Morgunblaðið - 02.08.1996, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Leiðtogar Króata í Mostar
hafa góð orð um sættir
Mostar, Sarqjevo. Reuter.
ALLNOKKUR árangur hefur orðið
af viðræðum Johns Kornblums, að-
stoðarutanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sem hefur reynt að koma á
sáttum á milli Króata og múslima í
Bosníu. Forystumenn Króata í borg-
inni Mostar útiloka ekki að þeir við-
urkenni úrslit kosninganna þar en
hins vegar eru uppi efasemdir um
að loforð Bosníu-Króata um að
leggja niður smáríki sitt í Bosníu,
muni standast.
Kornblum hélt í gær til Mostar,
þar sem hann reyndi að fá leiðtoga
Bosníu-Króata til að viðurkenna úr-
slit kosninganna sem fram fóru í
borginni fyrir rúmum mánuði. í lok
nokkurra klukkustunda viðræðna
sagði Kornblum þá hafa lýst vilja
sínum til þess að leysa deiluna í
Mostar, en hún kemur í veg fyrir
sameiningu borgarinnar, sem skipst
hefur á milli Króata og múslima síð-
ustu ár.
Kornblum tókst á miðvikudag að
fá Bosníu-Króata til að samþykkja
að sjálfskipað smáríki þeirra í Bosn-
íu, sem þeir kalla Herzeg-Bosna,
verði leyst upp og heyri undir bosn-
ísk stjórnvöld. Var þetta samkomu-
lag Iiður í því að ná fram lausn á
deilunni í Mostar. Að sögn Korn-
blums lýstu leiðtogar Króata og
múslima yfir sáttavilja sínum og
lögðu fram sáttatillögur, sem ekki
hefur enn verið tekin afstaða til.
Að sögn vestrænna sendimanna
er það fyrst og fremst valdamikil
mafía þjóðernissinnaðra Króata sem
er ósátt við úrslit kosninganna og
sér til þess að Króatar taka ekki
sæti sín í borgarstjórninni. Er maf-
ían sögð eiga gríðarlegra hagsmuna
að gæta á því að skipting á milli
þjóða í Bosníu haldist.
Hverfur Herzeg-Bosna
af sjónarsviðinu?
Óvíst er að samkomulag um upp-
lausn smáríkis Bosníu-Króata í Bos-
níu, sem tókst á miðvikudag, muni
halda, að sögn stjórnmálaskýrenda.
Herzeg-Bosna á eigin fána og
gjaldmiðil og þrátt fyrir að Herzeg-
Bosna sé hvergi viðurkennt ríki, telji
Króatar það hluta af Króatíu. Sam-
kvæmt samkomulaginu sem Kom-
blum fékk múslima og Bosníu-Kró-
ata til að undirrita, verða þeir að
leggja fram áætlun fyrir 8. ágúst
um hvernig þeir muni deila völdum
eftir kosningarnar 14. september.
Króatískir stjórnmálaskýrendur
lýstu í gær efasemdum sínum um
að Herzeg-Bosna myndi hverfa af
sjónarsviðinu. Sögðu þeir að hvorki
Króatar né múslimar hefðu næga
trú á því að þjóðirnar gætu starfað
saman í sátt innan sambandsríkisins
Bosníu. Króatar óttist að verða
minnihlutahópur sem múslimar
kúgi. Þá hafi Króatar áhyggjur af
uppgangi heittrúaðra múslima og
yfirlýsingum leiðtoga Bosníustjórnar
um vilja til aukins samstarfs við ísl-
amskar þjóðir.
' Y*m?*y*. W;y
' M 11
V af M
Reuter
FBI segir ekki
grundvöll
fyrirákæru
A grænni grein
eftir dauðadóm
LOUIS Freeh, yfirmaður bandarísku
alríkislögreglunnar, FBI, sagði í gær
að ekki væri fyrirsjáanlegt að neinn
yrði handtekinn vegna sprengjutil-
ræðisins í Atlanta sl. laugardag á
næstunni. „Margir liggja undir
grun,“ sagði Freeh á fundi með þing-
nefnd. „Sú staðreynd að nafn ákveð-
ins einstaklings hefur tengst rann-
sókninni hefur enga þýðingu." Átti
Freeh þar greinilega við öryggis-
vörðinn Richard Jewell, en lögreglu-
menn gerðu umfangsmikla leit í íbúð
hans á miðvikudag. Einnig var leitað
í afskekktum kofa við ána Chattaho-
oche í norðausturhluta Georgíu, sem
Jewell leigði áður en hann flutti til
Atlanta í maí.
Freeh sagði að alls ekki væri
hægt að staðhæfa að Jewell væri
sekur. „Við hörmum oft við rann-
sóknir mála af þessu tagi að nöfn
einstaklinga, sem síðan kunna að
reynast saklausir, séu dregin inn í
umræðuna," sagði hann. Jewell
heldur fram sakleysi sínu og sagði
lögmaður hans í gær að hann yrði
nú að ganga í gegnum „helvíti"
vegna umfjöllunar fjölmiðla.
Dvínandi áhugi
Tveir embættismenn í Washing-
ton, sem vildu ekki tala undir nafni,
sögðu að áhugi lögreglunnar á Jew-
ell hefði dvínað nokkuð. „Hann ligg-
ur ekki undir jafnsterkum grun og
í upphafí, m.a. vegna þess að fólk
hefur komið til okkar og dregið úr
fyrri yfirlýsingum um hann sem
gefnar voru við skýrslutöku," sagði
annar þeirra.
Joyce Dean, talsmaður FBI, sagði
hins vegar of snemmt að staðhæfa
að Jewell lægi ekki lengur undir grun.
Jewell starfaði sem öryggisvörður í
Ólympíugarðinum og uppgötvaði
rörasprengjuna í bakpoka skömmu
áður en hún sprakk. Gerði hann lög-
reglu viðvart og var hún byijuð að
rýma svæðið fyrir sprenginguna.
í fyrst var hann hylltur sem hetja
í fjölmiðlum en fljótlega kom í Ijós
að hann lægi undir sterkum grun
um að eiga aðild að tilræðinu.
Jewell starfaði áður sem öryggis-
vörður við skóla í norðurhluta Georg-
íu og hans æðsti draumur mun hafa
verið að gerast lögreglumaður. í við-
tali við CAW-sjónvarpsstöðina um
helgina sagðist hann vona að hetju-
dáð hans í Ólympíugarðinum myndi
auðvelda honum að fá starf innan
lögreglunnar.
Skólameistari Piedmont College,
þar sem Jewell starfaði áður, sá
Jewell í sjónvarpinu eftir tilræðið og
grunaði að ekki væri allt sem sýnd-
ist. Hafði hann samband við FBI og
bað hana um að kanna feril Jewells
nánar.
Jewell mun hafa tekið starf sitt
við skólann einum of hátíðlega og
ítrekað farið út fyrir þann ramma
sem honum var settur. Þá kom í ljós
við rannsóknina að hann hafði áður
verið ákærður fyrir að þykjast vera
lögregluþjónn og handtaka mann í
bæ skammt frá Atlanta.
FILIPPEYSK vinnustúlka, sem
komst hjá dauðarefsingu í Sam-
einuðu arabísku furstadæmun-
um, kom til Filippseyja í gær
eftir að hafa afplánað níu mán-
uði af árs fangelsisdómi. Dóm-
stóll í Sameinuðu arabísku fur-
stadæmunum dæmdi hana til
dauða fyrir morð á arabískum
vinnuveitanda hennar, sem hún
sagði að hefði nauðgað sér. Mál-
ið vakti heimsathygli og forseti
landsins sá sig knúinn til að fá
fjölskyldu mannsins til að falla
MARGIR bandarískir öryggisráð-
gjafar hafa gengið skrefí lengra en
alríkislögreglan (FBI) og þegar lýst
því yfír að sprengja hafi grandað
Boeing 747-100 þotu TWA flugfé-
lagsins, sem fórst skömmu eftir flug-
tak á Kennedy-flugvelli.
Nú vantar ráðgjafana ekkert
nema sannanir fyrir fullyrðingum
sínurn, og þeir bíða þess að starfs-
menn FBI dragi þessar sannanir upp
af hafsbotni úti fyrir ströndum Long
Island, þar sem þotan hvarf í hafíð
og með henni 230 manns.
Ekki annað en kenning
Talsmenn FBI segja að sprengju-
kenningin sé líklegust, en ítreka að
hún sé ekki annað en kenning, á
meðan engar sannanir eru fyrir
hendi, og svo sé einnig um þær
hugmyndir að þotah hafi orðið fyrir
eldflaugaárás eða vélarbilun. En það
er til marks um að sprengjukenning-
in þýki sennilegust, að FBI hefur
frá kröfunni um dauðarefsingu
og þiggja í staðinn blóðpeninga.
Iðnjöfur á Filippseyjum
greiddi manngjöldin og safnað
hefur verið miklu fé til að fjár-
magna háskólanám stúlkunnar,
sem segist vilja verða lögfræð-
ingur. Ennfremur er líklegt að
hún fái miklar fjárhæðir fyrir
réttinn til að kvikmynda sögu
hennar.
Myndin var tekin þegar fjöl-
skylda stúlkunnar tók á móti
henni í Manila.
fengið til liðs við sig menn sem áður
hafa rannsakað flugslys af völdum
sprengju; hrap þotu Pan Ameriean
flugfélagsins í Lockerbie í Skotlandi
1988, og vélar franska flugfélagsins
UTA í Sahara 1989.
„Að svo komnu máli held ég, eins
og aðrir, að þetta hafi verið
sprengja," segir fyrrum lögreglu-
stjóri í New York, William Bratton.
Hann sagði að einn helstp sérfræð-
inganna úr Lockerbie-málinu hafi
tjáð sér, að líklega hefði sprengju
verið komið fyrir á mikilvægum stað
í vélinni. í öllum tilvikunum hafi
orðið sprenging í framhluta vélarinn-
ar, og flugritar allra vélanna þriggja
hafí skráð eðlilegt flug þar til kom
hátt hljóð í sekúndubrot og síðan
þögn.
Bandaríska dagblaðið The New
York Times hafði eftir lögreglu-
manni að „það kæmi mjög á óvart
ef þetta reyndist hafa verið einhvers-
konar vélarbilun."
Telja sprengju hafa
grandað þotu TWA
New York. Reuter.
Clinton
fagnar
hagvexti
BILL Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, fagnaði í gær þeim
tíðindum, að hagvöxtur í land-
inu hefði ver-
ið 4,2% á öðr-
um fjórðungi
ársins. Sagði
hann það
sýna, að
efnahagslífið
væri í mikilli
uppsveiflu.
Þessi hag-
vöxtur er sá mesti í tvö ár og
Clinton kvað það vera til marks
um, að efnahagsstefna stjórn-
arinnar gengi upp. Hann taldi
þó engar líkur á skattalækkun-
um vegna fjárlagahallans en
Bob Dole, forsetaefni repúblik-
ana, reynir nú að blása lífi í
kosningabaráttu sína með því
að leggja höfuðáherslu á miklar
skattalækkanir nái hann kjöri.
Riða úr kú
íkálf
BRESKIR vísindamenn sögðu
í gær, að þeir hefðu vísbending-
ar um, að kýr gætu smitað
kálfa sína af riðu. Gerðist það
líklega fyrir burð. Leiddu rann-
sóknir þeirra í ljós, að þetta
ætti við í tíunda hvert sinn er
riðusjúk kú bæri.
Ákall til
friðarverð-
launahafa
LECH Walesa, fyrrverandi for-
seti Póllands, hvatti í gær aðra
handhafa friðarverðlauna Nó-
bels til að
beita sér fyrir
því að endi
yrði bundinn
á stríðið í
Tsjetsjníju.
Hann sagði
að stríðið
væri ekki að-
eins innan-
ríkismál Rússlands í bréfi sem
hann las upp við setningu ráð-
stefnu í Varsjá um átökin í
héraðinu.
Hvatt til til-
raunabanns
BANDARÍKJASTJÓRN skor-
aði í gær á öll ríki að sam-
þykkja bann við tilraunum með
kjamorkuvopn og sagði, að
frekari samningaumleitanir
gætu gert hann að engu. Það
eru einkum Indveijar og Kín-
veijar, sem eru tregir til að
samþykkja bannið, og stjórn-
völd í Pakistan eru einnig á
báðum áttum vegna þeirrar
hættu, sem þau telja sér stafa
af indverskum kjarnavopnum.
Metmagn af
smygli
FINNSKA tollþjónustan
greindi frá því í gær, að á ár-
inu 1995 hefði metmagn áfeng-
is verið gert upptækt við landa-
mæri landsins. 183.600 lítrar
af smygluðu áfengi lenlu í
greipum tollvarðanna, um tíu
sinnum meira en árið á undan.
„Það lítur út fyrir að smyglar-
arnir hafí haldið að eftir að
Finnland gekk í Evrópusam-
bandið sé ekkert landamæra-
eftirlit lengur," sagði Henrik
Smets, einn af yfirmönnum
fínnsku tollþjónustunnar.
Walesa
Clinton