Morgunblaðið - 14.06.1996, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skólastjórí
Vesturhlíðar-
skóla segir upp
GUNNAR Salvarsson, skólastjóri
Vesturhlíðarskóla, hefur sagt
stöðu sinni lausri vegna ágreinings
við menntamálaráðuneytið. Gunn-
ar telur að ráðuneytið hafi hafnað
skólastefnu Vesturhlíðarskóla með
því að gefa Öskjuhlíðarskóla kost
á að nýta fyrrum heimavistarhús
á lóð skólans án samráðs við sig.
Menntamálaráðherra vísar á bug
ásökunum hans um að ráðuneytið
hafi ekki skilning á málefnum
heyrnarlausra.
Gunnar hefur sent frá sér grein-
argerð vegna málsins, þar sem
segir m.a. að það sé heyrnarlaus-
um börnum brýn nauðsyn að hafa
táknmálstalandi málfyrirmyndir í
umhverfi sínu. Það sé skylda sam-
félagsins að skapa þessar aðstæð-
ur á leikskóla- og grunnskólastigi
svo þau búi við ámóta uppeldisskil-
yrði og heyrandi böm. Því sé það
eitt af lykilatriðum skólastefnunn-
ar að nýta fyrrum heimavistarhús
skólans áfram í þágu heyrnar-
lausra.
Gunnar segir að sér sé ekki
unnt að una þeirri lítilsvirðingu
sem birtist í einhliða ákvörðun
ráðuneytisins, auk þess sem í upp-
sögninni felist mótmæli við því
áhrifaleysi sem menntað skólafólk
á þessu sviði búi við. Ennfremur
segir Gunnar að ákvörðun ráðu-
neytisins nú opinberi skilningsleysi
embættismanna á málefnum
heyrnarlausra, og að oft hafi þurft
að veija hagsmuni barnanna í
skólanum gegn ákvörðunum ráðu-
neytisins.
Vísar ásökunum á bug
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra segir að það sé alrangt
að leggja málið þannig upp að
verið sé að lítilsvirða heyrnarlausa
eða að bijóta á bak aftur skóla-
stefnu Vesturhlíðarskóla. Hús-
næði þar sem Samskiptamiðstöð
heyrnarlausra var áður til húsa
sé nú laust og spurning hvernig
það verði best nýtt. Björn segir
að hús sem Öskjuhlíðarskóli hafi
haft til afnota í Garðabæ hafí
nýlega verið seld, og hafi skóla-
stjóra Öskjuhlíðarskóla því verið
boðið að skoða aðstöðuna í um-
ræddu húsi á lóð Vesturhlíðar-
skóla. Það hafi komið í ljós að
húsnæðið falli mjög vel að þörfum
skólans og málið sé nú á umræðu-
stigi.
Segir Björn það skynsamlega
nýtingu á opinberu húsnæði að
leyfa Óskjuhlíðarskóla að fá þessa
aðstöðu og unnt sé að koma mál-
um þannig fyrir að það trufli ekki
starfsemi Vesturhlíðarskóla. Þann
l. ágúst flytjast mál skólanna
tveggja úr höndum menntamála-
ráðuneytisins til sveitarfélaganna.
„Mér fínnst ástæðulaust fyrir
þennan ágæta skólastjóra að
kveðja ráðuneytið með þessum
hætti og svo stórum orðum,“ sagði
Björn.
„Ég hef undanfarið rætt mál-
efni heyrnarlausra mjög ítarlega
við fulltrúa þeirra, m.a. í tengslum
við aðalnámsskrá fyrir grunnskóla
og framhaldsskóla, þar sem ég vil
að áherslur taki mið af þörfum
heyrnarlausra. Ráðuneytið hefur
m. a. beitt sér fyrir því með sam-
þykki Alþingis að sett voru mun
skýrari ákvæði í ný framhalds-
skólalög um rétt heyrnarlausra en
áður, þannig að það kemur mér
algjörlega í opna skjöldu að mál
séu lögð upp með þeim hætti að
menntamálaráðuneytið hafí ekki
skilning á málefnum heyrnar-
lausra. Hef ég raunar átt ágætt
samstarf við Gunnar Salvarsson,
þar til hann ákvað að segja starfi
sínu lausu, en lausnarbeiðni hans
hef ég staðfest."
Morgunblaðið/Sverrir
JÓN Loftsson, skógræktarstjóri, Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags íslands,
Jón Geir Pétursson, starfsmaður Skógræktarfélags Islands, og Hulda Valtýsdóttir, formaður Skóg-
ræktarfélags íslands, kynntu ráðstefnu Norræna skógarsambandsins á fundi með fréttamönnum.
Fimmtíu ára afmæli Norræna skógarsambandsins
Fjölmennasta ráðstefn-
an hér um skógarmál
NORRÆNA skógarsambandið,
NSU, heldur ráðstefnu hér á landi í
Borgarleikhúsinu 22. júní næstkom-
andi í tilefni 50 ára afmælis síns,
og er gert ráð fyrir að hingað komi
um 200 norrænir gestir af þessu til-
efni og dvelja þeir hér dagana 19.-22.
júní. Verður þetta langfjölmennasta
erlenda ráðstefnan sem haldin hefur
verið hér á landi um skógræktarmál.
Dagana 19.-21. júní fara ráð-
stefnugestirnir í ferðir um landið þar
sem ýmis skógræktarverkefni verða
kynnt og skoðuð, en farið verður um
Norðurland, Austurland og Suður-
land.
„Skógurinn og umheimurinn“
Yfirskrift ráðstefnunnar í Borgar-
leikhúsinu verður „Skógurinn og
umheimurinn" og mun frú Vigdís
Finnbogadóttir, forseti Islands, flytja
opnunarerindið. Á ráðstefnunni
munu erlendir fyrirlesarar fjalla um
umhverfis- og skógræktarmál, en
ráðstefnustjórar verða þau Hulda
Valtýsdóttir, formaður Skógræktar-
félags Islands, og Jón Loftsson skóg-
ræktarstjóri.
Karen Westerby-Juhl, forseti Nor-
ræna skógarsambandsins, setur ráð-
stefnuna, en fyrirlesarar eru J. S.
Maini, formaður alþjóðlegrar nefndar
um skógræktarmáí á vegum Samein-
uðu þjóðanna, sem fjallar um stöðu
norrænu skóganna og barrskógabelt-
isins í alþjóðlegum umræðum um
skóga heimsins, Monika Stridsman,
aðalritari Alþjóðlega náttúruvernd-
arsjóðsins í Svíþjóð, sem fjallar um
boðskapinn um sjálfbæra nýtingu
skóga, J. P. Kimmins, skógvistar-
fræðingur og prófessor við Háskól-
ann í Bresku Kólumbíu í Kanada,
sem fjallar um virðingu gagnvart
hinu náttúrulega umhverfi - hvernig
samræma megi það hugtak í skóg-
rækt á 21. öld, R.A. Shebbare, fram-
kvæmdastjóri Canada Pulp and Pap-
er í Brussel, sem ræðir um þróun
skógræktar í Kanada til sjálfbærrar
nýtingar og breytt verðmætamat al-
mennings, Eeva Hellström, sérfræð-
ingur við Evrópsku skógræktarstofn-
unina í Finnlandi, sem ræðir um
mismunandi viðhorf til skógræktar,
Oluf Aalde, skógræktarstjóri í Nor-
egi, sem fjallar um hvort skógrækt
á Norðurlöndum sé sjálfbær, Áke
Barklund, verkefnisstjóri hjá Sam-
bandi sænskra skógareigenda, sem
flallar um umhverfisvottun í nor-
rænni skógrækt, og Niels Elers Koch,
forstjóri hjá Rannsóknamiðstöð fyrir
skóg og landslag í Danmörku, sem
tekur saman dagskrána að loknum
erindaflutningi.
Ráðstefnunni lýkur með umræð-
um, en um kvöldið verður afmælis-
kvöldvaka haldin í Perlunni.
Hvatning fyrir
skógræktarfélögin
NSU var stofnað árið 1946
er meginmarkmið samtakanna
og
að
Margfaldur
verðlaunabíll
sameinar glœsilegt utlit.
óviðjafnanlega aksturseiginleika,
ríkulegan staðalbúnað,
mikil gœðí og
einstaka hagkvœmni í rekstri.
Verðið stenst allan samanburð
Honda Accord 1.8i er búinn 115 hestafla 16 ventla vél meö tölvustýröri fjölinnsprautun.
Upptak er 11.3 sek. í 100 km/klst. meðan eyöslan viö stöðugan 90 km. hraöa er aðeins 6,6 lítrar á 100 km.
Honda Accord 1.8i er búinn loftpúöa í stýri, rafdrifnum rúöuvindum og loftneti, vökva- og veltistýri,
þjófavörn, samlæsingum, útvarp/segulbandi og bremsuljósi í afturrúöu. Styrktarbitar eru í hurðum.
Lengd: 468,5 cm. Breidd: 172 cm. Hjólhaf: 272 cm.
Honda Accord 2.0i LS er búinn 131 hestafla vól, ABS-bremsukerfi, tvöföldum loftpúöa, 4 gíra sjálfskiptingu
ásamt fjölmörgum öörum kostum. Veröiö er aöeins 2.185.000,- á götuna.
Tveggja ára alhliöa ábyrgö fylgir öllum nýjum Honda bifreiðum og þriggja ára ábyrgð er á lakki.
Tökum aöra bíla uppí sem greiðslu og lánum restina til allt aö fimm ára.
1.734.000,-
H)
VATNAGARÐAR 24
S: 568 9900
koma á samvinnu milli Norðurland-
anna á vettvangi skógræktar til
gagns fyrir skóga á Norðurlöndum.
Hefur sambandið gengist fyrir fjöl-
mörgum uppákomum í því sam-
bandi og má þar nefna fundi, náms-
ferðir, kynnisferðir og Norrænu
skógarráðstefnuna, sem er umsvifa-
mesta verkefni samtakanna. Æðsta
stjórn samtakanna 'er fulltrúaráð
sem samanstendur af deildum frá
hveiju landi, en starfsemi sam-
bandsins er aðallega í höndum verk-
efnanefndar sem í situr einn aðili
frá hveiju Norðurlandanna og er
fulltrú Islands þar Jón Loftsson
skógræktarstjóri.
Jón sagði í samtali við Morgun-
blaðið að helsta verkefni samtak-
anna væri að gefa norrænum skóg-
ræktarmönnum tækifæri til að hitt-
ast, en Norræna skógarráðstefnan,
sem haldin er á fjögurra ára fresti,
flyst á milli landanna og hafa sótt
hana 1.500 til 2.000 manns. Næst
verður slík ráðstefna haldin í Dan-
mörku 1998 og er afmælisráðstefn-
an hér á landi því aukaráðstefna.
Vegna umfangs reglubundnu ráð-
stefnanna hafa þær aldrei verið
haldnar hér á landi, en að sögn Jóns
er ekki útilokað að af því geti orðið
að sex árum liðnum.
„Þarna kynna menn það nýjasta
sem þeir eru að gera í hveiju landi
og einnig er norræn skógrækt kynnt
fyrir umheiminum, en öllum skóg-
ræktarmönnum er gefið tækifæri til
að taka þátt. íslenskir skógræktar-
menn hafa í gegnum árin verið fjöl-
mennir á þessum ráðstefnum og
þangað hafa menn sótt kraft og inn-
blástur," sagði Jón.
Hulda Valtýsdóttir, formaður
Skógræktarfélags íslands, sagði að
Norræna skógarráðstefnan væri
mjög mikil hvatning fyrir skógrækt-
arféiögin hér á landi þar sem sjálf-
boðaliðastarf væri í miklu ríkari
mæli en annarsstaðar á Norðurlönd-
unum.
„Þar eru auðvitað margir sem
stunda skógrækt, en yfirleitt eru
þeir að vinna í skógi sem þeir eiga
persónulega. Hér eru félögin hins
vegar að rækta skóg sem er fyrir
alla íslendinga," sagði hún.