Morgunblaðið - 12.06.1996, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1996 45
Þemavika
í Engjaskóla
NEMENDUR í Engjaskóla í Grafarvogi
notuðu síðustu viku maímánaðar í þema-
vinnu. Þemaverkefnið á þessu fyrsta
starfsári skólans var næsta nágrenni
hans. Farið var í vettvangsferðir, s.s. að
Korpúlfsstöðum, í Sorpu, styttugarðinn
hans Hallsteins Sigurðssonar og fjaran
var vandlega skoðiyi. I lokin var svo
sýning á vinnu nemenda þar sem m.a.
var sýnt líkan af Korpúlfsstöðum og
styttugarði Hallsteins.
LÍKAN af Korpúlfsstöðum.
Athugasemd frá
landbúnaðarráðuneytinu
Matur og matgerð
Ábætísréttir
úr rabarbara
*
Eru Islendingar hættir að nota
rabarbara, spyr Kristín Gestsdóttir,
sem býr til gómsæta rétti úr honum.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá landbúnaðarráðu-
neytinu:
„Athugasemdir landbúnaðarráðu-
neytisins vegna frétta og umfjöllun-
ar í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins 7.
júní og í sjónvarpi og dagblöðum
um malartöku í landi Krísuvíkur.
Landbúnaðaráðuneytið vísar á bug
fullyrðingum Lúðvíks Bergvinssonar
alþingismanns um að ráðuneytið hafi
hyglað gjaldþrota fyrirtæki með því
að semja við annan aðila um mal-
arnám í landi Krísuvíkur. Hið rétta
er að ráðuneytið hafði gert samning
um malartöku við Vatnsskarð hf. og
rann sá samningur út 1. júlí 1995.
Hinn 1. október sama ár var gerður
nýr samningur við fyrirtækið Alex-
ander Olafsson hf., sem tók á sig
skyldur Vatnsskarðs hf. við ráðuneyt-
ið um frágang malarnámanna og
uppgjör fjárhagsskuldbindinga. Með
þessu taldi ráðuneytið hagsmunum
sínum best borgið. Ástæðan var sú
að Vatnsskarð hf. hafði átt í erfiðleik-
um með að standa skil á leigugreiðsl-
um til ráðuneytisins og því taldi ráðu-
neytið ekki rök til að endurnýja samn-
inginn við Vatnsskarð hf. eða heimila
fyrirtækinu áframhaldandi rétt til
malartöku. Vatnsskarð hf. var úr-
skurðað gjaldþrota 1. febrúar 1996,
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Landsbanka íslands:
„Auglýsing Landsbanka fslands í
Morgunblaðinu sl. laugardag, þar
sem bankinn kynnti að hann muni
taka forystu um að veija hagsmuni
sparifjáreigenda vegna álaganingar
skatta á sparifé, hefur vakið verð-
skuldaða athygli.
Hún hefur þó einnig að því er
virðist valdið misskilningi hjá ein-
hveijum. Þannig telur þingamður
úr skattlagningarnefndinni að
Landsbankinn hyggist greiða skatt-
inn fyrir sparifjáreigendur með styrk
frá ríkinu. Þetta er rangt. Bankinn
fékk engan styrk en hinsvegar heim-
ild til endurnýjunar hluta víkjandi
láns sem hann hefur verið að greiða
niður. Þetta er óskylt styrkveitingu
og er ekki leið til að greiða niður
sparifjárskatt.
eða hálfu ári eftir að umsaminn
samningstími rann út. í núgildandi
samningi sem gerður var íjórum
mánuðum fyrir gjaldþrot Vatns-
skarðs hf. var sú skylda lögð á núver-
andi rétthafa að tryggja skilvísar
greiðslur ógreiddra leigugjalda og
auk þess góða umgengni um náma-
svæðið á sinn kostnað.
Landbúnaðarráðuneytið getur
ekki fylgst með uppsöfnun skulda
hjá öllum þeim fyrirtækjum og ein-
staklingum sem það skiptir við og
ekki séð fyrir fram hvaða aðilar
gætu hugsanlega orðið gjaldþrota í
framtíðinni.
Fyrstu upplýsingar til ráðuneyt-
isins um gjaldþrot Vatnsskarðs hf.
komu í bréfi frá Sýslumanninum í
Hafnarfirði dags. 9. febrúar 1996,
þar sem vakin er athygli á því að
fyrirtækið hafi verið úrskurðað
gjaldþrota 1. febrúar s.á., en réttur
til malartöku í landi Krísuvíkur hafði
þá um fjögurra mánaða skeið verið
í höndum Alexanders Ólafssonar hf.
og Vatnsskarð hf. því ekki lengur
tengt ráðuneytinu.
Það skal tekið fram að fyrirtæki
það sem samið var við 1. október
1995 var stofnað tveim árum áður,
eða í október 1993. Af þessu sést
að fullyrðingar um að ráðuneytið
Fram kom að Landsbankinn geti
ekki breytt vöxtum með handafli. Það
stendur ekki til. Ljóst er að skattlagn-
ing sparifjár er aðgerð sem hefur
áhrif til hækkunar markaðsvaxta í
landinu. Það kom margsinnis fram í
þinginu og þjóðfélaginu þegar fjár-
magnstekjuskattur var til umræðu.
Landsbankinn stendur vörð um hags-
muni sparifjáreigenda. Varðandi lága
ávöxtun bankanna á almennum
sparisjóðsbókum er þess að geta að
þær eru fyrst og fremst til þess falln-
ar að nota sem veltufjárreikninga
enda önnur innlánsform með hærri
ávöxtun í boði varðandi allan annan
sparnað. Kemur því nokkuð á óvart
að fyrrverandi andstæðingur skatt-
lagningar á sparifé sem nú stóð að
tillögunum um skattlagninguna skuli
með þessum hætti tala gegn hags-
munum sparifjáreigenda."
hafi flutt námuréttindi frá gjaldþrota
fyrirtæki yfir á „nýja kennitölu" eru
rangar.
Varðandi samninga um malar-
töku, þá segir í 1. gr. námulaga nr.
24/1973: „Landareign hverri, sem
háð er einkaeignarrétti, fylgir réttur
til hagnýtingar hvers konar jarð-
efna, sem þar finnast í jörðu eða
á, þó með þeim takmörkunum, sem
lög þessi tilgreina." Þessi grein
námulaga er lagastoð fyrir samning-
um um malartöku ríkisins á jarð-
eignum sínum sem og annarra land-
eigenda.
Samkvæmt 9. gr. reglugerðar nr.
96/1996 um Stjórnarráð Islands fer
landbúnaðarráðuneytið með mál er
varða þjóð- og kirkjujarðir. Við með-
ferð ríkisjarða kemur ráðuneytið
(jarðeignir ríkisins) fram f.h. rík-
issjóðs sem landeigandi. Þannig er
um ríkisjörðina Krísuvík.
Ráðuneytið leigir flestar ríkisjarðir
til búrekstrar en auk þess til margra
annarra nota, þ.m.t. til beitar, skóg-
ræktar og nýtingar jarðefna. Land-
búnaðarráðuneytinu er heimilt að
ráðstafa jarðefnum og öðrum hlunn-
indum ríkisjarða, en ráðstöfun jarð-
efna felur ekki í sér sérstakt náma-
leyfi, sem áskilið er í Námulögum.“
Athugasemd
frá fjármála-
ráðherra
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Friðriki
Sophussyni fjármálaráðherra:
„I grein Vilhjálms Bjamasonar í
Morgunblaðinu í gær kemur fram
alvarlegur misskilningur varðandi
fyrirhugaða skattlagningu vaxta-
tekna af spariskírteinum ríkissjóðs
sem nauðsynlegt er að leiðrétta.
Samkvæmt nýsamþykktum lögum
er gert ráð fyrir að vaxtatekjur ein-
staklinga verði skattskyldar frá og
með næstu áramótum. Þetta þýðir
að einungis þær vaxtatekjur sem
verða til eftir gildistöku laganna
verði skattskyldar. Vaxtatekjur sem
falla til fyrir þennan tíma verða hins
vegar ekki skattlagðar jafnvel þótt
þær komi ekki til útborgunar fyrr
en eftir gildistöku laganna."
ÞEGAR ekið er um sveitir
landsins á sumrin má víða sjá
breiður af blómstrandi rabar-
bara. Þetta var óþekkt sjón áður
fyrr þegar ekki fengust ferskir
ávextir og rabarbarinn var mikið
nýttur, en við megum ekki
gleyma honum þótt mikið fáist
af ferskum ávöxtun, hann er
kærkomin tilbreyting í fæðu okk-
ar. Um daginn las ég í virtri bók
að í rabarbara væri mikið af járni
og kalki auk C-vítamíns, það vissi
ég ekki. Nú hefur árað vel eink-
um sunnanlands og margir eru
farnir að taka upp rabarbarann
sem er um þrem vikum fyrr á
ferðinni en venju-
lega og er jafnvel
farin að blómstra.
í nágrannalönd-
um okkar er tals-
vert borðað af
rabartíara síðla
vetrar og á vorin
áður en ávaxta-
uppskeran hefst.
Bretar gera tals-
vert af því að
rækta rabarbara á
útmánuðum í
dimmum gróður-
húsum, þá verður
hann fölur á litinn
og ekki eins súr.
Þetta væri athug-
andi fyrir íslenska
gróðurhúsabænd-
ur, þar sem hægt
væri að rækta rabarbara á hinum
dimmu vetrarmánuðum. Hér
áður fyrr meðan ekki fengust
ferskir ávextir borðuðu börn oft
talsvert af hráum rabarbara, en
það er ekki talið hollt auk þess
sem eitthvað af blöðunum getur
farið ofan í þau, en þau eru tals-
vert eitruð. Rabarbari er súr og
því getur verið gott að setja aðra
ávexti saman við hann. Oftast
eru það epli eða jarðarber, en ég
bý til mjög ljúffengan ábætisrétt
með rabarbara og banönum.
Mjög gott er að sjóða svokallað
rabarbara-kompot, sem ég hefi
ekkert íslenskt nafn á. Þetta
kompot má nota í ótal rétti.
Kompot er ávextir, ber eða rabar-
bari soðinn með sykri, en á ekki
að fara í mauk.
Ábætisréttur með
hrísgijónum
1 dl lítil hrísgijón (grautargrjón)
____________4 dl nýmjólk________
______‘A tsk. vanilludropar_____
____________‘A tsk. salt________
______ 1 stórt egg_________
____________‘A msk. sykur_______
rifinn börkur af hálfri appelsínu
1 bolli rabarbarakompot,
_________sjá hér að ofan
smjör og rasp inn i skálina
1. Þvoið hrísgijónin og setjið
í pott ásamt mjólk og sjóðið í 15
mínútur. Hrærið þá salt og van-
illudropa út í og látið standa í
lokuðum pottinum í 10 mínútur.
2. Hrærið eggið með sykri og
rifnum appelsínuberki og setjið
saman við grjónin.
3. Smyrjið eldfasta skál, strá-
ið raspi inn í hana. Setjið graut-
inn í skálina og 1 bolla af rabar-
barakompot ofan á.
4. Hitið bakaraofn i 190°C,
blástursofn í 170-180°C, setjið
neðarlega í ofninn og bakið í 40
mínútur. *
Rabarbarakompot
_____500 g rabarbari_
300 g flórsykur
safi úr tveimur appelsínsum
1. Hreinsið rabarbarann og
skerið í þykkar sneiðar. Notið
ljósa hnúðinn neðst á honum
með. Setjið í eldfasta skál með
loki. Kreistið safann úr appelsín-
unum og setjið út í ásamt flór-
sykrinum.
2. Hitið bakaraofn í 200°C,
blástursofn í 180-190°C. Setjið
í ofninn og bakið í 30 mínútur.
Athugið: Þetta kompot geym-
ist vel í kæliskáp.
Ábætisréttur með
banönum
1 bolli rabarbarakompot,
sjá hér að ofan
5 stórir bananar
þeyttur ijómi
1. Skerið bananana í frekar
þykkar sneiðar og blandið saman
við einn bolla af heitu rabarbara-
kompoti. Setjið lok yfir skálina
og látið standa þannig í 10 mínút-
ur. Takið þá lokið af og kælið.
2. Þeytið ijómann. Skiptið
kaldri rabarbara/bananablönd-
unni í 6-8 skálar eða víð glös á
fæti. Setjið ijómann ofan á.
Ábætisréttur með
búðingi
1 bréf möndlubúðingur
(ég notaði Oetker)
2 dl rabarbarakompot
1. Sjóðið búðinginn skv. leið- j
beiningum á pakkanum, setjið í
skál. Kælið og hvolfið á fat.
2. Hellið 2 dl af heitu eða köldu
rabarbarakompoti yfir. Berið j
fram með þeyttum ijóma.
Athugið: Gott er að rista sax- I
aðar möndlur á þurri pönnu og
strá yfir.
Landsbanki Islands
Bankinn fékk ekki styrk