Morgunblaðið - 11.05.1996, Page 40
40 LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
þeirná t/ísb
OtLUafí S/ncL
m enn !
flE>AlSTÖÐ\SAŒ.
icomunGLEGU
FJflLLflLÖ6£E6Lj
L>NM/AJ^
Ferdinand
Smáfólk
|'m SORRY, EMILY..THE
NEXT THIN6 I KNEU), MY
D06ANDI WERE 0OOTED OOT..
Mér þykir það leitt, Emelía. Það
i næsta sem ég vissi var að mér
og hundinum rnínutn var sparkað
Á .'4.
HEY! UJHAT ARE
YOU D0IN67
I U0A5N T SURE YOU UÍERE
C0MIN6 BACK 50 I MOVED
50ME OF MY THIN65
INTO YOUR ROOM..
Heyrðu! Hvað ertu að gera? Ég var ekki viss um að þú kæm-
ir aftur svo að ég flutti svolítið
af dótinu mínu yfir í þitt her-
bergi...
BREF
TDL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Upplýsingar
til blaðamanna
Frá Guðrúnu Þórsdóttur:
MÁNUDAGINN 6. maí var haldin
ráðstefna á vegum Rannís um
Grænbók Evrópusambandsins.
Tilefni þessa greinarkorns er
ekki annars ágæt ráðstefna, þar
sem margt athyglisvert kom fram,
heldur nokkur orð sem blaðamaður
lét falla á síðustu mínútum hennar
um tengsl atvinnulífs og skóla.
Blaðamaðurinn kvaðst vera
áhugamaður um tengsl atvinnu-
lífs og skóla. I orðum hans kom
fram að hann vissi bara um eitt
fyrirtæki í Reykjavík sem tæki á
móti nemendum í starfsfræðslu
sem væri Grandi hf. Það er rétt
hjá blaðamanni að Grandi tekur
ekki bara á móti nokkrum nem-
endum heldur heilu árgöngunum.
Nú í vetur tók fyrirtækið á móti
tveim heilum árgöngum þ.e. 11
ára fyrir jól og 12 ára eftir jól
(vegna kennaraverkfallsins á síð-
asta skólaári). Grandi er til fyrir-
myndar fyrir þetta frábæra fram-
tak og fyrirtækið hefur virkjað
allt sitt starfsfólk til að taka á
móti nemendum.
Ég finn mig hins vegar knúna
til að upplýsa áðurnefndan blaða-
mann og aðra um að undanfarin
5 ár hafa yfir 130 stofnanir og
fyrirtæki tekið á móti reykvískum
nemendum í starfsfræðslu. Þar fer
fram dýrmæt upplýsingamiðlun
sem atvinnulífið leggur til nem-
enda. Þessir fjölmörgu aðilar eiga
miklar þakkir skilið.
Upplýsingar
Á upplýsingaöld þurfa aliir að
taka sig á til að miðla upplýsingum
og taka við þeim. Rými fjölmiðla
er ekki alltaf mikið til að fjalla
um skólamál þótt þess sjáist ótví-
ræð merki að þar er að verða
breyting á. Öll heimili landsins,
sem hafa uppeldi barna og ungl-
inga með höndum, tengjast skóla-
málum ásamt þeim sem hafa at-
vinnu af því að vinna í skólakerf-
inu. Það er því ekki lítill markhóp-
ur sem hefur bæði þörf og áhuga
fyrir betri upplýsingar um skóla-
heiminn.
Gott tækifæri
Ég lít á þetta tilefni sem kær-
komið tækifæri til að koma á fram-
færi fjöldaþátttöku atvinnulífs í
að fræða nemendur.
Óla Birni, blaðamanni, sendi ég
þakkir fyrir að sýna góðan áhuga
á tengslum atvinnulífs og skóla.
GUÐRÚN ÞÓRSDÓTTIR,
kennslufulltrúi á Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur.
Ohappaverk háskól-
ans í Vatnsmýrinni
Frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og
Ólafi K. Nielsen:
HÚN er falieg sumargjöfin sem
Háskóli íslands færir lífríki Tjarn-
arinnar eða hitt þó heldur og þar
teljum við að sannist hið forn-
kveðna að sá sem á slíka vini hann
þarf ekki á óvinum halda. Eins
og borgarbúar vita er það í Vatns-
mýrinni sem hjarta Tjarnarinnar
slær; þaðan fær Tjörnin sitt vatn
og þar eiga tjarnarfuglamir varp-
lönd. Fuglar eins og stokkönd,
grágæs, stelkur, hrossagaukur,
tjaldur, heiðlóa, sandlóa og margir
fleiri fylla mýrina á vorin og sumr-
in og garg þeirra, söngur og hátta-
lag allt er til yndis öllum mönnum
sem þangað koma í friði. Nú er
þjó/ur í þessari paradís.
í vor hóf háskólinn byggingar-
framkvæmdir í einu blautasta
stykkinu rétt austan Norræna
hússins. Látum vera að þeir grafi
sinn grunn og byggi sitt hús, en
hvernig hafa þeir gengið frá
byggingarsvæðinu? Öllum upp-
grefti úr grunninum hafa þeir
smurt þykkt yfir mýrina milli
Norræna hússins og Eggertsgötu!
Auðug varplönd eru nú auðn ein.
Allt var þetta gert til að spara
flutning á moldinni í burtu! Það
kaldhæðnislega við þetta mál allt
saman er að hið nýja hús á að
hýsa jarðfræði- og líffræðiskorir
háskólans, en þar sitja þeir menn
sem hvað mest hafa tjáð sig um
náttúruvernd á íslandi og er þeim
væntanlega lítill greiði gerður
með þessari umgengni. Allir vel-
unnarar Tjarnarinnar hljóta að
hafa skömm á þessu háttalagi
háskólans og það er reyndar ill-
skiljanlegt sérhveijum heilvita
manni; svona gera menn einfald-
lega ekki.
Við viljum enda þetta bréf á því
að skora á borgaryfirvöld að girða
af strax í haust borgarfriðland í
Vatnsmýrinni. Þetta er eina varp-
landið sem eftir er í Vatnsmýrinni
þar sem fuglarnir hafa möguleika
á að vera í friði með egg sín og
hreiður.
JÓHANN ÓLI HILMARSSON,
ÓLAFURK. NIELSEN,
áhugamenn um verndun Tjarnarinnar
og hafa starfað fyrir borgina sem
eftirlitsmenn með tjamarfuglunum.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.