Morgunblaðið - 23.07.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1996 19
Á NÁMSSKRÁ The Commedia
School í Danmörku er tveggja
mánaða trúðanámskeið, sem að
sögn Elvars Loga Hannessonar,
sem stundar nám við skólann, var
erfiðasta námskeiðið á síðasta
námsári. Uppistaðan i skólanum
er suður-evrópskt leikhús og nám-
ið tekur tvö ár.
„Þetta er eini skólinn í Evrópu
um þessar mundir sem leggur
áherslu á greinar eins og Comme-
dia dell’arte, Kabarett, Tragidíu
og svo framvegis," segir Elvar
Logi, en i skólanum eru alls kennd
níu svið leiklistarhefðarinnar.
Nemendur eru fimmtán talsins
og eru víðsvegar að úr veröldinni.
Auk Elvars er annar íslenskur
nemi sem heitir Róbert Snorrason.
„Við enduðum fyrsta námsárið á
tveggja mánaða trúðafræðum, en
á undan því fengum við þjálfun í
persónusköpun, grímugerð og
Að gefnu
tilefni
ÞESS misskilnings hefur
gætt í fjölmiðlum í kjölfar
frumsýningar Leikfélags ís-
lands á Stone Free, eftir Jim
Cartwright, að leiklistar-
gagnrýnandi blaðsins, Sveinn
Haraldsson, hafi byggt leik-
dóm sinn um verkið á lokaæf-
ingu, en ekki frumsýningu.
Morgunblaðið vill leiðrétta
þennan misskilning og skýra
um leið hver vinnubrögð leik-
listargagnrýnenda eru. Gagn-
íýnandi fylgist með aðal-
æfingu og jafnvel fleiri æf-
ingum fyrir frumsýningu
leikhússverks. Þannig er
hann kunnugur verkinu, þeg-
ar að frumsýningu dregur.
Leikdómurinn er svo skrifað-
ur beint í kjölfar frumsýning-
ar, hann birtur í Morgunblað-
inu daginn eftir og gildir um
þá sýningu eina. Sú stað-
reynd að ákveðnum upplýs-
ingum um texta verksins og
umgjörð leiksins er safnað
saman fyrir frumsýningar-
kvöld hefur engin áhrif á
lokadóm.
Ritstj.
Nýjar bækur
• ÚT ER komin íslenski hestur-
inn - litir og litbrigði. I henni
eru 85 ljós-
myndir sem
sýna jafnmarga
liti og litbrigði
íslenska hests-
ins.
Friðþjófur
Þorkelsson,
Ijósmyndari og
gæðingadómari
í Mosfellsbæ,
hefur fundið
hesta sem bera
þessa liti og
myndað þá.
Myndirnar sýna
hestana í ís-
lensku um-
hverfi.
Sigurður A.
Magnússon
rekur í formála
sögu og sér-
kenni íslenska
hestsins, lit
hans, ætt og
uppruna. For-
málinn er prýddur fjölmörgum
ljósmyndum Friðþjófs.
Báðir eru þeir Friðþjófur og
Sigurður reyndir hestamenn og
hafa áður komið við sögu útgáfu
bóka um íslenska hestinn.
Formáli Sigurðar og mynda-
textar bókarinanr eru á fjórum
tungumálum: íslensku, dönsku,
ensku og þýsku.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 133 bls., íhandhægu
broti, innbundin ogprentuð íprent-
smiðjunni Odda. Verð 1.980 kr.
Friðþjófur
Þorkelsson
Sigurður A.
Magnússon
Trúðslæti erfíðasta
námsgreinin
sögumonnsku. Þegar trúðanám-
skeiðinu lauk fórum við á leiklist-
arhátið í Eistlandi og sýndum af-
raksturinn á klukkustundarlangri
trúðasýningu," segir Elvar Logi.
„Góður trúður þarf að hafa persón-
una á hreinu jafnt sem söguna, en
það tekur mörg ár að ná góðri
leikni í trúðatækni. Það kom mér
á óvart hve mikið púl þetta er,“
segir Elvar Logi. „Sérstaða trúðs-
ins innan leiklistarinnar liggur í
því að hann þarf að geta sungið,
leikið, spilað á mörg hljóðfæri og
svo verður hann að hafa fulla
sljórn á umhverfinu um leið og
hann á að láta eins og tveggja ára
gamalt barn,“ segir Elvar Logi og
bætir því við að trúðurinn sé lægst
setti þegninn í persónugalleríi leik-
listarinnar.
Elvar Logi ákvað að fara í skól-
ann þegar hann sá bækling hjá
samnemanda sínum í Fjölbrauta-
skólanum í Ármúla. „Mér fannst
þetta spennandi og sá að þetta var
nokkuð sem ég hafði ekki áður
reynt.“ Inntökuskilyrðin eru að
sögn Elvars Loga ekki ströng, en
hann flaug til Danmerkur og fór
í viðtal. „Síðan fékk ég jákvætt
svar og demdi mér í þetta.
Skóiagjöldin eru ekki ýkja há
að mati Elvars Loga, en fyrir síð-
asta námsár greiddi hann 250 þús-
und krónur. Skólinn er einkarek-
inn og fékk Elvar Logi ekki náms-
lán í vetur, en mun fá lán fyrir
seinna árinu. „Skólinn er að öðlast
viðurkenningu um þessar mundir
og hróður hans hefur aukist mikið
ívetur."
Hvernig bregst, fólk við þegar
þú segist hafa verið að læra trúðs-
læti í skóla? „Margir verða kindar-
legir í framan og spyija hvort
þetta þurfi að læra sérstaklega,
en auðvitað er ekki við því að bú-
ast að fólk fyllist lotningu svona
fyrsta kastið."
Ætlar Elvar Logi að innleiða
nýjungar í islensku leikhúslífi að
námi loknu? „Mér þætti áhugavert
að vinna með grímur og vonandi
mun þekking mín og áhugi nýtast
í íslensku leikhúslífi."
ELVAR Logi í hlutverki
trúðsins Sebastíans.
^Verum rúmgóð hvort við
annað - fáum okkur rúm
frá Ingvari & Gylfa.
JN/Iikið úrval af einstaklings- og hjóna-
rúmum af öllum stærðum og gerðum.
Fjölmargir möguleikar í dýnum;
tvöfalt dýnukerfi, gormadýnur
eða latexdýnur.
lítið
inn
í
Sjón er sögu ríkari -
glæsilega verslun okkar að
Grensásvegi 3, Reykjavík.
auping rúmbotnarnir
vinsælu passa í öll
rúm, ný eða gömul.
Ef endurnýjun stendur
fyrir dyrum kynntu þér
auping rúmbotnana, sem
hægt er að hækka við höfða-
og fótlag, ýmist loft- eða rafknúið.
Úrval af dýnum, rúmfötum, auping heilsukoddum og rúmteppum.
auping
P ÓSTSENDUM
Greiðslusamningar í BOÐI!
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík. Sími: 568 1144. Fax: 588 8144.
.AN/S9