Morgunblaðið - 11.08.1996, Side 1
80 SÍÐUR B/C/D
180. TBL. 84. ÁRG.
SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Hrossahlátur í Biskupstungum
Jeltsín útnefnir Lebed sem
fulltrúa sinn í Tsjetsjníju
Moskvu, Grosní. Reuter.
Hörð átök geisuðu áfram í Grosní, höfuð-
borg Tsjetsjníju, í gær, og hermdu fregnir að
skæruliðar létu undan síga. Fréttamaður rúss-
neska útvarpsins sagði að hersveitir skærulið-
anna hefðu verið hraktar frá höfuðstöðvum
yfirvalda og væru á leið út úr borginni.
„Við teljum að þetta muni verða okkur til
bjargar," sagði rússneskur sjónvarpsfrétta-
maður, sem er einn 30 óbreyttra borgara og
fréttamanna sem hafa verið innikróaðir vegna
átakanna. „Það geisar skothríð alveg við hlið-
ina á okkur. Veggir hótelsins nötra,“ sagði
fréttamaðurinn.
Talsmaður skæruliðanna sagði í viðtali við
útvarpsstöðina Ekho Moskvy að miðborg
Grosní væri enn á valdi uppreisnarmanna, sem
berðust í návígi við rússneska hermenn.
VIKTOR TSJERNOMYRDÍN, forsætisráð-
herra Rússlands, sagði í gær að vopnavaldið
eitt myndi aldrei duga til þess að leysa deilur
í Tsjetsjníju og lét í ljósi samúð sína með þeim
hundruðum manna sem ættu um sárt að binda
vegna átakanna.
Tsjernomyrdín ávarpaði neðri deild rúss-
neska þingsins, Dúmuna, sem i gær sam-
þykkti tilnefningu Tsjernomyrdíns í embætti
forsætisráðherra næsta kjörtímabil með 314
atkvæðum gegn 85.
Sagði hann, að ekki væri öll nótt úti um
að diplómatísk lausn fyndist á deilunum, sem
hafa orðið til þess, að átök hafa geisað í hérað-
inu í hátt á annað ár. Sagðist forsætisráðherr-
ann hafa samúð með aðstandendum þeirra sem
fallið hafa frá því átök blossuðu upp á þriðju-
dag, er aðskilnaðarsinnaðir skæruliðar hófu
mestu sókn sína gegn rússneska hernum í
fimm mánuði.
Borís Jeltsín, Rússlandsforseti, útnefndi í
gær Alexander Lebed sem fulltrúa sinn í
Tsjetsjníju. Lebed var gerður að yfirmanni
öryggisráðs forsetans, sem hefur mikil áhrif
í stjórnkerfinu, í júní. Eftir að átökin i
Tsjetsjníju blossuðu upp á þriðjudag sagði
Lebed að fá yrði alla hagsmunaaðila að einu
samningaborði og leita þyrfti nýrra leiða til
lausnar deilunni.
Lebed tekur við sem fulltrúi Jeltsíns af Oleg
Lobov, aðstoðarforsætisráðherra, sem hafði
sagt að ekki kæmi til greina að hefja samn-
ingaviðræður við oddamann skæruliðanna,
Aslan Maskhadov.
Vann veð-
mál um
„Marsbúa“
BRETI nokkur vann sem svarar 100
þús. ísl. krónum í veðmáli sem hann
stofnaði til í fyrra um að líf myndi
finnast á öðrum hnöttum innan árs.
Veðmangarinn var síst viðbúinn því
að bandaríska geimferðastofnunin
myndi tOkynna í síðustu viku að fund-
ist hefðu visbendingar um að líf hefði
að likindum þrifist á Mars í fyrndinni
og voru vinningslíkurnar í veðmálinu,
sem stofnað var til 21. ágúst í fyrra,
taldar hverfandi. „Ég ætla að eyða
vinningnum í frábært ferðalag, en
ætli verði úr því að maður fari til
Mars,“ sagði vinningshafinn.
Powell vinsæll
borðnautur
FYRRIJM yfirmaður bandariska
herráðsins, Colin Powell, er eftirsótt-
ari borðnautur en bæði Bill Clinton
forseti og Bob Dole, forsetaframbjóð-
andi Repúblikanaflokksins, sam-
kvæmt skoðanakönnun sem gerð var
vestra. Þrjátíu og þrír af hundraði
þeirra er spurðir voru með hverjum
þeir myndu helst vilja snæða kvöld-
verð nefndu Powell, en næstflestir,
eða 24%, nefndu Clinton. Forsetafrú-
in, Hillary, skaut Dole ref fyrir rass,
því 16% sögðust helst vilja snæða með
henni en ellefu af hundraði með Dole.
Elizabeth, kona Doles, rak lestina,
hana nefndu sex prósent.
Skáru eyru af
fyllibyttum
ÓÞEKKTIR illvirkjar skáru eyru af
12 drykkjumönnum í borginni Santa
Rosa de Copan í vesturhluta Hondúr-
as, að því er blaðið La Prensa grein-
ir frá. Lögregla hefur málið til rann-
sóknar. Fórnarlömbin lágu flest í öl-
æðisöngviti á götu úti þegar ódæðin
voru framin og hafði annað eyrað
verið skorið af hveiju þeirra.
Gallaðar bjór-
flöskur slasa 15
AÐ minnsta kosti fimmtán manns
hafa slasast og fjórir hlotið varanleg-
an skaða af bjórflöskum sem hafa
splundrast í Kína síðastliðinn rúman
mánuð. Ekki hafa borist samanburð-
artölur frá fyrri árum. Neytenda-
stofnanir í ellefu héruðum og borgum
hafa skráð 147 slys vegna galla í
neysluvörum á tímabilinu apríl til
júní, þar af 16 banaslys.
Einsetning Trjá-
og heils- ¥tííÉ lund-
dagsskóli urinn
viðamestu f\ 'rii harði
verkefnin
10 ■HÍ 16
■ / | ■
merki SAS á lofti