Morgunblaðið - 29.05.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996 21
ERLENT
Yfir 9 milljónir flúið heimili sín í fyrrum Sovétríkjunum
Ofyrirsjáanlegar afleið-
ingar fyrir heimsfriðinn
Genf. Reuter.
YFIR níu milljónir manna í lýðveld-
um fyrrum Sovétrikjanna hafa
neyðst til að yfirgefa heimili sín frá
árinu 1989, vegna þjóðernisátaka
eða mikilla vistfræðilegra breytinga.
Að sögn Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna hefur einn af
hveijum þijátíu íbúum í Sovétríkjun-
um sálugu flosnað frá heimilum sín-
um og telur stofnunin þetta verða
„ótrúlega umfangsmikið og flókið
mál“ sem ógni stöðugleika á svæð-
inu. Verði þessi þróun ekki stöðvuð,
kunni hún að hafa ófyrirsjáanlegar
afleiðingar fyrir heimsfriðinn.
Að sögn flóttamannastofnunar-
innar er ekki um að ræða fólk sem
hefur yfirgefið heimili sín í von um
betri lífskjör eða þá sem hafa flust
til annarra landa en fyrrverandi
lýðvelda Sovétríkjanna. Fæstir hafi
flust af fúsum og fijálsum vilja,
nefna megi um 3,6 milljónir manna
sem hrakist hafi á brott vegna þjóð-
ernisátaka, t.d. í Armeníu, Az-
erbajdzhan og Tjsetsjníju. Þá hafa
um 700.000 manns orðið að flytj-
ast frá heimilum sínum vegna
breytinga á vistkerfinu sem orðið
hafa af mannavöldum. Þar má
nefna þurrka í Mið-Asíu vegna þess
hversu yfirborð Aralvatns hefur
lækkað mikið, geislavirkni við til-
raunasvæðið í Semipalatínsk og
kjarnorkuslysið í Tsjernobyl.
Ekki má gleyma um 1,2 millj-
ónum manna, fórnarlömbum nauð-
ungarflutninga á tímum Jósefs
Stalíns. Árið 1944 var yfir ein millj-
ón manna flutt frá heimkynnum
sínum og í kjölfar hruns Sovétríkj-
anna hefur fólkið og afkomendur
þess reynt að snúa aftur heim.
Atök á 164 stöðum
Þetta kemur fram á ráðstefnu
Flóttamannastofnunarinnar, Örygg-
is- og samvinnustofnunar Evrópu
(ÖSE) og Alþjóðabúferlaflutninga-
stofnuninnar (IOM). Er ætlunin að
koma saman áætlun um það hvem-
ig ná megi tökum á vandanum og
komast hjá enn frekari afleiðingum.
í skýrslu Flóttamannastofnun-
arinnar kemur fram að fólkið hefur
hrakist af stað vegna 164 ólíkra
stríðsátaka innan tólf af fimmtán
lýðveldum gömlu Sovétríkjanna.
Flestar af þeim 100 þjóðum sem
hafi búið í lýðveldunum hafi orðið
fórnarlömb þjóðernisátakanna.
Verst hafí slavnesku þjóðirnar, sér-
staklega Rússar, orðið úti en þeir
eru um tvær af þeim níu milljónum
sem hafa flúið heimkynni sín.
Þegar Sovétríkin leystust upp,
bjuggu á milli 54 og 65 milljónir
manna fjarri heimkynnum sínum,
þar af voru 34 milljónir Rússar,
Ukraínumenn og Hvít-Rússar, sem
flestir eru búsettir í lýðveldunum í
suðri og austri. Mestu flutningarnir
hafa tengst lýðveldunum Túrkmen-
istan, Uzbekistan, Kazakhstan,
Tadzhíkistan og Kírgístan.
Gengið til þing’kosninga í ísrael í dag
Peres segir Netanyahu
binda enda á friðinn
Reuter
SHIMON Peres, t.v. og Benjamin Netanyahu, t.h. tóku þátt í sjón-
varpskappræðum undir stjórn Dan Margalit á sunnudagskvöld. Að
þeim loknum vildu stjórnmálaskýrendur ekki eigna öðrum sigurinn.
Jerúsalem. Rcuter. Thc Daily Telcgraph.
SHIMON Peres, forsætisráðherra
ísraels, varaði á mánudag við því að
aðalkeppinautur hans í þingkosning-
unum, Benjamin Netanyahu, myndi
binda endi á friðarumleitanir í _Mið-
Austurlöndum, næði hann kjöri. ísra-
elar ganga að kjörborði í dag. Sam-
kvæmt tveimur skoðanakönnunum
sem birtar voru í gær, hefur Peres,
leiðtogi Verkamannaflokksins, 3%
forskot á Netanayu, sem fer fyrir
Likud-flokkinum. Vonir voru bundn-
ar við að til tíðinda myndi draga í
sjónvarpskappræðum stjórnmálaleið-
toganna á sunnudag en stjórnmála-
skýrendur voru sammála um að svo
hefði ekki verið.
Netanyahu hefur heitið því að
hægja á friðarferlinu sem stjórn
Verkamannaflokksins kom af stað.
Þá segist Netanyahu munu leyfa
nýjar landnemabyggðir á Vestur-
bakkanum og á Gaza. Hafa Palest-
ínumenn brugðist æfír við þessum
yfirlýsingum og sagt þær ögrun við
sig. Peres sagði á mánudag ekki telja
að Likud-flokkur Netanyahu myndi
gera beina atlögu að friðarferlinu en
að sú stefna að leyfa landnám myndi
binda enda á það.
Peres kvaðst telja kosningarnar í
dag vera í raun þjóðaratkvæða-
greiðsla um þá stefnu sem hann og
stjórn hans hafi framfylgt til að
stuðla að friði. „Þetta eru mikilvæg-
ustu, að mínu mati, þýðingannestu
kosningarnar í sögu ísraelska ríkis-
ins. Eg tel að það verði hræðilegt
ef friðarferlið verður fyrir truflun eða
stöðvun og að við stígum skref aft-
urábak. Það verður óskaplega erfitt
að leiðrétta það síðar meir,“ sagði
Peres.
Haldið aftur af
harðlínumönnum
Samkvæmt skoðanakönnun Yedi-
oth Ahronoth sem birt var í gær,
hyggjast 50,5% kjósenda greiða Per-
es atkvæði sitt í embætti forsætisráð-
herra en 46,5% Netanyahu. Þá er
Verkamannaflokkinum spáð 39 eða
40 þingsætum og Likud-bandalaginu
32 eða 36 þingsætum.
í samtali við blaðamann The Daity
Telegraph sagði Netanyahu að verði
hann forsætisráðherra verði það sitt
fyrsta verk að „hressa við friðarum-
leitanirnar. Ég tel að þær séu í kyrr-
stöðu. Ekkert gerist... Ég myndi
kalla saman að nýju til friðarráð-
stefnunnar í Madríd." Ráðstefnan,
sem haldin var árið 1991 var upphaf-
ið sem Ieiddi til friðarsamninga ísra-
ela og Palestínumanna.
Netanyahu fullyrti að hann myndi
halda aftur af harðlínumönnum í
flokknum á borð við Ariel Sharon,
fyrrverandi varnarmálaráðherra.
Hins vegar útilokaði hann palestínskt
ríki, svo og breytingar á stöðu Jerú-
salem. Þá hefur Netanyahu heitið
því að herinn taki yfir öryggisgæslu
að nýju, þó að ekki eigi að snúa að
fullu aftur til arabískra borga á borð
við Nablus.
Kynlíf, elli og
föðurlandsást
Lítið var um óvæntar uppákomur
í sjónvarpskappræðum Peresar og
Netanyahu, sem fram fóru á sunnu-
dagskvöld. Einna líflegastar urðu
umræðurnar er kynlíf, föðurlandsást
og elli bar á góma en að öðru leyti
héldu þátttakendur sig við kunnug-
leg málefni.
Spurningar um einkalíf Peresar
og Netanyahu þóttu glæða umræð-
urnar lífi. Netanyahu baðst enn einu
sinni afsökunar á því að hafa haldið
fram hjá þriðju eiginkonu sinni, en
hann gekkst við hjúskaparbroti árið
1993. Sagðist hann hafa gert mistök
sem sært hefðu fjölskyldu sína, en
að Peres hefði hins vegar gert mis-
tök sem hefðu sært alla ísraelsku
þjóðina og vísaði til friðarsamning-
anna við Palestínumenn.
Þá var gengið á Netanyahu vegna
þess að hann breytti nafni sínu í
Nitay í Bandaríkjunum. Brást hann
reiður við og sagði að með því að
efast um föðurlandsást sína væri
verið að reyna að grafa undan sér.
Fjölskyida hans ætti rætur sínar í
Israel og hefði átt í yfir eina öld.
Þegar komið var að Peres, var
aldur hans fyrst og fremst til um-
ræðu. Lagði hann áherslu á reynslu
sína og góða heilsu. „Mér líður vel.
Starfshæfni mín er mikil. Ég þekkti
marga sem eru ungir en aldnir í
anda,“ sagði Peres. Minnti hann
m.a. á það að í forsætisráðherratíð
sinni á áttunda áratugnum hefði
verðbólga lækkað úr 500% í 18%.
Nokkur hiti komst einnig í umræð-
una er Peres og Netanyahu deildu
um stöðu Jerúsalem en Netanyahu
fullyrðir að Peres hyggist láta skipta
borginni á milli Israela og Palestínu-
manna. Peres sagði þessar ásakanir
„skelfilegar ærumeiðingar" og sak-
aði Netanyahu um að standa fyrir
hræðsluáróðri.
Að kappræðunum loknum lýstu
báðir yfir sigri en stjórnmálaskýrend-
ur vildu ekki eigna öðrum sigurinn
frekar en hinum.
Hvernig listaverk
fengirðu þér ef þú
ynnir 44 milljónir
í Víkingalottóinu?
• T '
777 mikils að vinna!
Alla miðvikudaga
fyrirkl. 16.00.
i