Morgunblaðið - 07.07.1996, Side 16
16 SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Unnið að fjölþættum framkvæmdum á vegum Landsvirkjunar í sumar
Morgunblaöið/Golli
VEGNA steypuskemmda hefur reynst nauðsynlegt að endurreisa stíflubrú við Búrfell. Samkvæmt upplýsingum Landsvirkjunar er þetta fremur
óvenjulegt en steypa í mannvirkjum við Búrfell er að öðru leyti í góðu ástandi og íslensk.
UNNIÐ ER að fjölþættum
framkvæmdum við raf-
orkukerfi Landsvirkj-
unar um þessar mundir
en markmiðið með þeim er að
auka orkuvinnslugetu kerfísins,
einkum til að anna eftirspurn sem
eykst með stækkun álvers ÍSAL
við Straumsvík. Meðal helstu
framkvæmda sem eru í fullum
gangi eru, að sögn starfsmanna á
verkfræði- og framkvæmdasviði
Landsvirkjunar, bygging fimmta
áfanga Kvíslaveitu norðan Þóris-
vatns, hækkun Blöndulóns, upp-
setning nýrra vatnshjóla í Búrfells-
virkjun, bygging fyrra áfanga á
nýrri Kröflustöð, gagngerar
endurbætur á Sogsvirkjunum og
loks styrking orkuflutningskerfis-
ins.
Framkvæmdir við Kvíslaveitu,
Blöndu, Búrfell og Kröflu auka
orkugetu raforkukerfisins samtals
um 665 gígawattstundir á ári
(GWst/ári). Orkuþörf vegna
stækkunar álvers ÍSAL hefur ver-
ið metin 947 GWst/ári. Til þess
að mæta því er gripið til fram-
kvæmda til aukinnar orkufram-
leiðslu en auk þess nýtist umfram-
orka í raforkukerfi Landsvirkjunar
í þessu skyni. Endumýjun í Sogs-
stöðvum miðar að því að viðhalda
orkugetu þeirra og við styrkingu
orkuflutningskerfisins eykst flutn-
ingsgetan umtalsvert. Heildar-
kostnaður vegna framkvæmdanna
nemur um fimm milljörðum króna
og í öllum tilvikum er stefnt að
verklokum á síðasta ársfjórðungi
næsta árs, 1997.
Kvíslaveita stærsta verkefnið
Eitt stærsta einstaka verkefnið
er bygging fimmta áfanga Kvísla-
veitu en þegar hún er fullbúin
eykst orkugeta Landsvirkjunar um
300 GWst/ári. Ingvar Björnsson
deildarstjóri segir að þessi áfangi
sé álíka stór og fjórir fyrstu áfang-
arnir sem byggðir voru fyrir um
10 árum. Til samanburðar bendir
hann á að Blönduvirkjun framleiði
öll um 600 GWst/ári um þessar
mundir.
Þessi áfangi miðar að því að
veita upptakakvíslum Þjórsár
austan Hofsjökuls um núverandi
Kvíslaveitu í Þórisvatn. Ingvar
segir að Þjórsá verði stífluð með
600 m langri og allt að 15 m
Orkuríkar
framkvæmdir
Miklar virkjana- og endumýjunarframkvæmdir standa nú yfír hjá
Landsvirkjun. Framkvæmdir miða að því að auka orkuvinnslugetu
raforkukerfisins um allt að 665 GWst/ári sem ásamt umframorku
kerfísins nýtist til anna orkuþörf vegna stækkunar álvers ÍSAL.
Þórmundur Jónatansson hefur tekið saman yfirlit yfir helstu fram-
kvæmdir Landsvirkjunar á landinu en heildarkostnaður við þær
nemur um fimm milljörðum króna.
hárri stíflu og vatninu verði veitt
úr lóninu, sem þannig myndast,
um nær 2 km langan skurð í
núverandi Kvíslaveitu. Verkið
hófst í maí síðastliðnum og áætlað
er að ljúka því haustið 1997.
Heildarkostnaður er áætlaður um
1,1 milljarður króna'.
Blöndulón hækkað um 4 metra
Framkvæmdir við hækkun
Blöndulóns hófust einnig í maí
en með þeim verður orkugeta
aukin um 160 GWst/ári. Ingvar
segir að stíflan í Blöndu og yfir-
fall við hana séu hækkuð um fjóra
metra en með því móti eykst nýt-
anlegt miðlunarrými úr 220 gíga-
á vegum Landsvirkjunar
Hækkun Blöndulóns
+160 GWst/ári 180 millj.kr.
Kvíslaveita 5. áfangi
+300GWst/ári 1.100 millj.kr.
Virkjun Kröflu lokið -1. áfangi
+120 GWst/ári 700 millj.kr.
Stækkun ISAL
orkuþörf 947 GWst/ári
Endurnýjun vélbúnaðar í Sogsvirkjun
orkugetu viðhaldið 1.200 millj.kr.
Búrfell-skipt um vatnshjól
+85 GWst/ári 700 millj.kr.
Brú endurreist 65 millj. kr.
Vatnsaflstöð
A Aðveitustöð
O Gufuaflstöð
Miðlunarlón
Stóriðja
lítrum í 400 Gl. Eftir hækkunina )
verður flatarmál lónsins um 572 k
þegar það er fullt en er fyrir ’
hækkun var flatarmálið 39 km2. »
Kostnaður við verkið er áætlaður
180 milljónir króna.
Gísli Gíslason deildarstjóri segir
að einn liður í uppbyggingu raf-
orkukerfisins sé uppsetning nýrra
vatnshjóla í öllum hverflum í Búr-
fellsvirkjun. Þannig mun afl auk-
ast úr 210 megawöttum í 270 MW.
Gísli segir að þetta leiði af sér •
aukningu í orkugetu sem nemur t
85 GWst/ári. Þetta verk mun )
kosta um 700 milljónir króna og
stefnt er að því að framkvæmdum
ljúki í árslok 1997.
Virkjun Kröflu lokið
Nýlega var ákvörðun tekin um
að ljúka byggingu Kröflustöðvar
i tveimur áföngum sem fullbúin
eykur orkugetu um 240 GWst/ári.
Fyrirhugað er að setja upp tvær
vélar en samanlagt afl þeirra verð- ^
ur 30 MW. í fyrri áfanga sem ljúka P
á í lok næsta árs verður 15 MW
virkjuð en með því eykst orkugeta
um 120 GWst/ári. Gísli segir að
þessar framkvæmdir hafi verið
hluti af virkjunaráætlunum Lands-
virkjunar og Kröflustöð hafi verið
hönnuð með þessa stækkun i huga.
Kröflustöð verði þannig fullnýtt
en ekki er þó hægt að fullyrða að
Kröflusvæðið sé fullnýtt. Kostnað-
ur við þennan fyrri áfanga loka- )
virkjunar Kröflu nemur um 700
milljónum króna.
Endurnýjun í fyrsta sinn
í því skyni að viðhalda orku-
vinnslugetu þriggja virkjunar-
stöðva í Sogsvirkjun eru hafnar
gagngerar endurbætur á Ljósa-
fossstöð, írafossstöð og Stein- |
grímsstöð við Sogið. Gunnlaugur |
Nielson yfirverkfræðingur segir í
að þetta sé í fyrsta sinn í sögu *
Landsvirkjunar sem gengið er í
markvissa endurnýjun á búnaði
og vélum virkjunar í eigu Lands-
virkjunar. Virkjunarstöðvum hefur
reglulega verið viðhaldið en gagn-
gerar endurbætur aldrei gerðar.
Stöðvarmannvirki eru allt að 60
ára gömul og segir Gunnlaugur
að með endurbótunum sé stefnt
að því að hægt verði að reka stöðv- I
arnar með sama afli í önnur 40-50 )
ár.