunblaðið - 03.05.1996, Blaðsíða 1
108 SÍÐUR B/C/D
99. TBL. 84. ÁRG. FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sorp-
hreinsun
á Everest
Kathmandu. Reuter.
FIMMTÁN nepalskir Ij'all-
"göngumenn hyggjast ganga á
Everest-tind í Himalaya-fjöllum
í næstu viku til að hreinsa burt
hluta af öllu því sorpi sem safn-
ast hefur þar fyrir. Hyggjast
mennirnir fjarlægja 1,5 tonn
af rusii, auk þess sem reyna á
að flytja þijú lík, sem sjást
nærri haugunum, niður.
Taiið er að um 16 tonn af
sorpi séu á fjallinu, m.a. súrefn-
istankar, tjöld, piast- og gas-
hylki ýmiss konar. Göngumenn-
irnir ætla sér 50 daga til verks-
ins og mun hver fara fimm ferð-
ir til South Col-búðanna sem
eru í 7.906 metra hæð.
Reuter
Verðlauna-
gripunum
fargað?
NAUTGRIPABÓNDINN Andy
Wilson lítur á verðlaunagripi sína
á Ayr-landbúnaðarsýningunni í
gær, en vera kann að hann neyð-
ist til að slátra þeim á næstunni
vegna áforma bresku stjórnarinn-
ar um að farga þúsundum naut-
gripa til að útrýma kúariðu. Slátr-
un er þegar hafin og fengu bænd-
ur einungis að vita með nokkurra
klukkustunda fyrirvara hvar og
hvernig nautgripunum verður
slátrað. Hafa þeir mótmælt þess-
um aðgerðum harðlega og kallað
þær „eitt allsherjar klúður“.
■ Breskir íhaldsmcnn/26
Jeltsín staðfest-
ir Tsjetsjníjuför
Moskvu. Reutcr.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
staðfesti í gær að hann hygðist haida
til Tsjetsjníju um miðjan mánuðinn
og að hann væri reiðubúinn að hitta
leiðtoga skæruliða að máli þar, að
sögn /nterfax-fréttastofunnar.
„í fyrsta lagi verð ég að færa
hermönnunum, sem hafa unnið mik-
ið starf, þakkir, í öðru Iagi ætla ég
að hitta ættarhöfðingjana og í þriðja
lagi að koma skriði á viðræðurnar,"
var haft eftir forsetanum.
Hinn nýi leiðtogi tsjetsjenskra
skæruliða, Zelimkhan Jandarbíjev,
kvaðst á miðvikudag vera reiðubúinn
að eiga viðræður við stjórnvöld í
Moskvu um friðsamlega lausn á
blóðbaðinu í Tsjetsjníju en í byijun
vikunnar komst á kreik orðrómur
um að Jandarbíjev hefði fallið.
Sergei Medvedev, blaðafulltrúi
Jeltsíns, útilokaði ekki að forsetinn
myndi hitta Jandarbíjev og Öllu,
ekkju hins látna leiðtoga skæruliða,
Dzokhars Dúdajevs, að máli í
Tsjetsjníju.
■ Heilög barátta/35
Bæjarsljórnarkosningar á Bretlandi
íhaldsmönn-
um spáð um
28% atkvæða
London. Reuter.
FYRSTU kosningaspár bentu til
þess að breski íhaldsflokkurinn hlyti
28% atkvæða í bæjarstjórnarkosn-
ingum, sem fram fóru á Bretlandi í
gær, en Verkamannaflokkurinn
44%. Fyrirfram var búist við því að
íhaldsmenn biðu afhroð í kosningum,
myndu tapa allt að helmingi þeirra
1.200 sæta í bæjarstjórnum sem
þeir héldu fyrir kosningar.
Um miðnætti höfðu íhaldsmenn
tapað 568 sætum, Verkamanna-
flokkurinn unnið 438 sæti og Fijáls-
lyndir demókratar" unnið 135 sæti.
Þá hafði tæpur helmingur atkvæða
verið talinn. Alls voru um tíu milljón-
ir manna, um fjórðungur breskra
kjósenda, á kjörskrá í gær.
Kosið var um 3.000 sæti í bæjar-
stjórnum. í síðustu kosningum í
sömu kjördæmum, árið 1992, hlutu
íhaldsmenn 42% atkvæða en Verka-
mannaflokkurinn 34%.
John Prescott, varaleiðtogi Verka-
mannaflokksins, sagði í gær að
helsta málefni kosninganna að þessu
sinni hefði verið „getuleysi þessarar
ríkisstjórnar og forsætisráðherr-
ans“. Michael Heseltine aðstoðarfor-
sætisráðherra sagði hins vegar að
árangurinn nú væri betri en í bæjar-
stjórnarkosningum í fyrra en þá
hlutu íhaldsmenn aðeins 25% at-
kvæða.
Skýr mynd af vilja kjósenda
Efna verður til þingkosninga í
Bretlandi fyrir mitt næsta ár og
voru kosningarnar í gær þær síðustu
sem fram fara þar í landi fyrir þann
tíma. Eru þær því taldar gefa skýra
mynd af vilja kjósenda og orðrómur
hefur verið á kreiki í breska þinginu
um að John Major forsætisráðherra
neyðist til að segja af sér bíði flokk-
urinn afhroð í kosningunum. Major
og aðrir ráðamenn í íhaldsflokknum
hafa vísað þessu á bug.
Höfnin
lokuð
Rússum
EINAR Johansen, formaður
deildar Norges Fiskarlag í Finn-
mörku, bendir á hluta þeirra
tæplega 90 fiskiskipa sem komu
í gær í veg fyrir að fimm rúss-
neskir togarar gætu siglt inn í
höfnina í Bátsfirði í norðaustan-
verðri Finnmörku. Vildu sjó-
mennirnir með þessu mótmæla
því að fiskvinnslufyrirtæki í
Norður-Noregi kaupi fisk af
Rússum en ekki norskum skip-
um. I samtali við Morgunblaðið
í gær sagði Johansen að þess
væri krafist að landanir erlendra
skipa á þorski yrðu bannaðar
tímabundið. Óljóst væri á þeirri
stundu hve lengi aðgerðirnar
myndu standa yfir og hvort þær
myndu breiðast út. Jan Henry
T. Olsen, sjávarútvegsráðherra
Noregs, beindi þeirri ósk í gær
til fiskvinnslunnar og samtaka
sjómanna- og útgerðarmanna að
þeir reyndu að komast að sam-
komulagi þar sem hætt sé við að
aðgerðirnar verði til þess að loka
verði fiskvinnsluhúsum á svæð-
inu.
■ Vilja tímabundið/24
• Scanfoto/Ola Magnus Rapp
Bosníu-Serbar vilja greiða fyrir samskiptum við Serbíu
Yjað að afsögn Karadzic
London. The Daily Tolegraph.
EINN af valdamestu stjómmálamönn-
um Bosníu-Serba gaf í gær til kynna
að mögulegt væri að Radovan
Karadzic, leiðtogi þeirra, og Ratko
Mladic, yfirmaður herafla Bosníu-
Serba, kynnu að segja af sér til að
greiða fyrir samskiptunum við Serbíu.
Þetta kom fram í samtali sem
RE771-fréttastofan átti við Momcilo
Krajisnik, forseta þings Bosníu-
Serba, og útvarpað var í gær. „Við
viljum ekki framfylgja stefnu sem
gengur þvert á vilja Serbíu og Svart-
fjallalands," sagði Krajisnik. „Við
vonumst til þess að geta átt náið
samstarf við leiðtoga þeirra - og
ef nauðsyn krefur munu þeir sem
fara með æðstu embætti í Serbneska
lýðveldinu [yfirráðasvæði Serba í
Bosníu] samþykkja að víkja fyrir
öðrum ... með því skilyrði að Serb-
neska lýðveldið haldi velli."
Mladic og Karadzic eru eftirlýstir
af stríðsglæpadómstólnum í Haag
og samkvæmt friðarsamkomulaginu
um Bosníu, sem náðist í Dayton á
síðasta ári, mega þeir ekki gegna
neinum opinberum embættum.
Báðir hafa lýst því yfir að það sé
á valdi bosnísk-serbneskra kjósenda
að velja sér leiðtoga en stefnt er að
kosningum í landinu í haust. Fyrir
tveimur mánuðum gaf Mladic í skyn
að hann kynni að bjóða sig fram í
kosningunum, þrátt fyrir ákvæði
friðarsamningsins.
*
Ahyggjur vegna
vanskapaðs lax
Ósló. Morgunblaðid.
VANSKAPAÐUR lax hefur valdið
fiskeldismönnum í Noregi miklu
fjárhagstjóni og áhyggjum. Er
talið að í nyrðri Þrændalögum
hafi tapast um 700 milljónir ísl.
króna vegna vanskapaðs fisks og
hyggjast Norðmenn nú hrinda af
stað umfangsmikilli rannsókn á
því hver orsökin er, að því er segir
í Aftenposten.
Enginn veit hvers vegna æ fleiri
eldislaxar klekjast út án sporðs
auk þess sem fjölmargir fískar eru
með aflagaða kjálka. Sérfræðing-
ar hafa þó útilokað að um vírus
eða smit sé að ræða. Ekkert er
athugavert við bragðið af fiskinum
en ekki fæst nema brot af fullu
verði fyrir hann sökum þessa.
Per Andersen fiskeldisráðu-
nautur getur sér þess til að um
5-10% eldislaxins sé vanskapaður.