Morgunblaðið - 29.05.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 19
VIÐSKIPTI
Pizza 67 opnar á Stríkinu
og í Bandaríkjunum
EINAR Kristjánsson, t.v., og Gísli Gíslason við dyrhússins
í Augusta í Georgia þar sem Pizza 67 verður
væntanlega brátt opnuð.
HÚSIÐ þar sem Pizza 67 í Kaupmannahöfn verður til húsa er
á Strikinu, um 150 metra frá Kongens Nytorv.
PIZZA 67-veitingastaðir verða
væntanlega opnaðir á Strikinu í
Kaupmannahöfn og í borginni Aug-
usta í Georgíu í Bandaríkjunum í
sumar. Staðurinn á Strikinu verður
í eigu íslenskra aðila og tekur til
starfa fyrir júlílok en í Augusta,
þar sem er um að ræða hóp manna
sem tengjast Frank Booker, sem
árum saman var atvinnumaður í
körfuknattleik hér á landi, er stefnt
að opnun seinnipart sumars.
Einar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri og einn stofnenda
Pizza 67, og Gísli Gíslason, lögmað-
ur fyrirtækisins, eru nýkomnir að
utan og að sögn þeirra eru viðræð-
ur í báðum löndunum vel á veg
komnar.
Fimmtán Pizza 67 veitingastaðir
eru reknir á íslandi. Fyrirtækið er
veitingahúsakeðja þar sem eigend-
ur veitingastaðanna kaupa fram-
leiðslusérleyfi (franchise) frá eig-
endum keðjunnar. Sérleyfið veitir
leyfi til að nota nafn keðjunnar,
matseðil og uppskriftir.
Markaðurinn svipaður og var
hér fyrir 5-15 árum
Einar og Gísli segja að veitinga-
staðurinn á Strikinu verði stofnaður
af eigendum Pizza 67 í Nethyl og
á Akureyri, auk eigenda Pizzahúss-
ins, Hróa Hattar og Bros-bola.
Að sögn Einars hafa eigendur
íslenskra pizza-staða lengi haft
augastað á að færa út kvíarnar til
Norðurlanda. Pizza-markapurinn
þar sé svipaður og var á Islandi
fyrir 5-15 árum síðan og því telji
menn mikla möguleika þar fyrir
hendi.
Niðurstaða fyrrgreinds hóps hafi
orðið sú að taka sig saman um að
opna þennan stað með myndarleg-
um hætti. Ákveðið hefur verið að
taka á leigu 330 fermetra húsnæði
á tveimur hæðum við Strikið, þar
sem 190 þúsund manns ganga fram
hjá á degi hverjum og þar verður
opnað veitingahús innan tveggja
mánaða. Framkvæmdastjóri og
e.t.v. fleira starfsfólk verður ís-
lenskt.
Þá er stefnt að því að fyrirtækið
nýti sér þá kynningu sem það fær
á þessari fjölförnu göngugötu með
því að fara út í heimsendingarþjón-
ustu, sem Gísli og Einar segja að
sé mun takmarkaðri í Danmörku
en íslenskir neytendur eiga að venj-
ast.
Einar og Gísli segja að verið sé
að afla endanlegra leyfa fyrir rekst-
ur staðarins en þeir eiga ekki von
á fyrirstöðu úr þeirri átt. Þá eru
þeir komnir í viðræður við Pepsi í
Danmörku og framleiðendur Faxe-
bjórs um samvinnu við sölu drykkja
á veitingastöðunum.
Frank Booker, sem búið hefur á
íslandi undanfarin ár og leikið
körfubolta með fjölmörgum félög-
um, hefur að sögn Einars og Gísla
ásamt hópi manna tekið á leigu um
600 fermetra húsnæði í heimabæ
sínum Augusta í Georgia, um 40
þúsund manna bæ, og hyggst opna
þar veitingastað með sérleyfi frá
Pizza 67 seinnipart sumars.
Opnað í Atlanta?
Viðræður standa yfir um að gerð-
ur verði samningur við Booker og
félaga hans um opnun þriggja veit-
ingastaða í fylkinu innan tveggja
ára. Gísli segir að Booker og félag-
ar hans, virðist stefna að því að
færa út kvíarnar og opna einnig
sams konar staði í miðbæ Atlanta,
stærstu borg fylkisins_ í húsnæði
sem losnar að loknum Ólympíuleik-
unum þar í haust.
En hvers vegna er áhugi á því
að opna íslenskan pizza-stað í hei-
malandi skyndibitakeðjanna? Gísli
og Einar segja að deyfð sé yfir
pizza-markaðnum vestanhafs og
eftir að hafa kynnst Pizza 67 hér-
lendis hafi Booker tekist að telja
fjármálamönnum í heimabæ sínum
á þá hugmynd að staður með útlit
og fjölbreyttan matseðil Pizza 67
ætti erindi á markað í Bandaríkjun-
um.
Útlit Pizza 67 er í endurhönnun
í tengslum við væntanlega útrás
fyrirtækisins og verður lögð áhersla
á útlit í anda sjöunda áratugarins,
en til hans er nú vísað í nafni fyrir-
tækisins og „lógói.“
Vaxtakjör á nýju láni
ríkissjóðs 16 punkt-
um undir Libor
Hagstæðari
kjör en áður
hafa sést
RÍKISSJÓÐUR hefur á þessu ári
fengið hagstæðari kjör erlendis á
nýju lánsfé til langs tíma en áður
hefur þekkst. Það sem af er árinu
hefur verið gengið frá tveimur
samningum um erlent lánsfé, sam-
tals að fjárhæð um 14 milljarðar
króna. Þegar á heildina er litið
liggja vextir af þessum lánum
undir undir millibankavöxtum í
London eða svonefndum Libor-
vöxtum. Þetta er nýmæli þegar
um er að ræða lánsfé til langs
tíma, að sögn Ólafs ísleifssonar,
framkvæmdastjóra alþjóðasviðs
Seðlabankans.
í síðustu viku var gengið frá
samningum um vaxtakjör á nýju
láni hjá Evrópska fjárfestingar-
bankanum og gilda þau fyrstu
fimm ár lánstímans. Fjárhæð láns-
ins er 63 milljónir þýskra marka
sem jafngildir 2,8 milljörðum
króna. í tengslum við lánið hefur
verið gerður sérstakur vaxta-
skiptasamningur og greiðir ríkis-
sjóður af láninu samkvæmt honum
millibankavexti í London að frá-
dregnum 16 punktum eða 0,16%.
Millibankavextir í þýskum mörk-
um nema nú um 3,35%. Hér er
um að ræða hagstæðari lánskjör
en ríkissjóður hefur áður notið á
sambærilegum lánum. Lánið er til
10 ára og greiðist upp í einu lagi
við lok lánstímans, en það var tek-
ið til að fjármagna ýmsar verkleg-
ar framkvæmdir á vegum ríkisins.
Fyrr á árinu voru gefin út
skuldabréf erlendis að fjárhæð 250
milljónir þýskra marka með slétt-
um millibankavöxtum. Þessi tvö
lán mynda meginuppistöðuna í
erlendum lántökum ríkissjóðs til
langs tíma á árinu.
Ný Olís-stöð opnuð við Sæbraut
OLÍS opnaði á laugardag nýja
þjónustustöð á gatnamótum
Sundagarða og Dalbrautar við
Sæbraut. Elsti starfsmaður félags-
ins, Ólafur G. Jónsson vígði stöð-
ina en hann hefur starfað hjá fé-
laginu í 53 ár.
Stöðin er búin nýjasta dælu- og
tölvubúnaði, sem gerir alla þjón-
ustu við viðskiptavini þægilegri,
hraðari og öruggari en áður, að
því er segir í frétt frá félaginu.
Opnun stöðvarinnar markar
þáttaskil í rekstri Olís, en nýja
stöðin er sú fyrsta sem byggð er
samkvæmt nýrri hönnun félagsins
á verslunarhúsi og skyggni, sem
einkenna mun allar stærri stöðvar
félagsins í framtíðinni. I stöðinni
er 120 fermetra verslun, sem verð-
ur opin til 23.30 alla daga. Þar
verður boðið upp á allar algeng-
ustu neysluvörur þ.m.t. kælivörur
og frystivörur til heimilisins, svo
og vörur til ferðalaga og frí-
stunda. Meðal nýjunga á stöðinni
má nefna, að olíuvörur eru geymd-
ar í sérstökum loftræstum skáp
og bensínafgreiðslumenn hafa
fengið séraðstöðu, aðskilda frá
versluninni. Auk þess verður þar
hægt að taka út reiðufé gegn fram-
vísun debetkorts. Á dælueyjum er
sú nýjung að hægt er að dæla
smurolíu, frostlegi, rúðuvökva og
vatni beint á bílinn, auk eldsneytis.
Stöðin er með sérstaka háhraða-
dælu fyrir stærri bíla sem taka
dísilolíu. Ennfremur er gert ráð
fyrir að í framtíðinni verði hægt
að hlaða rafmagnsbíla á stöðinni.
Fyrstu vikuna verður í boði 5
ki-óna afsláttur á öllu eldsneyti,
auk tuga glæsilegra vörutilboða.
Á sömu lóð byggir Olís nú nýtt
veitingahús með lúguþjónustu, sem
Sundanesti mun starfrækja en það
verður opnað síðar í sumar.
Jafnframt hefur verið ákveðið
að allar nýjar verslanir félagsins
fái heitið „uppgrip" sem vísar til
þess að á stöðvunum verði stöðugt
vöru- og þjónustutilboð í gangi og
auðvelt að nálgast allar vörur með
einföldum og skjótum hætti.
Samhliða opnun hinnar nýju
stöðvar tekur OLIS upp nýtt kjör-
orð: . . . léttir þér lífið.
Vita- og hafnamálastofnun semur við VSÓ
9000 teikningar stofn-
unarinnar á tölvu
VITA- og hafnamálastofnun
hefur gert samning við Verkfræði-
stofu Stefáns Ólafssonar, VSÓ,
um að skanna allar teikningar í
teikningasafni stofnunarinnar og
vista þær á geisladiskum. Um er
að ræða 9000 teikningar og eru
sumar þeirra frá fyrsta hluta ald-
arinnar.
Allt safnið á 7 geisladiska
Vita- og hafnamálastofnun er
fyrsta ríkisstofnunin sem ákveður
að nýta sér tölvutæknina á þennan
hátt. Verkið verður unnið á teikn-
ingaskanna VSÓ, en með honum
er mögulegt að skanna allar hefð-
bundnar teikningar. Tilgangurinn
með verkinu er að varðveita teikn-
ingar á heppilegan og ódýran hátt
og gera þær aðgengilegri. Auðvelt
verður að nálgast teikningarnar
og mögulegt að breyta þeim í
tölvu. Jafnframt verður hægt að
senda teikningar hvert á land sem
er í gegnum tölvunet. Teikning-
arnar 9000 rúmast á 7 geisladisk-
um og mun því sparast mikið hús-
rými. Verkið er unnið samkvæmt
tilboði og er gert ráð fyrir að það
muni taka 3 mánuði.
Teikningar Vita- og Hafna-
málastofnunarinnar eru af ýmsum
gerðum og stærðum, m.a. eru
varðveittar teikningar gerðar með
blýanti á silkipappír. Slíkar teikn-
ingar má gera aðgengilegri og
varðveita afrit af þeim um ókomna
tíð á geisladiski sem að sögn
Bjarna Frímannssonar, fram-
kvæmdastjóra VSÓ, er í senn ein-
föld og ódýr lausn.
Sun Ultra Enterprise Servers
Kynning
á nýrri fjölskyldu af Sun fjölgjörvamiðlurum
með UltraSPARC örgjörvum frá Sun Microsystems
verður á Hótel Sögu í ráðstefnusal A
miðvikudaginn 29. maí kl. 15:00.
Vinsamlegast tilkynnið um þátttöku til Bjarneyjar,
| ritara söludeildar EJS, í síma 563 3060 einarj.
^sun
E)^
LASON HF