Morgunblaðið - 11.05.1996, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 21
IMEYTENDUR
Morgunblaðið/RAX
AÐ sögn framleiðanda hafa konur komið fyrstar í mark í 5 kíló-
metra hlaupi með barn og Baby Jogger kerru með sér.
Bamakerra á
þremur hjólum
BANDARÍSKU BabyJogger
barnakerrurnar eru nú fáanleg-
ar hérlendis í póstverslun. Um-
boð hefur María Ellingsen, sem
segir kerrurnar henta einkar vel
fyrir íslenskar aðstæður og eng-
in hætta sé á að þær sitji fastar
í möl, sjó, grasi og sandi.
Kerrurnar eru ætlaðar börn-
um frá 8 vikna til fimm ára, eða
þar til þau verða 34 kg. Kerran
er fislétt með þremur stórum,
grófum hjólum og, að sögn Mar-
íu, hönnuð til að komast allt á
göngu og hlaupum. Hægt er að
leggja hana saman með einu
handtaki og setja hana í skottið
á bílnum.
Á grind kerrunnar, sem er úr
áli, er lífstíðarábyrgð, en árs-
ábyrgð á hjólum og sæti. Sætið
er úr þykkum, nylon-segldúk,
sem má selja í þvottavél, hjólin
úr stáli, 40 sm breið, dekkin
grófmynstruð og fyllt með lofti.
Á kerrunni er handbremsa til
að auðvelt sé að hafa sljórn á
hraðanum ef farið er niður
brekku.
Baby Jogger barnakerran er
til í fjólubláu, rauðu og bláu.
Verðið er 29.500 kr. og fáanlegt
með kerrunni er skermur, regn-
hlíf og karfa. Hægt er að sér-
panta tvöfalda og þrefalda kerru
og tengivagn við hjól. Hjá um-
boðinu er síminn og símbréfs-
númerið 562-9589.
Brjóstamjólk
og botnlangi
EKKI er vitað með vissu hvers
vegna sumir fá botnlangabólgu og
aðrir ekki, en nýlegar ítalskar rann-
sóknir benda til að næring á fyrstu
mánuðum geti skipt máli í þessu
sambandi. Ekki alls fyrir löngu
greindi ítalska tímaritið Grazia frá
rannsóknum á tengslum næringar
og sjúkdóma, sem gerðar voru við
Santobono-sjúkrahúsið í Napólí.
Niðurstöður þeirra benda til að börn
fá bijóstamjólk í að minnsta kosti
fjóra mánuði eiga síður á hættu að
fá botnlangabólgu en þau sem fá
duftamjólk.
Gönguskór
við Umferðarmiðstöðina
Sími: 551 9800 og 551 3072
Til væntanlegra frambjóðenda
í forsetakosningum 29. júní 1996
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur kemur saman til fundar í
Ráðhúsi Reykjavíkur þriðjudaginn 21. maí 1996 kl.
15.00 til að gefa vottorð um meðmælendur forseta-
framboða skv. 4. gr. laga nr. 36/1945 um framboð og
kjör til forseta (siands.
Þess er óskað að frambjóðendur, ef unnt er, skili
meðmælendalistum með nöfnum meðmælenda úr
Reykjavík til formanns yfirkjörstjórnar Jóns Steinars
Gunnlaugssonar hrl., Skólavörðustíg 6b, Reykjavík,
föstudaginn 17. maí eða mánudaginn 20. maí 1996 svo
unnt sé að undirbúa vottorðsgjöf yfirkjörstjórnar.
Reykjavík, 9. maí 1996
f.h. yfirkjörstjórnar í Reykjavík
Jón Steinar Gunnlaugsson.
wmt _ ^
við Stakkahlíð, sími 568 5540
laugardaginn 11. maí kl. 21.00.
Félag Harmoníkuunnenda í Reykjavík
HELDUR ÓSVIKIÐ GÖMLUDANSABALL
Hljómsveit Guðmundar og Hilmars.
Hljómsveit Þorvaldar Björnssonar
ósamt Kolbrúnu Sveinbjörnsdóttur.
Hljómsveit Þórleifs Finnssonar
ásamt Hjálmfríði Þöll.
TIL HAMINGJU ALLIR STOLTIR
NÝIR BALENO EIGENDURI
IBALENO
AIMMNGIN í SÖLU HELDUR
ÁFRAM:ÍDAG ERUB6 SEWIRJ
Vandaður 3-dyra BALENO fyrir aðeins 1.140.000,-kr.
4-dyra BALENO fólksbíll fyrir aðeins 1.265.000,- kr.
MEÐ: 86 hestafla 16 ventla vél • vökvastýri • veltistýri •
samlæsingum • rafdrifnum rúðuvindum • rafstýrðum
útispeglum • útvarpi/segulbandi með 4 hátölurum • upp-
hituðum framsætum • öryggisloftpúðum fyrir ökumann
styrktarbitum í hurðum • sam-
Komdu við í dag og við skulum sýna
þér afhverju nýir eigendur
eru svo áruegðir með Suiuki
Baleno sem hefur slegið svo
rœkilega í gegn 1996 l
og farþega í framsáeti
litum stuðurum.
SUZUKI
Afl og öryggi
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.