Morgunblaðið - 29.05.1996, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
TRÉSMÍÐI
Fjölbrautaskólinn Breiðholti
FJðLBRAITTASKÚLlNN
BREIDHOITI
FJðlBRAlITRSXÚUNN
BREIÐHOLTI
Grunndeild undirstöðuatriði í trésmíði
Húsasmíði grunn- og framhaldsdeildir
Húsasmíði fyrir nema á samningi
FB þegar þú velur verknám
RAFVIRKJUN
Fjölbrautaskólinn Breiðholti
Grunndeild rafiðna (1 ár)
Rafvirkjun í verknámsskóla (3 ár)
Rafvirkjun fyrir nema á samningi
AÐSENDAR GREINAR
FB þegar þú velur verknám
FJÖÐRIN í
FARARBRODDI
Allt í DÚstkerfið
ÍSETNING Á STAÐNUM
Hljó&kútar og púströr eru okkar sérgrein. Fjö&rin hf. er
brautry&jandi í sérþjónustu við íslenska bifrei&aeigendur.
Eigin framleiðsla og eigið verkstæði tryggir
góða vöru og gæðaframleiðslu.
Verslio hjá fagmanninum.
Bíbvörubúðin
FJÖÐRIN
Skeifunni 2, Sími 588 2550
Ví gtennur og klær
HUGSUM okkur
hóp ferðamanna sem
villst hefur fjarri
mannabyggðum. Ein-
staklingarnir í hópnum
eru nauðbeygðir að
bera þungar byrðar
langa leið og fara spar-
lega með vatn og vist-
ir. Öðruvísi eiga þeir
sér ekki lífs von. Ef
sumir víkja sér stöðugt
undan því að axla sinn
skerf af byrðunum,
hrifsa til sín meira en
þeim ber af brauði,
maula það upp í opið
geðið á hinum og skola
því niður með því að
þamba hugsunarlaust af vatninu,
þá er voðinn vís. Hópurinn leysist
upp í sundurlyndi og hver og einn
keppist við að tryggja sér eins mik-
ið af lífsnauðsynjum og hann getur
áður en þær verði uppurnar. Það
er sem mönnum byiji að vaxa víg-
tennur og klær. Stöðvi ekkert þessa
feigðarferð ofan í hyldýpi mannlegs
eðlis rífa þeir hver annan á hol.
Eftir stendur sá sem hefur stærstu
vígtennurnar og beittustu klærnar,
en hann er líka dauðadæmdur
vegna þess að brauðið hefur traðk-
ast sundur í átökunum.
í fréttabréfi Handsals er sagt frá
því að skuldabyrði íslenskra heimila
hafi sexfaldast síðustu fimmtán ár.
Skuldirnar voru um 20% af ráðstöf-
unartekjum heimila í byijun níunda
áratugarins en nema nú um 120%.
Höfum í huga, að skuldimar dreif-
ast ekki jafnt á öll heimilin í land-
inu. Því er hlutfallið fyrir mörg
Anna Heiður
Oddsdóttir
þeirra talsvert hærra.
Nefndar eru þijár
meginástæður fyrir
aukningu skuldabyrð-
ar. í fyrsta lagi greiður
aðgangur að lánsfé
vegna skipulagsbreyt-
inga á fjármagnsmark-
aði. í öðru lagi hafi
verðbólgan fyrr á árum
sett mark sitt á hug-
arfar manna til skulda-
söfnunar allt fram á
síðustu ár. í þriðja lagi
veruleg lækkun kaup-
máttar launa undir lok
níunda áratugarins,
samfara umtalsverðri
hækkun raunvaxta.
Ég tel að þróunina megi ekki
síður rekja til þeirrar misskiptingar
tekna og byrða sem hefur viðgeng-
Öfgakapítalismi, segir
Anna Heiður Odds-
dóttir, tröllríður ís-
lenzku þjóðfélagi.
ist í landinu í áraraðir og farið vax-
andi. Vegna smæðar þjóðfélagsins
er misréttið áberandi. Sá sem hefur
úr meiru að spila en annar býr ekki
í afmörkuðu ríkra manna hverfi
eins og víða i stærri samfélögum
heldur í næsta húsi. Þar er fjögurra
manna fjölskylda á mörgum hæðum
og í heimkeyrslunni tróna fíni jepp-
inn, hjólhýsið, vélsleðinn og bátur-
inn. Láglaunamaðurinn hugsar þá
með sér: „Hvers vegna skyldi ég
í fyrsta sinn gefst íslendingum tækifæri að kynnast hvernig
miðlar eiga að vinna. Þar getur þú lært að þjálfa þig með
dulheyrn, dulskynjun og öllum tegundum af hlutlægum
miðilsstörfúm. Tækifæri til þess að kynnast og opna fyrir það
sem þú hefúr ekki kynnst áður.
Leiðbeinendur verða miðlar sem við íslendingar höfúm kynnst.
Mallory Stendall, Leonard Young, Lilian Gilby, Shirley Chubb,
Judith Seaman og Þórhallur Guðmundsson.
12. - 19. okt. 1996. Komutími á Stansted er kl. 14.00 þann 12.
október. Brottför er eftir morgunverð þann 19. okt. Verð er
234 pund og er allt innifalið á skólanum nema einkafúndir.
Flugfarið verður hver og einn að sjá um.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð eru hjá sálarrannsókna-
félögum um allt land.
Ath. fjöldinn er takmarkaður en umsóknir þurfa að berast fyrir
20. júní. Staðfestingargjald er 20 pund. Lokagreiðsla þarf að
berast 4 vikum áður. Staðfestingargjald er óendurkræft.
STIGA Collector
sláttuvél, 3,75 ha.,
4 hæðastillingar.
52 Itr uppsafnari.
Einstök heimilisvél.
Kr. 34.200 stgr.
STIGA Dino
sláttuvél
3,7 ha„
3 hæðastillingar.
Góð heimilisvél.
Kr. 21.850 stgr.
Allar gerðir af sláttuvélum
og sláttuorfum.
STIGA sláttuvélarnar eru
þrautreyndar við íslenskar
aðstæður. Traust varahluta
og viðgerðaþjónusta.
Umboð: Vetrarsól hf.
STIGA aksturssláttuvélar.
Fjöldi fylgihluta fáanlegur.
Frá kr. 185.250 stgr
VETRARSOL
Hamraborg 1-3, norðanmegin
Kópavogi. 564 18 64
TANAKA 2800
vélorf, 0,9 ha.
Fyrir heimili
og sumarbústaði.
Kr. 17.670 stqr.
ekki að minnsta kosti kaupa mér
sæmilega bifreið og almennilegt
sjónvarp? Ég á að vísu ekki fyrir
því en úr því að svona mikið er til
skiptanna er ekki nema sanngjarnt
að ég fái líka að njóta lífsins gæða.
Og ef þeir sem valdið hafa neita
að hækka við mig launin, þá fer
ég bara út í banka og slæ annað
lán. Þegar kemur að skuldadögun-
um hlýtur að verða komin betri tíð.
Eða er ekki alltaf verið að lofa mér
því?“
Þessi maður neitar að horfast í
augu við þá staðreynd að honum
er ekki ætlaður rétturinn til mann-
sæmandi lífs. Og það telur hann
fela í sér annað og meira en að
hafa þann heiður að húka ofan
moldar. Hann er einfaldlega ekki
reiðubúinn að taka góða og gilda
þá staðhæfingu að hann hafi það
alveg nógu gott, svo framarlega
sem hann vinni myrkranna á milli.
Það geri honum ekkert til þótt hann
hafi aldrei tíma til að gera neitt sér
til upplyftingar eða upplýsingar.
Leyfi hann sér að hafna slíkri til-
veru á hann ekki lengur fyrir af-
borgunum af lánum og fer á haus-
inn vegna þess að hann gleymdi
að taka veruleikann með í reikning-
inn. Hann lokar augunum fyrir því,
að telji þeir sem halda um stjórnar-
taumana slíka undirmálstilveru
boðlega, þá skal hún líka vera boð-
leg og eins gott fyrir hann að kyngja
því.
Hætt er við að þegar stór hluti
þjóðarinnar getur ekki lengur keypt
út í krít vegna þess að hann er
orðinn gjaldþrota, fari jafnframt að
hrikta í stoðum íslensks markaðs-
kerfis. Eða ætla hinir efnameiri að
viðhalda stöðu sinni með því að
kaupa af sjálfum sér?
Tekjujöfnun er góð hugmynd.
En hún hefur verið misnotuð í
kreppu undanfarinna ára til þess
að draga tennurnar úr miðstéttinni
og toga hana niður á láglaunastigið
meðan ekkert er hróflað við há-
tekjumanninum. Deilt hefur verið
og drottnað með því að etja saman
ríkisstarfsmönnum og starfsmönn-
um í einkageiranum, langskóla-
gengnum og skammskólagengnum,
verkalýðsfélögum hveiju á móti
öðru. Og byrðunum hefur verið
reynt að jafna sem mest yfir á þá
sem bognust hafa bökin.
Því miður er þess ekki að vænta
að hinir meintu forsvarsmenn al-
þýðunnar í stjórnmálum fái rönd
við reist. Hvernig er hægt að búast
við að þeir fái nokkru framgengt í
átt til jöfnuðar ef þeir geta ekki
einu sinni fundið leið til sameining-
ar innan eigin raða? Erfítt er að
átta sig á því hvað stendur í vegin-
um fyrir henni. Hvað sem það er
hlýtur það að vera mikilvægara en
sú augljósa og knýjandi nauðsyn
að jafna kjörin og auka réttlæti í
íslensku samfélagi.
Hvenær ætlar láglaunafólk að
líta upp úr gluggapóstinum nógu
lengi til að reiðast duglega vegna
þess hvemig farið hefur verið með
það og spyija sjálft sig: Hvers
vegna geri ég ekkert í málinu?
Hvers vegna fer ég ekki til manns-
ins á næstu hæð og ræði við hann
um hvað við getum gert í samein-
ingu? Hvers vegna dreifum við síðan
ekki fræjum þessarar sameiningar
í næstu götu, næsta bæjarhluta,
næsta landshluta og byijum ásamt
hinu fólkinu á gólfinu að leggja á
ráðin um „flauelsbyltingu"?
Flauelsbylting er hugtak sem
notað hefur verið til að lýsa því sem
gerðist í Tékkóslóvakíu árið 1989
þegar spilaborg afmyndaðs komm-
únisma var blásið um koll án blóðs-
úthellinga. Flauelsbyltingin reynd-
ist flugbeitt þótt ekki væri hún blóð-
ug. Skyldi vera hægt að beita svip-
uðum aðferðum í baráttunni gegn
öfgakapítalisma þeim sem nú tröll-
ríður íslensku þjóðfélagi?
Höfundur er
dngskrárgerðarmaður.