Morgunblaðið - 03.05.1996, Blaðsíða 23
MORGUN BLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996 23
ÚRVERINU
Með fullfermi af ýsu eftir sólarhringinn út af Stafnesi
Mikil verðlækkun á inn-
lendum fiskmörkuðum
MOKÝSUVEIÐI hefur verið í troll
vestur af Stafnesi undanfarna tvo
sólarhringa eftir að hólf, sem verið
hafði lokað frá því í febrúar, var opn-
að á ný á miðnætti 1. maí. Fjölda
báta dreif að og hafa þeir verið að
fylla sig á skömmum tíma. Fyrstu
bátarnir voru komnir með fullfermi á
innan við sólarhringi og hófst löndun
í Grindavík og Sandgerði á miðnætti
í fyrrakvöld eða um leið og 1. maí,
löggiltur frídagur verkamanna, var
liðinn.
Bátarnir streymdu til hafnar til að
landa og héldu síðan flestir á ýsumið-
in á ný. Talsverður hluti aflans var
ísaður í gáma og sendur utan, en
annað fór á innlenda uppboðsmarkaði.
Meðalverð á ýsu var í gær hjá Fisk-
markaði Suðumesja 56,34 kr. og seld-
ist kílóið á allt frá 20 krónum og upp
í 92. Boðin voru upp 200 tonn af ýsu
í gær, en til samanburðar má geta
þess að ýsuverðið var sl. mánudag
109,54 kr. kílóið og fór síðan í 86,17
á þriðjudag. Þetta mikla verðhrun
má að hluta til skýra með offram-
boði, að sögn Erlings Jónssonar, upp-
boðshaldara. Hjá Fiskmarkaði Hafn-
aríjarðar var boðinn upp ýsuafli af
Drangavík og Ófeigi sem seldur var
á 66-71 kr. eftir stærð sem þýðir um
15-20% verðlækkun miðað við verð á
ýsu í byijun vikunnar.
Löndunarbið
„Það er lurkur, eins og sagt var í
gamla daga þegar nóg var að gera,“
var svarið á á hafnarvigtinni í Grinda-
vík þegar Verið leitaði þangað í gær,
en þá var löndunarbið vegna mikils
afla, sem borist hafði að landi og
skorts á körum. Átta trollbátar voru
að landa ýsu í Grindavík í gær auk
nokkurra smærri báta.
„Trollbátarnir eru að fylla sig á
sólarhring og landa þetta 50 til 70
tonnum hver, þeir sem em að físka
mest, og má segja að markaðurinn
sé fullur af fiski. Bátarnir fara síðan
strax á miðin aftur um leið og búið
er að útvega kör til að setja fiskinn
í, en um það bil 30 mílur eru á ýsum-
iðin eða tveggja til þriggja tíma stím.“
„Við fengum obbann af okkar afla
á einum sólarhring," sagði Emil Ág-
ústsson, stýrimaður á Sturlu GK, sem
landaði 70 tonnum af ýsu í Sandgerði
í gærmorgun og var aflinn allur sett-
ur í gáma og sendur út til að freista
þess að fá hærra verð en búist var
við hér heima vegna mikils ýsufram-
boðs á mörkuðum. „Óhætt er að segja
að nokkuð sé um liðið síðan maður
hefur séð svona mikið mok, nokkur
ár að minnsta kosti. Þetta er allt stór
og góð ýsa.“
Sturla var kominn að landi klukkan
fimm í gærmorgun til að landa og
hélt á ný á miðin kl. elíefu. Emil sagði
að veiðin hafi farið fremur rólega af
stað og fremur trekt í fyrstu holum
flestra, en þegar líða tók á morgun-
inn, hafi þessi gegndarlausi mokstur
byijað.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞINGANES SF 25 landaði 40 tonnum af ýsu í Hafnarfirði um
miðjan dag í gær. Áhöfnin stillti sér upp með sýnishorn af aflanum.
2U4U
„Það sem af er fiskveiðiárinu, hef-
ur ýsuaflinn frekar valdið vonbrigðum
heldur en hitt og það stefnir í með
sama áframhaldi að ekki náist að
veiða upp í útgefinn ýsukvóta, sem
er 60 þúsund tonn. Tillögur Hafrann-
sóknastofnunar fyrir ýsu hljóðuðu upp
á 55 þúsund tonn, en með framreikn-
ingi miðað við sömu aflabrögð, verður
aflinn ekki nema 50 þúsund tonn á
yfirstandandi kvótaári," segir Einar
Jónssonn, fiskifræðingur hjá Haf-
rannsóknastofnun.
„Á fyrstu sjö mánuðum yfirstand-
andi fiskveiðiárs, frá septemberbyijun
til marsloka, var ýsuaflinn 16% minni
en á sama tíma á síðasta fiskveið-
iári. Aflabrögð hafa verið mun lélegri
í ýsunni en menn áttu von á. Það er
því ágætt að heyra fréttir af afla-
hrotu nú sem líklega helgast af því
að hólfið var opnað og líklegt að þetta
standi ekki lengi yfir.
Skýringanna er ekki að leita í gríð-
armikilli stofnstærð því útreikningar,
sem verið er að vinna að þessa dag-
ana, benda til þess að ýsustofninn sé
minni heldur en við álitum í fyrra.
Svona aflaskot eru alþekkt ef fiskur
safnast einhvers staðar sarhan. Það
þarf ekki að vera í neinum tengslum
við stofnstærð," segir Einar Jónsson.
Rússatogari
sigldi yfir
troll Har-
aldar Krist-
jánssonar
RÚSSNESKA skipið V. Brodyuk
M6 0021 fór í trollið á Haraldi
Kristjánssyni HF-2 á Reykjanes-
hrygg í fyrrinótt. Við það rifnaði
belgurinn frá niður í poka og einn-
ig tvö byrði.
Við fyrstu skoðun vantaði ekk-
ert í netið, en ástandið var metið
svo að það væri alltof rnikil vinna
að laga það um borð þannig að
varatroll skipsins var tekið í notk-
un.
Gátu ekkibeygt
Atburðurinn átti sér stað með
þeim hætti að rússneska skipið dró
Harald Kristjánsson uppi stjórn-
borðsmegin og fór- yfir trollið 0,4
sjómílum fyrir aftan hann. „Þeir
gátu ekkert beygt undan honum
útaf umferð,“ segir Guðmundur
Þórðarson, útgerðarstjóri Sjóla-
skipa hf.
„Það var kallað á hann og hann
beðinn að draga úr ferð til að af-
stýra þessu, en hann var með
ókurteisi í tilsvörum og heimtaði
að okkar skip beygði frá honum í
bak. Það var ekki hægt vegna
skipa sem voru að koma á móti.“
Aðspurður um hvort hann teldi
að þetta hefði verið viljandi gert
sagði hann aðeins að Rússar væru
erfiðir í samskiptum. „Við munum
koma þessu á framfæri við viðeig-
andi aðila hér heima,“ bætti hann
við.
VINKLAR Á TRÉ
HVERGI LÆGRI VERÐ
ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR
OG KAMBSAUMUR
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
. ^ EINKAUMBOÐ
98 Þ.Þ0RGRIMSS0N & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 553 8640
1
m!
NUNARTILBOfl
íþrótt
VERS LUN!
Skipholti 50d (nýja husid)
sími 562 0025
r
OG FJOLDA ANNARHA IÞROTTAVARA
Opið á morgun frá 10:00 til 16:00.