Morgunblaðið - 29.05.1996, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996 61
FÓLK í FRÉTTUM
Vantar þrjú rifbein
Hefur aldrei
verið ham-
mgjusamari
Skórfrá
Cindeíella
Laugavegi 83
Reuter
Innritun hafin á
Heilsubótardaga
<5. á Reykhólum
SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 - Sími 568 9066
- Þar fœröu gjöfina -
Veröandi brúðhjón,
kynnið ykkur sumarleik
Silfurbúðarinnat ogFlugleiða
Þrjú heppin brúÖhjón sem
velja sér þjónustu Óskalistans
munuferðast í boði
Silfurbúðarinnar
ogFlugleiða til
Evrópu í haust
7 daga hvíldar- og hressingardvöl í júní og júh.
Þar verða kynntar leiðir til að bæta heilsuna,
öðlast meiri frið og gleði.
Sérstakir fyrirlesarar og
tónlistarmenn veröa
á hverju námskeiði
Timabilin eru:
23. júní - 30. júrú
2. júlí - 9. júlí
9. júlí - 16. júlí
16. júlí - 23. júlí
23. júlí - 30. júlí
*
Kærkveðja,
Sigrúrt Olsen & Þórír Barðdal.
Nánari upplýsingar
í sima 564 3434
ámillikl. lOoglS
alla virka daga
Stjörnur
í Sydney
)► BRUCE Willis lét sig ekki
muna um að skreppa til Sydney
og taka nokkur lög með hljóm-
sveit sinni „Accelerators" þegar
Planet Hollywood-veitingahús-
akeðjan opnaði útibú þar í borg
á sunnudaginn. A hinni myndinni
sjáum við leikarann Charlie She-
en ásamt kóalabirni og ástralskri
blómarós. Um 5 þúsund manns
sóttu opnunina, þar á meðal
margir frægir leikarar. Þetta er
32. Planet Hollywood-staðurinn,
en á hluthafaskrá fyrirtækisins
eru til að mynda Bruce Willis,
Sylvester Stallone, Demi Moore
og Arnold Schwarzenegger.
HELGE Duesund, 54 ára gamall Norðmaður, er
aldeilis ánægður með lífið um þessar mundir.
Eftir 35 ára missætti við foreldra sína hringdi
faðir hans og spurði: „Getum við orðið vinir á
ný?“ Helge hafði lent saman við foreldra sína
þegar hann kom heim til Bergen eftir töluverða
fjarveru fyrir 35 árum. Þá komst hann að raun
um að þau voru skilin og höfðu gift sig öðru
fólki. „Ég varð mjög bitur og reiður. Viðbrögðin
voru að tala ekki við þau, en mig grunaði ekki
hversu afdrifaríkar afleiðingar það myndi hafa,
segir Helge, sem hefur starfað sem kokkur og
yfirþjónn. „Líf mitt var í rúst eftir þessa at-
burði,“ segir hann.
„Hann var andlega og
líkamlega eins langt niðri
og hægt er að komast,“
segir Arne Korsvold, kíro-
praktor, sem Helge heim-
sótti fyrir tilstilli þáver-
andi sambýliskonu sinnar.
Arne beitti svokallaðri
„Release Work“-meðferð
á Helge og hún virtist bera
árangur. „Helge var við
það að deyja úr sorg,“
segir hann. „Líkamsstarf-
semin var í algjöru lág-
marki og hjartað skilaði
aðeins 15% af venjulegri
starfsemi. Meðferðin fólst
í að ná sambandi við þess-
ar vondu og yfirþyrmandi
tilfinningar og „kýla á“
neikvæðu straumana,“
segir Arne.
Hið ótrúlega gerðist
kvöldið sem Helge kom
heim úr meðferðinni: faðir
hans hringdi og baðst af-
sökunar, eftir að þeir
höfðu ekki talað saman í
35 ár. Stuttu seinna fór
Helge í hjartauppskurð.
„Ég var á mörkum lífs og
dauða. Núna er ég með
stórt ör og gangráð, vant-
ar þrjú rifbein og hef aldr-
ei verið hamingjusamari,“
HELGE ásamt Somyong sinni, hamingjusamari
en nokkru sinni fyrr.
EINS og nýsleginn túskildingur
eftir aðgerðina.
segir Helge. Skömmu eftir upp-
skurðinn hóf hann að skrifast á við
Somyong Kanthapan frá Tælandi og
það endaði með þvi að hún fluttist
til Noregs og giftist honum. Því má
með sanni segja að Helge Duesund
sé lukkunnar pamfíll.
'ónanm
Gjafaþjónustafyrir brúðkaupið
Gatekki
drepið sér
til matar
TENNISKONAN fræga, Mart-
ina Navratilova, er grænmetis-
æta og stolt af því. „Ég get
sagt ykkur nákvæmlega hvenær
ég gerðist grænmetisæta og af
hveiju. Það
var 2. janúar
1993 og ég
hafði verið á
fasanaveiðum
og eftir þær
borðuðum við
fasanann. Það
hvarflaði að
mér að ég
þyrfti ekki að
borða kjöt til
að halda lífi,
að það væru fleiri kostir. Þetta
var heimspekileg ákvörðun. Ef
ég hefði það ekki í mér að drepa
dýr ætti ég ekki að leggja mér
þau til munns.“ Svo virðist því
sem Martina sé veikur hlekkur
í fæðukeðjunni eins og hún hef-
ur verið síðustu árþúsund.
Martina
Navratilova