Morgunblaðið - 11.05.1996, Page 14

Morgunblaðið - 11.05.1996, Page 14
14 LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 LANDIÐ VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Hilmar Sigurjónsson FRÁ aðalfundi Atvinnuþróunarfélags Austurlands. Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, voru gestir fundarins og fluttu þar erindi um nauðsyn á stofnun héraðsháskóla á Austur- landi. Sveinbjöm taldi að grunnmennt- un íslendinga væri góð en hvað æðri menntuin varði þá væri við eftirbátar annarra þjóða. Þetta yrðu framhaldsskólar og háskólar að við- urkenna og bregðast við ef ekki ætti illa að fara. Sérstaklega þyrftu skólamir að bæta sig hvað varðar kennslu tungumála og raungreina. Þorsteinn Gunnarsson viðraði hugmyndir um þijár mögulegar gerðir háskóla fyrir Austuriand. í fyrsta lagi sjálfstæða stofnun í lík- ingu við Háskólann á Akureyri. I öðm lagi einkarekinn háskóla og í þriðja lagi stofnun sem rekin væri í samvinnu eða samstarfi við Há- skólann á Akureyri og Háskóla ís- lands. Eitt er nauðsynlegt að þeirra mati. Stutt nám á háskólastigi sem sinnir atvinnulífinu með stuttum námsbrautum, endurmenntun og símenntun. Gengið til samninga við Einar Má Egilsstöðum - Á fundi stjómar Skólaskrifstofu Austurlands var ákveðið að ganga til samninga við Einar Má Sigurðarson einn þriggja umsækjenda um starf for- stöðumanns Skólaskrifstofu Austurlands sem augfyst var laust til umsóknar. Einar Már hefur gegnt starfi skóla- meistara Verkmenntaskólans í Neskaupstað. Aðrir um- sækjendur um stöðu for- stöðumanns voru Berit Jo- hnsen og Sigurbjörn Marin- ósson. Skólaskrifstofa Austurlands verður með að- setur á Reyðarfirði og gert er ráð fyrir að forstöðumaður taki til starfa í byijun júní. Þróunarstofa Aust- urlands sett á stofn Vel sótt kynning á Islandi sem fj árfestingarkosti í Þýskalandi Á MYNDINNI má m.a. sjá þá Pál Kr. Pálsson, forstjóra Sólar, Finn Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Ingimund Sig- fússon sendiherra. * Ahugi fyrir frek- ari kynningum LIÐLEGA 80 þýskir fjárfestar voru viðstaddir kynningu á íslandi sem fjárfestingarkosti í Dusseldorf nýverið. Sýndu fjárfestarnir því mikinn áhuga að haidnar yrðu fleiri slíkar kynningar, þar sem kastljós- inu væri beint að einstökum at- vinnugreinum. Meðal annars hefur verið rætt um sérstaka kynningu á ferðaþjónustu hér á landi og hugsanlega kynningu á sjávarút- vegi í tengslum við sjávarútvegs- sýningu hér á landi í haust. Að sögn Kristínar S. Hjálmtýs- dóttur, hjá Þýsk-íslenska versl- unarráðinu, sem var meðal að- standenda þessarar kynningar, var þátttakan mun betri en búist hafði verið við. Fjöldi ijárfesta víða að í Þýskalandi hafi sótt þennan fund. Þeirra á meðal hafi verið fulltrúar frá Volkswagen, utanríkisráðu- neytinu I Bonn, þýskum bönkum, flugfélögum og fyrirtækjum tengdum ferðaþjónustu og sjávar- útvegi. Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ávarpaði fundargesti og ræddi m.a. um við- horf stjómvalda til erlendra íjár- festinga á íslandi og þær laga- breytingar sem í vændum væru á takmörkunum á erlendum fjárfest- ingum hér á landi. Sagði hann að stjórnvöld teldu slíka fjarfestingu mjög mikilvæga til þess að tryggja hér hagvöxt. Finnur ræddi einnig um þann árangur sem náðst hefði í því að auka stöðugleikann í efnahagslíf- inu og nefndi í því sambandi að ísland væri nú eitt fárra Evrópu- ríkja sem uppfyllti öll skilyrði sem sett væru fyrir þátttöku í evrópska myntbandalaginu. Fjölmargir fulltrúar viðskipta- lífsins hér á landi kynntu fundar- mönnum viðskiptaumhverfið hér á landi. Þeirra á meðal voru Páll Kr. Pálsson, forstjóri Sólar, Ingi Bogi Bogason, frá Samtökum iðnaðar- ins, Þorvarður Alfonsson, forstjóri Iðnþróunarsjóðs. Þá ræddi Christ- ian Roth, forstjóri ÍSAL, um kosti og galla íslands sem fjárfestingar- kosts fyrir erlenda fjárfesta og fyrirtæki. Það voru Þýskríslenska verslunar- ráðið, sendiráð íslands í Bonn, Fjár- festingarskrifstofa Útflutningsráðs og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og þýska iðnaðar- og verslunarráð- ið í Nordrhein-Westfalen sem stóðu að þessari kynningu. Reyðarfirði - Á aðalfundi Atvinnu- þróunarfélags Austurlands sem haldin var fyrir skömmu á Reyðar- firði var sett á stofn Þróunarstofa Austurlands. Þeir sem stóðu að stofnun hennar voru auk Atvinnu- þróunarfélag Austurlands, At- vinnuþróunarsjóður Austurlands, SSA, og Byggðastofnun. Samningur var gerður milli þess- ara aðila en hann hefur verið í smíðum frá því í haust. Atvinnuþró- unarsjóðurinn og Atvinnuþróunar- félagið munu leggja til 5,5 milljónir á ári og Byggðastofnun 8 milljónir á ári í þrjú ár. Þróunarstofan mun hafa aðsetur á Seyðisfirði og við hana munu starfa 4 starfsmenn; forstöðumaður, ferðamálafulltrúi, fulltrúi í erlendum samskiptum við útlönd og skrifstofustjóri. Gunnar Vignisson, sem er atvinnuráðgjafi Atvinnuþróunarfélags Austurlands, mun veita stofnuninni forstöðu og Kristófer Ragnarsson, sem verið hefur ferðamálafulltrúi á Austur- landi, mun gegna því starfi innan þessarar nýju stofnunar. Þróunar- stofan verður undir umsjón At- vinnuþróunarfélags Austurlands. Egill Jónsson, formaður stjómar Byggðastofnunar, tók fram í tölu sem hann hélt við þetta tækifæri, að frumkvæðið væri heimamanna og hann gleddist yfir áhuga og krafti aðstandenda. Hann sagði Byggðastofnun hafa fengið Há- skóla íslands og Háskólann á Akur-. eyri með í dæmið, þaðan kæmi þekkingin og ráðgert er að Þróunar- stofan og framhaldsskólarnir á Austurlandi vinni náið með háskól- unum næstu árin. Nauðsyn á stofnun héraðsháskóla Þeir Sveinbjörn Björnsson, rektor Háskóla íslands, og Þorsteinn Morgunblaðið/Ágúst Blöndal FREMSTIR FYRIR VERÐ 0G GÆÐI ©merísku Starcraft fellihýsin og pallhús- in eru ekki aðeins á góðu verði því gæðin eru ósvikin. Einnig Camp-let tjaldvagnarnir sem hafa reynst svo vel hér um áraraðir og eru fádæma traustir. Skoðaðu líka fortjöldin, ferða- IjlMJlIMU og gasvöruna eða hjólhýsin sem við útvegum beint sjip^ frá framleiðenda. íclaO® C»SLI JÓNSSON ehf Bíldshöfða 14 112 Reykjavík S. 587 6644 Síldarnót féll þvert yfir umferðargötu Neskaupstað - Það óhapp vildi til hjá skipverjum á Berki þegar þeir voru að flytja síldarnót frá Netagerðinni á Höfn að nótin féll af vagninum sem flutti hana og lenti hún þvert yfir aðalum- ferðargötu bæjarins. Ekki hlaust neitt slys af en gatan var lokuð nokkurn tíma vegna þessa. SAS býður 66% íEstonian Air Stokkhólmi. Reuter. SAS hefur boðið í 66% hlutabréfa í eistneska flugfélagið Estonian Air, sem það vill gera að arðbæru flugfélagi búnu vestrænum flug- vélum, en með eistnesku yfir- bragði. SAS býður upp á sameign til langs tíma og lofar að leggja fram 20 milljóna dollara viðbótarfjár- magn í eistneska flugfélagið. Tallinn-banki, danskur fjárfest- ingarsjóður fyrir Austur-Evrópu - Gœðavara Gjaldvaid — matai- og kaíiislell. Heim AIIii verðllokkar. ^ m.a.l dverslunin Laugavegi 52, s. 562 4244. Heimsíiægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. og Swedfund International AB standa að tilboðinu auk SAS. Tilboðið býður upp á möguleika á samvinnu Estonian Air og lett- neska flugfélagsins Air Baltic, sem SAS, danski Ijárfestingarsjóðurinn og Swedfund eiga í. Samkvæmt tilboðinu mun eist- neska ríkið eiga 34% í félaginu, SAS 28% og Tallinn-banki 17%, en fjárfestingarsjóðirnir 10,5% hvor. Estonian Air heldur uppi flugi til Skandinavíu, Norður-Evrópu og fyrrverandi lýðvelda gömlú Sovétríkjanna, aðallega með Bo- eing 737 vélum. Félagið var rekið með 2.17 milljóna dollara tapi 1995 og er meðal þeirra fyrir- tækja sem eistneska stjórnin hyggst einkavæða. SAS fækkar ferðum Jafnframt hefur SAS tilkynnt að ferðum félagsins verði fækkað um 3% vegna skorts á flugmönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.