Morgunblaðið - 02.08.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.08.1996, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ræða Ólafs Ragnars Grímssonar forseta íslands við athöfnina í Alþingishúsinu í gær Morgunblaðið/Golli FORSETI íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, flytur ræðu sína I Alþingishúsinu í gær. Mikilvægasta skyldan er trúnaður for- seta við þjóðina HÉR á eftir fer ræða sú5 sem forseti Islands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, flutti í Alþing- ishúsinu í gær eftir að hann hafði tekið við embætti forseta: Stjórnarskrá okkar mælir svo fyrir að fyrsti starfsdagur forseta íslands sé í ágústbyrjun á hveiju nýju kjörtímabili. Sú dagsetning kann að nokkru að hafa stjórnast af hagkvæmni, en hún er einnig táknræn þjóðminning. Fyrstu vikuna í ágúst árið 1874 hösluðu Islendingar sér völl í samfélagi þjóðanna með hátíðinni miklu á Þingvöllum. Þess var minnst að þúsund ár voru frá upphafi land- náms og þjóðin eignaðist þá sína fyrstu stjórnarskrá. í henni var ekki einungis viðurkennd sér- staða íslands heldur einnig lagð- ur grunnur að þeim leikreglum lýðræðis og mannréttinda sem við höfum síðan talið kjarnann í samfélagi okkar. Það er mikilvæg skylda forseta Islands að stuðla að því að ekki rofni þau bönd sem tengja okkur við ávinninga fyrri alda. Mikilvægasta skyidan er þó trúnaður forseta við þjóðina sjálfa, óskir hennar og vonir á hverri tíð. I ferð okkar hjónanna um land- ið í aðdraganda forsetakjörsins höfum við sannfærst um þá djúpu virðingu sem þjóðin ber fyrir störfum forseta lýðveldisins. Hornsteinn þeirrar farsældar sem forsetar íslands hafa notið er hlýr og góður hugur í garð forseta- embættisins. Fáir þjóðhöfðingjar eiga þess kost að ræða við þorra landa sinna og kynnast hugarþeli þeirra. Þetta er á færi forseta Islands, og það er einlæg von mín að það samband sem tekist hefur milli okkar og alþýðu manna til sjávar og sveita verði ekki sundur slitið. Þegar lýðveldi var stofnað á Þingvöllum og forseti íslands kjörinn fyrsta sinni var við fátt að styðjast um mótun embættis- ins, starfshætti forsetans og framgöngu alla. Á rúmlega hálfri öld hafa forsetarnir fjórir, hver á sinn hátt, treyst það samband forseta og þjóðar sem hlýtur að vera líftaug sérhvers sem hlotn- ast þessi trúnaður. Forsetar lýð- veldisins hafa ávallt borið gæfu til að laga embættið og starfssvið þess að breyttum kröfum sinnar samtíðar. Svo mun vonandi verða um alla framtíð. Það er með lotningu og þakkarhug sem þjóðin minnist Sveins Bjömssonar, Ásgeirs Ás- geirssonar og Kristjáns Eldjárns á þessari hátíðarstundu. Hver með sínum hætti mótuðu þeir embættið og meitluðu. Á undanförnum sextán árum hefur Vigdís Finnbogadóttir bætt nýjum þáttum í starfsvef forset- ans. Hún hefur verið brautryðj- andi í alþjóðastarfi embættisins um leið og hún hefur ræktað trú okkar á landið, menningu okkar og þjóðtungu. Hlýhugur hennar og hvatning til dáða og framfara munu geymast okkur í minni. íslendingar allir færa henni ein- lægar þakkir og óska henni heilla. Við eigum í sögu okkar örlaga- rík tímabil þar sem úrslitum réð hvort menn báru gæfu til þess að setja sér sameiginleg markmið eða létu hver um sig stjórnast af stundarhagsmunum. Sigurður Nordal lét svo um mælt að Sturl- ungar hefðu gengið fram en horft aftur. Þeir hafi átt gnótt glæsi- legra minninga, „en hvorki vonir um betri framtíð, sem gætu hitað þeim til dáða, né raunhæft tak- mark og ásetning, sem skerpti vit og vilja til einbeittra athafna“. Frumkvöðlar sjálfstæðisbar- áttunnar á miðri síðustu öld miðl- uðu á hinn bóginn heimssýn þeirrar tíðar til annarra íslend- inga. Verk þeirra vísuðu á fram- tíðarveg og í fortíðina sóttu þeir hvatningu til dáða. Mitt í fátækt og réttleysi nýlendunnar setti Jón forseti sjálfstæðisbaráttunni markmið í stjórnmálum, viðskipt- um og verklegum efnum, og studdi kröfur landsmanna sögu- legum rökum. Fjölnismenn fundu svo að sínu leyti orðin sem voru samboðin sjálfstæðri þjóð. Athyglisvert er að það var ungt fólk sem stóð í framvarðar- sveit sjálfstæðisbaráttunnar. Og enn hljótum við að setja traust okkar á unga fólkið. Við hin eig- um einnig skyldur okkar við það. Sú kynslóð kvenna og karla sem nú er að útskrifast úr skólum er hin fyrsta á íslandi sem hefur heiminn allan að vinnusvæði. Hana skortir hvorki þjóðernisvit- und, virðingu fyrir íslenskri menningu né ást á náttúru lands- ins, en hún er einnig raunsæ og kröfuhörð. Þá vaknar sú spurning hvort okkur tekst. að sigra í hinni alþjóðlegu samkeppni um unga fólkið á íslandi. Mun það kjósa að búa með okkur hér í útsænum eða afla sér viðurværis annars staðar? Svarið ræðst af því hvern- ig okkur, sem stöndum fyrir ráð- um, tekst að opna hug okkar og setja þjóðinni hæfileg markmið. Aldamótin eru kjörið tækifæri til þess að sameinast um þjóðar- ásetning sem skerpt getur vit okkar og vilja til einbeittra verka. Það ætti að vera verkefni ein- staklinga, samtaka og fyrirtækja að velja íslendingum ný og heill- andi viðfangsefni á komandi öld. Meðal þess sem til álita kemur er að nýta sérstöðu íslands við verndun umhverfis og afla viður- kenningar á því að hreint land, óspillt lífríki og haldbær náttúru- gæði séu okkar aðalsmerki. Við hljótum einnig að fjalla um and- legar auðlindir okkar, um hinn forna arf en ekki síður hinar lif- andi listir, og um þá menntun og menningu sem eflir og agar nýjar kynslóðir. Gleymum því heldur ekki þegar við hyggjum að fram- tíðarverkum, að heilbrigðir lífs- hættir, hollusta, og tryggð við fjölskyldu og vini eru traustir innviðir í sérhverju samfélagi. Það er einlægur ásetningur minn sem forseti lýðveldisins að tengja saman krafta og hugvit allra þeirra sem móta vilja sýn þjóðarinnar til nýrrar aldar og ræða þau markmið sem geta sam- einað hana til góðra verka. Það hefur kostað landsmenn miklar fórnir á þessum áratug að ráða bót á ýmsum meinsemd- um í efnahagslífi og atvinnuskip- an. Segja má að nokkurt jafn- vægi hafi náðst. Heimilin eru þó ærið mörg skuldsett meira en góðu hófi gegnir, og ýmsir samfé- iagshópar bera skarðari hlut frá borði en réttlætiskennd okkar þolir. Mörgum finnst að nú hljóti að vera kominn tími til þess að uppskera laun erfiðisins. Þetta er eðlileg hugsun og ber vott um vaxandi framfarahug í landinu. Sé rétt á haldið eigum við þess allan kost að búa við traust lífs- kjör, góða velferðarþjónustu og eðlilegt jafnræði manna í milli. Til þess þurfum við að tileinka okkur skipulegri vinnubrögð en okkur hafa verið töm. Til þess þurfum við að nýta þau færi sem okkur skapast á nýrri öld. Á næstu misserum er brýnt að mynda þjóðarvilja og trausta samstöðu um að lífskjör allra Is- lendinga jafnist á við það sem best gerist með nágrannaþjóðum okkar. Án slíks árangurs_ gæti ungt fólk glatað trú sinni á ísland sem framtíðarheimkynni. Við eigum að vera bjartsýn þegar við hugum að möguleikum okkar sem þjóðar í náinni fram- tíð. Þróun heimsmála, vísinda og tækni er okkur á margan hátt hagfelld. Við blasir ný veröld sem einkennist fremur af opnum sam- skiptum en af lokuðum valdakerf- um. Hæfni og hugvit skipta meira máli en stærð og styrkleiki. Hinn smái getur haft til að bera snerpu og knáleik sem oft dugar ekki síður en afl risans við að hagnýta tækni nútímans. Við íslendingar eigum því ein- stæða möguleika. Við erum alls staðar boðin velkomin til sam- starfs við nýfijálsar þjóðir og þróunarríki. Enginn þarf að ótt- ast okkur vegna stærðar eða hugsanlegs yfirgangs. Einangrun vegna fjarlægðar og samgöngu- hindrana er að mestu úr sögunni og tækifæri bíða í öllum heims- hlutum. Árið 2000 fögnum við ekki aðeins áfanga í tímatali mann- kyns. Við munum einnig efna til hátíðar í minningu þess að þús- und ár verða liðin frá því að við kristni var tekið á þingi. Þá var ákveðið á Þingvöllum að hafa ein lög og einn sið og slíta ekki sund- ur friðinn. Sú sáttargjörð vísaði fram á veginn en ekki aftur til horfins tíma og hverfandi hug- myndaheims. Kristnitakan er dýrmætt sögulegt fordæmi um það hvernig hægt er að leiða til lykta hin erfiðustu úrlausnarefni á friðsaman hátt. Aldamótaárið minnumst við þess einnig að þúsund ár eru lið- in frá landafundum íslenskra sæfara í Vesturheimi. Siglingaaf- rek forfeðra okkar eru sögulegt þrekvirki. Landnámshugurinn sem einkenndi þau er merkilegt rannsóknarefni. Það er vel við hæfi að minnast landafundanna með myndarlegum hætti kringum aldamótin. í svari mínu við heilla- óskum forseta Bandaríkjanna mun ég vekja sérstaka athygli á þúsund ára afmæli landafund- anna og hvetja til sainstarfs um að minnast landkönnuðanna og ræða áhrif landnemahugarfars- ins í sögu og menningu Islands og Bandaríkjanna og einnig Kanada. Hollt er og að minnast þess að þar vestra eigum við að vinum fjölda fólks sem rekur ættir til hinna síðari landnema, sem þang- að fóru í lok síðustu aldar. Vest- ur-íslendingar halda nú um helg- ina sinn íslendingadag í Gimli. Ég sendi þeim hlýja kveðju mína og þjóðarinnar og vænti góðs samstarfs við þá um ræktun arfs- ins sem við eigum öll saman. Um leið vil ég bjóða hjartan- lega velkomna hina nýjustu land- nema íslands, það fólk frá stríðs- hijáðum Iendum Balkanskagans sem hefur ákveðið að leita hag- sældar og hamingju hér meðal okkar og er nú sest að á æsku- slóðum mínum á ísafirði. Við eigum mikið undir því að milli okkar og annarra þjóða liggi gagnvegir. A undanförnum árum og áratugum höfum við íslend- ingar treyst tengsl okkar við þjóðir annars staðar í Evrópu inn- an vébanda margskonar samtaka og stofnana, svo sem Norður- landaráðs og Evrópuráðs, Frí- verslunarsamtaka Evrópu og Evrópska efnahagssvæðisins, Norður-Atlantshafsbandalagsins og Samtaka um öryggi og sam- vinnu. Evrópusamvinnan er okk- ur vissulega mikilvæg og mun enn þróast og vaxa á komandi árum. Fjöldi smárra ríkja hefur á þessum áratug bæst við í hið evrópska samfélag. Margar þess- ara þjóða sækjast nú eftir náinni samvinnu við íslendinga. Þær leita fyrirmynda í daglegri önn sjálfstæðs þjóðríkis sem býr við full mannréttindi og almenna velferð. Vitneskjan um einstæða reynslu okkar er þessum þjóðum ofarlega í huga þegar þær feta sig áfram á braut lýðræðis og mannréttinda. Við höfum á röskri hálfri öld sannað réttmæti þess að tiltölulega fámenn samfélög njóti sjálfstæðis. Þess vegna mun framlag okkar íslendinga til framtíðar Evrópu verða mikils metið. Hjá Sameinuðu þjóðunum og annars staðar þar sem íslendingar mæta til leiks á alþjóðavettvangi þarf rödd lýðræðis og mannrétt- inda að hijóma hátt og snjallt. Einstæðir sögulegir atburðir, svo sem kristnitakan og sjálfstæðis- barátta sem eingöngu var háð með orðsins brandi, leggja okkur á herðar þá skyldu að miðla öðrum af reynslu okkar og friðarhefð. Saga íslendinga er sönnun þess að hægt er að ná sáttum um grundvöll samfélagsins og hljóta sjálfstæði og full lýðréttindi án þeirra mannfórna sem mótað hafa örlög margra þjóða. Ég hef nú unnið drengskapar- heit að stjórnarskrá lýðveldisins. Með einlægri virðingu fyrir ákvæðum hennar tekst ég á hend- ur það trúnaðarstarf sem framar öðrum er tákn um sjálfstæði Is- lendinga. En ekki verður allt skráð í lögbækur. Að rækja starf forseta Islands er fyrst og fremst þjónusta við þjóðina. Einungis dómgreind, lífsreynsla og lifandi tengsl við fólkið í landinu geta vísað forseta rétta leið í starfi. Við þessi kaflaskipti í mínu lífi minnist ég allra þeirra sem mig hafa mótað, einkum móður minnar og föður, ömmu minnar og afa fyrir vestan sem veittu mér í æsku það veganesti sem ég _tel mest um vert. Ég bið ykkur öll að minnast áa okkar og ættjarðar. Megi blessun Guðs og gjöful náttúra færa Islendingum gæfu um alla framtíð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.