Morgunblaðið - 29.05.1996, Side 28

Morgunblaðið - 29.05.1996, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Hetjur háloftanna Sigfús Halldórsson Nýr hljómdiskur Lög Sigfúsar Halldórssonar KVIKMYNPIR Bíóhöllin/Bíóborgin HÆTTULEG ÁKVÖRÐUN „EXECUTIVE DECISION" ★ ★ ★ Leikstjóri: Stuart Baird. Framleið- andi: Joel Silver. Tónlist: Jerry Gold- smith. Aðalhlutverk: Kurt Russell, Halle Berry, John Leguizamo, Joe Morton, Oliver Platt, Steven Segal og David Suchet. Wamer Bros. 1996. SPENNUTRYLLAR dagsins snúast allir um hryðjuverkamenn eftir að Bruce Willis henti þeim út úr skýjakljúfnum í „Die Hard“. Gall- inn er sá að flestir eru þeir gerðir af algeru hugsunarleysi. Þeir eru skrípamyndir eins fjarri raunveru- leikanum og hægt er að komast. Þess vegna er ágætt að fá dálitla tílbreytingu í þennan myndaflokk eins og Hættulega ákvörðun með Kurt Russell. Hún kemst næst því að vera „alvöru“ hryðjuverkatryllir miðað við það sem gengur og gerist. Hún reiðir sig eins og aðrar hasar- myndir á blinda trúgimi áhorfandans en rauði þráðurinn í henni er samt ekki alveg út í hött og persónumar eru af holdi og blóði og spennan sem myndast undir leikstjóm Stuart Ba- ird er raunveruleg og gerir myndina að hinni ágætustu skemmtun. Hættuleg ákvörðun minnir á „Juggernaut", eina af betri hryðju- verkamyndunum frá því í gamla daga. Hún fjallaði um björgunarleið- angur um borð í skemmtiferðaskip úti á reginhafi þar sem sprengja hryðjuverkamanna tifaði. Hættuleg ákvörðun segir af björgunarleiðangri um borð í júmbófarþegaþotu í háloft- unum þar sem sprengja tifar. Hópur arabískra hryðjuverkamanna ætlar ekki aðeins að drepa alla farþegana um borð í sjálfsmorðsleiðangri sínum heldur líka dreifa eiturefnum yfir austurströnd Bandaríkjanna. Handritið er ágætlega gert. Spennan er byggð upp á mörgum stöðum hér og hvar um júmbóþotuna og á jörðu niðri í flókinni atburða- rás, sem smellur saman undir lokin. Eftir að björgunarleiðangurinn er kominn um borð með aðstoð Stealth- flaugar þurfa Russell og hans menn að taka á honum stóra sínum. Ekki er nóg með að farþegamir séu í stöð- ugri hættu frá hendi ræningjanna, bandarísk yfirvöld á jörðu niðri vilja skjóta þotuna niður áður en hún nær bandarískri lofthelgi. Öll austur- ströndin gæti lagst í eyði. Um borð er sprengja sem þarf að finna og gera óvirka og áður en lýkur er eng- inn til að lenda vélinni. Svo það er nóg að gera fyrir ötulan leikstjóra og Baird gefur ekki eftir í hasaratrið- unum. Hann notar flugvélaskrokkinn til hins ýtrasta sem spennumynda- svið og gerir kapphlaupið við tímann að hinni fróðlegustu skemmtun. Russell er taugalausa hetjan holdi klædd, Suchet er samviskulausi hryðjuverkamaðurinn, Halle Berry er langtífrá huglaus flugþerna, John Leguizamo er sviplaus foringi björg- unarliðsins, Oliver Platt er granda- Iaus verkfræðingur, sem kemur að góðum notum, Joe Morton er mátt- laus sprengjusérfræðingur og Steven Segal er fallhlífarlaus þegar hann fórnar sér fyrir leiðangurinn; hann kemur fram í litlu hlutverki í byijun myndarinnar en lætur svo Russell eftir hetjuhlutverkið. Hættuleg ákvörðun er prýðilegur hasartryllir, skemmtilega uppbyggð- ur og spennandi. Ekta sumarbíó. Arnaldur Indriðason ÚT ER kominn tvöfaldur geisladisk- ur og tvöföld snælda með 46 af lög- um Sigfúsar Halldórssonar. Sigfús varð 75 ára á síðasta ári og í tilefni þess var hafist handa við að hljóðrita leik hans og söng Friðbjöms G. Jóns- sonar tenórsöngvara, en þeir hafa unnið saman um árabil. Sigfús Halldórsson er heiðurs- borgari Kópavogsbæjar, og í tilefni 40 ára afmælis bæjarins og 75 ára afmælis Sigfúsar var efnt til tónleika honum til heiðurs. Þeir voru endur- teknir 11 sinnum vegna fádæma aðsóknar. í framhaldi var ákveðið að hljóðrita einnig það sem flutt var á þeim tónleikum og því urðu geisla- diskarnir tveir. Á diskinum, sem inniheldur efni tónleikanna, syngja 10 söngvarar lög Sigfúsar við undirleik Jónasar Ingi- mundarsonar og á hinum diskinum 'syngur Friðbjörn G. Jónsson við und- irleik höfundar. Hér er um nýjar hljóðritarnir að ræða og fór hljóðrit- un fram í listasafni Kópavogsbæjar, Gerðarsafni. Hljóðritun annaðist Sig- urður Rúnar Jónsson fyrir Stúdíó Stemmu. Sigfús er ekki sá eini sem tengist Kópavogsbæ heldur búa allir sem að þessari útgáfu unnu í Kópa- vogi; söngvarar, hijóðfæraleikarar og upptökumaður. Þeir söngvarar sem fram koma eru: Ágústa S. Ágústsdóttir, Eiríkur Hreinn Helgason, Stefanía Valgeirs- dóttir, Friðrik S. Kristinsson, Krist- inn Þ. Hallsson, Þórunn Guðmunds- dóttir, Harpa Harðardóttir, Kristín S. Sigtryggsdóttir, Sigríður Gröndal og Friðbjörn G. Jónsson. Undirleik annast Jónas Ingimundarson, Sigfús sjálfur og einnig leikur Marial Nardeu með á flautu. Útgefandi er Studio Stemma en dreifíngu annast Japis. • BRESKUR rithöfundur, sem barðist í heimsstyrjöldinni síð- ari, hlaut á miðvikudag NCR- bókaverðlaunin, sem veitt eru fyrir wönnur rit en skáldrit. Það var dÖllsjálfsævisaga Eric Lomax, „The mlisRailway Man“, sem hafði betur en „AI- bert Speer: His Battle With the Truth“ eftir Gitta Sereny, „Mukiwa: A White Boy in Africa“ eftir Peter Gowin og „Landscape and Memory“ eftir Simon Schama. Lomax, sem er 78 ára, var tekinn til fanga af Japönum árið 1942 eftir fall Singapore. Var hann látinn þræla við lagningu Burma-lest- arteinanna, var barinn, lokaður inni i járnbúri og handleggur, öxl og mjöðm hans brotin í fangavistinni. Rúmum fimmtiu árum síðar hitti Lomax jap- önsku fangaverðina á brúnni yfir Kwai-fljót í Tælandi. • FINNIST Bandaríkjamönn- um að einhver bók sé góð, hika þeir ekki við að vekja athygli á því með miklum látum. Telji þeir hins vegar að það sé lítið varið í nýjustu bækurnar, snúa þeir sér bara að einhveiju öðru, t.d. kvikmyndum. Svo farast bandaríska rithöfundinum Richard Ford orð í nýlegu við- tali í Die Zeitþe gar hann lýsir afstöðu landa sinna til bók- mennta. Lýsir Ford jafnframt yfir ánægju sinni með það að Bandaríkjamenn líti ekki á bók- menntir sem fyrirbæri sem fyr- ir alla muni verði að fyrirfinn- ast. Telur hann það skynsam- lega afstöðu og að hún verði til þess að rithöfundar leggi óvenju hart að sér til þess að sýna fram á að verk þeirra séu allrar athygli verð. Þá segist Ford vera með nýja bók í smíð- um en segist enn vera í vafa hvort hann eigi að ljúka henni því skrifin séu svo erfið að þau kosti hann „nærri því Iífið“. Brautryðjandastarf í kosningarannsóknum BÆKUR Fræöirit PARTIES AND VOTERS IN ICELAND: ASTUDY OF THE 1983 AND 1987 AL- THINGI ELECTIONS eftir Ólaf Þ. Harðarson. Félagsvís- indastofnun/Háskólaútgáfan, 1995. Prentun: Prentmyndastofan. 391 síða, 3.150 krónur. DR. ÓLAFUR Þ. Harðarson, dós- ent í stjórnmálafræði við Háskóla íslands, á heiðurinn af gerð fyrstu kannananna á kosningahegðun Is- lendinga. Frá því árið 1983 hefur Ólafur stjómað umfangsmiklum kosningakönnunum eftir hverjar al- þingiskosningar. I þessum könnun- um hafa kjósendur verið spurðir fjöl- margra spuminga, t.d. um það hvað þeir kusu í viðkomandi kosningum, hvað þeir hafi kosið áður, hvað for- eldrar þeirra hafí kosið, hver tengsl þeirra séu við stjómmálaflokkana o.s.frv. Að auki er spurt um kyn, aldur, starf og fleira og þannig fæst mikil vitneskja um kosningahegðun einstakra þjóðfélagshópa. Niðurstöður tveggja fyrstu kann- ananna hafa nú verið gefnar út á bók, sem út kom á seinni hluta síð- asta árs. Parties and Voters in Ice- land er jafnframt doktorsritgerð Ól- afs, sem hann varði við London Scho- ol of Economics and Political Science árið 1994. Hér er því yfirgripsmikið og vandað fræðirit á ferðinni. Kosningarannsóknir, rétt eins og aðrar stjómmálafræðirannsóknir, hófust seint á Íslandi. Stjórnmála- fræðingar á hinum Norðurlöndunum hafa gert kosningakannanir frá því á sjötta áratugnum og í Bandaríkjun- um hófust slíkar rann- sóknir fljótlega upp úr stríði. Mælingar yfir langan tíma og margar kosningar em auðvitað nauðsynlegar, eigi að vera hægt að greina til hlítar þróun mála á kjósendamarkaðnum og þau öfl, sem þar em að verki. Einvörðungu óbeinar vísbendingar eru til um kosningahegðun Islend- inga fyrir 1980. Flokka- kerfíð var í tiltölulega föstum skorðum um fjöratíu ára skeið; ijórir flokkar skiptu með sér atkvæðunum og fremur litlar sveiflur urðu á fylgi þeirra á milli kosninga. Gera má ráð fyrir að á þessum áram hafi flokkshollusta, mótuð af fjöl- skyldu, stétt og stöðu, verið sterk. Frá árinu 1971 hafa kjósendur hins vegar orðið nýjungagjarnari og fimm „utangarðsflokkar" hafa náð umtals- verðu fylgi í kosningum til Alþingis, þ.e. Samtök fijálslyndra og vinstri manna, Bandalag jafnaðarmanna, Kvennalistinn, Borgaraflokkurinn og nú síðast Þjóðvaki. í bók sinni varpar Ólafur Þ. Harð- arson ljósi á sérkenni kosningahegð- unar Islendinga með samanburði við niðurstöður kosningarannsókna í öðrum löndum, einkum Noregi og Svíþjóð en einnig í Danmörku, Bret- landi, Bandaríkjunum og fleiri ríkj- um. Ein meginniðurstaða hans er sú að kjósendur á íslandi h'kist frændum sínum í Skandinavíu að því leyti að stéttakosning og flokkshollusta fari minnkandi og að menn ráðstafi at- kvæði sínu fremur eftir áherzlu flokkanna á einstök málefni. Þessi þróun hafi hins^ vegar verið hraðari á íslandi, ef til vill vegna þess að þjóðfélagið sé smærra og þjóðfélagsbreytingar hafi verið örari en í mörgum öðram lönd- um. Óiafur kemst að þeirri niðurstöðu að óvíða hafi verið meiri hreyfanleiki á kjósend- um en í íslenzka kerfinu eftir 1970. Sé litið á þrennar kosningar, 1979, 1983 og 1987, hélt aðeins helmingur kjósenda sig við sama flokkinn í öll þijú skipt- in, hinn helmingurinn skipti um flokk. Þessar niðurstöður sýna að flokkarnir geta í dvínandi mæíi treyst á fastafylgi og baráttan um kjósend- ur hlýtur þar af leiðandi að taka breytingum. Hinn aukni hreyfanleiki er afleið- ing dvínandi flokkshollustu eins og áður segir, þótt enn segist talsverður hluti íslenzkra kjósenda binda trúss sitt við ákveðinn flokk. Ólafur sýnir fram á að stétt og staða hafa í mun minna mæli áhrif á val manna á flokki en gerðist á áram áður. Þó er talsverður munur á kosningahegð- un eftir því í hvorum geiranum fólk starfar, hinum opinbera eða einka- geiranum. Alþýðubandalagið og Kvennalistinn eru augljóslega flokk- ar opinberra starfsmanna. Hins vegar er athyglisvert að sjá að af hinum svokölluðu félagslegu breytum er það einkum fjölskyldan, sem hefur áhrif á það hvernig menn kjósa. Þannig er allnokkur fylgni á milli þess hvað foreldrar fólks kusu og hvað það kýs sjálft. Árið 1983 Ólafur Þ. Harðarson sagðist helmingur kjósenda hafa kos- ið það sama og feður þeirra. Málefnakosning hefur líkast til aukizt á íslandi samkvæmt niður- stöðum Ólafs. Hún er engu að síður veikari á íslandi en í Skandinavíu. Tilgáta Ólafs er að þetta sé vegna þess að stefnumótun íslenzku flokk- anna sé veikari og þeir bjóði kjósend- unum óskýrari kosti en flokkar í Skandinavíu. Þetta hljómar afar sennilega. Óiafur segir að þegar kjós- endur hætti að byggja val sitt á flokki á stétt eða flokkshollustu, leiti þeir að handfestu í málefnum. Takist flokkunum að endurskipuleggja sig og bjóða upp á heildstæðari og sam- kvæmari stefnu í helztu málum, megi búast við því að stöðugleiki vaxi á íslenzka kjósendamarkaðnum að nýju. Margir forvitnilegir fróðleiksmolar eru í þessari bók, auk þess sem hin- ar stærri línur í sambandi flokka og kjósenda koma fram. Þannig er at- hyglisvert að sjá að bæði 1983 og 1987 sagðist fimmtungur kjósenda vera félagar í stjórnmáiaflokkum. Hins vegar kemur í ljós að tölumar passa ekki við félagatölur, sem flokk- arnir gefa sjálfír upp. Þær era í flest- um tilvikum hærri en sú tala, sem reikna má út frá svörum í kosninga- könnununum. Annaðhvort ýkja flokkarnir eða — og það er sennilega hluti af skýringunni — fólk, sem hefur skráð sig í flokk til þess að styðja vin eða kunningja í prófkjöri, lítur engu að síður ekki á sig sem flokksfélaga. Eina undantekningin er hjá Alþýðubandalaginu, sem gefur upp lægri félagatölur en svörin í könnununum gefa til kynna. Ástæð- an kann að vera sú að harðar mun gengið eftir greiðslu félagsgjalda þar en í öðram flokkum. Sömuleiðis er það athyglisvert sér- kenni á hinu örsmáa íslenzka samfé- lagi að nærri helmingur kjósenda segist þekkja þingmann persónulega. Hins vegar kemur á óvart hversu lít- ill munur er á fjölda þeirra, sem segj- ast þekkja þingmann, í landsbyggð- arkjördæmunum annars vegar og á suðvesturhorninu hins vegar. Þetta er ekki í samræmi við það, sem al- mennt hefur verið talið, að lands- byggðarþingmenn ræktuðu kjósend- ur sína betur en þingmenn þéttbýlis- ins. Bók Ólafs nýtist mönnum ekki til fulls nema þeir séu sæmilega inn- vígðir í fræðin, kunni að minnsta kosti einhver skil á þeirri tölfræði, sem er notuð í félagsvísindum. Hins vegar hlýtur hún að vera athyglis- verð lesning fyrir alla, sem hafa áhuga á íslenzkum stjórnmálum og sambandi flokkanna við kjósendur í lýðræðisríki. Hún er jafnframt við- miðunarpunktur fyrir kosningakann- anir framtíðarinnar. Nú væri æski- legt að niðurstöður tveggja næstu kosningakannana, fyrir kosningarn- ar 1991 og 1995, birtust sem fyrst í aðgengilegu formi. Þetta rit er jafnframt mikilvægt framlag til alþjóðlegra rannsókna á kosningahegðun í lýðræðisríkjum og góð viðbót í gagnasafnið. Þetta á ekki sízt við þar sem bókin er rituð á ensku (villulausri, með örfáum undantekningum). Það er í raun óhjákvæmilegt, þar sem doktorsrit- gerðin var lögð fram við enskan háskóla. Hins vegar virðist það al- mennt færast í vöxt að fræðimenn við Háskóla íslands gefi rit sín út á ensku. Jafnframt hefur kennsla á ensku aukizt við háskólann og má búast við að. sú þróun haldi áfram. Nefna má að uppi eru áform um að kenna nokkur námskeið í stjórnmála- fræði á ensku, þar sem fjallað yrði um smáríki í alþjóðakerfinu. Þetta ætti að geta laðað erlenda stúdenta að skólanum, en slíkt er forsenda þess að Háskóli íslands geti nýtt sem bezt tækifæri sín í alþjóðlegu sam- starfí háskólastofnana. Sumir kunna að verða hugsi yfir aukinni notkun ensku og annarra heimstungumála í háskólastarfinu en þetta er engu að síður þróun, sem er óhjákvæmileg og nauðsynleg til þess að hið smáa fræðasamfélag Islendinga einangrist ekki. Hún stuðlar sömuleiðis að því að auka þekkingu á íslandi og sér- kennum íslenzks þjóðfélags, sem er tvímælalaust af hinu góða. Ólafur Þ. Stephensen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.