Morgunblaðið - 02.08.1996, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 13
U ngmennahreyfing Rauða krossins á Húsavík
Vekja athygli á
neyð víða um heim
Húsavík - Ungmennahreyfing
Rauða krossins ásamt félögum frá
Gambíu og Þýskalandi gera nú víð-
reist um landið undir kjörorðinu
„Ungt fólk gegn fordómum" og vill
með því vekja athygli á ómannúð-
legu ástandi víða um heim.
Hópurinn var á Húsavík nýlega
og setti þar upp götuleikhús, þar sem
sviðsett voru ýmis atriði úr neyðar-
hjálp Rauða krossins víða um heim;
með orðum vakin athygli á mörgu,
sem betur mætti fara í heiminum.
Þetta unga fólk virðist hafa áhuga
fyrir að úr verði bætt með þeirri
kynslóð, sem nú er að vaxa úr grasi.
Málflutningur ungmennanna
fræddi viðstadda um margt sem
betur má fara og vekur vonandi
umhugsun og umræðu og minnkar
fordóma, sem ýmsir hafa á sumum
vandamálum mannkyns.
Því miður nutu færri en skyldi
stundarinnar með ungmennunum og
segja má að það sýni aðeins hve lít-
'ið við viljum hugleiða það forvam-
arstarf, sem Rauði krossinn vinnur
að, eða gefum því gaum, þó við vökn-
um þegar stórkostlegar hörmungar
dynja yfir.
GÖMLU íslensku leikföngin sem margir kannast
við úr æsku sinni eru aftur komin í notkun.
Morgunblaðið/Friðrik Helgason
ÞÓREY Sigríður Jónsdóttir
handverkskona.
Baraagull og spænir úr
kindabeinum og hornum
HANDVERKSKONA í Skagafirði
framleiðir gömlu íslensku leik-
föngin úr kindabeinum og spæni
úr hrútshornum, auk fjölda ann-
arra muna af ýmsu tagi. Leik-
föngin nefnast Barnagull.
Þórey Sigríður Jónsdóttir í
Keflavík í Hegranesi hefur síð-
ustu árin notað hugvit sitt og
hendur til að framleiða fjölbreytt
úrval minjagripa og skartgripa.
Hún fékk fljótlega sérstakan
áhuga á að vinna hluti úr hornum
og þar sem erfitt var að útvega
sér kýrhorn þróaði hún aðferð
til að tálga spæni úr lambshorn-
um. Það telur hún að hafi ekki
verið gert áður, enda er það
vandasamt verk því homin vilja
rýraa og hlutirnar aflagast. Hún
sker ýmsa aðra hluti út úr hora-
unum, til dæmis bókamerki,
bréfahnífa og ýmsa skartgripi,
meðal annars hringi. „Eg reyni
að láta efnið njóta sína sem mest
og láta náttúrulegu litina halda
sér.
Góðar leiðbeiningar fylgja
Barnagullunum sem höfð eru í
litlum leðurslqóðum. Þar eru öll
helstu leikföngin sem margir
kannast við, svo sem horn, leggja-
bein, lambsleggir, kjálkar, völur
og margt fleira.
Heimafengin leikföng
„Fyrr á tímum og fram á þessa
öld voru leikföng barna nær öll
heimafengin. Þó áttu sum börn
dýrgripi gerða úr tré, fiskbeinum
og hornum. Algengast var að
finna eitthvað úr náttúrunni og
daglega lifinu sem hægt var að
breyta í leikföng með aðstoð
ímyndunaraflsins. Þá lá beinast
við að böra við sjávarsíðuna nýttu
sér skeljar, kvarnir og fiskbein
til leikja. í hugum baraa urðu
þetta verðmætari leikföng því
lengra sem þau áttu heima frá
sjó og hlutirair vandfengnari. En
öll böra áttu aðgang að hornum
og beinum sem með hjálp ímynd-
unaraflsins urðu að þeim dýrum
sem þau þekktu úr sínu um-
hverfi,“ segir meðal annars í leið-
beiningunum.
Þórey hefur ekki undan að
framleiða. Segist hafa talið sig
vera vel birga eftir veturinn en
það sé nú svo til alit farið. Hún
segist hafa mikla ánægju af þess-
ari vinnu, það sé aðalkosturinn
við hana þvi kaupið sé ekki hátt
miðað við tímann sem fer í hlut-
ina.
Á
ÍSLENSK
GARÐYRKJA
- okkar allra vegtta!
DRÍFÐU ÞICÁVÍBON 06NÝTTUÞÉR HELCARTILBODID: ELDSTEIKFUR
HAMBORCARI, FRANSKAR OC MIÓLKURHRISTINCURÁADEINS
é%
é