Morgunblaðið - 11.05.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 13
Gagnfr æðaskólinn á Akureyri
Stundvísum
nemendum
umbunað
með pítsu-
veislu
UM 140 krakkar í Gagnfræða-
skólanum á Akureyri upp-
skáru ríkulega á síðasta
kennsludegi skólans í gær
þegar þeim var umbunað
fyrir góða skólasókn í vetur
með veglegri pítsuveisiu.
Nýtt mætingakerfi var tek-
ið í notkun síðasta haust og
þá jafnframt tilkynnt að þeir
sem það stæðust fengju pítsu-
veislu að vori. Þeir nemendur
sem fengu fimm punkta eða
minna var boðið til veislunnar
en í hvert sinn sem komið er
of seint í tíma fengu nemend-
ur tvo punkta. Forráðamenn
skólans áttu alls ekki von á
að svo margir hefðu sýnt þetta
góða ástundun, „fjöldinn kom
okkur eiginlega í opna
skjöldu," sagði Baldvin Jóh.
Bjarnason skólastjóri, en grip-
ið var til þess ráðs að leita
hagstæðra tilboða frá pítsu-
stöðum bæjarins.
Ekki leiddist þessum stund-
vísu nemendum að njóta þjón-
ustu kennara sinna meðan á
málsverði stóð, en þeir þjón-
uðu til borðs og stóðu sig með
stakri prýði. Alls hurfu 72
pítsur ofan í mannskapinn og
höfðu starfsmenn Ding Dong
vart undan að aka matföngun-
um í svanga unglingana.
LÍNEYj Jóhanna, Halla Sigríður og Sigríður, Guðrún, Petra, Birna
og Olafia Kristín eru allar í 10. bekk og sólgnar í pizzur.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
ELÍN handmenntakennari ásamt Ingvari Karli, Birni, Gunnari
Val, Jóhanni og Helga Heiðari úr 8. bekk.
Akureyrarbær
Skipulag á Oddeyri
Með vísan til 17. greinar skipulagslaga og greinar 4.4 í skipu-
lagsreglugerð auglýsir Akureyrarbær tillögu að deiliskipulagi
suðurhluta Oddeyrar og breytingu á staðfestu aðalskipulagi.
Skipulagssvæðið afmarkast af Strandgötu í suðri, Eiðs-
vallagötu í norðri, Glerárgötu í vestri og Hjalteyrargötu í
austri.
Meginmarkmið tillögunnar eru m.a. að styrkja stöðu hverf-
isins sem íbúðarbyggðar, að viðhalda og styrkja megin-
einkenni byggðarinnar, bæta yfirbragð hennar og fjölga
íbúðum, m.a. með því að fylla í eyður og skörð í bæjarmynd-
inni.
í tillögunni felast breytingar á aðalskipulagi Akureyrar
1990-2010 þar sem opið svæði meðfram Hjalteyrargötu er
að hluta tekið undir íbúðarbyggð og útivistarsvæði austan
leikskólans að Iðavöllum er lagt við lóð leikskólans.
Skipulagsuppdráttur ásamt skýringarmyndum og greinar-
gerð liggur frammi almenningi til sýnis á Skipulagsdeild
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 8 vikur frá
birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til mánudagsins 8. júlí
1996, þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna
og gert við hana athugasemdir. Athugasemdafrestur er til kl.
16, 8. júlí 1996 og skal athugasemdum skilað til
Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar. Þeir, sem telja sig verða
fyrir bótaskyldu tjóni vegna skipulagsgeróarinnar, er bent á
að gera athugasemdir við tillöguna innan tilgreinds frests,
ella teljast þeir samþykkir henni.
Skipulagsnefnd Akureyrar mun halda almennan kynningar-
fund um skipulagstillöguna þriðjudaginn 14. maí kl. 20.30 í
húsi aldraðra, Lundargötu 7. íbúar og húseigendur á skipu-
lagssvæðinu eru hvattir til að mæta og kynna sér tillöguna.
Skipulagsstjóri Akureyrar.
Hvers vegna yfir
2500
íslendingar
hafa talið
Hyundai
besta kostinn!
Gerið eigin samanburð,
þið komist eflaust að sömu
niðurstöðu.
Ilijf2
ÁRMÚLA 13, SlMI: 568 1200
BEINN SlMI: 553 1236
Búnaður í Accent Gls
Bein innspýting
Stafræn klukka
AM/FM útvarp með 4 hátölurum
Fjarstýrð opnun á bensínloki
Fjarstýrð opnun á farangursrými
Rafstýrðar rúðuvindur (framan)
Tveggja hraða þurrkur
með biðrofa og rúðusprautu
Afturrúðuhitari
Heilir hjólkoppar
Samlitir stuðarar
öflugri ökuljós
Hallastillt framsæti í sleða
Hallastilling á setu hjá ökumanni
og bakstuðningur
Stillanleg hæð öryggisbelta við framsæti
Miðstokkur með geymslu fyrir kassettur
Alklætt farangursrými
Inniljós
Það er vandi að velja sér
nýjan bíl og það krefst
talsverðrar fyrirhafnar að
bera saman kosti mis-
munandi bíla.
Á þeim fjórum árum sem Hyundai bílar
hafa verið á íslenska bílamarkaðinum, hafa yfir 2500
íslendingar eignast Hyundai. Með öðrum orðum komist að þeirri
niðurstöðu að Hyundai sé besti kosturinn að teknu tilliti til allra
þátta.
Verö frá
949.000
kr. á götuna
<@>
HYunom
tíl framtíðar