Morgunblaðið - 02.08.1996, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Starfsemi Skólaþjónustu Eyþings af stað
Þunglega horfir
með ráðningu
sálfræðinga
SKOLAÞJ ONU STA Eyþings tók
formlega til starfa á Akureyri í gær
og frá sama tíma hefur starfsemi
Fræðsluskrifstofu Norðurlands
eystra verið aflögð. Skólaþjón-
ustunni er ætlað að þjóna grunn-
skólum í Eyjafjarðar- og Þingeyjar-
sýslu og frá 1. janúar nk. mun þjón-
ustan einnig ná til leikskóla á sama
svæði. Jón Baldvin Hannesson for-
stöðumaður segir að unnið hafi ver-
ið að því að undanfömu að koma
starfseminni af stað og að það hafi
gengið ágætlega þótt enn sé ýmis-
legt eftir.
Þegar hafa sex starfsmenn verið
ráðnir til skólaþjónustunnar og til
viðbótar hefur verið auglýst eftir
þremur sálfræðingum til starfa. Jón
Baldvin segist ekki hafá fengið við-
brögð við þeirri auglýsingu og að
þunglega horfi með ráðningu sál-
fræðinga, þótt umsóknarfrestur sé
ekki útranninn. Þá hefur heldur
ekki verið ráðið starfsfólk í útstöð
skólaþjónustunnar á Húsavík.
Óráðið í störf á Húsavík
„Þeir sálfræðingar sem starfað
hafa hjá fræðsluskrifstofunum eiga
rétt á biðlaunum í mismunandi lang-
an tíma og ég held að það sé meg-
in skýringin á því hversu erfitt er
að fá þá til starfa. Þá hefði verið
nauðsynlegt að bæta við sérhæfðu
fólki í hlutastörf, t.d. til að sinna
talkennslu og fleira."
Jón Baldvin segir að í útstöðinni
á Húsavík sé gert ráð fyrir hátt í
tveimur stöðugildum en enn hafi
ekki tekist að ráða fólk þar til starfa.
„Það er heldur ekki ljóst hvemig
sveitarfélög fyrir austan vilja standa
að málinu og m.a. verið rætt um
samtengingu við félagsþjónustu, í
bamavemdarmálum og fleira. Þar
hafa menn ekki skýrt sinn vilja í
þessu efni en áætlað var að fara af
stað á Húsavík nú um mánaðamótin."
Biðstaða á Dalvík og nágrenni
Á Dalvík og nágrenni vora uppi
hugmyndir um tengsl við félagsþjón-
ustuna líka, en þar hafa sveitar-
stjómamenn viljað setja málið í bið-
stöðu, að sögn Jóns Baldvins. „Þeir
era að bíða eftir skýrslu um kosti
og galla sameiningar eða samstarfs
og þar verður því eingöngu horft til
skólalegra þátta til að byija með.“
Kennararáðningar era ekki á
sviði skólaþjónustunnar, heldur hjá
hveiju sveitarfélagi fyrir sig. Skóla-
þjónustan hefur því ekki yfirsýn
yfir kennararáðningar á svæðinu,
en Jón Baldvin segist þó hafa heyrt
af því að á nokkram stöðum vanti
enn kennara til starfa.
AKUREYRI
^ Morgunblaðið/Kristján
STEFÁN Jón Hafstein ritstjóri kynnir nýja dagbiaðið, Dag-Tímann, á blaðamannafundi á Hótel KEA
í gær,en kjörorð blaðsins er „Besti tími dagsins“.
Ritstj órnarstefna byggist
á faglegum forsendum
„ÉG HEF ákveðnar hugmyndir um
hvernig nútímadagblað á að líta út,
sem mér finnst ekki hafa verið út-
færðar vel í þeim dagblöðum sem
við höfum á Islandi í dag. Ég tel
að við höfum ákveðið erindi sem
ekki hefur verið sinnt,“ sagði Stefán
Jón Hafstein, nýráðinn ritstjóri
Dags-Tímans, en nýja blaðið sem
til verður við samruna Dags og
Tímans var kynnt í gær.
Samruni blaðanna tveggja er
grannurinn að nýja blaðinu og mun
ritstjórnarstefna þess miða að því
að halda áskrifendum þeirra blaða,
en samtímis sækja til nýrra lesenda.
Blaðið verður morgunblað, prentað
samtímis á Akureyri og í Reykjavík.
Það á að byggjast á sterkum tengsl-
um við landsbyggðina höfða sam-
tímis til höfuðborgarsvæðisins, að
sögn ritstjórans. Ritstjórnir verða
bæði á Akureyri og Reykjavík.
Óháð stjórnmálaflokkum
Blaðið verður 24 síður að stærð
og útgáfudagarnir verða fimm, en
helgarútgáfan verður efnismeiri.
Mikil áhersla verður lögð á mannlíf-
ið í landinu, að því upplýst var í gær.
Fram kom við kynningu blaðsins
að þetta blað, Dagur-Tíminn, verður
algjörlega óháð stjórnmálaflokkum
°g byggist ritstjómarstefnan á fag-
legum forsendum fyrir nytsaman
upplýsingamiðil. Það verður ekki
áróðursblað fyrir tiltekna hagsmuni,
„heldur gagnrýninn, fræðandi og
ferskur fjölmiðill sem verður opinn
öllum ólíkum sjónarmiðum“, eins og
segir í tilkynningu.
Opnuð hefur verið þjónustulína
fyrir þá sem vilja nánari upplýs-
ingar eða koma á framfæri ábend-
ingum og er númerið gjaldfrítt.
Morgunblaðið/Kristján
*
Utgerðarfélag Akureyringa
Sumarafleysinga-
fólk heima vegna
hráefnisskorts
Harður
árekstur
HARÐUR árekstur varð á gatna-
mótum Strandgötu og Glerárgötu
á Akureyri um hádegi í gær. Þrír
kvörtuðu um eymsli eftir árekst-
urinn og fóru tveir þeirra strax
á slysadeild Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri. Meiðsli voru þó
ekki talin alvarleg.
Tildrögin eru þau að öðrum
bílnum var ekið norður Glerár-
götu á móti grænu ljósi, en hinum
austur Strandgötu og ók hann á
móti rauðu ljósi, að sögn varð-
stjóra lögreglunnar.
Báðar bifreiðarnar eru nánast
ónýtar eftir áreksturinn.
SUMARAFLEYSINGAFÓLK hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa verður
ekki að störfum hjá félaginu næstu
daga, en það fór heim um hádegi í
gær. Fastráðið starfsfólk verður
áfram í vinnu í frystihúsi félagsins.
Gunnar Aspar yfírverkstjóri sagði
að ástæðan væri hráefnisskortur.
„Við höfum ekki nægt hráefni til að
hafa afleysingafólk í vinnu,“ sagði
hann. Af þeim sökum verður heldur
ekki hægt að opna frystihús félags-
ins á Grenivík strax, en Gunnar sagði
að áætlað hefði verið að hefja vinnslu
þar í næstu viku. Gunnar sagði að
dregist gæti um eina til tvær vikur
að hefja vinnslu að nýju á Grenivík.
Einungis tvö skipa félagsins era
að veiðum um þessar mundir og fisk-
ur hefur ekki verið keyptur frá Nor-
egi að undanförnu en fyrr í sumar
keypti félagið um eitt þúsund tonn
af ferskum fiski frá Norður-Noregi.
„Það verður ekkert sumarafleys-
ingafólk að störfum hjá okkur í
næstu viku en við vonumst til að úr
því gæti ræst í þarnæstu viku.“
Hlutafé
Dagsprents
tvöfaldað
HLUTHAFAR í Dagsprenti hf. hitt-
ust á fundi í gær og var samþykkt
einróma að tvöfalda hlutafé í fyrir-
tækinu. Einnig vora þrír nýir stjórn-
armenn kjömir.
Samþykkt var að auka hlutafé úr
23,5 milljónum króna í 47 og auk
þess var stjórn veitt heimild til þess
að auka hlutafé um allt að 13 milljón-
ir í viðbót til ársloka 1997. Þrír nýir
stjómarmenn voru kjömir, það er
Sveinn R. Eyjóifsson stjómarformað-
ur Fijálsrar fjölmiðlunar, Eyjólfur
Sveinsson framkvæmdastjóri Ftjálsr-
ar íjölmiðlunar og Haraldur Haralds-
son; sem kenndur er við Andra.
Áfram í stjórn eru Úlfar Hauksson
framkvæmdastjóri Kaffibrennslu
Akureyrar og Guðmundur Jóhanns-
son stjórnarformaður í Sandblástri
og málmhúðun.
Að hluthafafundi loknum var
haldinn stjórnarfundur og lagt til
að Eyjólfur Sveinsson yrði kjörinn
formaður stjórnar Dagsprents.
Úr stjórn Dagsprents gengu Sig-
urður Jóhannsson, Þorsteinn Gunn-
arsson og Jón Ellert Lárusson.
----» ♦ ♦----
Gönguferð um
Innbæinn
GÖNGUFERÐ um Innbæinn og
Pjöruna á vegum Minjasafnsins á
Akureyri verður farirí næstkomandi
sunnudag, 5. ágúst. Lagt verður af
stað frá Laxdalshúsi við Hafnar-
stræti 11 kl. 14 og gengið um elsta
hluta bæjarins. Þátttaka í göngu-
ferðinni er fólki að kostnaðarlausu.
Minjasafnið verður opið um versl-
unarmannahelgina, frá kl. 11 til 17
líkt og aðra daga, en auk þess er
opið á þriðjudags- og fimmtudags-
kvöldum frá kl. 20 til 23 en þau
kvöld eru söngvökur á safninu, þar
sem flutt era sýnishorn úr íslenskri
tónlistarsögu.
Yeflist í Gallerí
AllraHanda
SÝNING á veflist eftir Guðnýju
G.H. Marinósdóttur verður opnuð í
Gallerí AlIraHanda í Kaupvangs-
stræti í dag,
föstudaginn 2.
ágúst.
Sýningin er
þema við ljóð
eftir Guðnýju og
samanstendur af
röð mynda, sem
allar eru ofnar
úr jurtalituðu
bandi. Sýningin
stendur til 15. ágúst og er opin um
leið og Galleríið.
-----» » »-----
8 dvergar í
Ketilhúsinu
HOPUR ungra myndlistarmanna,
sem kallar sig 8 dvergar efnir til
myndlistarsýningar í Ketilhúsinu í
Kaupvangsstræti á Akureyri á morg-
un, laugardaginn 3. ágúst kl. 14.
Flestir dverganna hafa sýnt verk
sín áður, hér heima og/eða erlendis,
en í Ijós kemur við opnun sýning-
arinnar hveijir skipa hópinn. Sýn-
ingin stendur til 25. ágúst næstkom-
andi. Allir eru velkomnir á opnun
sýningarinnar eða að heimsækja
hana síðar.
-----»-♦ ♦-----
IN BLOOM á
Akureyri
HLJÓMSVEITININ BLOOM leikur
á Akureyri næstkomandi sunnu-
dagskvöld, 4. ágúst, fýrst á Ráðhús-
torgi og siðan í Sjallanum.
Hljómsveitin gaf nýlega út sína
fyrstu breiðskífu og hafa lög henn-
ar mikið verið leikin að undanförnu.
í hljómsveitinni eru Sigurgeir Þórð-
arson, söngvari, Jóhann trommu-
leikari, Albert Guðmundsson,
bassaleikari, Úlfar Jacobsen, gítar-
leikari og Hörður Þór, gítarleikari.
Viðskiptavinir athugið
Lokað föstudag 2. ágúst og þriðjudag 6. ágúst
Vörcimiéar hf
Akureyri