Morgunblaðið - 02.08.1996, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 02.08.1996, Blaðsíða 44
HEIMILISLÍNAN - Heildarlausn ájjárináluin einstaklinga Æ) BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS Jíewdbl -setur brag á sérhvern dag! MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTl 1 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Sigurgeir Hlekktist á í lendingu Hagnaður Eimskips 291 millj. HAGNAÐUR Eimskips og dótturfélaga á fyrri helmingi þessa árs nam 291 milljón króna og jókst um nær 19% samanborið við sama tímabi! í fyrra. Rekstrartekjur fyrirtæk- isins á sama tímabili jukust um 12% og námu röskum 5,4 millj- örðum króna. Er þessi rekstr- arniðurstaða einkum rakin til góðrar afkomu af starfsemi félagsins erlendis og hagstæðr- ar útkomu fjármagnstekna og fjármagnsgjalda. Spáð svipaðri afkomu á síðari hluta ársins Hörður Sigurgestsson, for- stjóri Eimskips, segist telja þessa afkomu viðunandi, enda hafí markmið félagsins um a.m.k. 10% arðsemi eigin fjár náðst. Hann segist reikna með því að afkoma félagsins á síð- ari hluta þessa árs verði svipuð og á þeim fyrri. Það sem af er árinu hefur Eimskip varið rúmum 2 millj- örðum króna til fjárfestinga hér á landi og erlendis. Vega þar þyngst kaup félagsins á nýju gámaflutningaskipi, Brúar- fossi, en einnig koma þar inn umtalsverðar fjárfestingar í flutninganeti félagsins hérlend- is sem og í erlendum fyrirtækj- um. ■ Hagnaður/14 TVEGGJA hreyfla flugvél af gerðinni Cessna 310, TF-LFA, hlekktist á í lendingu á Vest- mannaeyjaflugvelli síðdegis í gær. Að sögn lögreglunnar í Vest- mannaeyjum virtist allt vera í lagi þegar vélin kom inn til lend- ingar til suðurs eftir flugbraut- inni en þegar hún snerti brautina gaf annað hjólið sig. Hjólið brotnaði ekki undan vélinni en lagðist undir hana. Vélin rann á öðrum vængnum út fyrir flugbrautina og stöðvað- ist þar á malarsvæði. Fimm manns voru i vélinni og sakaði engan. Vélin er hins vegar tölu- vert skemmd. Besta veður var í Vestmanna- eyjum þegar óhappið varð. Úttekt á tómstund- um skólanema Nemendur sem líður vel í skóla hafna vímuefnum UNGLINGAR sem telja skólann mikilvægan og iðka íþróttir eða taka þátt í öðru félagsstarfi hafna fremur vímuefnum en aðrir ungl- ingar. Þeir unglingar sem hafa háar einkunnir í skóla og leggja áherslu á mikilvægi náms neyta síður vímuefna og nemendur sem líður vel í skóla hafna fremur vímuefnum en aðrir. Þessar niðurstöður koma fram í M.A. verkefni Ingibjargar Völu Kaldalóns félagsfræðings sem út- skrifaðist frá Háskóla íslands í júní sl. Lagt fyrir alla 9. og 10. bekki Ingibjörg Vala gerði fræðilega úttekt á ýmiss konar tómstunda- iðkunum og tengslum þeirra við vímuefnaneyslu og byggði m.a. á spurningalistum sem lagðir voru fyrir alla nemendur 9. og 10. bekkjar grunnskólans, vorið 1992. Ingibjörg segir að niðurstöður lokaverkefnis hennar hafi ótvírætt sýnt fram á nauðsyn þess að ungl- ingar hafi vel skilgreind markmið og ákveðinn tilgang í lífinu, því það minnki líkur á vímuefna- neyslu. ■ Markmið/B2-3. Viðbúnaður vegna röskunar á læknisþjónustu Færri vandamál en búist var við Neyðarþjónusta á að vera tiltæk alls staðar á landinu yfir verslunarmannahelgina ENGIN stórvægileg vandamál komu upp í gær vegna skorts á læknisþjónustu eftir að um 120 heilsugæslulæknar létu af störf- um, samkvæmt upplýsingum Matthíasar Halldórssonar aðstoð- arlandiæknis og Kristjáns Er- lendssonar, sem stýrir starfshópi heilbrigðisyfirvalda um skipulag læknisþjónustunnar. Kristján sagði þó ljóst að ástandið væri slæmt og mjög mik- ilvægt að það vari ekki lengi. Lyf afhent I neyðartilvikum án framvísunar lyfseðla Alag á hjúki-unarfræðinga á heilsugæslustöðvum hefur aukist verulega en margir þeirra höfðu samband við ráðuneytið í gær vegna álitamála sem upp komu. Þurfa hjúkrunarfræðingar að meta bráðatilfelli og gera ráðstaf- anir, m.a. varðandi endurnýjun lyfseðla. Ef ekki næst til læknis geta lyfjafræðingar í neyðartilvik- um afhent sjúklingum lyf í minnstu pakkningum án framvís- unar lyfseðla fyrir tilmæli frá hjúkrunarfræðingum. Hjúkrunar- fræðingar hafa leyfi til að skoða skýrslu sjúklings til að sjá á hvaða lyfjum hann er og geta veitt svo- kallaða framhaldslyljameðferð ef um alger neyðartilvik er að ræða, að sögn Matthíasar. Læknar á flestum útihátíðum Unnt á að vera að veita neyðar- þjónustu alls staðar á landinu yfir verslunarmannahelgina, að sögn Kristjáns Erlendssonar. Læknar verða til staðar á flestum útihátíð- um en vitað er að engir læknar verða þó til staðar í nokkrum byggðarlögum nálægt útihátíðum eða þar sem búast má við mikilli umferð, s.s. á Hellu og Hvolsvelli. „Við höfum haft samband við þyrlustjórnendur og fleiri aðila um flutninga ef stórslys verða,“ sagði Kristján. Fulltrúar landlæknisembættis- ins og héraðslæknisins í Reykja- vík heimsóttu í gær nokkrar heilsugæslustöðvar og bráðamót- tökur sjúkrahúsanna í Reykjavík til að kynna sér ástandið. Matthí- as sagði greinilegt að sú röskun sem uppsagnir læknanna valda væri ekki komin fram af fullum þunga. Engin sérstök vandamál hefðu komið upp en ýmsir skipu- lagslegir hnökrar sem nú væri verið að lagfæra. Enginn sáttafundur boðaður Stjórn heimilislækna hafnaði i fyrrakvöld samvinnu við yfirvöld um skipulag neyðarþjónustu. Var þetta mál rætt á fundi stjórnarinn- ar og samninganefndar heilsu- gæslulækna í gær. Að sögn Gunn- ars Inga Gunanrssonar, formanns samninganefndarinnar, líta lækn- ar m.a. svo á að það hafi verið mat landlæknis og stjórnvalda að ekkert neyðarástand væri í aðsigi vegna uppsagna heilsugæslu- lækna. „Ég er viss um að læknar myndu endurmeta þetta mál, komi upp neyðarstaða," sagði hann. Ekki hefur verið boðað til nýs sáttafundar í kjaradeilu heilsu- gæslulækna og ríkisins. Aukið álag/4 Morgunblaðið/Ásdis LITLU munaði að eldtungur frá bílnum næðu að læsa sig í þakskegg hússins. Maður brenndist er kviknaði í bíl MAÐUR brenndist á höndum og sviðnaði á höfði þegar eldur kom upp í húsbíl hans sem hann var að vinna við í gærkvöldi. Sjónarvottar á staðnum segja að miklar eldtung- ur hafí risið upp frá bílnum sem stóð við hús í Skipasundi 36 og urðu nokkrar reykskemmdir í hús- inu. Maðurinn hafði unnið við að endurbæta húsbílinn, sem var af gerðinni Mercedes-Benz, um langan tíma og hugðist nota hann til ferða- laga um verslunarmannahelgina. Menn á staðnum reyndu að slökkva eldinn með handslökkvi- tæki meðan beðið var slökkviliðs en þeir réðu ekki við eldinn sem hafði magnast mikið upp. Að sögn slökkviliðsins í Reykjavík er talið að bíllinn sé ónýtur. Að sögn varð- stjóra mátti engu muna að eldurinn læsti sig í húsið. Rúður sprungu í húsinu og eldurinn var við það að læsa sig í þakskeggið. Um klukku- stund tók að slökkva eldinn. Lögreglan i Reykjavík segir að maðurinn hafi verið að leggja gas- lögn í ísskáp sem er í bílnum. Lík- legt er talið að neisti hafi hlaupið úr verkfæri og kviknað í gasinu. Maðurinn brenndist á höndum og sviðnaði í framan en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Maðurinn ætlaði af stað á bílnum í ferðalag í dag í fyrsta skipti eftir endurbæt- urnar á honum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.