Morgunblaðið - 11.05.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.05.1996, Blaðsíða 1
88 SIÐUR LESBOK/C/D/E/F 106. TBL. 84. ÁRG. LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Kennslustund í Kóreusögu LEIKSKÓLAKENNARI í Suður- Kóreu með barnahóp við stríðs- minjasafn í Seoul í gær, í baksýn er skriðdreki af gerðinni M-l, smíðaður í Bandaríkjunum. 43 ár eru liðin siðan mannskæðu striðinu við norðanmenn lauk en sérhver kynslóð er látin læra um styijöldina við kommúnista með aðstoð kennslubóka og heim- sókna á borð við þessa. Hundruð þúsunda manna féllu í átökunum, þar af rúmlega 50.000 Banda- ríkjamenn. P.V. Narashima Rao biðst lausnar í Indlandi Útiloka ekki stuðn- ing við vinstristjórn Nýju Dehli. Reuter. SHANKAR Dayal, forseti Indlands, féllst í gær á afsagnarbeiðni forsæt- isráðherrans, P.V. Narasimha Rao, sem baðst lausnar fyrir sig og ríkis- stjórn sína vegna ósigurs Kongress- flokksins í þingkosningunum. Tveir þriðju hlutar atkvæða höfðu verið taldir í gær og þá var ljóst, að Kongressflokkurinn myndi bíða afhroð. Samkvæmt kosninga- spám verður Bharatiya Janat, flokkur þjóðernissinnaðra hindúa, stærstur með um 175-180 þingsæti af 545. Þjóðfylkingunni - vinstri- fylkingunni, laustengdu bandalagi vinstri- og kommúnistaflokka, er spáð 140-150 sætum og Kongress- flokknum 130-140 sætum. Leiðtogar Janataflokksins sögð- ust í gær eiga að fá umboð til stjórn- armyndunar. í kjölfarið lýsti Þjóð- fylkingin - vinstrifylkingin því yf- ir að hún byggist við því að ná samkomulagi við smáflokka og óháð framboð. Það yrði stærsta flokkabandalagið á þingi og ætti því að fá fyrst umboð til stjórnar- myndunar. Leiðtogar Kongressflokksins kváðust í gær myndu íhuga það að styðja vinstrimenn, svo fremi sem þeir myndu ekki hverfa frá umbóta- stefnu núverandi stjómar í efna- hagsmálum. Vinstriflokkamir hafa sagst vilja reisa skorður við erlend- um fjárfestingum. Sótt að Rao Afhroð Kongressflokksins í kosn- ingunum hefur orðið til þess að andstæðingar Raos innan flokksins hafa sótt mjög að honum. Hafa þeir krafist þess að starfsnefnd flokksins komi saman sem fyrst til að ræða slæmt gengi flokksins í kosningunum. S agði umhverfisráðherrann Raj- esh Pilot að ástæða væri til að ræða „allt, einnig spurninguna um leiðtogann". Á morgun, sunnudag, er leiðtogakjör í Kongressflokknum og hefur Rao, sem er 74 ára, gefið í skyn að hann hyggist ekki draga sig í hlé. Takmarka vopnaeign Canberra. Reuter. SAMKOMULAG hefur tekist milli ríkisstjórnar Ástralíu og fylkis- stjórna um takmörkun á eign og meðferð skotvopna. Samkvæmt lögum, sem taka gildi á næstu vikum, verða sjálfvirkir og hálfsjálfvirkir rifflar bannaðir og einnig haglabyssur með pumpu- hleðslu. Innflutningur slíkra vopna verður bannaður strax og senn verða sett lög sem meina mönnum að eiga, selja, endurselja, varðveita, framleiða og nota slík vopn, að sögn Johns Howards forsætisráðherra. Eigendur bannaðra skotvopna hafa eitt ár til að skila þeim inn en eftir þann tíma varðar það sjálf- krafa fangelsisvist að eiga sjálfvirk skotvopn í Ástralíu. Fylkisstjórnirn- ar hyggjast borga fyrir vopn sem skilað verður. Er kostnaður áætlað- ur a.m.k. J00 milljónir Ástralíudala, eða 5,4 milljarðar króna. Waigel biðlar til Michaels Jacksons Bonn. Reuter. THEO Waígel ijármálaráðherra Þýskalands skrifaði poppstjöm- unni Michael Jackson opið bréf, sem birtist í blaðinu Bild í gær, og bað hann þar lengstra orða að hætta ekki við tónleikaferð til Þýskalands síðar á árinu. Jackson sagðist í vikubyrjun vera hættur við ráðgert tónleika- hald í Þýskalandi vegna nýrra skattalaga sem kvæðu á um ofur- sköttun erlendra skemmtikrafta. Samkvæmt þeim yrði lagður skattur á brúttótekjur af tónleik- unum en kostnaður við tónleikana, svo sem ljósa- og hljóðkerfið sem er dýrt í uppsetningu og flutning- um, fengist ekki frádreginn. Þarf þijár júmbóþotur til að flytja sviðs- búnaðinn frá Bandaríkjunum og 30 stóra flutningabíla til að flytja hann um Evrópu. Waigel sagði að skattalögunum yrði breytt með afturvirkni frá 1. janúar sl., sem gerði það að verkum að Jackson fengi kostnað frádreginn frá tekjum áður en skattur yrði lagður á, rétt eins og um þýska listamenn væri að ræða. „Kæri Michael Jackson," skrifar Waigel fjármálaráðherra. „Þér ættuð að endurskoða ákvörðun yðar um að hætta við tónleikaför um Þýskaland. Ástæðulaust er að hætta við hana vegna skatta,“ sagði í bréfinu þar sem breyting- arnar á skattalögunum voru út- listaðar. Jackson heimsækir skemmti- garð í Köln í dag og er búist við að hann tilkynni þá hvort hann fer að áskorun Waigels og syngur fyrir Þjóðveija, en hann nýtur gíf- urlegra vinsælda í Þýskalandi. Atök í flótta- manna- búðum TIL átaka kom í flóttamanna- búðum í Hong Kong í gær er þúsundir Víetnama, sem senda á aftur til heimalands- ms, kveiktu í hluta búðanna. Fólkið reynir með öllum ráðum að koma í veg fyrir að því verði vísað frá Hong Kong og er Whitehead- búðirnar stóðu í ljósum logum tókst um 200 flóttamönnum að flýja þær. Yfirvöld í Hong Kong sendu þegar óeirðalögreglu á staðinn og lýstu því yfir í gær að átökin myndu ekki koma í veg fyrir að flóttafólkið yrði sent heim. Ciller and- víg stjórn- arslitum Ankara. Reuter. FLEST benti til þess í gær að flokk- ur Tansu Ciller, fyrrverandi forsæt- isráðherra Tyrklands, myndi ekki slíta stjórnarsamsamstarfi hægri- flokkanna tveggja um sinn vegna ótta við að íslamski Velferðarflokk- urinn kæmist til valda. Flokksbræður Ciller í Flokki hins sanna vegar (DYP) urðu ókvæða við þeirri ákvörðun margra þing- manna Föðurlandsflokksins (ANAP) að snúast á sveif með Velferðarflokknum í atkvæða- greiðslu á þinginu í fyrradag. Þá var samþykkt með miklum meiri- hluta atkvæða að skipa nefnd til að rannsaka meinta spillingu Ciller þegar hún var forsætisráðherra á árunum 1993-96. Hluti þingmanna DYP lagði að Ciller að slíta stjórnarsamstarfinu en hún kvaðst hafa sagt að það væri þjóðinni fyrir bestu að stjórnin héldi velli um sinn. Ciller hefur sagt að með því að slíta stjórnarsamstarfinu myndi flokkur sinn ganga í gildru Velferð- arflokksins, sem vilji fella stjórnina til að geta knúið fram kosningar eða myndað nýja stjórn með Föður- landsflokknum. Óvinveitt rannsóknarnefnd Nefndin, sem á að rannsaka spill- ingarmálið, er einkum skipuð and- stæðingum Ciller. Nefndin á að taka afstöðu til þess hvort leiða eigi hana fyrir rétt vegna ásakana um að hún hafi notað aðstöðu sína til að hagn- ast á einkavæðingu bílafyrirtækis- ins TOFAS. Verði hún sótt til saka getur hún ekki orðið forsætisráð- herra á næsta ári, eins og stjórnar- flokkarnir höfðu samið um. Margir fréttaskýrendur eru þeirrar skoðunar að stjórnin falli vegna innbyrðis átaka, það sé að- eins spurning um tíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.