Morgunblaðið - 29.05.1996, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 2 7
LISTIR
Nýjar bækur
• ÚT eru komnar fjórar bækur
eftir Kristin G. Harðarson:
Skyndileg fullvissa, Á fjarlæg-
um stað, Ljóstaktur ogHvers-
dagsheimur portsins. Þetta eru
samtals 119 stuttar sögur, frá
einni og upp í nokkrar síður hver.
í kynningu segir: „Sögurnar
spanna allvítt svið, velflestar unn-
ar upp úr dagbókum höfundar og
það allt aftur til ársins 1983.
Þetta eru draumar, hugleiðingar,
umhverfis- og mannlýsingar,
endursagnir, hugdettur, hvers-
dagslegir viðburðir, ýmiss konar
innri upplifanir og minningarbrot
og reynir höfundurinn oft að
móta efnið þannig að eftir verði
ein samanþjöppuð tilfinning eða
stemmning.
Kristinn, sem hefur myndlistar-
menntun að baki og alllangan fer-
il sem slíkur, hefur frá upphafi
fengist mikið við frásagnartengda
list á einn eða annan hátt og unn-
ið í hin ýmsu efni og form og það
með hinum margvíslegustu að-
ferðum. Hann hefur notað texta í
myndverk og gerninga og jafnvel
gert texta, orð eða setningar að
mynd. Það má því segja að texti
á bók sé beint framhald eða út-
víkkun á þeirri iðju.
Mjög oft fjalla sögurnar og
myndlistarverkin um sama við-
fangsefnið eða myndefnið og oft-
ast þá eitthvað úr persónulegu og
hversdagslegu umhverfi höfundar-
ins. En hvert form og aðferð hefur
sína eiginleika og möguleika og
kemur hinum ýmsu tilfinninga-
þáttum misvel til skila. Það má
því segja að sagan fjalli um aðra
hlið viðfangsefnisins en myndin."
Bækurnar eru útgefnar af höf-
undi í hundrað árituðum eintökum.
Kristinn hefur áðurgefið út Ijóða-
bókina Eilífir sólargeislar.
-----------------
Strengjasveit til
Skandinavíu
STRENGJASVEIT Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar er
nú í tónleikaferð um Noreg og
Svíþjóð. Leikið verður í sænsku
borgunum Arvika, Örebro og Karl-
skoga og ferðinni lýkur með tón-
leikum á Glen tónlistarhátíðinni
fyrir sunnan Osló þann 2. júní. I
ferðinni verður aðallega flutt ís-
lensk og norræn tónlist. Þ.á m.
nýtt verk eftir John Speight, Fá-
einar myndir, sem skrifað er fyrir
tvær strengjasveitir og samið var
sérstaklega í tilefni af þessari tón-
leikaferð.
Tónverkið verður flutt í sam-
vinnu strengjasveitar Tónskólans
og hljómsveitar tónlistarskólans á
hveijum stað fyrir sig. Auk þess
verða flutt verk eftir Johann
Svendsen, Hafliða Hallgrímsson,
Lennart Lundén og Sparre Olsen.
Stjórnandi sveitarinnar er
Sigursveinn Magnússon.
Frjálst bflalán
og önnur bflalán
-þekkirðu muninn?
Engin önnur bílalán sameina alla þessa kosti:
Þér er frjálst að tryggja bílinn þar sem þú vilt.
Þú ert frjáls að skipta um tryggingafélag, þegar betri kjör bjóðast annars staðar.
Bílalánið bindur þig ekki.
Viljir þú selja á lánstímanum er þér frjálst að selja hæstbjóðanda, óháð því hvar hann tryggir því
kaupandinn getur yflrtekið Frjálsa bílalánið .
Þú ert frjáls að því að velja sjálfsáhættuna í kaskótryggingunni og þannig geturðu haft áhrif á hvað
þú greiðir í tryggingariðgjöld.
í Frjálsum bílalánum býður Ghtnir nú allt að 100% lán til 36 mánaða,
75% til 48 mánaða og 65% til 60 mánaða.
Shkt boð hefur ekki sést fyrr hérlendis.
Og betri vextir bjóðast ekki!
Glitnlrhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Glitnir hf., Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 88 00. Myndsendir 560 88 10.
FREISTANDI TILBOÐ Á BÍLUM FRÁ FJÓRUM LÖNDUM,
k., SKEMMTIDAGSKRÁ, VEITINGAR O.M.FL. UM HELGINA. A
ARMULA 13, SÍMI: 568 1200
BEINN SÍMI: 553 1236