Morgunblaðið - 11.05.1996, Síða 23
Eru
þetta
Burgar-
dætur’?
Eru fyrirsætur
eins og fólk er
Eru þetta
Borgardætur,“
spyr heldri
maður í heita pottinum
á Hótel Loftleiðum.
„Nei, þetta eru fyrir-
sætur sem eru að leika
í auglýsingu," segir
annar hneykslaður á
fáfræði félaga síns.
Sannleikurinn er sá
að verið er að mynda
fyrirsætur frá þremur
módelskrifstofum fyrir viðtal í
Vikulokum. Það eru fyrirsæturnar
Berglind Ólafsdóttir frá Model 79,
Elma Lísa Gunnarsdóttir frá
Eskimo Models og Elva Eiríks-
dóttir frá Umboðsskrifstofu Elite,
John Casablancas.
Eftir að hafa rætt saman um
stund í lauginni er stefnan tekin á
kaffiteríuna þar sem viðtalið fer
fram. Eðlilegt framhald er að
spyrja fyrirsæturnar hvernig þær
haldj sér í formi. Eða hvað?
„Ég þoli ekki þessa spurningu,"
segir Elma Lísa. „Mér finnst hún
hallærisleg.“
„Fyrirsætm- hugsa misjafnlega
mikið um að halda sér í formi,“ seg-
ir Berglind. „Ef þær gera það á
annað borð sleppa þær gos-
drykkjum og sælgætisáti og reyna
að forðast fitu.“
„Ég geri ekkert nema drekka
kaffi og reykja,“ segir Elma Lísa,
þreytt á umræðunni. „Annars veltir
maður mataræðinu litið fyrir sér
fyrr en mánuði áður en maður fer
út. Þá fer maður kannski að hugsa
sig tvisvar um.“
„Það er samt varasamt að borða
of lítið," segir Elva. „Þá er hætta á
lystarstoli, ófrjósemi og ýmiskonar
sjúkdómum“
„... enda held ég að það sé ekki í
tísku að vera eins og spíra. Skiptir
ekki meira máli að samsvara sér og
vera hraustur," segir Elma Lísa
spyrjandi.
Elva og Berglind játa því með
semingi, en segja það nokkuð mis-
jafnt eftir skrifstofum.
„Það var eiginlega fyrirsætan
Kate Moss sem kom þessu af stað á
sínum tíma,“ heldur Elma Lísa
áfram. „Hún er alveg eins og beina-
grind.“
„Samt étur hún alveg eins og
svín,“ skýtur Elva að.
„Hún segir það,“ svarar Elma
kaldhæðnislega.
Fyrirsætur á
allum aldri
Umræðunum lýkur þegar þjónn-
inn kemur aðvifandi. Berglind pant-
ar sér djús, Elma Lísa Capuccino
og Elva kaffi og það sést greinilega
að engin formúla er á bakvið það
hvað fyrirsætur láta ofan í sig.
Hinsvegar fá blaðamennirnir sér
báðir kakó. Er einhver áherslu-
munur á módelskrifstofunum?
„Eskimo Models sérhæfir sig
aðallega í því að koma fyrirsætum á
framfæri erlendis," segir Elma
Lísa. „Ásta Kristjánsdóttir sér um
reksturinn og sendir reglulega út
myndir af fyrirsætunum sem eru
tuttugu talsins. Hún fylgir þeim vel
flest? Pétur
Blöndal og Ivar
Páll Jdnsson
hittu þrjár
þeirra í lauginni
og spurðu hall-
aerislega.
eftir og fylgist með
þeim þegar þær eru
erlendis.“
„Model 79 er elsta
skrifstofan og er með
marga fasta við-
skiptavini jafnt hér á
landi sem erlendis,"
segir Berglind. „Jóna
Lárusdóttir rekur
skrifstofuna og fyrir-
sæturnar eru á öllum
aldri, allt frá börnum
til eldra fólks.“
„Skóli Johns Casablancas ræður
einnig fyrirsætur á öllum aldri,“
segir Elva. „Kolbrún Aðalsteins-
dóttir er allt í öllu og gaumgæfír allt
mjög vandlega áður en hún sendir
fyrirsætur utan. Ef þær fá tilboð
fer hún oft út á, undan þeim til að
athuga hvort allt sé ekki í lagi. Hún
fer líka með stúlkunum í mynda-
tökur, sérstaklega ef þær eru ungar
og óreyndar.“
Tilbað frá Playbuy
Talið berst nú að því hvort
fyrirsæturnar setji sér einhverjar
siðareglur í myndatökum. Berglind
segist ekki vilja sitja fyrir á nektar-
myndum hér heima. Ef henni stæði
aftur á móti til boða falleg mynda-
taka fyrir gott merki erlendis
myndi hún íhuga það.
„Ég myndi frekar treysta ein-
hverjum hér heima heldur en í er-
lendri stórborg þar sem maður
þekkir ekki neinn,“ segir Elma
Lísa. „Annars er ekki gott að vera
með svona myndir í möppunni því
þá býður maður upp á svona
myndatökur."
„Mér finnst allt í lagi að vera ekki
í neinum fötum ef ég fæ að halda
fyrir viðkvæma staði,“ segir Elva.
Eru miklir peningar i boði fyrir
svona tökur?
m
Baðiá aét taha
þátt íhepp-
ninni um
LeiMréiaga
arsms
ELMA Lísa, Berglind og Elva í lauginni.
Morgunblaðið/Kristinn
I
„Mér stóð einu sinni til boða að
sitja fyrir hjá Playboy,“ segir
Berglind og hlær. „Ljósmyndai-i
bauð mér tvær milljónir fyrir að
taka þátt í keppninni um Leikfélaga
ársins. Það sýnir kannski að
peningar skipta mig ekki máli hvað
þetta varðar að ég sagði nei. Ég
myndi ekki kunna við að einhver
kæmi með nektarplakat til föður
míns og spyrði: „Er þetta ekki dótt-
ir þín, 01afur?“„
„Mér var einnig boðið að sitja
fyrir hjá Playboy," segir Elva.
„Kolbrún var með mér vegna þess
að þetta var í fyrsta skipti sem ég
sat fyrir klæðalítil. Ljósmyndarinn
vildi endilega fá mig til að sitja fyrir
hjá Playboy, en Kolbrún sagði
þvert nei.“
Á kameldýri í
eyðimarkinni
Hvað er ykkur minnisstæðast úr
fyrirsætustarfinu?
„Þegar ég fór til Ibiza í sumai-,“
segir Berglind og hlær. „Ég hreppti
titilinn Ungfrú Ibiza og fékk
peninga, kórónu og allt tilheyrandi.
Síðan fór ég á snekkju með Thierry
Russell og því liði sem er í kringum
hann. Við létum fara vel um okkur á
snekkjunni á daginn og fórum svo
út á lífið á kvöldin."
Fyrir þá sem ekki þekkja til
Russels má geta þess að hann var
giftur Christinu Onassis og þau
eiga eina ríkustu smástelpu í heimi.
„Ég er hálfhrædd við svona
ævintýri og hef forðast þau af öllum
mætti,“ segir Elma. „Mér er það
minnisstæðast þegar Stefán Már,
kærastinn minn, kom að heimsækja
mig til Grikklands. Við heimsóttum
grísku eyjarnar og áttum yndisleg-
ar stundir saman.“
„I fljótu bragði dettur mér fyrst í
hug ferð mín til ísrael sem stóð í tíu
daga,“ segir Elva. „Landið er mjög
ólíkt því sem maður á að venjast og
ég hrífst af svoleiðis stöðum. Við
skoðuðum Jerúsalem, Dauða hafið
og eyðimörkina." Hún bætir við -
sposk á svip: „Ég fékk að fara á
kameldýr."
Varstu ekki hrædd?
„Nei,“ segir hún og brosir út í
annað. „Ég er mikill dýravinur.“
Á réttum stað á
réttum tíma
Ferðalögin hljóta að vera stór
kostur við starfið, en er það vel
borgað?
„Ef markmiðið er að þéna
peninga er best að fara til
Þýskalands, Tókýó eða Banda-
ríkjanna," segir Elma Lísa. „Ef
markmiðið er að ná langt er best að
fara til New York,“ bætir hún við og
lítur glettnislega á Elvu. Elva var
einmitt að komast á samning hjá
Ford-skrifstofunni í New York og
flytur þangað á næstunni.
Er ekki starfsferillinn það stutt-
ur að fyrirsætur verða að þéna vel?
„Það er misjafnt," segir Elma.
„Sumar verða þrítugar í þessu
starfi."
„Hjá ungum fyrirsætum felst
stai'fið aðallega í því að safna í
myndamöppuna, en þegar þær
verða eldri og eru komnar með
góðar möppui' fá þær vel borgað,“
leggur Berglind til málanna.
„Með heppni fær maður tækifæri
hjá Vogue eða Bazaar,“ heldur
Elma áfram. „Þá er það byrjað.“
„Þetta er spurning um að vera á
réttum stað á réttum tima,“ bætir
Berglind við.
og trúa á sjálfan sig,“ segir
Elva af festu.
„Þið eigið eftir að vita allt um
fyrirsætubransann eftir þetta við-
tal,“ klykkir Berghnd út með og
hlær. „Ætlið þið ekki bara að leggja
þetta fyrir ykkur?“
Blaðamennirnir líta vandræða-
lega hvor á annan. Ætlið þið að
horfa á úrslitaleikinn í bikarnum?
„Nei,“ segir Berglind. Elva dæsir
og segir: „Ætli maður neyðist ekki
til að horfa á hann með kærast-
„Kærastinn minn er líka þannig,"
tekur Elma Lísa undir. „Hann má
ekki missa af neinum leik.“
„Annars hélt ég að þið mynduð
spyrja okkur um forsetakosn-
ingarnar," segir Berglind brosandi.
„Ég hélt að viðtalið myndi snúast
um stjórnmál og annað í þeim dúr,“
bætir Elma við - og ómögulegt er að
greina hvort vonbrigði leynast í
röddinni eða ekki.
Blokom
Blákornið er áhrifaríkt við plöntun á
litluni trjám og gott fyrir sumarhlóm
og skrautrunna.
Fáðu upplýsingabœkling á nœsta
sölustað.
ABURÐARVERKSMIÐJAN HF.
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 23