Morgunblaðið - 11.05.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MAÍ1996 39
FRÉTTIR
Á fjórða tug fyrir-
tækja taka þáttí
byggingadögum
SAMTÖK iðnaðarins standa fyrir
byggingadögum um land allt um
helgina undir kjörorðunum Fé og
framkvæmdir. Þetta er í þriðja sinn
sem efnt er til byggingadaga og
hafa tugþúsundir gesta sótt þátt-
tökufyrirtækin heim sl. tvö ár. A
ljórða tug fyrirtækja í Reykjavík,
Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði,
Borgamesi, Akureyri og Vestmanna-
eyjum taka þátt að þessu sinni.
Markmið byggingadaga er að
kynna framleiðslu og þjónustu fyr-
irtækja í byggingaiðnaði og gefa þeim
sem eru í framkvæmdahugleiðingum
tækifæri til að skoða og bera saman
það sem er í boði á markaðnum.
Dagskráin er fjölbreytt og tefla
fyrirtækin fram ýmsum nýjungum
auk þess sem gestum býðst ýmiss
konar ráðgjöf á sviði framkvæmda
og fjármögnunar þeirra. Á bygginga-
dögum verða sýndar íbúðir og sér-
býli á öllum byggingastigum, sumar-
hús, innréttingar og byggingavörur
og veitt ráðgjöf um viðhald fast-
eigna, fjármál, lóðahönnun og frá-
gang.
Fyrirtækin bjóða gesti velkomna
laugardag og sunnudag frá kl.
13-17. Eftirtalin fyrirtæki taka þátt
í byggingadögum:
BM Vallá ehf., Breiðhöfða 3, Eld-
hús og Bað, Funahöfða 19, Húsa-
klæðning hf., Zimsen, Ármúla 42,
Steinprýði ehf., Stangarhyl 7, einnig
kynna eftirtalin fyrirtæki stafsemin
sína í Stangarhyl 7: Húsaplast hf.,
Hönnun hf., Múrarameistarafélag
Reykjavíkur, S.M. verktakar, Stein-
smiðja S. Helgasonar og Viðar Guð-
mundsson, múrarameistari. í Brúna-
landi 14-18 verða sýndar endurbæt-
ur á eldra húsnæði með ELGO múr-
vörunum, Ármannsfell ehf., Lækja-
smára, Álftárós efh. við Garðatorg,
ímúr hf. við Garðatorg, Ásgeir og
Björn ehf. Efstahlíð 31, Dixill ehf.,
Klettaberg 17-19, Dverghamarar
sf., Efstahlíð 17-19, Erlendur og
Reynir sf., Brekkuhlíð 12, 14 og 18,
Fagtak efh., Brattakinn 1 og 3, Græ-
nakinn 2 og 4, Feðgar ehf., Lindar-
berg 76-78, Hafsteinn Jónsson,
Efstahlíð 21, 23 og 25 og Hólshús
ehf., Klettaborg 46 og 48. í Borgar-
nesi: Byggingarfélagið Borg hf., Sól-
bakka 11, Vímet hf., Borgarbraut
74. Á Akureyri: SS Byggir ehf.,
Hafnarstræti 28 og 30, SJS verktak-
ar ehf., Borgarsíðu 9, Steinprýði,
Litalandi. I Vestmannaeyjum sýna
eftirtalin fyrirtæki: Píparinn sf., Mið-
stöðin sf., Reynistaður sf., Sæini og
Olli sf., Tréverk hf., ZÞ hf. og Þórð-
ur Svansson hf.
FUGLAVERNDARFÉLAGIÐ efn-
ir sunnudaginn 12. maí til fugla-
skoðunar á Njarðvíkurfitjum.
Hefst skoðunin kl. 10.30 og stend-
ur yfir í um 2 klst. Hist verður
við steypustöðina í Ytri-Njarðvík
og þaðan yfir í Innri-Njarðvík.
Að fuglaskoðun lokinni verður
sest yfir kaffi og með því og smá-
spjaÚi í Stekkjarkoti, litla og vina-
lega torfhúsinu sem stendur við
Fitjarnar.
Leiran á Njarðvíkurfiljum er
afar litrík og þar sækja þúsundir
fugla sér æti á fjöru. Mest ber á
NJARÐVÍKURFITJAR
Fuglaskoð-
un áNjarð-
víkurfítjum
vaðfuglum ýmiss konar, eins og
lóuþræl, heiðlóu, sandlóu, stelk,
rauðbrystingi, tildru og sendlingi.
Veiyulega er þar lika mikið af
mávum og æðarfugli ásamt öðrum j
öndum. Tjarnirnar upp af Fitjun-
um eru mjög skemmtilegar og þar 1
er oft mikið af öndum og öðrum
fuglum, t.d. jaðrakan á vorin.
Fuglaverndarfélaginu hefur
borist til eyma að leiran sé í hættu
vegna yfirvofandi framkvæmda
og leggur það þunga áherslu á
verndun leirunnar og umhverfis
hennar. Þetta er ómetanlegt svæði
sem fóstrar ríkulegt lífríki í þétt-
býli og gildi þess fyrir fugla og
menn er mikið, segir í fréttatil-
kynningu.
Námskeið í
sálrænni
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir tveggja daga nám-
skeiði í sálrænni skyndihjálp, stór-
slysasálfræði (áfallahjálp) 15. og
22. maí nk. Kennt verður frá kl.
18-21 báða dagana.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim
sem áhuga hafa á áfalla- og stór-
slysasálfræði og eru eldri en 15
ára. Væntanlegir þátttakendur
þurfa ekki að hafa færðilega þekk-
ingu né reynslu á þessu sviði. Nám-
skeiðshaldari verður Lárus H.
Blöndal, sálfræðingur. Kennslu-
staður er Fákafen 11, 2. hæð.
Námskeiðið inniheldur almenna
kynningu á áfalla- og stórslysasál-
arfræði, þar sem megininntakið eru
þau áhrif og afleiðingar sem váleg-
ir atburðir geta haft á fólk og
hvernig hægt sé að draga úr mann-
legum þjáningum í kjölfar þeirra
eða í tengslum við þau.
Meðal efnis eru fyrstu viðbrögð
við vá, atriði sem geta valdið álagi
á vettvangi, viðbrögð við skemmri
og lengri tíma, ýmsar úrlausnar-
leiðirm s.s. sálræn skyndihjálp á
vettvangi válegra atvika og skipu-
legir uppriíjunartímar í kjölfar
þeirra, s.k. andleg viðrun.
Stefánsdag-
ur í Austur-
bæjarskóla
ÞRJÁTÍU ár eru liðin 12. maí nk.
frá láti Stefáns Jónssonar, rithöf-
undar og kennara. Meðal barna-
og unglingabóka hins kunna rithöf-
undar eru Hjaltabækurnar, Gutta-
vísur, Börn eru besta fólk, Margt
getur skemmtilegt skeð og Mamma
skilur allt. Að auki skrifaði Stefán
bækur fyrir fullorðna.
Hann var kennari í Austurbæj-
arskóla frá árinu 1933 til dauða-
dags. Margar sögur sínar las hann
fyrir nemendur sína áður en þær
voru gefnar út.
Á þessum tímamótum efnir Aust-
urbæjarskóli til hátíðahalda til að
minnast hins ástsæla rithöfundar.
Á bókasafni skólans hefur verið
sett upp sýning á bókum Stefáns.
Þá hafa nemendur teiknað myndir
eftir sögum hans og þær verið
hengdar upp á veggi á göngum
skólans. í hádeginu, þriðjudaginn
14. maí, verður haldin skemmtun í
portinu fyrir framan skólann. Þar
munu nemendur lesa upp úr verkum
Stefáns og skólakórinn syngur
nokkur ljóða hans. Öllum er heim-
ilt að koma og hlýða á.
Síðar í maí verður haldin
skemmtun í sal skólans þar sem
fyrrverandi nemendur Stefáns ætla
að afhenda skólanum bekkjarmynd
og kennarar skólans afhenda skól-
anum mynd af Stefáni. Þá verður
á þeirri skemmtun formlega til-
kynnt að skólinn ætlar að efna til
verðlaunasamkeppni sem kennd
verður við Stefán. Endanleg dag-
setning verður ákveðin síðar.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
skólinn efnir til dagskrár til minn-
ingar um Stefán Jónsson og er
ætlunin að Stefánsdagar verði
haldnir á hveiju vori hér eftir.
Atkvöld Tafl-
félagsins Hellis
TAFLFÉLAGIÐ Hellir stendur fyr-
ir atkvöldi mánudaginn 13. maí nk.
Tefldar verða sex umferðir eftir
Monrad-kerfi. Fyrst eru tefldar
þrjár hraðskákir og svo þrjár at-
skákir en þannig lýkur mótinu á
einu kvöldi.
Teflt verður með hinum nýju
Fischer/FIDE-klukkum, en Hellir
er eina taflfélag landsins sem býð-
ur þessar vinsælu klukkur. Þátt-
tökugjöld eru 200 kr. fyrir félags-
menn en 300 kr. fyrir aðra. Teflt
verður í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi og hefst taflið kl. 20.
Mótið er öllum opið.
Vortónleikar
Tónlistarskóla
Borgarfjarðar
TÓNLISTARSKÓLI Borgarfjarðar
er að hefja röð nemendatónleika
að loknu 29. skólaárinu.
Fyrstu tónleikarnir verða í Loga-
landi, Reykholtsdal, í dag, laugar-
daginn ll.'maí, kl. 16. Söngdeild-
artónleikarnir verða í Borgarnes-
kirkju á morgun, sunnudag, kl.
20.30. Á mánudag 13. og miðviku-
HALLDÓR Sævar Guðbergssson, starfsmaður
Blindrafélagsins, með happdrættismiða.
Vorhappdrætti
Blindrafélagsins
BLINDRAFELAGIÐ hefur stað-
ið fyrir á hveiju ár happdrættis-
sölu tij að fjármagna starfsemi
sína. Öflugt starf fer fram hjá
Blindrafélaginu og hefur happ-
drættissala félagsins verið for-
senda þess. Að þessu sinni gefur
félagið út happagleraugu
Blindrafélagsins. Á næstu tveim-
ur mánuðum mun sölufólk um
allt land bjóða almenningi og
fyrirtækjum að styrkja Blindra-
félagið með því að kaupa happa-
gleraugu sem jafnframt eru
happdrættismiðar. Verð á hverj-
um miða er 600 kr. og dregið
verður þann 30. júlí nk. Vinning-
ar eru eftirtaldir: 1. Nissan Al-
mera 1400 GX, 4 dyra, frá Ing-
vari Helgasyni hf. að andvirði
1.335.000,2.-9. Ferðaúttekt að
eigin valið hjá Úrval-Útsýn að
upphæð 75.000 kr., 10.-19.
Tveggja daga helgarferð fyrir
fyo til Edinborgar með Úrval-
Útsýn og 20.-29. Vöruúttekt í
Hagkaup hver að andvirði 10.000
kr. Alls verða 29 skattfrjálsir
vinningar að andvirði 2.535.000
kr.
daginn 15. maí verða tónleikar í
Borgarneskirkju. Tónleikarnir eru
öllum opnir.
Vorferð barna-
starfs Seltjarn-
arneskirkju
HIN árlega vorferð barnastarfs
Seltjarnarneskirkju verður farin
sunnudaginn 12. maí og hefst með
nýstárlegri fjölskylduguðsþjónustu
kl. 11.
Guðsþjónustan hefst með því að
nemendur úr ballettskóla Guðbjarg-
ar Björgvins sýna ballett. Guðsþjón-
ustan verður með léttu sniði og leið-
ir barnakórinn sálmasönginn en
auk þess verða sungin sunnudaga-
skólalög við gítarundirleik. í guðs-
þjónustunni verða skírð tvö börn.
Að guðsþjónustu lokinni verður
haldið af stað í Vindáshlíð þar sem
farið verður í leiki og borðaðar
pylsur.
Erindi um
unninn o g
frosinn fisk
DR. JAE W. Park, prófessor hjá
fiskrannsóknastofnun ríkisháskól-
ans í Oregon, flytur tvö erindi um
íblöndunarefni í unnar fiskafurðir
á Rannsóknastofnun fískiðnaðarins
mánudaginn 13. maí. klukkan 13.
Annað erindið tekur til efna, sem
bæta byggingareiginleika unninna
fískafurða og hitt fjallar um efni,
sem auka frostþol í fiskafurðum.
Dr. Park hefur margra ára
reynslu í rannsóknum á unnum *
sjávarafurðum og hefur verið mjög '
virkur í samskiptum við fiskiðnað- l
inn í Bandaríkjunum. Sérsvið hans
hefur mest verið í svonefndum sur-
imi-afurðum og undanfarin þijú ár
hefur hann stjórnað sérstökum
skóla á því sviði, Surimi-tækniskóla
ríkisháskólans í Oregon.
Erindin verða flutt á ensku og
er öllum heimill aðgangur á meðan
húsrými leyfir.
■ DREGIÐ var úr innsendum mið-
um sl. miðvikudag í Bylgjupotti
Gírótombólunnar sem Lands-
björg stendur fyrir í morgunþætti
Valdísar Gunnarsdóttur á Bylgj-
unni. Komu upp nöfn tíu einstakl-
inga. Þeir sem unnu voru: Konráð
Jakobsson, Seljalandsvegi 42,
ísafirði, Mitsubishi 6 hausa Nicam-
myndbandstæki frá Heimskringl-
unni að verðmæti 59.000, Harald-
ur Stefánsson, Sunnuvegi 3,
Reykjavík, Mongoose-fjallahjól frá
G.Á. Péturssyni í Faxafeni, Jóhann
P. Guðjónsson, Grundarbraut 41,
Ólafsvík, ævintýraferð fyrir tvo á
Hótel Búðum, gisting, kvöldverður
og hestaferð, Birgit Þórðardóttir,
Flúðaseli 94, Reykjavík, matarút-
tekt frá 10-11 búðunum að verð-
mæti 10.000 kr., Fríða Eyjólfs-
dóttir, Lækjarhvammi 56, Reykja-
vík, hestaferð fyrir fjölskylduna eða
vinahópinn (allt að 6 manns) frá
Hestaleigunni Laxnesi, Stefanía
B. Reynisdóttir, Nesbakka 13,
Neskaupstað, flug fyrir tvo innan-
lands með Flugleiðum, Daníel
Helgason, Skógargötu 1, Sauðár-
króki, 8 manna veisla frá Pizzahús-
inu, pizzur, kjúklingavængir, salat,
kartöflur og kór, Jóhann V. Guð-
mundsson, Álftarhólum G, Reykja-
vík, ljósmyndataka hjá Bonna að
verðmæti 15.000 kr.. Ágústa Guð-
mundsdóttir, Álftamýri 24,
Reykjavík, út að borða fyrir fjóra
á veitingastaðnum Amigo, Guðni
Eiríksson, Rauðalæk 41, Reykja-
vík, út að borða fyrir fjóra á veit-
ingastaðnum Marhaba. Þátttakend-
um í Gríótombólunni gefst kostur
á að leggja vinninga sína undir og
senda bréf til Bylgjunnar og lenda
þar með í svokölluðum Bylgjupotti
þar sem dregið er um tíu glæsilega
vinninga í hvert skipti næstu fjóra
miðvikudagsmorgna.