Morgunblaðið - 12.07.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996 25
AÐSENDAR GREIEMAR
Um flutning Landmælinga
Islands og leiðaraskrif
SU AKVÖRÐUN Guðmundar
Bjarnasonar, umhverfisráðherra,
að flytja starfsemi Landmælinga
Islands til Akraness hefur vakið
verðskuldaða athygli. Með henni
er stigið stærsta skrefið til þessa
við að framfylgja þeirri stefnu
stjórnvalda að flytja opinberar
stofnanir út á land. Margir hafa
orðið til að fagna því, en aðrir
hafa gagnrýnt ákvörðunina, m.a.
leiðarahöfundar Morgunblaðsins
og DV. Hér verða stuttlega rakin
tildrög þessarar ákvörðunar um-
hverfisráðherra og gagnrýni svar-
að, en nokkurs misskilnings virðist
gæta í nefndum leiðurum og í
sumum tilvikum er farið rangt
með staðreyndir.
Breyttar forsendur
Athugun á flutningi Landmæl-
inga hófst í tíð fyrri ríkisstjórnar
og var síðan endurvakin að tilhlut-
an núverandi umhverfisráðherra.
Fyrrverandi umhverfisráðherra lét
m.a. gera athugun á viðhorfum
starfsmanna til flutnings og voru
þau neikvæð. Þá var auk þess
gerð í júní 1994 úttekt á vegum
Framkvæmdasýslunnar og Hag-
sýslu ríkisins á kostnaði við flutn-
ing stofnunarinnar til Akraness.
Helstu niðurstöður þeirrar úttekt-
ar voru að hægt væri að ná fram
hagræðingu í nýtingu húsnæðis
og minnka húsrýmisþörf, sértekjur
stofnunarinnar mynda minnka lít-
illega við flutning og kostnaður
ríkisins til langs tíma litið, aukast.
Kostnaður við fasteignakaup á
Akranesi og í Reykjavík var áætl-
aður tæplega 200 miiljónir. Undir-
búningur að ákvörðun ráðherra
hefur staðið yfir í umhverfisráðu-
neytinu síðustu mánuði. Við þá
vinnu var m.a. höfð hliðsjón af því
starfi sem áður hafði verið unnið
í fyrri ríkisstjórn. Leitað var lög-
fræðiálits um réttarstöðu starfs-
manna, haft samráð við fjármála-
ráðuneytið, rætt ítrekað við for-
svarsmenn Akranesbæjar, könnun
gerð á húsnæðismöguleikum og
lögð drög að nýrri löggjöf um land-
mælingar og kortagerð, svo fátt
eitt sé nefnt. Þá var að nýju beðið
um álit Hagsýslu ríkisins og Fram-
kvæmdasýslunnar á hugsanlegum
flutningi Landmælinga íslands til
Akraness, kostnaði, kostum og
göllum. í minnisblaði Hagsýslunn-
ar kemur fram að nokkrar for-
sendur varðandi flutning hafi
breyst. Verið væri að ráðast í gerð
vegganga undir Hvalfjörð, mögu-
leikar á hraðvirkum
gagnaflutningi milli
landshluta hefðu auk-
ist, fyrir lægju drög
að frumvarpi til nýrra
laga um landmæling-
ar og kortagerð, ekki
væri gert ráð fyrir að
haldið yrði úti sölu-
og markaðsdeild í
Reykjavík og húsnæði
á Akranesi væri nú
boðið til leigu.
Ekki aukinn
kostnaður
Guðjón Ólafur
Jóhannsson
Niðurstaða Hag-
sýslunnar var sú að
dregið hefði úr ókost-
um þess að flytja Landmælingar
íslands til Akraness. Fram-
kvæmdasýslan taldi mismun á
húsnæðiskostnaði í Reykjavík og
á Akranesi vart verða ráðandi við
ákvarðanatöku um staðsetningu
stofnunarinnar. Framkvæmda-
nefnd, sem ráðherra hefur skipað
til að annast flutninginn og und-
irbúa starfsemi Landmælinga ís-
lands á Akranesi, mun m.a. á
næstu vikum ganga frá samning-
um um húsnæðismál og jafnframt
vera í samstarfí við Framkvæmda-
nefnd um einkavæðingu um aukin
útboð á verkefnum stofnunarinn-
ar. Ljóst er að rekstur stofnunar-
innar á Akranesi mun ekki kosta
ríkissjóð meira fé en í Reykjavík.
Tölur um hundrað milljóna kostn-
að við flutning eru úr lausu lofti
gripnar og eiga ekki við nein rök
að styðjast. í fyrrgreindu minnis-
blaði Hagsýslu ríkisins er lögð
áhersla á að nægur fyrirvari sé á
flutningi. Umhverfisráðherra hef-
ur ákveðið að stofnunin taki að
fullu til starfa á Akranesi í ársbyij-
un 1999 og er gert ráð fyrir að
starfsfólk tilkynni fyrir 1. janúar
1998 hvort það vill starfa hjá
stofnuninni á Akranesi. Með þessu
gefst góður tími til að undirbúa
flutning og starfsemi stofnunar-
innar á nýjum stað, svo og gott
ráðrúm fyrir starfsfólk til að huga
að sínum málum. Umhverfisráð-
herra mun að auki skipa sérstakan
starfshóp, sem eingöngu mun ein-
beita sér að málefnum starfs-
manna, m.a. um aðgang að félags-
legri þjónustu, húsnæðismál,
vinnu fyrir maka o.s.frv. Mestu
skiptir þó að ákvörðunin hefur
verið tekin og að óvissu um stað-
setningu Landmælinga íslands
hefur verið eytt. Það hefur lengi
verið stefna stjórn-
valda að flytja opin-
berar stofnanir út á
land. Lítið hefur hins
vegar orðið úr fram-
kvæmdum. Skógrækt
ríkisins var þó flutt til
Egilsstaða og embætti
veiðistjóra til Akur-
eyrar. Báðar þessar
stofnanir starfa með
miklum blóma á nýj-
um stað og er engin
ástæða til að ætla
annað en að starfsemi
Landmælinga íslands
verði a.m.k. jafngóð á
Akranesi og í Reykja-
vík. Það eru úrelt við-
horf að halda því fram að öll opin-
ber stjórnsýsla og stofnanir hins
opinbera eigi að vera í Reykjavík.
Með ákvörðun Guðmundar Bjarna-
sonar, umhverfisráðherra, um
flutning Landmælinga íslands til
Akraness hefur verið stigið
stærsta skref til þessa í flutningi
opinberra stofnana út á land. Það
þarf kjark og þor til að taka slíka
ákvörðun og hafa fjölmargir orðið
til að fagna henni.
Stóryrtir leiðarar
Aðrir hafa hins vegar fundið
henni allt til foráttu, m.a. leiðara-
höfundar Morgunblaðsins og DV.
Hafa þar verið höfð uppi stór orð,
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
fHirpnliléib
-kjarni málslns!
Flutningur Landmæl-
inga var ákveðinn, segir
Guðjón Olafur Jóns-
son, að vandlega athug-
uðu máli og er pólitísk
ákvörðun og endanleg.
en þau standa ekki að sama skapi
á styrkum grunni. Ritstjóri DV
fullyrðir t.d. að ráðherra hafí á
undanförnum árum fengið Alþingi
til að samþykkja viðamikla sér-
hönnun og endurbætur á húsnæði
Landmælinga í Reykjavík fyrir
rúmlega fimm milljónir. Hér er
verulega hallað réttu máli, enda
hefði ritstjórinn mátt sjá, hefði
hann haft svo lítið við að líta í
fjárlög, sem Alþingi hefur sam-
þykkt, að engin fjárheimild er fyr-
ir umræddum endurbótum og þær
hafa verið gerðar án vitundar og
samþykkis ráðherra eða annarra
í ráðuneyti hans. Léiðarahöfundar
hafa lítið gert til að afla upplýs-
inga um ákvörðun ráðherra, held-
ur slegið fram fullyrðingum um
„geðþóttaákvörðun", „óboðleg“
vinnubrögð, „sukk og svínarí, rugl
og ráðleysi", svo eitthvað sé nefnt
úr stóryrtum leiðurum síðustu
daga. Ummæli þessi dæma sig
sjálf og verða að teljast dæmi um
óvönduð vinnubrögð.
Vandleg athugun
Það er t.d. fullyrt að engin rök
séu á bak við ákvörðun ráðherra,
þó svo að þau hafi legið fyrir frá
því að hún var tilkynnt. Eru það
„engin rök“ að vilja hrinda í fram-
kvæmd yfirlýstri stefnu stjórn-
valda? Auðvitað geta menn verið
ósammála þessarri stefnu, en það
er athyglisvert að sumir þeirra sem
gagnrýna flutning Landmælinga
segjast vera sammála- stefnunni,
en ósammála framkvæmdinni í
þessu tilviki. Slíkt er ekki trúverð-
ugt. Það er heldur ekki dæmi um
vönduð vinnubrögð að vitna í
gamlar niðurstöður, en sleppa því
að minnast á gjörbreyttar forsend-
ur fyrir flutningnum, t.d. varðandi
samgöngur og húsnæðismál, sem
gefa þar með allt aðra og betri
niðurstöðu varðandi fjármál og
rekstur stofnunarinnar. Kjarni
málsins er sá að stjórnvöld stefna
að flutningi ríkisstofnana út á
land. Ákvörðun Guðmundar
Bjarnasonar, umhverfisráðherra,
um flutning Landmælinga íslands
er tekin í samræmi við þá stefnu
og með samþykki ríkisstjórnar.
Hún er tekin eftir langan aðdrag-
anda og að vandlega athuguðu
máli af hans hálfu og mun ekki
hafa í för sér aukinn rekstrar-
kostnað fyrir ríkissjóð. Þessi
stefna stjórnvalda er pólitísk.
Ákvörðun ráðherra er því pólitísk
- og endanleg.
Höfundur er aðstoðarmaður
umhverfisráðherra og formaður
Framkvæmdanefndar um flutning
Landmælinga Islands til
Akraness.
ALLT AÐ 50%
AFSLÁTTUR
vegna tímabundinnar
lokunar og breytinga
á húsnæði
Borgarkringlunnar.
Við gerum allt vitlaust
fram á laugardag.
E.s. Opnutn aftur í haust!
Borgarkringlunni 2. hæð
HÚSASMIÐJAN
Skútuvogi 16 • Sími 525 3000
Helluhrauni 16 ■ Sfmi 565 0100
Max utanhússmálning er þrœlsterk
akrylmálning frájotun.
• MAX er með 7% gljáa.
• MAX er vatnsþynnanleg.
• MAX er í'áanleg í hundruðiun litatóna.
• MAX hefur reynst einkar vel á íslandi.
Málaðu strax>c -m «- * y
• • *XX1GC/
u tauliiissi iiáluiu