Morgunblaðið - 29.05.1996, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
JÓN Stefánsson organisti og séra Flóki Kristinsson sátu á fremsta bekk á aðalsafnaðarfundinum í Langholtskirkju í gærkvöldi.
Fjölmennur aðalsafnaðarfundur í Langholtssókn stóð fram á nótt
Tekið undir áskoranir
um brottrekstur Flóka
AÐALSAFNAÐARFUNDUR í
Langholtssókn samþykkti laust eftir
miðnætti með miklum meirihluta
atkvæða að skora á kirkjumálaráð-
herra að taka til greina skriflegar
yfirlýsingar 1500 sóknarbama og
leysa sóknarprestinn, séra Flóka
Kristinsson, frá störfum eins fljótt
og unnt væri. Séra Flóki vildi ekki
að svo stöddu tjá sig um niðurstöðu
fundarins, þegar blaðamaður ræddi
við hann eftir fundinn. Ragnar Fjal-
ar Lárusson prófastur sagðist álíta
að afar erfitt yrði fyrir kirkjuyfir-
völd að komast hjá því að grípa til
aðgerða.
Fundinn í Langholtskirkju sótti
hálft fjórða hundrað sóknarbama.
Hófst hann klukkan hálf níu og rétt
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRAR
Norður-Atlantshafsríkja eru staddir
hér á landi ásamt fylgdarliði. Fyrsti
fundur ráðherranna var í móttöku
Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráð-
herra á Hótel Sögu í gær.
Fundinn sitja Fred J. Mifflin, sjáv-
arútvegsráðherra Kanada, Ivan .Jo-
hannesen, sjávarútvegsráðherra Fær-
eyja, Paviaraq Heilmann, sjávar-
útvegsráðherra Grænlands, Jan
Henry T. Olsen, sjávarútvegsráðherra
fyrir miðnættið flutti Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, eiginkona Jóns Stef-
ánssonar organista, tillögu um að
skora á kirkjumálaráðherra að taka
til greina skriflegar yfirlýsingar
1500 sóknarbarna og leysa sóknar-
prestinn svo fljótt sem verða mætti
frá embætti og virða þannig vilja
safnaðarins. í rökstuðningi benti hún
m.a. á að það væru sóknarbörnin
sem hefðu úrslitavald um ráðningu
prests. Vilji safnaðarins væri grund-
vallaratriði og yrði ráðherra, sem
hefði veitingarvald, að byggja alfar-
ið á þeim vilja.
Tillagan samþykkt 228:25
Töluverðar umræður urðu um til-
löguna, bæði af hálfu stuðnings-
Noregs, V.F. Korelsky, sjávarútvegs-
ráðherra Rússlands og fyrir Evrópu-
sambandið mætir M. José Almeida
Serra, ráðuneytisstjóri sjávarútvegs-
deildar.
Meðal viðfangsefna á fundinum er
fiskveiðistjórnun í Norður-Atlants-
hafi, tæknilegar framfarir í þágu fisk-
veiðieftirlits og -stjómunar, alþjóðleg
fiskveiðimálefni sem snerta hagsmuni
Norður-Atlantshafsrikja og fiskveiði-
stjómun innan lögsögu.
manna meirihluta sóknarnefndar og
prests. Frávísunartillaga var felld
með miklum meirihluta atkvæða.
Tillaga Ólafar Kolbrúnar var síðan
samþykkt með 228 atkvæðum gegn
25 en 3 atkvæði voru auð eða ógild.
í skýrslum sóknarnefndar og
starfsmanna var áberandi óánægja
með máttleysi kirkjulegra yfirvalda
til að taka á málum safnaðarins.
Kom þetta meðal annars fram í
skýrslum Guðmundar E. Pálssonar,
formanns sóknarnefndar, og Báru
Friðriksdóttur, sem séð hefur um
barnastarfið í kirkjunni, en hún
sagði af sér á fundinum og tjáði sig
um erfiðleika í samstarfi við sóknar-
prestinn.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir og
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra hélt hinum sjávarútvegs-
ráðherrum Norður-Atlantshafsríkj-
anna boð á heimili sínu í gærkvöldi
Margrét Leósdóttir sögðu báðar af
sér störfum í sóknarnefnd í samræmi
við úrskurð setts biskups í Lang-
holtskirkjudeilum, séra Bolla
Gústavssonar. Að tillögu þeirra voru
Katla Þorsteinsdóttir og Helgi Krist-
insson kosin í nefndina án mótfram-
boðs. Guðmundur Gíslason varamað-
ur í sóknarnefnd sagði af sér með
þeim orðum að svokölluð Þrótt-
heimasamtök ætluðu greinilega ekki
að láta af illdeilum við sóknarprest-
inn. Var Bergrós Jóhannesdóttir
kosin í hans stað. Þá sagði Sigríður
Jóhannsdóttur safnaðarfulltrúi af
sér störfum, með bréfi til fundarins,
sannfæringar sinnar vegna. Ásgeir
Pétursson, fyrrverandi sýslumaður,
var kosinn í hennar stað.
en á morgun halda fundarmenn til
Rangárvallasýslu þar sem þeir fara
meðal annars á hestbak og snæða
grillmat.
Frambjóð-
endur fá
fyrirgreiðslu
FRAMBJÓÐENDUR í forseta-
kjöri eiga kost á samskonar fyr-
irgreiðslu og stjórnmálaflokkar
við alþingiskosningar. Þetta er
gert samkvæmt samþykkt ríkis-
stjórnarinnar.
Ákveðnar venjur hafa skapast
um þetta en það er hveiju ráðu-
neyti í sjálfsvald sett hvaða fyr-
irgreiðslu þau veita frambjóð-
endum. Þau verða aðeins að
gæta þess að innbyrðis jafnræði
ríki. Venja hefur verið að fram-
bjóðendur hafi t.d. aðgang að
kosningaskrám hjá Hagstofunni
og njóti afsláttar af símgjöldum
hjá Pósti og síma að undirlagi
samgönguráðuneytis.
Allar umsóknir frambjóðenda
um fyrirgreiðslu á að meðhöndla
með sambærilegum hætti þann-
ig að þeir njóti jafnræðis inn-
byrðis og til jafns við stjórnmála-
flokka.
Umræðu
lokið
um fram-
haldsskóla
ÞRIÐJU og síðustu umræðu um
framhaldsskólafrumvarpið lauk
á Alþingi í gærkvöldi en eftir
er að greiða atkvæði um það.
Frumvarpið felur í sér ýmsar
breytingar frá núgildandi lög-
um um framhaldsskólana. Lögð
er áhersla á starfsnám og stefnt
að því að efla og fjölga starfs-
námsbrautum og opna leiðir til
stúdentsprófs fyrir nemendur
sem ljúka starfsnámi og námi
frá sérskólum.
Nokkuð skiptar skoðanir eru
um frumvarpið á Alþingi og
hafa fulltrúar stjórnarandstöð-
unnar gagnrýnt ýmis atriði
þess.
Margeir o g
Hannes Hlífar
efstir
MARGEIR Pétursson og Hann-
es Hlífar Stefánsson eru efstir
á Skákþingi íslands, með 5 vinn-
inga eftir sex umferðir. Helgi
Olafsson er í þriðja sæti með
4 'h vinning.
í sjöttu umferð Skákþingsins
sem fram fór í gær vann Helgi
Ólafsson Jón Garðar Viðarsson,
Benedikt Jónasson vann Torfa
Leósson, Jóhann Hjartarson
vann Jón Viktor Gunnarsson,
Sævar Bjarnason vann Magnús
Örn Úlfarsson, Margeir Péturs-
son vann Þröst Þórhallsson og
Hannes_ Hlífar Stefánsson vann
Helga Áss Grétarsson.
■ Skákþáttur/44
BLAÐINU í dag fylgir
fjögurra síðna auglýsinga-
blað frá BYKO.
Sjávarútvegsráðherrar Norður-Atlantshafsríkja á fundi í Reykjavík
Fundaum
sameiginlega
hagsmuni
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞORSTEINN Pálsson bauð ráðherrunum til veislu á heimili sínu
í gærkvöldi og hér eru þeir úti í garði á Háteigsveginum.