Morgunblaðið - 07.07.1996, Side 24

Morgunblaðið - 07.07.1996, Side 24
24 SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYINIDIR KVIKMYNDIR/STJÖRNUBÍÓ, Sambíóin og Borgarbíó á Akureyri hafa tekið til sýninga nýjustu kvikmynd Jim Carrey. Hún heitir Algjör plága á íslensku en Cable Guy á fmmmálinu. UPPHAFIÐ var það að Steven (Matthew Brod- erick) fékk mann í heimsókn til að tengja fyrir sig kapalsjónvarpið. SJÓNVARPSMAÐURINN (Jim Carrey) gerist Al- gjör plága og yfirtekur líf Stevens. FORELDRAR Stevens falla fyrir fleðulátum manns- ins sem kallar sig Chip Douglas og vita ekki að góðsemi hans byggist á vafasömum hvötum. BESTI VTNUR ALGJÖR plága fjallar um Steven Kovacs (Matt- hew Broderick) og mann sem birtist einn góðan veðurdag í íbúðinni hans og heimtar að fá að vera besti vinur hans, hvað sem það kostar. Þetta hófst þegar Steven var nýhættur með kærustunni sinni og var að flytja í nýja íbúð. Hann langaði til að fá sér áskriftarsjón- varp og vinur hans benti honum á heillaráð til að græða í þeim viðskiptum. Ráðið er að bjóða manninum sem kemur til að tengja kapal áskriftarsjónvarpsins upp á svört viðskipti. Hann fái peninga og Steven í staðinn ókeypis áskrift. En það er þegar fundum Stevens og sendimanns kapalsjónvarpsins (The Cable Guy) ber saman sem örlög arki- tektsins unga ráðast. Steven á eftir að komast að því að það er ekkert til sem heitir ókeypis áskriftarsjónvarp. Þessi náungi frá kapalsjónvarp- inu er algjör plága. Hann vill enga 50 dollara, hann vill bara að þeir Steven verði bestu vinir og í hans huga er nei ekkert svar. „í raun og veru er Steven heppilegt fómarlamb fyrir klikkað fólk af því að hann kann ekki að segja nei,“ segir Jim Carrey, gam- anmyndastjaman sem leikur titil- hlutverk myndarinnar, manninn sem yfirtekur líf Steven Kovacs. „Margir eiga, eins og Steven, erf- itt með að segja öðm fólki hvenær það er að fara yfir mörkin sem maður setur um sjálfan sig og inn á manns eigið svæði og Steven kann ekki heldur að standa með sjálfum sér þannig að þegar hann loksins segir nei, og setur mörk þá hefur þessi náungi lag á að spila með hann, snúa dæminu við og halda uppi þrýstingi þangað til Steven gefur eftir.“ Og ef Steven gefur ekki eftir er ekki á góðu von. En Steven er ekki bara í vand- ræðum vegna þessa ofboðslega almennilega nýja vinar sem hann hefur eignast. Það bætist við að fólkið sem hann hefur umgengist og tengst nánustum böndum, t.d. Robin fyrrverandi kærastan hans, finnst nýi vinurinn ofboðslega innilegur og góður náungi. Foreldrar Stevens hrífast iíka með og sér til ama og reiði sér Steven að hann megnar ekki að koma þeim í skilning um hvað það eiginlega er sem getur verið at- hugavert við það að eiga svona góðan vin; einhvern sem vill bók- staflega allt fyrir mann og með manni gera. En Rick, manninum sem var besti vinur Stevens, áður en mað- urinn með áskriftarsjónvarpið kom til skjalanna, sárnar það hve gjörsamlega honum hefur verið hafnað. Hann fer að gangast fyr- ir rannsókn á því hver hann sé í raun og veru þessi maður sem kallar sig stundum Chip Douglas. Þá kemur ýmislegt í ljós og það skýrist af hveiju Jim Carrey segir að Algjör plága sé mynd sem sé gerð í anda Hitchcock og Jerry Lewis. Það er þó ekki vafi á að áhrifin frá Jerry Lewis eru sterk- ari og greinilegri. Höfundur handrits Algjörrar plágu heitir Lou Holtz og þetta er fyrsta handrit hans serii fest er á filmu. Fram til þess tíma starfaði hann sem aðstoðarsak- sóknari í Los Angeles borg og skrifaði kvikmyndahandrit heima hjá sér á kvöldin. Hann hætti hjá saksóknara eft- ir að framleiðendumir Andrew Licht og Jeffrey A. Mueller, sem síðast gerðu Waterworld, keyptu af honum handritið. Þeir fengu mann að nafni Judd Apatow til liðs við sig, en hann er fomvinur Ben Stillers, leikarans, sem sló í gegn sem leikstjóri Reality Bites, og einnig vinur Jim Carreys. Þeir tveir kynntust við gerð sjónvarps- þáttanna In Living Color, þar sem Carrey sló upphaflega í gegn. Apatow ákvað að leiða þá sam- an, Carrey og Stiller, og fá þá til að vinna saman að gerð Cable Guy. Það var auðsótt mál að fá Stiller en til að fá Jim Carrey í titilhlutverkið þurfti að punga út 20 millj. bandaríkjadala, 1.360 milljónum íslenskra króna. Það er hæsta fjárhæð sem kvikmynda- leikari hefur fengið fyrir leik í gamanmynd til þessa. Síðan sett- ust Apatow, Stiller og Carrey nið- ur og ræddu næstu skref. „Við þrír komum okkur saman um að grundvallarsálfræðin í myndinni ætti að vera raunveru- leg og f|'alla um þennan hræðilega mann, sem er svo skelfílega með- virkur og í svo mikilli þörf fyrir ytri staðfestingu á sínu eigin ágæti UPPGJÖR aðalpersónanna er í riddarastíl. að hann veður á skítugum skónum yfir tilfinningaleg mörk allra ann- arra til þess að sækja sér þá stað- festingu," segir Ben Stiller. „En af því að Jim Carrey er í aðalhíut- verki þá er þessi náungi samt á einhvem hátt viðkunnanlegur, jafnvel þegar stjómleysið er al- gjört, vegna þess að við vitum að í raun og vera er hann bara að leita sér að vini.“ Stiller segist líka hafa lagt áherslu á að í Cable Guy væri Jim Carrey að taka þátt í sömu mynd og allir aðrir. Þess vegna þurfti að fínstilla fíflaskapinn sem ein- kenndi Ace Ventura, Mask og Dumb and Dumber án þess þó að hörðustu aðdáendur þeirra mynda yrðu fyrir of miklum vonbrigðum. Að sjálfsögðu var þó ekki gengið of langt að þessu leyti. Jim Carrey er sjálfum sér líkast- ur í tveimur óborganlegum senum í myndinni. I annarri leikur hann körfubolta upp á líf og dauða af slíkri ákefð að önnur eins harka sést ekki einu sinni þegar Dennis Rodman og Charles Barkley mæt- ast undir körfunni. . Þá hermir hann á ógleymanleg- an hátt eftir Grace Slick, söngkonu hljómsveitarinnar Jefferson Air- plane þegar hann syngur lagið Somebody to Love á þann hátt sem honum einum allra núlifandi manna væri lagið. Eins er uppgjör aðalmannanna ógleymanlegt í lok myndarinnar og greinilegt að þá er áskriftar- sjónvarpskallinn ekki með mörk ímyndunar og raunveruleika alveg á hreinu. í hlutverki Stevens Kovacs er Matthew Broderick, sem varð sennilega frægastur fyrir leik í Ferris Bueller’s Day Off en hefur síðan m.a. leikið í Biloxi Blues, Glory, War Games, Family Busi- ness og Freshman. Matthew Brod- erick hefur mest leikið á sviði und- anfarin ár og hann hlaut t.d. Tony verðlaunin, eftirsóttustu verðlaun bandarískra sviðsleikara, sl, ár. Foreldra Stevens leika gamla brýnið George Segal og Diane Baker og fyrram unnustuna leikur Lesle Mann. Meðal þeirra sem koma fram í smáum gestahlut- verkum í myndinni era svo Eric Roberts, Janeane Garofalo, Tabit- ha Soren úr MTV og sjónvarps- þáttastjórinn Conan O’Brien. Cable Guy var framsýnd vest- anhafs í júnímánuði og hefur náð talsverðum vinsældum þar eins og við er að búast þegar mynd með Jim Carrey er annars vegar. Þessi Kanadamaður er á fáeinum áram orðinn að sannkallaðri stofnun í skemmtanaiðnaðinum vestanhafs og honum gengur allt í haginn. Honum skaut upp á stjörnuhim- ininn eins og fyrir tilviljun þegar fyrri myndin um gæludýraspæjar- ann Ace Ventura náði gífurlegum vinsældum. Síðan hefur hann gert fjórar myndir og allar eiga þær sameiginlegt að hafa rofið þann 100 milljóna bandaríkjadala múr sem skilur milli stórmynda og sæmilega vinsælla mynda. Allt bendir til að Cable Guy muni einn- ig skila sér í stórmyndaflokkinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.