Morgunblaðið - 02.08.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
V eltempraða
hljómborðið
Þótt algengt sé að heyra
hluta úr Veltempraða hljóm-
borðinu á tónleikum eða í
heimahúsum er sjaldgæft að
heyra verkið, sem skiptist í
tvær „bækur“, fiutt í heild.
Anna Margrét Magnús-
dóttir segir að það hljóti því
að teljast merkur tónlistar-
viðburður að William Heiles
mun leika alla fyrri bókina á
sembal í Skálholtskirkju á
morgun, laugardag.
WILLIAM Heiles mun leika alla fyrri bók
Veltempraða hljómborðsins eftir Johann
Sebastian Bach á sembal í Skálholtskirkju
á laugardaginn.
AÐ ER að því best er vitað, í fyrsta
sinn sem bókin er flutt í heild á ís-
landi. Hún tekur tvær klukkustundir
í flutningi, og verður leikin á tvennum
tónleikum, fyrri helmingurinn klukkan 17 og
seinni helmingurinn klukkan 21.
Ef leita ætti að einu tónverki sem hefur haft
hvað mest áhrif á tónlistarmenn, bæði tónskáld
og flytjendur, þá kemur fyrst í hugann Das
wohltemperierte Klavier - Veltempraða hljóm-
borðið - eftir Johann Sebastian Bach, „verk
allra verka“, eins og Robert Schumann kallaði
það. Hvergi birtist tónsmíðatækni Bachs með
öllum sínum fjölbreytileika og fullkomleika í
jafnhnitmiðuðu formi. Þetta safn af prelúdíum
og fúgum í öllum tóntegundum hefur ævinlega
höfðað jafnt til lærðra sem leikra. Vitað er að
þýska skáldið Johann Wolfgang von Goethe lét
um tíma leika fyrir sig úr Veltempraða hljóm-
borðinu nær daglega. Spænski sellóleikarinn
Pablo Casals hóf hvern dag með því að leika
eina prelúdíu og fúgu úr safninu. Tónskáld
hafa ævinlega litið á Bach sem fyrirmynd vegna
ótrúlegrar tæknilegrar fullkomnunar og anda-
giftar, og ekki aðeins tónskáld, því að Halldór
Laxness hefur til dæmis þetta að segja:
„Sjálfur skal ég viðurkenna að þó ég hafi
verið að reyna að spila Bach næstum alla ævi,
hef ég ekki komist það lángt að mér hafi tekist
að spila heila laglínu svo vel að fullnægði fátæk-
legum kröfum mín sjálfs á þessu sviði. Samt
hefur einginn listskapari í nokkru formi aukið
mér meira yndi né örvað skyn mitt og skilníng
á mannleg verðmæti, og einginn heldur agað
mig betur í að skrifa skáldsögur en þessi þýsk-
ari, né vakið hjá mér harðari kröfur um góðan
texta.“
Tvö sjálfstæð söfn
Allir hljómborðsleikarar þurfa að glíma við
einhverja hluta Veltempraða hljómborðsins ein-
hvern tíma í námi sínu, en það hefur alltaf
verið talið merki um umtalsverðan þroska að
ná fullkomnu valdi á því öllu. í mars 1783 birt-
ist tímaritsgrein þar sem umtalsefnið er meðal
annars
„Louis van Beethoven [svo], [...] ellefu ára
piltur, með hæfileika sem við eru bundnar mikl-
ar vonir. Hann leikur reiprennandi og af krafti,
les frábærlega af blaði, og - til að segja allt í
einu orði - leikur mestallt Veltempraða hljóm-
borðið eftir Sebastian Bach, sem hr. Neefe fékk
honum í hendur. Hver sá sem þekkir þetta safn
af prelúdíum og fúgum í öllum tóntegundum
(sem mætti næstum segja að sé öllu æðra) veit
hvað það þýðir.“
Veltempraða hijómborðið er í raun tvö sjálf-
stæð söfn af prelúdíum og fúgum, sem eru
venjulega kölluð fyrri og seinni bók þess. í hvorri
bók um sig er eitt par af prelúdíu og fúgu í
hverri af tóntegundunum tuttugu og fjórum.
Með fullri vissu má einungis segja að Bach
hafi gefið fyrri bókinni þetta heiti, en eiginhand-
arrit Bachs að seinni bókinni hefur ekkert titil-
blað. Titill fyrri er þannig í heild:
„ Vel tempraða hijómborðið, eða preiúdíur og
fúgur á öiium tónum og hálftónum, bæði með
stórri þríund eða Ut Re Mi sem og lítilli þríund
eða Re Mi Fa, til nytsemi og brúks fyrir nám-
fúsa tónelska æsku sem og til sérlegrar dægra-
styttingar þeim sem eru þegar orðnir Ieiknir í
þessum lærdómi, fram borið og tilreitt af Jo-
hanni Sebastian Bach, núverandi hirðtónlistar-
meistara ogyfirmanni kammertónlistar háfurst-
ans af Anhalt-Cöthen. Anno 1722.“
Hvað felst í þessum sérkennilega titli? Orðið
„veltempraður" vísar til stillingar hljóðfærisins.
Nú eru hljóðfæri stillt í Jafnri stillingu". Það
þýðir að þrepin tólf í tónstiganum eru jafnstór.
Ókostur hennar er að engin tónbil eru fullkom-
lega hrein nema áttundir. Fyrr á öldum voru
hins vegar notaðar stillingar með mörgum hrein-
um tónbilum. En hvenær sem eitt tónbil er stillt
alveg hreint hefur það í för með sér að önnur
tónbil verða mjög óhrein. Mjög óhrein tónbil
gefa frá sér óþægilegan titring, sem þótti minna
á úlfagól, og því voru þau kölluð „úlfar“. Ef
hljóðfæri er stillt þannig að ein tóntegund hafi
sem flest hrein tónbil, þá er það á kostnað þess
að aðrar tóntegundir hafa marga úlfa og verði
því ónothæfar. Venjulegar stillingar sem notað-
ar voru á 16. öld voru þannig að um það bil tíu
af tóntegundunum tuttugu og fjórum voru not-
hæfar.
Margir leituðu hins vegar að stillingum sem
gerðu allar tóntegundir nothæfar. Þær voru
kallaðar vel tempraðar, því að þær voru búnar
til með því að gera sum hreinu tónbilin dálítið
óhrein - tempra þau, eins og sagt var - en
þó ekki um of; tilgangurinn var að „troða dálít-
ið upp í ginið á úlfunum“, eins og Johann Ge-
org Neidhardt orðaði það árið 1706. Jafna still-
ingin sem nú er notuð er vel tempruð í þessum
skilningi. Það er útbreiddur misskilningur að
hún sé eina vel tempraða stillingin og að Bach
hafi samið Veltempraða hljómborðið fyrir þessa
stillingu. Þvert á móti voru fjölmargar veltempr-
aðar stillingar í notkun, kannski 30 eða 40 tals-
ins. Ekki er vitað hvaða stillingu Bach hafði í
huga fyrir Veltempraða hljómborðið, en það
má leiða sterkar líkur að því að það hafi ekki
verið jöfn stilling. Jafna stillingin hafði vissu-
lega verið þekkt allt frá endurreisnartímanum,
en henni var hafnað af fagurfræðilegum ástæð-
um, því að í henni hljóma allar dúr-tóntegundirn-
ar eins og sömuleiðis allar moll-tóntegundir.
Það var hins vegar mikilvægur hluti af fagur-
fræði tónlistar á 17. og 18. öld að tóntegundir
ættu hver að hafa sinn sérstaka hljóm svo að
þær væru betur fallnar til að túlka ólíkar tilfínn-
ingar, og í öllum vel tempruðu stillingunum
nema þeirri jöfnu verður töluverður munur á
tóntegundunum. Neidhardt sagði um jöfnu still-
inguna: „Flestir finna ekki í þessari stillingu
það sem þeir leita að. Hana skortir, segja þeir,
fjölbreytni í titringi stóru þríundanna og þar
með einnig í eflingu tilfinninganna.“
Banvænn aðskilnaður
líkama og sálar
í riti frá 1713 gefur Johann Mattheson lýs-
ingu á sautján af tóntegundunum tuttugu og
fjórum. Hér eru þijú dæmi úr lýsingum Matthe-
sons:
c-moll er sérlega ljúfleg, en jafnframt rauna-
leg tóntegund; en þar sem fyrri eiginleikinn
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 19
hefur tilhneigingu til að ná yfirhöndinni og
menn fá sig auðveldlega fullsadda af sætindum,
þá er ekki úr vegi að lífga hana dálítið með
frekar fjörlegu eða reglulegu hljómfalli, annars
gætu menn hæglega orðið syfjaðir af þýðleika
hennar. Ef á hinn bóginn er um að ræða verk
sem á að ýta undir svefn, þá má spara sér þessa
athugasemd og náttúrlega ná markmiðinu
skjótt.
E-dúr túlkar örvæntingarfullan eða alveg
dauðvona dapurleika óviðjafnanlega vel; hentar
best til ofurmáta ástþrunginna, hjálpar- og von-
lausra hluta, og hefur þá við vissar aðstæður
eitthvað svo skerandi, þjakandi og nístandi að
ekki verður við annað jafnað en banvænan að-
skilnað líkama og sálar.
h-moll er afkáraleg, gleðisnauð og þunglynd-
isleg tóntegund; þessvegna ber hana sjaldan
fyrir eyru, og slíkt kann að vera orsök þess að
þeir gömlu gerðu hana burtræka úr klaustrum
sínum.
í upptalningu Matthesons kemur As-dúr alls
ekki fyrir, enda var hann áður fyrr hálfgert
úlfabæli. Það skýrir þessa frásögn af Bach og
orgelsmiðnum víðfræga, Silbermann:
„Sagan segir að hvenær sem Sebastian Bach
tók eftir að Silbermann var meðal útvalins
áheyrendahóps síns hafi hann sagt við hann
léttur í lund: „Þér stillið orgelið með hvaða
hætti sem yður þóknast, og ég leik á orgelið í
hvaða tóntegund sem mér þóknast," og að svo
búnu hafí hann tekið að leika Fantasíu í As-
dúr; viðureignin endaði ávallt með því að Silber-
mann dró sig í hlé til að komast hjá að heyra
sinn eigin ,,úlf“'.
Sjö tóntegundum treystir Mattheson sér ekki
til að lýsa vegna þess að þær séu svo að segja
aldrei notaðar og segist eftirláta þær komandi
kynslóðum.
Nánast ótrúleg fjölbreytni
Líklegt er að Bach hafi fyrst og fremst ætlað
safn sitt til æfinga fyrir nemendur sína. En því
má ekki gleyma að Bach leit á það sem hlut-
verk sitt að mennta nemendur sína ekki einung-
is í fingrafimi, heldur einnig í tónsmíðum, og
bestu aðferðina til þess áleit hann vera að gefa
þeim fyrirmyndir sem þeir gætu lært af. Og
Bach kastaði ekki til höndunum í kennarahlut-
verki sínu frekar en endranær. Fjölbreytnin í
Veltempraða hljómborðinu er nánast ótrúleg.
Engar tvær af þessum 48 prelúdíum og fúgum
eru eins að formi til. Þótt tónlist Bachs hafi
lítið verið flutt almenningi marga áratugi eftir
dauða hans var hann þó aldrei fullkomlega
gleymdur. Það voru nemendur Bachs og síðar
þeirra nemendur sem varðveittu minningu hans
og líka verk hans í upphaflegum handritum og
fjölmörgum afskriftum handa síðari kynslóðum.
Eins og lækur sem líður áfram neðanjarðar lifði
tónlist hans meðal þeirra sem þekkingu höfðu
þar til hún braust fram á yfirborðið eins og
óstöðvandi fljót í upphafi nítjándu aldar.
Sendiherra Austurríkis í Berlín, Gottfried von
Swieten barón, kynntist þar verkum Bachs,
hreifst mjög af þeim og hafði nokkur þeirra
með sér til Vínarborgar. Hjá Swieten í Vín voru
mörg tónskáld heimagangar. Haydn var þeirra
á meðal og einnig Mozart, sem lék þar verk
Bachs og Hándels upp úr handritum Swietens
snemma ársins 1782 og fékk þau síðan lánuð
heim með sér. Mozart setti nokkrar fúgur úr
Veltempraða hljómborðinu út fyrir strengja-
kvartett til að leika í salarkynnum barónsins.
Síðar var það Beethoven sem þurfti að leika
Bach-fúgur fyrir baróninn, sem þá var orðinn
gamall maður, oft langt_ fram á nótt, og stund-
um varð hann að gista. í bréfasafni Beethovens
fannst miði frá Swieten með þessum skilaboð-
um: „Ef þú hefur tíma á miðvikudaginn, þá
þætti mér vænt um að sjá þig hér klukkan
hálf níu um kvöldið með nátthúfuna í vasanum.“
Bein og óbein fyrirmynd
Veltempraða hljómborðið var fyrsta verk
Bachs sem var prentað, ef frá eru talin þau sem
hann bjó sjálfur til útgáfu. Það kom út árið
1801, rúmri hálfri öld eftir dauða hans, nær
samtímis hjá þremur útgefendum. Ugáfan
markaði tímamót, og eflaust má telja hana
upphafið að þeirri Bach-vakningu sem ekkert
lát hefur orðið á. Áhrif Bachs og Veltempraða
hljómborðsins á seinni tíma tónskáld væru efni
í margar bækur. Síðustu verk Beethovens væru
óhugsandi án Bachs, og Schumann hafði örugg-
lega rétt fyrir sér þegar hann sagði að „róman-
tíski skólinn" í tónlist stæði Bach miklu nær
en Mozart gerði. Og á tuttugustu öld hefur
Veltempraða hljómborðið haldið áfram að vera
fyrirmynd, bæði óbein eins og í fjölmörgum
verkum sem engin leið er að telja upp eða bein
eins og í Ludus tonalis eftir Hindemith eða í
24 prelúdíum og fúgum fyrir píanó eftir Shos-
takovítsj. Hver kynslóð hefur túlkað tónlist
Bachs með sínum hætti og fundið í honum sinn
sannleika.
Stór og bjartur fjögut ta tinu
skját' fyrir tölur, tákn og bökstati
Innbvggðui diktafónn
20 numera endurvalsminni
Orkuinælir fyiit rafhlöðu a skja
230 g með rafhlöðu
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeild Ármula 27, simi 550 7800
Þjónustumidstöð Kringlurmi. suni 550 6690
ÞjófHistuniiðstöð i Kíikjustræti, simi 5506670
a póst og Mmstik'vum um land allt. ,
Höfundur er tónlistarkennnrí og semballeikari.