Morgunblaðið - 07.07.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ1996 25
N°7
KIAjeppi á frábæru verði, piús aukabúnaður!
- Hverjum KIA jeppa fylgir plúspakki að verðmæti 171 .OOO.-
Upphækkui
Stígbretti
+ Álfelgur
+ Stærri dekk
+ Hlíf á varadekk
Staðalbúnaður KIA er m.a.:^Hátt og lágt drif^Rafmagnsrúður ►Aflstýri ► Veltistýri
► Samlæsingar ► Útvarp með segulbandi ► Rafstýrðir útispeglar ► Litað gler
KIA! Kemur út í plús !
KIA Sportage 5 dyra handskiptur m/ plúspakka:
1.998.000
KIA Sportage 5 dyra sjálfskiptur m/ plúspakka:
2.141.000
HEKLA
SÍMI 569 5500
Kvennasögu-
safnið flytur
FYRIR nokkru var undirritaður
samningur um flutning Kvenna-
sögusafns íslands í Landsbókasafn
íslands - Háskólabókasafn.
Dr. Anna Sigurðardóttir stofnaði
safnið 1. janúar 1975 í félagi við
þær Else Miu Einarsdóttur og Svan-
laugu Baldursdóttur. Safnið hefur
alla tíð síðan verið á heimili Önnu,
en hún lést í janúar sl.
Kjarni Kvennasögusafnsins mun
standa sem séreining í herbergi sem
til þess er ætlað í Þjóðarbókhlöðu,
en flestum bókum safnsins og tíma-
ritum verður skipað með öðrum efn-
iskosti Landsbókasafns og hafa þau
rit þegar verið skráð í Gegni.
Næstu mánuðir verða notaðir til
að flytja Kvennasögusafnið og koma
því fyrir, en ætlunin er að opna safn-
ið formlega til 5. desember næst-
komandi á afmælisdegi Önnu Sig-
urðardóttur og verður þá efnt til
sýningar á gögnum úr safninu.
Ó, undur lífs
TONLIST
Kópavogskirkja
BARNAKÓRSTÓNLEIKAR
Skólakór Kársness, undir stjóm
Þórunnar Björnsdóttur, flutti íslensk
og erlend sönglög. Fimmtudagur 4.
júlí, 1996.
NOKKRIR dugandi söngstjórar
hafa á undanförnum árum æft upp
góða bamakóra og það góða, að
kórarnir njóta alþjóðlegrar virðingar
fyrir vel æfðan og fagran söng.
Skólakór Kársness, undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur, er einn af
þeim kórum, sem unnið hafa sér
nafn erlendis. Nú skal haldið utan
„að syngja fyrir þjóðir“ og af því
tilefni hélt kórinn tónleika í Kópa-
vogskirkju sl. fímmtudag. Á tímum
þegar félagsleg samvera unga fólks-
ins virðist undra snemma klofna um
andstæðar lífsvenjur mætti einnig
hugleiða hversu andstæður í list-
mati falla sterkt inn í þessa mynd.
Höfnun á siðgæði er höfnun á ögun
og tengist einnig öllu því sem snýr
að fagurmati. Afstaða til ógnvekj-
andi fyrirbæra hefur áhrif á hegðun
og getur slæft tilfinninguna fyrir
því sem almennt er kallað rétt eða
rangt og leitt ungt fólk til óhugnan-
legra athafna.
Að sjá unga fólkð í Kópavogi
syngja bæði agað og af fíjálslegri
gleði gefur fyrirheit um að ekki hafí
allir orðið leisergeislatryllingnum að
bráð og enn muni verða sungið Ó,
undur lífs. Þetta fallega lag Jakobs
Hallgrímssonar, við kvæði Þorsteins
Valdimarssonar, er í einfaldleika sín-
um táknrænt fyrir þá fegurð sem
birtist í söng bamanna hennar Þór-
unnar. Kórinn er í mjög góðu formi
og hóf tónleikana með því að sex
böm á þjóðbúningi hófu að syngja
ísland farsældafrón og kórinn tók
síðan undir söng þeirra. Þar næst
vora sungin nokkur íslensk þjóðlög
og þá frumsamin lög eftir Jakob
Hallgrímsson, Atla Heimi Sveinsson,
Emil Thoroddsen, Jón Nordal og tvö
skemmtileg tónverk eftir Þorkel
Sigurbjömsson, er nefnast Fögnuður
og Dúfa á brún. Öll lögin vom sér-
lega fallega flutt og sama má segja
um erlendu lögin, sem vom ættuð
frá Ameríku, Finnlandi og Balkan-
skaga. Tónleikunum lauk með
Bamagælu eftir Hjálmar H. Ragn-
arsson við gamansamt hrekkjalóma-
kvæði Vilborgar Dagbjartsdóttur,
skemmtilegt lag, þar sem textinn fær
að njóta sín eintaklega vel í leikræn-
um tónlesstíl lagsins, er var mjög
vel flutt, bæði hvað varðar söng og
framburð textans.
Kórstarf í skóla birtist almenningi
í fallegum söng á tónleikum en að
baki slíks atburðar stendur mikil og
samvirk vinna. Ögun og mótun unga
fólksins er mikilvæg og umfram
aðra starfsemi í skólum, þá fylgir
oft að hleypt er heimdraganum, far-
ið í langar og eftirminnilegar ferðir
og„“sungið fyrir þjóðir“, því enn býr
„undur lífsins" í fögmm söng bam-
anna um allan heim og á sér endur-
óman í hjörtum allra, sem enn sjá
til sólar í lífí sínu.
Jón Ásgeirsson
fyrir neðan háls!
TILBOÐ
Body lotion langtíma djúpnæring kr. 990
Body skrúbb stinnir og endurbætir kr. 990
Handáburður fyrir hendur og neglur kr. 590
; Fæst í BETRI SNYRTIVÖRU-
/VERSLUNUM OG APÓTEKUM.
VTSALA
S byijar
MÁNUDAG
ALGJÖRT DUNDUR
Hönnun: Rúna • Ljósmynd: Magnús Hjörleifsson