Morgunblaðið - 11.05.1996, Blaðsíða 9
mm
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGURll.MAÍ 1996 9
FRETTIR
110 sjóbirtingar í
opnun úr Filjarflóði
LJÓMANDI góð veiði hefur verið í
Fitjarflóði í Grenlæk fyrstu veiði-
dagana. Eftir að vísindamenn og
hópur stangaveiðimanna höfðu veitt
og merkt yfir 400 sjóbirtinga, tóku
menn til við venjulegan veiðiskap.
Fyrsta hálfa daginn veiddust 15
fiskar, en fiskur var fremur tregur
enda orðið kalt. „Svo hlýnaði strax
daginn eftir, hitinn komst í 10 stig
og veiðin glæddist um leið. Það er
mikill fiskur á svæðinu og því hrökk
takan í gang um leið og hlýnaði.
Þetta var mjög góð veiði, 110 fisk-
ar á fjórar stangir á tveimur dög-
um. Það veiddust einnig 10-12 fisk-
ar fyrsta daginn á svæði 3, í svo-
kölluðum Skurði,“ sagði Agnar
Davíðsson á Fossum, formaður
Veiðifélags Grenlæks í samtali við
Morgunblaðið.
Agnar sagði að fiskur hefði að
jafnaði verið mjög vænn, mest 2-5
punda, en menn hefðu verið að tala
um fiska allt að 9 pund i aflanum.
Eingöngu er veitt á flugu, enda eru
leigutakamir Stangaveiðifélagið Ár-
menn sem leyfir ekki annað innan
sinna vébanda. Agnar sagði að auki,
að veiðimenn hefðu veitt og sleppt
aftur 30 merktum sjóbirtingum.
Elliðaárnar ekki uppseldar
Athygli hefur vakið, að veiðileyfi
eru ekki uppseld í Elliðaánum fyrir
komandi vertíð og hefur slíkt vart
átt sér stað um langt árabil. Sam-
kvæmt úttekt SVFR á óseldum
veiðileyfum dagsettri 6. maí síðast
liðinn voru milli 20 og 30 hálfs
DAÐI Harðarson með 4 punda
sjóbirting úr Fitjarflóði.
dags stangir óseldar. Það er að
heyra á áhugamönnum um stanga-
veiði, að skýringarnar á þessari
nýlundu séu ýmsar og hver úr sinni
áttinni.
Fyrst má nefna að í júní er nær
öll veiðin frá Sjávarfossi og niður
að sjó en á því svæði er nú mikið
rask vegna brúarsmíðar. Þá hafa
göngur verið að seinka sér í Elliða-
árnar síðustu ár, þannig var óvenju
slök veiði þar í júní í fyrra þó bú-
ast megi við hinu gagnstæða í ár
vegna góðs árferðis. Loks telja
menn að þeir séu til sem vilja ekki
veiða í ánum vegna kýlaveikiniiar
sem kom þar upp í fyrra.
Veiðimálastofnun í hálfa öld
Veiðimálastofnun er fimmtug á
þessu ári og í tilefni þess verður
sitthvað gert til hátíðarbrigða. Dag-
ana 16. til 19. maí, er Veiðimessan
haldin í Perlunni og sem fyrr verða
flestir þeir aðilar og fyrirtæki sem
að stangaveiði koma með einum eða
öðrum hætti með kynningarbása á
messunni og þar í hópi verður Veiði-
málastofnun. „Þeir verða með mikið
rými og myndarlegan kynningarbás.
I tilefni af afmælinu hef ég óskað
eftir því við Árna ísaksson veiði-
málastjóra, að hann flytji ávarp við
setningu messunnar," sagði Stefán
Á. Magnússon forstöðumaður mess-
unnar í samtali við Morgunblaðið.
Leiðrétting
Sú villa slæddist í „Eru þeir að
fá ’ann?“ þar sem fjallað var um
vaxandi aðgengi innlendra veiði-
manna í ár í Þistilfirði, að Svisslend-
ingurinn Ralph Doppler leigði veiði-
rétt í Hafralónsá. Það er ósatt,
leigutími hans rann út í fyrra og
tók þá við ánni franskur auðjöfur
að nafni Montebe. Eru hlutaðeig-
andi beðnir velvirðingar á mistök-
unum.
Glæsilegt
gróðurhús
meö gleri!
Verð 48.750 kr.
RÁBGJÖF
SÉRFFIÆÐINGA
UM GARÐ-
OG GRÓBUR
GRÓÐURVÖRUR
VERSLUN SÖLU FÉLAGS GARÐÝRKJUMANNA
Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími: 554 321 1
NYJAR HUSGAGNASENNNGAR
Mikið úrval af lútuðum furuhúsgögnum, sófasettum,
hornsófum, kommóðum, skenkum o.fl., o.fl.
- Tilvalið í sumarhúsið -
Opið í dag frá kl. 10-14
HÚSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100
■
■
■
Kynning í dag á hljóðkerfum
fyrir heimili og stærri staði
Yfirburðahátalarar
á öllum sviðum!
Bose er löngu viðurkennt af fagfólki á
tónlistarsviðinu sem yfirburðahátalarar í
hljómgæðum. Ekki eru þeir síður vinsælir vegna
þess hve ótrúlega fyrirferðarlitlir þeir eru.
Bose leggur jafnmikið upp úr að framleiða
framúrskarandi hljóðkerfi fyrir skemmtistaði.
diskótek, hljómsveitir, félagsheimili og ráðstefnusali
og fyrir stofuna heima hjá þér. Korndu á kynninguna
hjá okkur í dag og við lofum þér einstakri
tónlistarupplifun.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 00