Morgunblaðið - 29.05.1996, Page 46

Morgunblaðið - 29.05.1996, Page 46
46 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Víði vellir HVÍTASUNNUMÓT FÁKS SVIPTINGAR er rétta orðið þegar litið er yfir niðurstöður gæðinga- keppni hvítasunnumótsins því fæstir hestanna héldu þeim sætum sem þeir höfðu hlotið í fullnaðar- dómi. Í A-flokki ber að sjálfsögðu hæst sigur stóðhestsins Óðs frá Brún sem Hinrik Bragason sýndi, en hann byrjaði í forvali í fimmta sæti með 8,57, náði öðru sæti í fullnaðardómi 8,59 og tryggði sér svo sigurinn í úrslitum með skörp- um skeiðspretti í lokin. Þar með urðu Svartur frá Unalæk og Þórð- ur Þorgeirsson að játa sig sigraða eftir góða frammistöðu, voru í 1., 3. og síðast í 2. sæti. Efnilegur bróðir Óðs En líklega var það yngri bróðir Óðs, Hljómur, sem Hulda eigin- kona Hinriks sýndi, sem vakti hvað mesta athygli í keppninni. Serían hjá þeim var glæsileg, byij- uðu í 8. sæti en hækkuðu sig í 6. sæti í fullnaðardómi og komu svo tvíefld til leiks í úrslitum og öllum á óvart. Hlutu 3. sætið og verðskulduðu það svo sannarlega. Þama er á ferðinni aðeins fimm vetra stóðhestur sem virðist ekki síðri en stóri bróðir og öfugt við það sem ætla mátti færðist hann . heldur í aukana eftir því sem leið á keppnina sem sjá má. í fjórða sæti varð svo enn einn stóðhestur- inn, Geysir frá Dalsmynni, sem Ragnar Hinriksson sat, hafði verið í 3. og 4. sæti í forkeppninni og stóð vel fyrir sínu í úrslitum hélt fengnum hlut. Endasleppt hjá Dalvar og Daníel Gordon frá Stóru-Ásgeirsá, sem Sigurbjöm Bárðarson sýndi, hafði öllum á óvömm skotist í 1. sætið í fullnaðardómi, féll í 6. sætið enda varð ekki betur séð en dómararnir hafi fengið einhverskonar geð- prýðiskast á föstudagskvöldið og veitt Gordon og Sigurbimi af mikl- um rausnarskap og örlæti sem síð- ar kom í ljós að var ekki alveg á rökum reist þrátt fyrir góða frammistöðu hests og knapa. Prins frá Hvítárbakka og Viðar Hall- dórsson rifu sig upp um tvö sæti en Hannibal frá Hvítárbakka, sem Sigurður Matthíasson sýndi, varð eldsneytislaus í miðjum úrslitum og höfðu sætaskipti við Viðar og Prins eftir góða frammistöðu framan af. Þátttaka sigurvegar- NÆLA frá Bakkakoti ber ægishjálm yfir keppinauta sína í tölti um þessar mundir og fer hún hér fyrir verðlaunahöfum töltkeppninnar, knapi er að venju Hafliði Halldórsson. Stóðhestarnir sterkastir í A-flokki anna frá síðasta landsmóti Dalvars frá Hrappstöðum og Daníels Jóns: sonar varð frekar endaslepp. í fyrsta skeiðspretti í úrslitum missti Dalvar að því er virtist ann- an framfótinn í niðurstigi á mik- illi siglingu og virtist í fyrstu sem að þarna hefði orðið alvarlegt slys, en sem betur fór reyndist ekki vera svo og stóð Daníel á fætur stuttu eftir að klárinn hafði risið upp. En báðir voru þeir smá hrufl- aðir og hættu því keppni, sem var heldur leitt, því ekki var annað að sjá en þeir væru á hraðri upp- leið og ólíklegt að þeir hefðu vermt áttunda sætið að úrslitum loknum ef þessi ólukka hefði ekki dunið yfir. Ekki er hægt að skilja svo við A-flokkinn að ekki sé minnst á hrakfarir Sigurbjörns Bárðarsonar með gæðinginn Dyn frá Ytra- Skörðugili, en í fullnaðardómi missti klárinn skeifu undan á stökkinu og fór því bæði fetið og skeiðið í vaskinn og þar með var farmiðinn á fjórðungsmótið úr sögunni. Misstu Fáksmenn þar einn sterkasta A-flokksgæðing- inn út úr liði sínu, en hiklaust hefði mátt spá Dyni einu af þrem- ur efstu sætunum í keppninni hjá Fáki og góðum möguleikum á sigri á FM. Keppni B-flokksgæðinga var ekki eins dramatísk þótt þar væru umtalsverð sætaskipti í úrslitum. Snillingur frá Austvaðsholti, sem Gunnar Arnarsson sýndi, hafði staðið efstur bæði fimmtudag og föstudag. Af einhveijum sökum hafði maður það á tilfinningunni að þrátt fyrir þessa góða útkomu myndi hann ekki halda sætinu þegar í samanburðinn kæmi sem og kom á daginn. Fjórða sætið varð hlutskipti þeirra. Það var hinsvegar Farsæll frá Arnarhóli sem Ásgeir Svan sat, sem fikraði sig hægt og bítandi í 1. sætið, var fyrst í 4. sæti og síðan í 3. en, fékk 1. sætið hjá ijórum af fimm dómurum í úrslitum. Læðist að manni lúmskur grunur um að þar sé á ferðinni kandídat í sigur- sæti á fjórðungsmóti í sumar, svona ef allt gengur að óskum. Logi frá Skarði, sem Sigurbjörn Bárðarson sýndi í forkeppni, hitti gamlan félaga í úrslitum þegar Orri Snorrason tók við stjórninni og kom klárnum aftur í annað sætið, en hann hafði vermt annað sætið eftir forval á fimmtudegin- um, hrapað í fjórða sætið í fulln- aðardómi. Logi virtist ekki eins öruggur og sannfærandi og hann hefur verið áður þótt alltaf sé hann fallegur. Ernir frá Eyrar- bakka, sem Sigurður Matthíasson sat, var á uppleið allan tímann, byijaði í 6. sæti, síðan 5. og end- aði í því 3. Góð frammistaða hjá ungum hesti. Oddur frá Blönduósi og Sigurbjörn höfnuðu aftur í fimmta sæti eftir að hafa skotist upp í annað sætið í fullnaðardómi. Gæðingakeppnin í heild sinni var líklega sú skemmtilegasta sem getið hefur að líta hjá Fáki til þessa, urmull af tiltölulega jafngóðum hestum, áhugavert keppnisform og ýmsar óvæntar uppákomur. Valdimar Kristinsson LITLI bróðir sigurvegarans í A-flokki, Hljómur frá Brún, ætlar ekki að gefa þeim stóra neitt eftir, náði þriðja sæti aðeins fimm vetra gamall, knapi er Hulda Gústafsdóttir. FEGURÐ í reið er hans aðal. Svartur frá Unalæk og Þórður Þorgeirsson fara hér vel í góðri töltsveiflu og er ekki annað að sjá en fótlyftan sé vel viðunandi. Hvítasunnumót Fáks A-flokkur gæðinga 1. Óður frá Brún, eig.: Hulda og Hinrik, knapi Hinrik Bragason, 8,58/8,59. 2. Svartur frá Unalæk, eig.: Oddur Bjömsson og Þórður Þorgeirsson, knapi Þórður, 8,67/8,58. 3. Hljómur frá Brún, eig.: Hulda og Hinrik, knapi Hulda, 8,50/8,52. 4. Geysir frá Dalsmynni, eig.: Amgrímur Ingimundar- son, knapi Ragnar Hinriksson, 8,58/8,57. 5. Prins frá Hvítárbakka, eig. og knapi Viðar Halldórsson, 8,54/8,51. 6. Gordon frá Stóru-Ásgeirsá, eig. og knapi Sigurbjöm Bárðarson, 8,37/8,61. 7. Hannibal frá Hvítárbakka, eig.: Guðmundur Jóhannesson, knapi Sigurður V. Matthíasson, 8,58/8,55. 8. Dalvar frá Hrappsstöðum, eigandi og knapi Daníel Jónsson, 8,58/8,48. B-flokkur gæðinga: 1. Farsæll frá Amarhóli, eig. og knapi Ásgeir Svan Herbertsson, 8,61/8.58. 2. Logi frá Skarði, eig.: Sigurbjöm Bárðarson, knapi Sigurbjöm, í úrslitum Orri Snorrason, 8,69/8,56. 3. Emir frá Eyrarbakka, eig. og knapi Sigurður V. Matthíasson, 8,56/8,54. 4. Snillingur frá Austvaðsholti, eig. og knapi Gunnar Amarson, 8,71/8,69. 5. Oddur frá Blönduósi, eig. og knapi Sigurbjöm Bárðarson, 8,60/8,59. 6. Hektor frá Akureyri, eig. og knapi Gunnar Amarson, knapi í úrslitum Kristbjörg Eyvindsdóttir, 8,68/8,40. 7. Birta frá Breiðabólsstað, eig. og knapi Sigurður V. Matthiasson, knapi i úrslitum Gylfi Gunnarsson, 8,51/8,44. 8. List frá Litla-Dunhaga, eigandi og knapi Sigurbjöm Bárðarson, knapi í úrslitum Hermann Karlsson, 8,55/8,51. Ungmennaflokkur 1. Kristín H. Sveinbjarnardóttir á Valiant frá Hreggsstöð- um, 8,27. 2. Davíð Jónsson á Snældu frá Miðhjáleigu, 8,33. 3. Alma Olsen á Erró frá Langholti, 8,31. 4. Gunnhildur Sveinbjamard. á Víkingi frá Þverá, 8,23. 5. Saga Steinþórsdóttir á Húna frá Hrafnhólum, 8,25. 6. Karl G. Davíðsson á Tinna frá Minna-Núpi, 8,11. 7. Guðrún Bemdsen á Galsa frá Hofsstöðum, 8,20. 8. Þórir Ingþórsson á Þrúði frá Hemlu, 8,10. Unglingaflokkur. 1. Davíð Matthíasson á Prata frá Stóra-Hofi, 8,64. 2. Auður Jónsdóttir á Kleopötru frá Króki, 8,31. 3. Bergþóra Snorradóttir á Ósk frá Dalsmynni, 8,48. 4. Ámi B. Pálsson á Hrannari frá Teigi II, 8,27. 5. Erla Sigurþórsdóttir á Garpi úr Gullbringusýslu, 8,36. 6. Bjarni G. Viðarsson á Snúði frá Hjaltastaðahvammi, 8,31. 7. Hannes Siguijónsson á Vini frá Svanavatni, 8,22. 8. Aníta M. Aradóttir á Faxa frá Sogni, 8,21. Barnaflokkur. 1. Silvía Sigurbjörnsdóttir á Hauki frá Akureyri, 8,60. 2. Viðar Ingólfsson á Glað frá Fyrirbarði, 8,59. 3. Jóna M. Ragnarsdóttir á Móbrá frá Dalsmynni, 8,50. 4. Anna Þ. Rafnsdóttir á Pílu, 8,46. 5. Þórdís Gunnarsdóttir á Venna frá Kirkjubæ, 8,36. 6. Unnur B. Vilhjálmsd. á Svertu frá Stokkhólma, 8,34. 7. Hrefna M. Ómarsdóttir á Salvari frá Álfhólum, 8,21. 8. Sæþór F. Sæþórsson á Pjakki frá Akranesi, 8,23. Tölt. 1. Hafliði Halldórsson á Nælu frá Bakkakoti, 98,7. 2. Vignir Siggeirsson á Þyrli frá Vatnsleysu, 93,6. 3. Sigurður V. Matthíasson á Emi frá Eyrarbakka, 88,9. 4. Fríða Steinarsdóttir á Hirti frá Hjarðarhaga, 87,5. 5. Baldvin A. Guðlaugsson á Gullfossi frá Breiðabóls- stað, 84,3. 6. Olil Amble á Kraka frá Reykjavík, 83.0. 7. Snorri Dal Sveinsson á Greifa frá Sauðanesi, 79,4. Áhugamannabikar A-flokki: Viðar Halldórsson. Áhugamannabikar B-flokki: Gunnhildur Sveinbjam- ardóttir. Ásetuverðlaun unglinga: Davíð Matthfasson. Ragnar Thorvaldsen styttan: Gunnar Arnar- son.Skeið 150 metrar. 1. Sokki frá Kvíabekk, knapi Baldvin Ari Guðlaugsson, 14,84. 2. Lúta frá Ytra-Dalsgerði, knapi Þórður Þorgeirsson, 14,86. 3. Súper-Stjarni frá Múla, knapi Daníel Jónsson, 16,28. Skeið 250 metrar. 1. Tvistur frá Minni-Borg, knapi Logi Laxdal, 22,18. 2. Svala frá Gufunesi, knapi Hörður Hákonarson, 23,17. 3. Von frá Hóli, knapi Auðunn Kristjánsson, 23,27. Brokk 300 metrar. 1. Þiðrandi frá Álfsstöðum, knapi Þráinn Ragnarsson, 39,07. 2. Sturla frá Neistastöðum, knapi Aksel Jansen, 49,55. Stökk 350 metrar. 1. Chaplín frá Skarði, knapi Siguroddur Pétursson, 26,82. 2. Eija frá Neðra-Vatnshomi, knapi Hjalti Geir Unn- steinsson, 28,45. 3. Glúmur, knapi Logi Ólafsson, 28,98. Kerrubrokk 800 metrar. Munkur, knapi Jón Ingi Kristjánsson, 2.00.34. 2. Trilla, knapi Hjalti G.Unnsteinsson, 2.03.24. Stóðhestar 6 v. og eldri 1. Logi frá Skarði, f.: Hrafn, 802, m.: Remba, Vindh., eig.: Sigurbjöm Bárðarson, Bygging: 8,23, hæfil.: 8,57, aðaleinkunn: 8,40. 2. Óður frá Brún, f: Stígur, Kjartansst.: m.: Ósk, Brún, eig.: Hulda og Hinrik, b.: 7,78, h.: 8,90, a.: 8,34. 3. Sjóli frá Þverá, f.. Sólon, Hóli, m.: Dimmalimm, Sleit- ust., eig.: Magnús og Magnús Matthíasson, b.: 8,13, h.: 8,52, a.: 8,32. 4. Fjalar frá Bjargshóli, f.: Glaður, Skr., m.: Ferija, St,- Hofi, eig.: Eggert Pálsson og Sigurður Marinusson, b.: 8,24, h.: 8,19, a.: 8,21. 5. Askur frá Hofi, f.: Bylur, Kolkuósi, m.: Perla, Dalvík, eig.: Sigurbjörn Bárðarson, b.: 7,97, h.: 8,09, a.: 8,03. Stóðhestar 5 v. 1. Ásaþór frá Feti, f: Kraflar, Miðsitju, m: Ásdis, Neðra-Asi, eig.: Brynjar Vilmundarson, b: 8,28, h: 8,03, a.: 8,15 2. Jóreykur frá Beinakeldu, f: Reykur, Hoftúni, m: óskráð, eig.: Þormóður Pétursson og Egill Þ. Steingríms- son, b.: 8,00, h.: 8,03, a.:8,01 3. Flygill frá Högnastöðum, f:Hrafn, Holtsmúla, m: Gerpla, Högnastöðum, eig.: Magnús T. Torfason, b.: 7,99, h.:7,89, a.: 7,94 4. ísak frá Eyjólfsstöðum, f.: Hrafn, Holtsmúla, m.: Sera, Eyjólfsstöðum, b.:7,60, h.: 8,10, a.: 7,85 Stóðhestar, 4 vetra. 1. Eiður frá Oddhóli, f.: Hrímnir, Vilmundarstöðum, m.: Eiða, Skáney, eig.: Sigurbjöm Bárðarson, b.: 8,18, h.: 7,76, a.: 7,97 2. Fáni frá Kvíarhól, f.: Kolfinnur, Kvíarhóli, m.: Ábót, Neðra-Ási, eig.: Hugrún Valdimarsdóttir og Gunnar Baldursson, b.:8,09, h.: 7,73, a.: 7,91 3. Sindri frá Högnastöðum, f.: Orri, Þúfu, m.: Gerpla, Högnastöðum, eig.: Magnús T. Torfason, b.: 8,01, h.: 7,80, a.: 7,91 4. Eldur frá Vallanesi, f.: Snúður, Vallanesi, m.: Kúkka, Vallanesi, eig.: Vilhjálmur Hafsteinsson, b.: 7,97, h.: 7,87, a.: 7,90 5. Straumur frá Vogum, f.: Orri, Þúfu, m.: Gæfa, Gröf, eig.: Gunnar Arnarson, b.: 8.01, h.: 7,69, a.: 7,85 Einstaklingssýndar hryssur 6 vetra og eldri 1. Lukka frá Viðidal, f.: Hrafn, Holtsmúla, m.: Yrpa, Víðidal, eig.: Kristinn Valdimarsson, b.: 7,81, h.: 8,95, a.: 8,38 2. ísold frá Gunnarsholti, f.: Brennir, Kirkjubæ, m.: Djörfung, Gunnarsholti, eig.: Berglind Ágústsdóttir, b.: 7,86, h.: 8,53, a.: 8,19 3. Hetja frá Oddhóli, f.: Ófeigur, Hvanneyri, m.: Gola, Brekkum, eig.: Fríða H. Steinarsdóttir, b.: 8,10, h.: 8,22, a.. 8,16 4. Þöll frá Efri-Brú, f.: Otur Sauðárkróki, m.: Blökk, Efri-Brú, eig.: Böðvar Guðmundsson, b.: 8,01, h.: 8,31, a.: 8.16 5. Nería frá Sandhólaferju, f.: Þokki, Garði, m.: Nanna, Sandhólafeiju, eig.: Steinunn H. Gunnarsdóttir, b.:7,85, h.: 8,45, a.:8,15 Einstaklingssýndar hryssur 5 vetra. 1. Elding frá Viðidal, f.: Hervar, Sauðárkróki, m.: Rauðka, Víðidal, eig.: Margrét S. Stefánsdóttir, b.:7,89, h.: 8,39, a.: 8,14. 2. Bylgja frá Torfunesi, f.: Baldur, Bakka, m.: Kvika, Rangá, eig.: Sigurbjörn Bárðarson og Baldvin K. Bald- vinsson, b.: 8,06, h.: 8,.12, a.: 8,09. 3. Linda frá Árbakka, f.: Leistur, Álftagerði, m.: Dala- Brúnka, Kolkuósi, eig.: Sigurður Halldórsson, b.: 7,83, h.: 7,99, a.: 7,91. 4. Filma frá Árbæ, f.: Toppur, Eyjólfsstöðum, m.: Berta, Vatnsleysu, eig.: Arngrímur Magnússon, b.: 7,71, h.: 8,01, a.: 7,86. 5. Björk frá Efra-Apavatni, f. : Ernir, Efri-Brú, m.: Hrafnhetta, Efra-Apavatni, eig.: Guðmundur Harðar- son, b.: 7,81, h.: 7,89, a.: 7,85. Einstaklingssýndar hryssur 4 vetra. 1. Kyrrð frá Lækjamóti, f.: Orri, Þúfu, m.: Olga, Húna- völlum, eig.: Edda R. Ragnarsdóttir og Sturlaugur Þ. Halldórsson, b.: 7,92, h.: 7,88, a.: 7,90. 2. Dögun frá Laugarvatni, f.: Ófeigur, Flugumýri, m.: Dögg, Dalsmynni, eig.: Sveinn Ragnarsson, b.: 7,92, h.: 7,71, a.: 7,81. 3. Hekla frá Hafsteinsstöðum, f.: Hervar, Sauðárkróki, m.: Elding, Hafsteinsstöðum, eig.: Eiríkur Benjamlns- son, b.: 7,78, h.: 7,80, a.: 7,79. 4. Kolbrún frá Kjarnholtum, f.: Piltur, Sperðli, m.: Gló- kolla, Kjarnholtum, eig.: Magnús Einarsson, b.: 7,62, h.: 7,91, a.: 7,76. 5. Blíða frá Eystri-Hóli, f.: Platon, Sauðárkróki, m.: Fluga, Flugumýri, eig.: Ingibjörg Ólafsdóttir, b.: 7,73, h.:7,75, a.: 7,74.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.