Morgunblaðið - 07.07.1996, Page 1
88 SÍÐUR B/C/D
152. TBL. 84. ÁRG.
SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
„Mér hefur
verið rænt“
„SOS - HJÁLP - Vinsamlegast hjálpið
mér, mér hefur verið rænt, hringið í
lögregluna." Monique Truong, ellefu
ára gömul áströlsk stúlka, sýndi það
hugrekki, undir miðnættið á fimmtudag,
að skrifa þessi skilaboð á miða og
smeygja honum út undir hurðina á hótel-
herberginu þar sem vopnaðir menn
héldu henni í gíslingu. Munu þeir hafa
ætlað að krefjast lausnargjalds sem
svarar tveimur og hálfri milljón ís-
lenskra króna. Starfsfólk hótelsins fann
miðann og lögreglan kom á vettvang
nokkrum mínútum síðar.
Vopnaðir menn
Laust upp úr klukkan átta á miðviku-
dagskvöldið höfðu sex menn, vopnaðir
byssum, ráðist inn á heimili Monique
og krafið föður hennar, sem er kaup-
sýslumaður, um peninga. Hann lét þá
hafa sem svarar rúmum eitt hundrað
þúsund íslenskum krónum. í því kom
húsmóðirin heim ásamt tveim sonum
hjónanna, og þá gripu óboðnu gestimir
telpuna með sér og hurfu á braut í bíl
fjölskyldunnar. Hringt var á lögregluna
og undir morgun á fimmtudag fannst
bíllinn yfirgefinn og skömmu síðar
hringdu ræningjarnir og skildu eftir
skilaboð um farsímanúmer. „Við reynd-
um að rekja símann ef það mætti verða
til þess að við fyndum stúlkuna, en hún
bjargaði sér sjálf,“ hefur ástralska dag-
blaðið The Sydney Morning Herald eftir
lögreglumanni. „Hún er einstök stelpa."
Þóttist skrifa dagbók
Monique sagði að þetta hefði allt ver-
ið eins og draumur. „Mér datt í hug
minnisblokkin á hótelinu og að skrifa
miða.“ Hún sagði ræningjunum að hún
væri að skrifa dagbók og þyrfti á papp-
ír að halda, og skrifaði nokkrar setning-
ar um atburði dagsins öðmm megin á
blað. Skömmu seinna þóttist hún sofna,
eftir að hafa heyrt ræningjana tala um
að nú væri stóri dagurinn að renna upp
og líklega væri best að hvíla sig. „Þegar
þeir voru sofnaðir [...] skrifaði ég neyð-
arkallið hinum megin á blaðið," sagði
hún. Mennirnir vöknuðu og Monique
sagðist þurfa að fara á salernið. „Á leið-
inni, þá, sko, laumaði ég blaðinu bara
undir hurðina." Hún sagði ræningjana
hafa verið góða við sig, og pantað handa
sér mat.
Skýrleiksstúlka
Sjö manns hafa verið handteknir
vegna málsins. Haft er eftir lögreglu-
manni að snör viðbrögð þessarar „skýr-
leiksstúlku" hafi líklega bjargað lífi
hennar. „Þessi dusilmenni létu sig hafa
það að ræna henni með vopnavaldi. Við
bjuggumst við hinu versta." Þegar allt
var afstaðið og Monique var komin í
fangið á mömmu sinni og pabba sagði
hún: „Mig langar bara til að fara að sofa.“
Morgunblaðið/Þorkell
A ÞINGVOLLUM
Pólitisk óvissa í Indónesíu
Suharto
sakaður
um vald-
níðslu
Jakarta. Reuter.
HÓPAR andófsmanna í Indónesíu lýstu í gær
yfir stuðningi við leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar, Megawati Sukarnoputri, og sökuðu
stjórn Suhartos forseta um að fótumtroða
lýðræðisleg réttindi andstæðinga sinna.
Megawati er dóttir Sukarnos, fýrrverandi
forseta -Indónesíu, og formaður Indónesíska
lýðræðisflokksins (PDI), annars tveggja
stjórnarandstöðuflokka sem leyfðir eru í land-
inu. Á fundi, sem stjórnarflokkurinn og herinn
efndu til í síðasta mánuði í samvinnu við
andstæðinga Megawati innan PDI, var henni
vikið úr sæti og nýr formaður kjörinn.
I mótmælayfirlýsingu andófsmannanna,
sem send var til fréttastofu Reuters í gær,
segir að stjórnvöld hafí með þessu augljóslega
misnotað vald sitt til þess að hlutast til um
innanbúðarmál í PDI. Hafi afskipti stjórnar-
innar nú þegar gengið of langt.
Forsetinn til Evrópu
Meðal þeirra sem skrifa undir yfirlýsinguna
eru fyrrverandi borgarstjóri í Jakarta og
Sukmawati Sukarnoputri, dóttir Sukarnos og
systir Megawati.
Yfirlýsingin var undirrituð á föstudag,
sama dag og tilkynnt var að Suharto forseti
myndi fara til Evrópu í dag, sunnudag, og
gangast þar undir læknisskoðun. Ollu þau
tíðindi pólitískri óvissu í landinu þar sem ekki
er vitað hvað við muni taka að Suharto gengn-
um, en hann er nú hálfáttræður að aldri.
Segja talsmenn forsetans að hann sé við
góða heilsu en fréttin hefur vakið vangaveltur
um hugsanlegan eftirmann Suhartos sem leið-
toga Indónesíu. Ríkið er það fjórða fjölmenn-
asta í heimi með 200 millj. íbúa.
Aukin andstaða
Suharto er meðal þeirra þjóðhöfðingja,
sem lengst hafa verið við völd, en hann tók
við af Sukarno um miðjan sjöunda áratug-
inn. Síðan hefur hann stjórnað næstum ein-
valdur.
Andstaða við harða stjórn hans hefur færst
í aukana eftir fund PDI, og hefur Megawati
neitað að láta eftir höfuðstöðvar flokksins,
sem nú er gætt af hundruðum stuðnings-
manna hennar. Óeirðir brutust út í kjölfar
fundarins og börðust stuðningsmenn Megaw-
ati við andstæðinga hennar á götum úti.
VEDSMPnAIVINNULÍF 22
A SUNNUDEQI ■■ ■■
SVIFIÐ SEGLUM...
BARIST Á
ÖLLUM
VÍGSTÖÐVUM