Morgunblaðið - 07.07.1996, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
-
MINNINGAR
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi
BORGÞÓR BJÖRNSSON
frá Grjótnesi
lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöldi
4. júlí.
inga Erlendsdóttir,
Jóhanna Borgþórsdóttir,
Baldur Björn Borgþórsson,
Erlendur Haukur Borgþórsson,
Margrét Borgþórsdóttir.
t
Eiginmaður minn, fpðir okkar, tengda-
faðir og afi,
BIRGIR GUÐMUNDSSON,
Lyngheiði 12,
Kópavogi,
andaðist í Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Foss-
vogi, miðvikudaginn 26. júní.
Útförin hefur farið fram.
Hjartanlegar þakkir til starfsfólks deild-
ar A6 Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Guðrún Finnbogadóttir,
Sturla Birgisson, Björg Eiðsdóttir,
Finnbogi Birgisson, Þórunn Elín Halldórsdóttir,
Guðmundur Birgisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
systir, amma, langamma og langalang-
amma,
GUÐNÝ BRYNHILDUR
JÓAKIMSDÓTTIR,
frá ísafirði
Skúlagötu 78,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 9. júlí kl. 15.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er
bent á kvennadeild Slysavarnafélagsins í Reykjavík.
Rósa Jónsdóttir, Hallgrfmur Þorsteinsson,
Ásta Jónsdóttir, Valur S. Franksson,
Magnea Jónsdóttir, Guðmundur Jóhannsson,
Álfheiður E. Jónsdóttir,
Jón Jónsson,
Anna Jónsdóttir, Þórður Bjarnason,
Örn Stefánsson,
systkini, barnabörn, barnabarnabörn
og langalangömmubarn.
+ Jóhanna Sigur-
hildur ívarsdótt-
ir fæddist á Velli í
Grindavík 2. októ-
ber 1919. Hún lést á
Sjúkrahúsi Akra-
ness hinn 30. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Guðný Stefánsdótt-
ir, f. 3. apríl 1896,
d. 31. janúar 1993,
og ívar Magnússon,
f. 19. september
1892, d. 24. janúar
1962. Systkini Jó-
hönnu voru Magnús,
f. 1. september 1922, d. 13.
september 1951; Stefanía, f. 3.
mars 1924; Guðrún Árný, f. 18.
janúar 1927, d. 28. júlí 1946;
Guðmundur Óskar, f. 14. mars
1930; og Arnleif K.G., f. 19.
júlí 1934.
Hinn 27. október 1945 giftist
Jóhanna Þorvaldi Magnússyni,
f. 15. febrúar 1920. Foreldrar
hans voru Halldóra Sigríður
Jónsdóttir, f. 14. febrúar 1892,
d. 15. febrúar 1931, og Magnús
Jónsson, f. 4. janúar 1896, d.
Jóhanna Sigurhildur ívarsdóttir
amma mín og nafna er dáin. Þessi
furðulega staðreynd blasir nú við
okkur og er sárt að kyngja.
Sú lífsglaða kona hlær ekki leng-
ur og gleðst með okkur hér á jörðu,
heldur mun hún fylgjast með okkur
úr fjarlægð, og trúandi þeirri til-
gátu látum við huggast.
Amma var kát og hlý, sama
hvaða aðstæður voru fyrir hendi,
ávallt boðin og búin til að hjálpa
eða gleðjast með okkur.
Allir fengu jafna athygli hennar
og mismunaði hún engum. Ömmu
fannst sérstaklega gaman að fylgj-
ast með athöfnum okkar og fram-
tíðaráætlunum, því að víst eru tæki-
færin í dag mun fleiri en í ungdæmi
hennar. En engu að síður var hún
ákaflega stolt af sínu dagsverki,
strákunum sínum fimm og afa.
Amma og afí voru þau samlynd-
ustu hjón sem ég hef hingað til
23. apríl 1980.
Synir Jóhönnu og
Þorvalds eru: 1)
Árni Rúnar, f. 7.
ágúst 1946, kvænt-
ur Valgerði Sum-
arliðadóttur og
eiga þau fjögur
börn og eitt barna-
barn. 2) Magnús
Smári, f. 4. janúar
1950, ^ kvæntur
Þóru Ó. Þorgeirs-
dóttur og eiga þau
þijár dætur. 3)
Halldór Berg-
mann, f. 24. jan-
úar 1951, kvæntur Öldu S.
Ottósdóttur og eiga þau þijú
börn og tvö barnaböm. 4)
Magnús fvar, f. 3. september
1952, kvæntur Kolbrúnu Har-
aldsdóttur og eiga þau fjórar
dætur. Fyrir átti Kolbrún tvo
syni. 5) Guðni Þór, f. 5. janúar
1962, kvæntur Sigurlaugu
Pálsdóttur og á hún einn son.
Útför Jóhönnu fer fram frá
Bústaðakirkju á morgun,
mánudaginn 8. júlí, og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
komist í kynni við og er ég hugsa
til baka minnist ég þess aldrei að
hafa heyrt þau svo mikið sem brýna
raust sína hvort við annað.
Sá listi er ótæmandi til að lýsa
mannkostum hennar ömmu, en
annars held ég að ef lýsa ætti fyrir-
myndarömmu í alfræðiorðabók,
væri nafn hennar þar í fremstu röð.
Þín verður ávallt minnst með
söknuði.
Fyrir mína hönd og systkina
minna,
Sumarliði, Sigríður Þóra,
Þorvaldur, Jóhanna Guð-
rún Árnadóttir.
Hún elsku amma okkar er dáin.
Hún sem var alltaf svo góð við
okkur systurnar og vildi allt fyrir
okkur gera. Það var alltaf svo gam-
an að koma til ömmu og afa í Furu-
grundina því alltaf sá amma til
þess að við fengjum eitthvað gott
í gogginn. Bestar þóttu okkur pöns-
urnar og skonsurnar og oft kom
afí með skonsur frá ömmu til okk-
ar. Amma dó alltof snemma, hún
var alltaf svo hress og kát og átti
eftir að gera svo mikið. Amma var
dugleg að pijóna. Amma var búin
að prjóna lopapeysu á mömmu sem
hún fékk á afmælinu sínu í febr-
úar. Svo átti pabbi að fá peysu í
september og við allar í október því
peysurnar sem hún pijónaði fyrir
Qórum árum voru að verða of litlar.
En nú kemur amma ekki oftar í
heimsókn með afa í Engihjallann.
Elsku afí, þú átt eftir að sakna
ömmu mikið eins og við systurnar.
Guð blessi þig og varðveiti elsku
ömmu okkar.
María, Ásdís, Bryndis og
Eydís Magnúsdætur.
Kveðjustundir eru alltaf erfiðar
og svo er einnig nú, þegar ég kveð
tengdamóður mína. Állt frá því að
ég kynntist henni Hönnu fyrst, þá
aðeins sautján ára gömul, hefur aldr-
ei verið nema gott samband á milli
okkar, sem er þakkarvert og reynd-
ist hún mér alltaf sem besta móðir.
Þegar við Maggi fórum að eign-
ast dætur okkar þá hafði hún alltaf
tíma til þess að hjálpa okkur með
þær, með þvf að leyfa þeim að vera
hjá sér og þótti þeim alltaf jafn
gaman að fá að vera hjá ömmu því
að þar var nú aldeilis séð um að
þeim liði vel.
Elsku Hanna mín, þó að það sé
erfitt að kveðja þig svona óvænt
þá megum við vera þakklát fyrir
að hafa haft þig hjá okkur öllum
síðasta daginn sem þú lifðir þar sem
við vorum öll saman komin á ættar-
móti. Þar áttir þú þess kost að sjá
alla saman komna káta og glaða
sem og þú varst sjálf.
Að lokum þakka ég þér allar
okkar góðu stundir, sem ég á til
minningar um þig alla tíð.
Elsku Valli, Árni, Maggi, Dóri,
ívar og Guðni, guð blessi ykkur
alla í ykkar miklu sorg. Hvíl í friði,
elsku Hanna mín.
Þín tengdadóttir
Þóra Þorgeirsdóttir.
Elsku amma mín.
Mig langar að minnast þín í
nokkrum orðum, þó ég trúi því ekki
að ég sé að skirfa minningargrein
um þig.
Ekki trúði ég því að ég væri að
kveðja þig í síðasta sinn á laugar-
JOHANNA
SIG URHILD UR
ÍVARSDÓTTIR
G
i
i
i
i
i
(
(
(
(
(
i
i
i
+
Eiginmaöur minn, faðir og afi,
ÞÉTUR GUÐMUNDSSON
frá Hrólfsskála,
andaðist í Landspítalanum aðfaranótt
2. júlí. Jarðarförin fer fram þriðjudaginn
9. júlí í Neskirkju kl. 13.30.
Sigurdís Guðjónsdóttir, Skólabraut 5,
Benóný Pétursson, Ester Axelsdóttir,
Pétur Benónýsson,
Ásgeir Benónýsson,
Sigurdfs Benónýsdóttir
og barnabörn.
+
Móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
DAGBJÖRT JÓNSDÓTTIR,
hússtjórnarkennari,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
sem lést þann 1. júlí verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10.
júlí kl. 13.30.
Guðrún Kristinsdóttir, Sigurður Haukur Sigurðsson,
Þráinn Krístinsson, Björg Helgadóttir,
Þóra Björk Kristinsdóttir, Jósef H. Þorgeirsson,
Kristinn Kristinsson, Guðrún Sveinsdóttir,
Stefán Reynir Kristinsson, Guðríður Þorsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HALLGRÍMUR HALLDÓRSSON
frá Hraungerði,
Álftaveri,
Grettisgötu 55b,
Reykjavík,
veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 8. júlí kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á Samband fslenskra kristniboðsfélaga.
Sigrún Hallgrímsdóttir,
Bryan Allen Smith,
Halla Marie Smith,
Valgerður Hallgrfmsdóttir, Torfi Dan Sævarsson,
Ármann Snær Torfason.
+
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÍÐUR GUÐNÝ EYÞÓRSDÓTTIR,
(Dúfa)
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði, þriðjudaginn 9. júlí kl. 15.00.
Ársæll Pálsson,
Sigrún Ársælsdóttir, Þorleifur Óli Jónsson,
Vigdis Ársælsdóttir, Hallkell Þorkelsson,
niðjar og aðrir vandamenn.
Opið
9-22 alla daga
Lyf á lágmarksverði
LYFJA
Lágmúla 5
Sími 533 2300