Morgunblaðið - 02.08.1996, Síða 6

Morgunblaðið - 02.08.1996, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR é Morgunblaðið/Árni Sæberg MIKILL mannfjöldi safnaðist saman á Austurvelli í bliðskaparveðri í gær til að fylgjast með embættistöku Olafs Ragnars Grímssonar og hylla hann og eiginkonu hans, Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur, þegar þau gengu út á svalir Alþingishússins. Lögregla telur að þar hafi verið saman komin milli fimm og sex þúsund manns. LÚÐRASVEIT lék ættjarðarlög á Austurvelli frá kl. 15 þar sem saman var kominn mikill mannfjöldi til að fylgjast með embættistök- unni. Lögregla telur að á milli fimm og sex þúsund manns hafi verið á Austurvelli þegar flest var. Embættistakan hófst kl. 15.30 þegar ný- kjörinn forseti gekk ásamt forseta Hæstarétt- ar, Haraldi Henrýssyni, frá Aiþingishúsinu yfir í Dómkirkjuna. Á eftir þeim gengu biskup Islands, hr. Olafur Skúlason, og eiginkona Ólafs Ragnars, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir. Þá komu Davíð Oddsson forsætisráðherra og Vigdís Finnbogadóttir, fráfarandi forseti ís- lands, forseti Alþingis, Ólafur G. Einarsson, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis, Ólafur Davíðsson, forsetaritari, Komelíus Sigmunds- son, skrifstofustjóri Alþingis, Friðrik Olafsson, og hæstaréttarritari, Erla Jónsdóttir. Marteinn H. Friðriksson lék forspil, Ost- inato eftir Pál ísólfsson, og Dómkórinn söng sálm eftir Steingrím Thorsteinsson. Séra Hjalti Guðmundsson fór með kollektubæn og las guðspjall síðasta sunnudags. Þá fóru viðstadd- ir með trúarjátningu og sálmur Kolbeins Tumasonar, Heyr himna smiður, var sunginn. Hátíð allra íslendinga í prédikun sinni sagði biskup Islands að dagurinn væri hátíðisdagur og upphaf þess sem á eftir skyldi koma. Hann sagði að hátíð- in skipti miklu og væri þess virði að vera gaumgæfð af alvöru. Þá sagði hann að ekki gerðust allir hlutir með þeim hætti að sjálf- sagt þætti öllum og sinn tíma tæki að átta sig á breytingum. Hann spurði að því hvort þeir, sem ekki hefðu stuðlað að því að Ólafur Ragnar og ijölskylda hans flyttust af einu nesi á annað, héldu hátíð í gær. „Værum við svo þröngsýn eða í svo aðskornum flíkum að ekki gleddust aðrir en þeir sem stuðluðu að vali með stuðningni, þá væri vá fyrir dyr- um. [... ] Ætti hver og einn að láta eigin hug ráða, eigin óskir einar stjórna, lúta að- eins eigin vilja en vera annars afskiptur, þá þýðir varla að hafa uppi stór orð um þjóð,“ sagði Ólafur. Trúin var til staðar Biskup sagði að oftar hefði verið spurt um trú þegar þessi dagur færðist nær en við ættum annars að venjast og spurningu beint til þeirra sem boðist höfðu til þess að leiða þjóð úr tignarsæti. „Og vitanlega gladdi það alla þá, sem ekk,i er sama um slíkt, að ekki heyrðist hjáróma rödd. Trúin var til staðar. Þau trúa öll á guð.“ Herra Ólafur sagði sérstakt þakkarefni fyr- ir forsetahjónin nýju að í kór skyldu sitja tveir forverar hans í biskupsembætti, hr. Sigurbjörn Mannfjöldi hyllti forsetahjónin á AusturveUi Ólafur Ragnar Grímsson tók við embætti fímmta for- * seta lýðveldisins Islands í gær. Gréta Ingþórsdóttir fylgdist með helgistund í Dómkirkjunni og athöfn í Alþingishúsinu þar sem embættistakan fór fram. Morgunblaðið/Golli ATHÖFNIN í Alþingishúsinu var hátíðleg. Meðai gesta var Halldóra Elcyárn, fyrrverandi forsetafrú, alþingismenn, ýmsir embættismenn, hæstaréttardómarar, fulltrúar erlendra ríkja, og forsvarsmenn stofnana, félagasamtaka og atvinnulífs. Einarsson og hr. Pétur Sigurgeirsson, því báðir hefðu þeir með sérstökum hætti tengst ævi þeirra Ólafs Ragnars og Guðrúnar Katrín- ar á viðkvæmum stundum uppvaxtar þeirra á þann veg að þakkir byggju í huga vegna þeirra og vegna kirkjunnar sem þeir hefðu þjónað og leitt. Þá minnti Ólafur á innihald guðspjallsins sem lesið hafði verið frá altarinu þar sem Jesús varaði við orðagjálfri og falsspámönn- um. Þar segði að aðeins einn mælikvarði fynd- ist til að sannreyna það sem mælt væri og hann væri sá að skoða ávextina, þá er spretta af trúnni. „Streymi hatur frá þeli, er ekki um trú á sannan guð að ræða. Fylgi voðaverk, þá er það ekki góður guð sem kallar slíkt . fram eða réttlætir það. Eigi að útiloka suma fyrir þær sakir einar að þeir eru frábrugðnir I fjöldanum og þessvegna útskúfað er ekki stað- | ið að verki í þeim anda sem guði er þóknanleg- ur. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá, segir sjálfur Jesú og heldur svo áfram: Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af þistl- um, þannig ber sérhvert gott tré góðan ávöxt og slæmt tré vondan. Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur slæmt tré góða ávöxtu.“ Sigrún Hjálmtýsdóttir söng Sjá, dagar koma . eftir Sigurð Þórðarson og Davíð Stefánsson > og síðan flutti séra Jakob Ágúst Hjálmarsson ) fyrirbæn. Viðstaddir fóru með Faðir vor, bisk- k up íslands blessaði samkomuna og sungið var " ísland ögrum skorið eftir Eggert Ólafsson. Meðan viðstaddir gengu úr kirkju og yfir í Alþingishúsið lék Marteinn H. Friðriksson Tokkötu eftir Jón Nordal. Drengskaparheit undirritað í Alþingishúsinu hófst athöfnin á því að Kristinn Sigmundsson söng Þótt þú langför- ull legðir eftir Sigvalda Kaldalóns og Stephan G. Stephansson við undirleik Jónasar Ingi- mundarsonar. Þá lýsti Haraldur Henrýsson, forseti Hæstaréttar, forsetakjörinu og útgáfu kjörbréfs. Ólafur Ragnar Grímsson vann drengskaparheit að stjórnarskránni og tók við árnaðaróskum og kjörbréfinu úr hendi Harald- ar Henrýssonar. Að þessu loknu gengu herra Ólafur Ragnar og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir út á svalir Alþingishússins. Mannfjöldinn, sem var sam- ankominn á Austurvelli, fagnaði forsetahjón- unum með lófataki og tók undir af krafti þeg- ar Ólafur Ragnar bað viðstadda að minnast fósturjarðarinnar með ferföldu húrrahrópi. Þau hjónin gengu síðan aftur inn í þingsalinn þar sem Ólafur Ragnar flutti ávarp. Athöfn- inni lauk síðan með því að viðstaddir sungu Þjóðsöng Islendinga undir forsöng Dómkórs- ins. v Forsetahjónin gengu út í kringlu Alþing- ishússins og tóku þar við hamingjuóskum boðsgesta. Boðið var upp á kampavín og kransaköku. Síðan óku þau ásamt dætrum sínum, Tinnu og Döllu, til Bessastaða þar sem þau hittu m.a. starfsfólk forsetasetursins og forsvarsmenn Bessastaðahrepps og ýmissa félagasamtaka í hreppnum. >

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.