Morgunblaðið - 11.05.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MAÍ1996 31
í
«
í
i
i
<
i
i
i
t
<
i
\
<
(
(
I
(
I
I
I
I
I
I
AÐSENDAR GREINAR
Heilsuvernd
á vinnustað
TÓLFTI maí er fæð-
ingardagur Florence
Nightingale, konunnar
með lampann, sem frá
dögum Krímstríðsins
hefur verið fyrirmynd
hjúkrunarfræðinga um
heim allan. Á afmælis-
deginum er hennar
minnst á margvíslegan
hátt. Hún var fædd
1820 en í fyllsta máta
kona framtíðarinnar,
eins og sígild listaverk
sem jafnan eiga erindi
við alla tíma.
Menntun hjúkrunar-
fræðinga var mikið
áhugamál Florence
Nightingale. Hún trúði
á mátt þekkingarinnar um leið og
hún hafði glöggt auga fyrir mikil-
vægi hinna mjúku gilda sem hlúa
að hjartanum. Hermennirnir í Skut-
ari kysstu skuggann hennar þegar
hún kom á kvöldin til að líta eftir
þeim fyrir nóttina.
Á afmælisdeginum velja hjúkr-
unarfræðingar að heiðra minningu
hennar með því að vekja athygli á
þeim málum sem hæst ber hverju
sinni. í ár er heilsuvemd á vinnu-
stað eitt af þemum dagsins.
Það hefur dregist að hrinda í
framkvæmd þeim hluta vinnuvernd-
arlaganna sem fjallar um heilsu-
vernd starfsmanna. Lögin gengu í
gildi fyrir sextán árum en síðan
hefur lítið verið gert til að fylgja
þeim eftir. Tímarnir hafa vissulega
breyst á sextán árum og því jafn-
vel mögulegt að einhver ákvæði
laganna þurfi endurskoðunar við.
Áður en lengra er
haldið er rétt að reyna
að skilgreina hvað
heilsuvemd starfs-
manna er. Auðvitað
hlýtur slík skilgreining
að byggjast á þekkingu
þeirra sem að málinu
koma, því að hér er
ekki um að ræða fast
efni eða afmarkaðan
hlut.
Heilsuvemd starfs-
manna á fyrst og
fremst að beinast að
því að skapa þau skil-
yrði á vinnustað að
starfsmönnum sé eng-
in heilsufarsleg hætta
búin í vinnunni. Starfsmenn heilsu-
vemdarinnar þurfa að vera færir
um að koma auga á og geta metið
heilsufarshættur á vinnustöðum,
hvort sem þær em efnislegar eða
andlegar. Sem dæmi um heilsufars-
hættur á vinnustað er: hávaði, efna-
mengun, sýkingarhætta, líkamlegt
álag, andleg kúgun og einelti.
Heilsuvernd á vinnustað á fyrst
og fremst að vera forvamarstarf.
Talað er um þijú stig forvamar i
þessu sambandi:
1. stigs forvörn: Fjarlægja
áhættuþátt í vinnuumhverfinu áður
en hann veldur vanlíðan eða sjúk-
dómseinkennum.
2. stigs forvörn: Fjarlægja
áhættuþátt í vinnuumhverfmu til
að koma í veg fyrir að vanlíðan eða
sjúkdómseinkenni þróist áfram og
valdi sjúkdómi.
3. stigs forvörn: Aðgerðir til að
koma í veg fyrir að sjúkdómar þró-
Hólmfríður K.
Gunnarsdóttir
ist áfram og leiði til örorku eða
dauða.
Auðvitað er æskilegast að vinnu-
staðimir séu þannig úr garði gerðir
að aldrei þurfi að fara af fyrsta
stiginu í forvamarstarfínu.
Atvinnurekendum ber skylda til
að vemda starfsmenn sína gegn
heilsuvá í vinnumhverfínu. Heilsu-
vernd á vinnustað á því fyrst og
fremst að miðast við aðstæður
hveiju sinni. Það dregur ekki úr
óafturkræfri heyrnarskerðingu hjá
manni sem hefur unnið í hávaða
þótt hann sé sendur í leikfími eða
blóðþrýstingsmælingu. Ómarkviss-
Tólfti maí er fæðingar-
dagur Florence Night-
ingale. Hólmfríður K.
Gunnarsdóttir skrifar
hér um eitt af þremur
þemum þessa dags, al-
þjóðadegi hjúkrunar-
fræðinga, það er um
heilsuvernd á vinnustað.
ar heilsufarsskoðanir veita fólki
falskt öryggi.
Þótt heilsuvernd á vinnustað hafí
ekki verið komið á í anda vinnu-
verndarlaganna hafa margir vinnu-
veitendur viljað leggja nokkuð af
mörkum og greitt álitlegar fjárhæð-
ir til ýmissa aðila sem hafa átt að
sinna heilsu starfsmanna á einhvem
hátt eða taka þá í leikfimi. Engar
leiðbeiningar hafa legið fyrir um
það hvernig heilsuvernd starfs-
manna skuli sinnt og vinnuveitend-
ur því stundum keypt kött í sekk.
Talað hefur verið um að svo mjög
hafi dregist að koma á heilsuvernd
á vinnustað vegna þess aukna
kostnaðar sem það hefði í för með
sér fyrir atvinnurekendur. Þó hefur
ÍSLENSKT MAL
„EFTIR þessi orð textans" hljóð-
ar á latínu: post illa verba textus.
Úr upphafsorðunum „post illa“ hef-
ur myndast heitið postilla = hús-
lestrarbók. Varla er öðrum gert
mjög rangt til, þótt svo sé sagt, að
Vídalínspostilla sé frægust sinnar
tegundar hér á landi. [Innskot: Á
prófí var spurt um „lausmálsbók-
menntir á lærdómsöld". Úrlausn:
,Jón Vídalín þýddi heilaga ritningu
á íslensku. Heitir hún síðan Jónsbók
og hefur náð ótrúlegum vinsæld-
um.“]
Postilla Jóns Þorkelssonar (Víd-
alíns) er fágætlega snjallt og vin-
sælt listaverk, þótt ofmælt megi
vera að samlíkja henni Heilagri ritn-
ingu. Verður hér látið nægja að
taka eitt dæmi af snilli Meistara
Jóns, því að meistari var höfundur-
inn nefndur með réttu:
„Ágimdin er framsýni köiluð,
drambsemin höfðingsskapur,
hræsnin viska. Þegar menn bijóta
réttinn, kalla menn það að byggja
hann. Þegar menn sleppa skálkum
og illræðismönnum, þá nefna menn
það kærleika og miskunnsemi.
Hirðuleysi og tómlæti í sínu kalli
og embætti heitir spekt og frið-
semi. Svo falsar nú andskotinn
Guðs steðja á meðal vor og setur
hans mynd og yfirskrift á svikinn
málm. (Prédikun fímmta sunnudag
eftir þrettánda.)
★
Vilfríður vestan kvað:
Ut í leiðinda landnyrðingsél
gekk leiðtoginn Gamalíel,
í rúmi ókresinn
og í ritning vel lesinn,
einkum þó Esekíel.
★
Kristinn R. Ólafsson í Madrid er
gamansamur og skrifar mér með
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
848 þáttur
miklum lærdómi um nafnið Jesús,
uppruna þess og beygingu. Hann
vill gjama laga beygingu þess að
lögum íslenskrar tungu, en halda
ekki beygingu þeirri klassískri sem
notuðu Eysteinn og Hallgrímur,
sbr. bréf um daginn frá Sigurði
Eggert Davíðssyni. Kristinn er sem
sagt á öðru máli en við Sigurður
og reyndar margir, margir aðrir sem
haft hafa samband við mig fyrr eða
síðar. í bréfí Kristins segir m.a. svo:
„Því tel ég skynsamlegast að fara
með Jesús einsog við höfum farið
með latneska orðið „magnus“:
beygja það eftir reglum tungu okk-
ar en ekki latínunnar þótt Jesú bróð-
ir besti og slík ömmufræði megi
standa enda rétt með farið. Ég er
ansi hræddur um að mörgum Magn-
úsnum á íslandi brygði í brún og
þætti magnað ef menn færu að
ávarpa hann í „vocativo“ „Magne“,
töluðu um „Magnum“ eða skryppu
til „Magni“ og enn verra væri ef
menn kynnu ekki að fara með þetta
rétt.“
Umsjónarmaður freistast til að
halda að hér sé í skopi skrifað en
sé bréfritara alvara er sjónarmiðum
hans kröftuglega mótmælt. Eignar-
fallið *Jesúsar væri herfilegt.
Að svo mæltu þakkar umsjónar-
maður fyrir gömul kynni og bréf
um langan veg hlotið. ,
★
Hjálpa þú mér nú, góði guð,
grimm er mér aðsókn hafin.
Rek burtu ára ófögnuð,
öll skal fór þeirra tafín.
Virstu að ég sofi í værð og ró -
vertu nálægur sjálfur þó -
en þraut öll gleymd og grafin.
(Gamalt bænarvers, höf. óþekktur.)
Tíningur
1) Ymsar góðar nýjungar hafa
heyrst í útvarpi og sjónvarpi í stað
tuggunnar „hins pólitíska arms
írska lýðveldishersins". Ég nefni
sem dæmi: „stjómmálaflokks lýð-
veldishersins."
2) Fréttamaður sjónvarps leið-
rétti strax kvöldið eftir. Ifyrst var
sagt: „sló þeim ref fyrir rass“, en
síðar „skaut þeim ref fyrir rass“,
og mun það réttara, sjá bækur
Halldórs Halldórssonar og Jóns G.
Friðjónssonar.
3) Umsjónarmaður hefur áður
skrifað um hið merkilega lýsingar-
orð hinstur = aftastur, síðastur
(miðst. hindri, frnrnst. vantar):
Honum þótti skondið að heyra lesið
úr bréfí íslendings í Vesturheimi:
„í hinstasta [= aftasta] vagninum."
4) Umsjónarmaður ítrekar þá
kröfu að beygja án undanbragða
bæði nöfn tvínefnds fólks, sjá ágæta
grein i Tungutaki fyrir skemmstu.
Hér skal aðeins tekið eitt æpandi
dæmi: „ráðning Eiríks Bjöm“ í stað:
ráðning Eiríks Björns.
5) Mjög er nú ofnotað að enskri
fyrirmynd orðasambandið vera
með nafnhættí (á ensku reyndar
með lýsh.nt.). Dæmi: „Við vomm
að spila mjög vel“ í stað spiluðum
(lékum) mjög vel eða stóðum okk-
ur o.s.frv.
6) Fjárlög er fleirtöluorð. Þess
vegna á að segja tvenn eða tvöföld
fjárlög íslenska ríkisins, ekki „tvö
fjárlög". Hins vegar geta menn
sungið tvö lög mín vegna.
Salómon sunnan kvað:
Sr. Marteinn á Miðgarðareyri
var makráður eins og þeir fleiri
sem hafa magann að guði
og eru í myljandi stuði
við matarbo(r)ð sjö eða fleiri.
P.s. Fram kom á alþingi fyrir
skemmstu að til Litháen hefði verið
„sendur sérstakur aðili“. Hvað var
sent? Var það kannski maður?
ekki verið kannað hvað greitt hefur
verið fyrir ýmiss konar heilbrigðis-
eftirlit og líkamsrækt sem atvinnu-
rekendur hafa borgað að öllu eða
einhveiju leyti fyrir starfsmenn
sína.
Meðal fagfólks hefur verið lögð
á það áhersla að aðgreina heilsu-
vemd á vinnustað frá almennri
heilsuvemd. Það hefur verið gert
til að undirstrika mikilvægi þess
að ævinlega sé tekið mið af aðstæð-
um á vinnustað þegar unnið er á
þessum vettvangi. Nafngiftin
heilsuvernd starfsmanna hefur
kannski villt um fyrir mönnum.
Vegna þessa hef ég meðvitað notað
annað orðalag, þ.e. heilsuvemd á
vinnustað, um þessa starfsemi en
forvörn á vinnustað kæmi líka til
greina. Orðalagið skiptir máli, orðin
em tæki til að lýsa fyrirbæmm en
þau eru þó þeirrar náttúru að það
má gera um það samkomulag að
láta þau merkja svo sem hvað sem
er. Áðalatriðið er að koma því til
skila að heilsuvemd á vinnustað á
að miða að því að sjá til þess að
vinnuumhverfið ógni ekki heilsu
manna.
Allt frá dögum Florence Night-
ingale hafa hjúkmnarfræðingar
viljað starfa í þeim anda að mann-
eskjan sé hluti af stórri heild sem
taka þyrfti tillit til. Heildarsýn er
lykilorð í því sambandi. Hjúkrunar-
fræðingar sem vinna við heilsu-
vernd á vinnustað munu fara á
vinnustaðina og kynna sér hvaða
áhættuþættir kunna að leynast þar,
en þeir munu jafnframt hvetja til
heilsusamlegra lifnaðarhátta innan
vinnustaðar og utan. „Það er allt í
lagi héma hjá okkur“ var Florence '
sagt þegar yfírmaðurinn sýndi
henni aðstæður í sjúkraskýlinu í
Skutari. Þar lágu hermennirnir
særðir og deyjandi við ömurlegustu
aðstæður sem hugsast gat. Þetta
er viðkvæðið á mörgum vinnustöð-
um enn þann dag í dag, þótt ýmis-
legt sé í ólestri.
Florence Nightingale varð sjálf
alvarlega veik meðan á Krímstríð-
inu stóð og var aðstæðum og erfíði
kennt um. Í Lundúnablöðunum var
skrifað um yfirvofandi andlát henn-
ar sem ægilegt þjóðaráfall. En hún
náði sér að fullu. Hún taldi sjálf
að hún ætti heilsu sína að þakka
litlum vendi villtra blóma sem henni
voru færð. Þegar hún sá fegurð
hinna fíngerðu jurta sem boðuðu
sól og sumar vaknaði lífslöngunin
og hún vildi komast á fætur til að
hefja störf að nýju.
„Starfsmennimir em auður fyrir-
tækisins" segja atvinnurekendur á
hátíðarstundum. Ef svo er borgar
sig að hlúa að þeim — og það skað-
ar ekki að færa þeim blómvönd —
stöku sinnum.
Höfundur er formaður
vinnuverndarnefndar Félags
íslenskra bjúkrunarfræðinga.
Ekki kjósa
í Camp David
I
TÍU þúsund manns
mótmæltu staðsetn-
ingu Ráðhúss Reykja-
víkur á sínum tíma. Því
er það mikil ósvífni við
þennan hóp að ætla að
láta kjósa til forseta í
hjalli þessum. í sam-
komu að Höfða, sem
Markús Örn Antons-
son, þáverandi borgar-
stjóri, bauð til vegna
afmælis Styrktar- og
sjúkrasjóðs verslunar-
manna, spurði hann
mig, hvort ég væri ekki
orðinn sáttur við Ráð-
húsið og ég svaraði: „Ég hefi aldrei
komið inn í það og mun aldrei stíga
fæti mínum inn 5 það.“
Ég krefst þess, segir
Reykjavíkurhöfn gg
(Hafnarsjóður Reykja-
víkur) leigir ríkissjóði
Islands stærstan hluta
4. hæðar Hafnarhúss-
ins undir tvö ráðu-
neyti, félagsmála- og
samgöngu. Engum
hefur dottið í hug að
segja ríkissjóði upp
þessu húsnæði og inn-
rétta þar Skólaskrif-
stofu Reykjavíkur. Al-
mennir borgarar skilja
ekki svona ráðs-
mennsku.
m
Davíð Oddsson vildi -
heldur tapa meirihlutanum í
Reykjavík en taka sönsum í Ráð-
húsmálinu. Vonandi ber Sjálfstæð-
isflokkurinn gæfu til að velja sér
samhenta forystu í framtíðinni, því
hús sem er sjálfu sér sundurþykkt,
fær aldrei staðist.
Leifur Sveinsson
Leifur Sveinsson,
að fá að kjósa í
mínum gamla skóla,
Miðbæj arskólanum.
n
Nú á að rústa Miðbæjarbama-
skólanum. Breyta þar öllu innan-
húss til þess að koma þar fyrir
Skólaskrifstofu Reykjavíkur.
IV
ÉG krefst þess að fá að kjósa í
mínum gamla skóla, Miðbæjarskól-
anum, 29. júní.
V
Einnig krefst ég þess, að frestað
verði flutningi Skólaskrifstofu
Reykjavíkur, en hún flutti í Hafnar-
húsið eftir lögmætan uppsagnar'
frest.
Höfundur er lögfræðingur í
Reykjavík.
Scetirsófar
d óviðjafnanlegu verði
HÚSGAGNALAGERINN
Smiðjuvegi 9 (gul gata) - Kópavogi - sími 564 1475 Opið mán.-fös. 13-18, lau. 11-14.
- kjarni málsins!