Morgunblaðið - 11.05.1996, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Traust staða Lífeyrissjóðs Norðurlands
Hrein eign 9,5 milljarðar
HREIN eign Lífeyrissjóðs Norður-
lands til greiðslu lífeyris nam í árslok
1995 samtals 9,5 milljörðum króna
og hafði vaxið um 13,7% frá fyrra ári.
Iðgjöld til sjóðsins á síðasta ári
námu samtals 640 milljónum króna
og hækkuðu um 7,5% á milli ára.
Samtals greiddu 10.384 félagsmenn
hjá 955 launagreiðendum til sjóðsins
á árinu, þar af greiddu 6.106 iðgjöld
allt árið og hefur þeim fjölgað um
3% frá fyrra ári.
Lífeyrisgreiðslur sjóðsins námu
254 miHjónum króna og hækkuðu um
ríflega 18% milli ára. Fjöldi lífeyris-
þega í desember síðastliðnum var
1.724 og hafði fjölgað um 89 milli ára.
Rekstrarkostnaður sjóðsins nam
0,27% af eignum og 3,87% af iðgjöld-
um. Hrein raunávöxtun sjóðsins nam
7,13% á árinu, en sambærilega tala
fyrir árið 1994 var 7,29%.
Framkvæmt hefur verið trygginga-
fræðilegt mat á stöðu sjóðsins í árslok
1995 en samkvæmt því eru eignir
sjóðsins um 8% umfram verðmæti
áunninna lífeyrisréttinda sjóðfélaga.
Úttektin byggir á því að sjóðurinn
nái a.m.k. 3,5% raunávöxtun til lengri
tíma. Miðað er við dánarlíkur út frá
reynslu áranna 1986-1990 og danska
reynslu af örorkulíkum, en íslenskar
tölur eru ekki til um það efni. Sam-
kvæmt þessu á sjóðurinn vel fyrir
skuldbindingum og er staða hans
traust til lengri tíma litið.
Aðalfundur Lífeyrissjóðs Norður-
lands verður haldinn í Alþýðuhúsinu
18. maí næstkomandi.
MESSUR
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta
á morgun, sunnudag kl. 11 og á Seli
kl. 14.
GLERÁRKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14, sr. Guðmundur Guðmundsson
þjónar.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Bænastund
kl. 19.30, almenn samkoma kl. 20,
krakkaklúbbur kl. 17, lofgjörðarsam-
koma kl. 20.30 á uppstigningadag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Samkoma
í umsjá ungs fólks kl. 20.30 í kvöld,
vakningasamkoma á morgun, sunnu-
dag, ath. breyttan tíma, biblíulestur
kl. 20.30 á miðvikudag og bæn og
lofgjörð kl. 20.30 á föstudag.
KAÞÓLSKA kirkjan, Eyrarlandsvegi
26, messa í dag, laugardag kl. 18 og
á morgun, sunnudag kl. 11.
♦ ♦ ♦
Vortónleikar
yngri nema
VORTÓNLEIKAR standa nú yfír í
Tónlistarskólanum á Akureyri,
yngstu nemendur skólans og nem-
endur í píanódeild hafa þegar haldið
tónleika en á morgun kl. 15 verða
vortónleikar yngri nemenda á sal
Gagnfræðaskólans. Þar koma fram
nemendur á fyrri stigum hljóðfæra-
náms í einleik og minni hópum. Fram
koma nemendur á strengjahljóðfæri,
blásturshljóðfæri, gítar, píanó og
slagverk. Allir velkomnir og aðgang-
ur ókeypis.
Heilsað upp
á ærnar
BJARKI, sem er lítill gutti á
Akureyri, fór í sína fyrstu
heimsókn í fjárhús á dögunum
og ekki annað að sjá en kind-
urnar á Hrísum í Eyjafjarðar-
sveit kunni vel að meta félags-
skap hans. Með Bjarka í för
var systir hans, Selma, sem
fylgist sposk með Stefáni vini
sínum, en hann er alvanur að
fara í fjárhús - hjá ömmu og
afa á Svalbarði f Þistilfirði þar
sem hann á sjálfur ána Móru.
s
umarlistaskólim
á Akureyri
Skapandi frelsi - ögun og næmi.
Myndlist - leiklist - dans - ritlist - kvikmyndagerð.
Skapandi og örvandi leiðbeinendur....Möguleik á heimavist.
Innritun hafin.
Fyrir 10 til 13 ára....16. júní til 30. júní.
Fyrir 14 til 16 ára....21. júU til 4. ágúst.
Fyrir fuilorðna í myndlist 25. ágúst til 1. sept.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 462 2644
(Ath.: Takmarkaður fjöldi þátttakenda). örn Ingi,
Klettagerði 6, Akureyri.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hug’arfar og
hagvöxtur
STEFÁN Ólafsson prófessor og
forstöðumaður Félagsvísinda-
stofnunar Háskóla íslands flytur
opinn fyrirlestur við Háskólann á
Akureyri næstkomandi þriðjudag,
14. maí í stofu 24 í húsnæði há-
skólans við Þingvallastræti.
Stefán fjallar um efni nýútkom-
innar bókar sinnar; Hugarfar og
hagvöxtur. Menning, þjóðfélag og
framfarir á Vesturlöndum. í bók-
inni leitast hann við að þróa kenn-
ingu sem skýrt gæti helstu þjóðfé-
lagslegu forsendur efnahags-
framfara. Þá spyr hann hvort þær
þjóðir sem minni hagsældar njóta
hafi markvert öðru vísi hugarfar
en hinar hagsælli. Einnig mun
Stefán ræða um hugarfar Islend-
inga í þessu samhengi og forsend-
ur framfara hér á landi miðað við
önnur vestræn ríki.
Amtsbókasafnið
Opið á laugar-
dögum í maí
AMTSBÓKASAFNIÐ á Akureyri
verður opið á laugardögum fram
til 8. júní næstkomandi en það er
gert til að bæta þjónustu við bæj-
arbúa. Áður var safnið lokað á
laugardögum í maímánuði.
Safnið verður opið frá kl. 10 til
15 síðdegis en virka daga er opið
frá kl. 13 til 19 og verður svo í
allt sumar. 1. september er síðan
fyrirhugað að lengja afgreiðslu-
tímann og hafa opið á morgnana.
Útskriftar-
tónleikar
ANNA Lea Stefánsdóttir heldur
útskriftartónleika á sal Tónlistar-
skólans á Akureyri næstkomandi
þriðjudagskvöld, 14. maí kl. 20.30.
en þeir eru liður í 8. stigs prófi
sem hún er að ljúka. Á tónleikun-
um leikur hún verk eftir J.S.Bach,
W.A.Mozart, G. Bacewicz, A.
Katsatúrían og Jón Nordal. Helga
Bryndís Magnúsdóttir leikur með
á píanó. Anna Lea er fædd árið
1976, hún hóf fiðlunám 9 ára göm-
ul í Borás í_ Svíþjóð en eftir heim-
komuna til ísland hefur Anna Pod-
hajska verið aðalkennari hennar.
Hún hefur einnig notið tilsagnar
Krzysztofs Wegrzyn í Hannover
og Szymonar Kuran. Hún hefur
leikið með Kammerhljómsveit Tón-
listarskólans á Akureyri og Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands. Anna
Lea lýkur stúdentsprófí af tónlist-
arbraut Menntaskólans á Akureyri
nú í vor. Aðgangur að tónleikunum
er ókeypis og allir velkomnir.
Vörtónleikar
Kórs MA á Sal
KÓR Menntaskólans á Akureyri
heldur árlega vortónleika á Sal á
morgun, sunnudaginn 12. maí, kl.
17. A efnisskránni er nýtt lag og
nýjar útsetningar eftir Hróðmar
Inga Sigurbjömsson auk laga úr
ýmsum áttum.
Kór Menntaskólans skipa nú ein-
göngu stúlkur, en nokkrir piltar
komu þó við sögu í vetur. Á tónleik-
unum á morgun verða eingöngu
fluttar útsetningar fyrir kvenraddir.
Kórfélagar sem eru í hljóðfæranámi
taka þátt, Hulda Sif Birgisdóttir
leikur á píanó, Sigríður Hrefna
Pálsdóttir á saxófón og Hildur Inga
Rúnarsdóttir leikur eigin tónsmíðar
á píanó. Undirleikari er Karl 01-
geirsson og stjómandi Ragnheiður
Ölafsdóttir. Aðgangseyrir er 300
krónur.
Kveldúlfskór-
inn í Deiglunni
KVELDÚLFSKÓRINN í Borgar-
nesi heldur tónleika í Deiglunni á
Akureyri í dag, laugardaginn 11.
maí kl. 17. Á efnisskrá kórsins em
m.a. þekkt íslensk lög og syrpur
af vinsælum Vínarlögum. Ein-
söngvarar með kómum em Miriola
Kowalczyk, mezzósópran, Kristín
Ágústsdóttir, sópran og Snorri
Hjálmarsson, tenór. Stjómandi er
Ewa Tosik-Warszawiak og undir-
leikari Jerzy Tosik-Warszawiak.
Danssýning
DANSSÝNING Ballettskólans á
Akureyri verður á morgun, sunnu-
daginn 12. maí kl. 17 í Gryfju
Verkmenntaskólans á Akureyri.
Yngri og eldri nemendur ballett-
skólans sýna ballett, modem og
djass. Danshöfundur er Asako Ichi-
hashi. Tónlist flytur Nicole Vala
Cariglia ásamt slagverksnemend-
um Tónlistarskólans á Akureyri.
Aðgangseyrir 400 krónur fyrir eldri
en 6 ára.
Aðalfundur
AðaKundur Lífeyrissjóðs Norðurlands verður haldinn laugardaginn
18. maí 1996 í Alþýðuhúsinu á Akureyri (Skipagötu 14) og hefst kl.
13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Reglugerðarbreytingar.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Allir greiðandi sjóðfélagar, svo og elli- og örorkulffeyrisþegar eiga rétt
til setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétti. Þeir sjóðfélagar, sem
hyggjast nýta sér þennan rétt, eru beðnir um að tilkynna það til aðal-
skrifstofu sjóðsins á Akureyri (sími 461 2878) eða svæðisskrifstofanna
á Húsavík (sími 464 1301), Sauðárkróki (sími 453 5433), eða Blönduósi
(sími 452 4932), eigi síðar en 15. maí naestkomandi.
Þeir sjóðfélagar, sem vilja kynna sér fyrirliggjandi breytingartillögur á
reglugerð sjóðsins, geta fengið þær á skrifstofum hans, eða fengið þær
sendar í pósti. Reikningar sjóðsins liggja frammi á skrifstofum hans frá
20. apríl 1996 fyrir þá sjóðfélaga, sem vilja kynna sér þá.
Stjórn Lífeyrissjóðs Norðurlands.
Heillaóskaskrá
Gísli Jónsson, fyrrverandi menntaskólakennari, á í júní næstkomandi 50 ára stúd-
entsafmæli. Af því tilefni verður gefið út afmælisrit Gísla til heiðurs, er hefur að
geyma úrval íslenskuþátta hans úr Morgunblaðinu. Þeir, sem myndu vilja fá ritið
keypt (en það kostar kr. 3.990), og jafnframt nafn sitt skráð á heillaóskalista er í
bókinni verður, er hér með boðið að fylla út þennan seðil og senda eða að öðrum
kosti að hringja í síma 462-2515.
Ritnefndin
(í ritnefndinni sitja eftirtaldir: Haraldur Bessason, fyrrverandi rektor Háskólans á
Akureyri, Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, Lárus
Zophoníasson, yfirmaður Amtsbókasafnsins á Akureyri, Jóhannes Nordal, fyrrverf-
andi Seðlabankastjóri, Matthías Johannessen, ritstjóri, Sigurður J. Sigurðsson,
bæjarfulltrúi á Akureyri, Sigurður Eggert Davíðsson cand. mag., Tómas Ingi Olrich,
alþingismaður og Jón Hjaltason, sagnfræðingur).
Nafn/nöfn (eitt eöa tvö)
Heimili.
Sími.
Póstnúmer/staöur.
Sendist til Bókaútgáfunnar Hóla, pósthólf 427, 602 Akureyri.