Morgunblaðið - 11.05.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 19
ERLENT
Verkamenn efna til mótmæla í Gdansk
Ákall tíl ríkis
úr vígi Samstöðu
Gdansk. Reuter.
Bandaríkjamenn ásaka leiðtoga íraks
Segja Saddam
ausa fé í hallir
o g lystisnekkju
New York. Reuter.
Armani
dæmdur
ÍTALSKI tískukóngurinn Gi-
orgio Armani var í gær dæmdur
i níu mánaða skilorðsbundið
fangelsi og
honum var
gert að
greiða 100
milljónir líra,
jafnvirði 4,2
milljóna
króna, í rétt-
arhöldum
yfir mörgum
af þekktustu
tískufrömuðum Ítalíu. Armani
var á meðal níu sakborninga sem
játuðu að hafa greitt skatteftir-
litsmönnum mútur gegn því að
fá vægari dóma. Tíu aðrir höfn-
uðu slíku samkomulagi og dæmt
verður í máli þeirra síðar. Ar-
mani hefur þegar greitt sektina.
Bresk stríðs-
glæparétt-
arhöld í janúar
DÓMARI í Lundúnum ákvað í
gær að réttarhöld yfir 85 ára
manni, sem er sakaður um stríðs-
glæpi í Hvita-Rússlandi í síðari
heimsstyijöldinni, skyldu heflast
6. janúar. Szymon Serafinowicz
er sakaður um að hafa drepið
þrjá gyðinga en kveðst saklaus
af sakargiftunum. Hann er fyrsti
maðurinn sem sóttur er til saka
samkvæmt umdeildum lögum um
stríðsglæpi sem samþykkt voru
í Bretlandi árið 1991.
Kwasniewski
í sókn
ALEKSANDER Kwasniewski,
forseti Póllands, nýtur nú vax-
andi stuðnings meðal Pólverja,
ef marka má
skoðana-
könnun sem
birt var í
gær. Sam-
kvæmt henni
eru 64% Pól-
veija ánægð
með frammi-
stöðu forset-
ans, eða tíu
prósentustigum fleiri en í sams-
konar könnun fyrir mánuði.
Kwasniewski er fyrrverandi
kommúnisti en lýsir sér nú sem
jafnaðarmanni.
Múslimar
handteknir
FRANSKA lögreglan handtók í
gær 47 araba, sem grunaðir eru
um að hafa séð heittrúuðum
múslimum, sem berjast gegn
stjóminni í Alsír, fyrir fölsuðum
persónuskilríkjum. Mennimir
vom handteknir í París, Mar-
seille og Reims. Engin vopn
fundust í aðgerðinni.
400.000 rottur
drepnar
ÍBÚAR í borginni Shenyang í
norðausturhluta Kína hafa drep-
ið um 400.000 rottur frá því í
mars, þegar yfirvöld hófu her-
ferð gegn rottum til að stemma
stigu við sjúkdómum sem raktir
eru til meindýranna. íbúarnir fá
sem svarar 8 krónum fyrir hvern
rottuhala sem þeir afhenda. Einn
íbúanna hefur afhent 6.000
rottuhala og fjölskylda nokkur
veiddi 1.000 rottur á einu kvöldi,
að sögn fréttastofunnar Xinhua.
STARFSMENN skipasmíðastöðv-
ar í Gdansk, þar sem Samstaða
var stofnuð, efndu í gær til mót-
mæla á götum borgarinnar og
kröfðust þess að ríkið veitti fyrir-
tækinu fjárhagsaðstoð til að
bjarga því frá gjaldþroti.
Rúm 3.000 af 7.200 starfs-
mönnum skipasmíðastöðvarinnar
tóku þátt í mótmælunum og kröfð-
ust þess einnig að séð yrði til þess
að þeir fengju launin greidd á rétt-
um tíma. Skipasmíðastöðin hefur
ekki getað greitt laun síðasta
mánaðar og er að sligast undan
skuldum, er nema sem svarar 7,5
milljörðum króna. Ríkisstjómin
hefur neitað að koma fýrirtækinu
til aðstoðar.
„Ef stjórnvöld sýna okkur ekki
skilning verðum við að grípa til
sömu aðgerða og í ágúst 1980,“
sagði Jerzy Borowczak, forystu-
maður starfsmannanna, og vísaði
til verkfallanna sem leiddu til
stofnunar Samstöðu, fyrstu fijálsu
verkalýðssamtakanna í kommún-
istaríkjunum fyrrverandi í Mið- og
Austur-Evrópu.
Borowczak skipulagði verkföllin
árið 1980 ásamt Lech Walesa, sem
varð leiðtogi Samstöðu og síðan
fyrsti forseti Póllands eftir hran
kommúnismans.
Kaldhæðnisleg staða
Borowczak sagði það kald-
hæðnislegt að fyrirtækið, sem
hleypti af stað breytingum er
leiddu til hrans kommúnismans
árið 1989 og markaðsumbóta,
skuli nú vera að riða til falls vegna
þeirra.
Ríkisstjórnin, sem er skipuð
fyrrverandi kommúnistum og
bandamönnum þeirra, neitar að
verða við kröfum Samstöðumanna
um ríkisafskipti til að koma skipa-
smíðastöðinni til hjálpar. „Ef til-
raunir til að fínna fjárfesta bera
ekki árangur verður skipasmíða-
stöðin í Gdansk að falla,“ sagði
Reuter
STARFSMENN skipasmíða-
stöðvar í Gdansk á mótmæla-
fundi þar sem þeir kröfðust
þess að ríkisstjórnin kæmi
stöðinni til hjálpar og að laun,
sem þeir eiga inni, verði
greidd án tafar.
Wieslaw Kaczmarek, einkavæð-
ingarráðherra vinstristjómarinn-
ar.
Ráðherrann kenndi leiðtogum
Samstöðu um ófarir skipasmíða-
stöðvarinnar. „Ef menn vilja leita
að sökudólgum tel ég að leiðtogar
Samstöðu ættu að líta í eigin barm
og skamma stjóm stöðvarinnar,
sem þeir skipuðu sjálfír.“
Ríkisstjómin vill selja tvo þriðju
af 60% hlut ríkisins í skipasmíða-
stöðinni en henni hefur ekki tekist
að finna kaupendur.
Walesa var skráður að nýju sem
rafvirki í skipasmíðastöðinni í síð-
asta mánuði en hóf ekki störf þar
sem þingið varð við kröfu hans
um að hann fengi eftirlaun sem
fyrrverandi forseti. Tilraunir hans
til að fá fyrirtæki í Bandaríkjunum
til að fjárfesta í skipasmíðastöð-
inni bára ekki árangur.
YFIR hálf milljón bama hefur látið
lífið í írak frá því að Sameinuðu þjóð-
irnar, SÞ, lýstu yfir viðskiptabanni á
landið fyrir fímm árum. Á sama tíma
hefur Saddam Hussein, leiðtogi
landsins eytt yfír einum milljarði
Bandaríkjadala, um 66 milljörðum
ísl. kr., í byggingu 48 nýrra halla
og lystisnekkju, að því er fullyrt er
í fréttaþættinum „60 mínútum" sem
sýndur verður á sunnudag í Banda-
ríkjunum.
I þættinum segir að viðskiptabann
SÞ hafí valdið skorti á matvælum,
lyflum og vatnshreinsibúnaði sem
hafi orðið til þess að barnadauði
hafi fímmfaldast.
Haft er eftir mannréttindahópum
að 567.000 börn undir fimm ára aldri
hafí dáið frá því að viðskiptabannið
tók gildi en upplýsingamar byggir
hópurinn á tölum frá Matvæla- og
landbúnaðarstofnun SÞ (FAO).
Fréttamenn „60 mínútna" ræddu
einnig við Madeleine Albright, sendi-
herra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum, sem viðurkennir að það,
sem átt hafí sér stað í írak, sé vissu-
lega harmleikur. „En við vitum að
hann [Saddam] ver ótrúlegum fjár-
upphæðum í þá hluti sem honum
þykja máli skipta,“ segir Albrigt og
sýnir fréttamanni myndir af 122
metra lystisnekkju sem leiðtoginn er
sagður eiga. Ekki var upplýst hvem-
ig Bandaríkjamenn komust yfir
mynd af skipinu. Auk skipsins nefndi
Albrigt byggingu 48 halla og sagði
áætlað að kostnaðurinn væri um einn
milljarður dala.
-----♦—♦—4------
Flóttamanna-
skipi vísað
ábrott
Abidjan. Reuter.
HRÓRLEGT flutningaskip í níger-
ískri eigu sigldi frá hafnarborginni
San Pedro á Fílabeinsströndinni
áleiðis til Ghana á fimmtudagskvöld
með nær 6.000 líberíska flóttamenn
um borð. Stjómvöld í landinu leyfðu
nokkrum konum og bömum sem
voru í skipinu að verða eftir en óttuð-
ust að meðal karlanna væru liðsmenn
stríðandi fylkinga í Líberíu og kröfð-
ust þess að skipið, Bulk Challenger,
héldi á brott.
Flestir flóttamennirnir héldu
áfram með skipinu, sem er í slæmu
ásigkomulagi, illa lyðgað og veruleg-
ur leki var kominn að því er það kom
til borgarinnar á þriðjudag. Starfs-
menn hjálparstofnana bentu á að
skipið væri ekki haffært en stjóm-
völd í höfuðborginni Abidjan létu
skoðunarmenn gefa út skírteini svo
að hægt væri að vísa skipinu á brott.
MIÐANN FÆRÐU
HJÁ
NONDA ClViC 1.4 Si
Tiestöfl
sdmeinar glœsilegt útlit
óviðjdfnanlega aksturseiginleika,
ríkulegan staðalbúnað,
mikil gC&ðí og
einstaka hagkvœmni i rekstn.
Verðið stenst alian samanburð
Honda Clvlc 1.4 Sl er búinn 90 hestafla 16 ventla vél meö tölvustýrðri fjölinnsprautun.
Upptak er 10.8 sek. í 100 km/klst meöan eyöslan viö stöðugan 90 hraöa er aöeins 5,4 lítrar á 100 km.
Honda Civic fylgja rafdrifnar rúður og speglar, þjófavöm, samlæsingar, vökva- og veltistýri,
útvarp/segulband, sporlinnrótting, samlitir stuöarar og spoiler, sem er meö innbyggðu bremsuljósi, o.fl.
Styrktarbitar eru í hurðum. Lengd: 419**cm. Breidd: 169,5 cm. Hjólhaf: 262***cm.
Tveggja ára alhliöa ábyrgö fylgir öllum nýjum Honda bifreiöum og þriggja ára ábyrgð er á lakki.
Tökum aöra bíla uppí sem greiöslu og lánum restina til allt aö fimm ára.
'álfelgur eru aukabúnaöur á mynd. **stærstur f sýnum flokki. ***mesta hjólhaf í millistærðarflokki.
1.304.000,-
(H
VATNAGARÐAR24
S: 568 9900