Morgunblaðið - 06.10.1996, Qupperneq 32
32 SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó sýnir vísindatrylli Johns Carpenters Escape from LA
með Kurt Russell í aðalhlutverki, en í myndinni sem er framhald Escape from
New York leikur hann á nýjan leik eineygða útlagann Snake Plissken. Meðal
annarra leikara í myndinni eru Steve Buscemi, Stacy Keach og Peter Fonda.
Aftur á
flótta
ESCAPE from LA er nýjasta
myndin sem John Carpenter
leikstýrir og er hún framhald
myndar hans Escape from New
York sem hann gerði 1981. Car-
penter skrifar sjálfur handrit
myndarinnar og nýtur við það
aðstoðar Kurts Russell, sem fer
með aðalhlutverkið, og Debra
Hill sem framleiðir myndina.
Escape from New York var látin
gerast árið 1997 og var New
York þá eitt stórt fangelsi þar
sem þúsundir illmenna eru lokað-
ar innan borgarveggjanna. Flug-
vél forsetans hrapar í þessu víti
og er skúrkurinn Snake Plissken
(Kurt Russell) fenginn til að
bjarga honum úr klóm skrílsins
og flýja vítisholuna. Escape from
LA gerist hins vegar árið 2013
þegar jarðskjálfti hefur riðið yfir
Los Angeles og gert borgina að
eyju í Kyrrahafí. Dóttir forsetans
gengur í lið með s-amerískum
skæruliðum en Snake Plissken
er á ný fenginn til að bjarga
málunum.
Kurt Russell er kominn á fullan
skrið á nýjan leik eftir að ferill
hans sem leikara virtist á hraðri
niðurleið. Hann er nú aftur kom-
inn í hóp vinsælustu leikaranna
vestan hafs og hermir sagan að
hann hafi fengið litlar 10 milljón-
ir dollara fyrir þátt sinn í gerð
Escape from LA.
Kurt er fæddur 17. mars 1951
í borginni Springfíeld í Massac-
husetts, og var hann aðeins 10
ára gamall þegar hann fékk hlut-
verk í kvikmyndinni It Happened
at the World’s Fair, sem Elvis
Presley lék aðalhlutverkið í. Arið
1960 gerði Walt Disney svo tíu
ára samning við hinn unga leik-
ara og undirritaði Disney sjálfur
samninginn. Þegar Kurt var 12
ára fór hann með aðalhlutverk í
sjónvarpsþáttaröð sem hét The
Travels of Jamie McPheeters, en
á þessum árum lék hann í fjölda
annarra sjónvarpsþátta og mörg-
um kvikmyndum fyrir Disney.
Þegar tími hans sem bamastjörnu
var á enda sneri hann sér að
hafnaboltaleik og fetaði þar með
í fótspor föður síns, sem hafði
haft hafnaboltaleik að atvinnu
áður en hann sneri sér að leikl-
ist. Meiðsli á öxl sem Kurt hlaut
urðu hins vegar til þess að hann
sneri sér aftur að leiklistinni og
árið 1979 lék hann í sjónvarps-
myndinni Elvis, sem John Car-
penter leikstýrði, og hlaut hann
tilnefningu til Emmy-verðlauna
fyrir frammistöðu sína. í kjölfarið
fylgdi hlutverk í kvikmyndinni
Used Cars (1980) og ári síðar réð
John Carpenter hann svo til að
fara með hlutverk í myndinni
Escape from New York, en þeir
áttu síðar eftir að vinna saman
að myndunum The Thing (1982),
Big Trouble in Little China (1986)
og _nú síðast Escape from LA.
Árið 1983 lék Kurt Russell í
Silkwood og hlaut tilnefningu til
Golden Globe-verðlauna fyrir
hlutverkið, og ári síðar urðu tíma-
mót í lífi hans þegar hann lék á
móti Goldie Hawn i myndinni
Swing Shift. Þau féllu hvort fyrir
öðru og hafa búið saman síðan.
Næstu myndir sem Kurt Russell
lék í ollu flestar hveijar miklum
vonbrigðum, en meðal þeirra eru
The Best of Times (1986),
Overboard (1987), Tequila Sunr-
ise (1988) og Winter People
(1989). Ferill hans virtist kominn
PAM Grier leikur glæpakvendi sem leiðir flokk fanta og svífst hún einskis í átökunum við óvinina.
LÆKNIRINN í Beverly Hills (Bruce Campbell) tekur Snake
til óþægilegrar skoðunar og beitir engum vettlingatökum.
í öngstræti og áskotnaðist honum
þá hlutverk í Tango and Cash
(1989) eftir að Patrick Swayze
hafði hafnað því, og sömuleiðis
fékk hann hlutverk í Backdraft
(1991) eftir að Dennis Quaid
hafði hafnað því hlutverki. Þessar
tvær myndir léku lykilhlutverk í
því að koma ferli leikarans á rétt-
an kjöl að nýju. Hann var aftur
kominn ofarlega á listann yfir
stjörnur Hollywood eftir að hann
fór með hlutverk Wyatt Earp í
Tombstone (1993) og lék í ævin-
týramyndinni Stargate (1994).
Þá treysti hann sig enn í sessi
þegar hann lék í Executive Decisi-
on sem frumsýnd var á þessu
ári. Næsta mynd sem væntanleg
er með Kurt Russell er Break-
down sem frumsýnd verður á
næsta ári og þá fer hann með
hlutverk í Soldier sem frumsýnd
verður 1998.
Meðal annarra leikara í Escape
from New York eru Steve Busc-
emi, sem enn á ný leikur þijót af
verstu gerð, og þau Stacy Keach,
Peter Fonda, Cliff Robertson og
Pam Grier, sem öll upp á sitt besta
á árunum um og upp úr 1970.
JOHN Carpenter leikstjóri Escape from
L.A. er afar fjölhæfur kvikmyndagerð-
armaður en auk þess að hafa leikstýrt
18 kvikmyndum hefur hann skrifað
handrit og samið tónlistina við flestar
þeirra, framleitt myndir og klippt, og
auk þess hefur hann leikið í einum átta
myndum. Meðal annars hefur hann ný-
lega lokið við að leika aukahlutverk í
kvikmynd sem Quentin Tarantino er að
gera eftir sögunni Rum Punch eftir El-
more Leonard (Get Shorty). Carpenter
var á hátindi ferils síns þegar hann gerði
Escape from New York árið 1981, en
hann þykir hafa dalað í seinni tíð og er
litið á Escape from L.A. sem tilraun
hans til að ná fyrri hylli. Myndin hefur
reyndar gert það ágætt og var hún þriðja
vinsælasta myndin helgina sem hún var
frumsýnd í Bandaríkjunum og skilaði
þá á tíundu milljón dollara í tekjur.
Carpenter er fæddur 16. janúar 1948
í borginni Carthage í New York fylki
en flutti ungur að árum með fjölskyldu
sinni til Bowling Green í Kentucky. Hann
stundaði nám við háskólann í Vestur-
Kentucky þar sem faðir hans veitti tón-
listardeild skólans forstöðu og síðan sótti
hann nám í kvikmyndagerð við USC
kvikmyndaskólann í Los Angeles, en allt
frá barnæsku hefur hann verið heillaður
af öllu sem viðkemur kvikmyndum. Car-
Tilraun til að
ná fyrri hylli
penter byrjaði að gera stuttmyndir um
fermingaraldur, eða árið 1962, og árið
1970 hlaut hann óskarsverðlaun fyrir
stuttmyndina The Resurrection of
Bronco Billy, en hann vann að henni á
meðan hann var við nám í kvikmyndaskó-
lanum.
Eftir að hafa unnið til verðlauna fyrir
stuttmynd sína gerði Carpenter nokkrar
ódýrar myndir sem náðu talsverðri hylli
bæði hjá almennum áhorfendum jafnt
og gagnrýnendum, en meðal þeirra eru
Dark Star (1973), Assault on Precinct
13 (1976) og Halloween (1978), sem kost-
aði aðeins 300 þúsund dollara að gera
en hefur skilað samtals um 75 milljónum
doljara í tekjur.
Árið áður en Carpenter gerði Escape
from New York árið 1981 gerði hann
hrollvekjuna The Fog og árið eftir gerði
hann vísindatryllinn The Thing. Handrit-
ið að Escape from New York skrifaði
hann reyndar árið 1974. Myndin kostaði
sjö milljónir dollara í framleiðslu, en til
samanburðar má geta þess að Escape
from L.A. kostaði um 50 miHjónir doll-
ara.
Carpenter hefur löngum dýrkað leik-
stjórann Howard Hawks og gert myndir
í anda hans, og vinnur hann nú að undir-
búningi myndar um þetta átrúnaðargoð
sitt. The Thing er endurgerð myndar
sem Hawks gerði, og sömu sögu er að
segja um Assault on Precinct 13th, sem
er á vissan hátt endurgerð Rio Bravo
eftir Hawks. Carpenter lítur á leikstjór-
ann sem hinn raunverulega höfund kvik-
myndar og sagði hann skilið við stóru
kvikmyndaverin þegar honum fannst
hann ekki hafa nægileg yfirráð yfir
myndum sínum. Hann gerðist óháður
kvikmyndagerðarmaður en það er
margra áiit að við það hafi hann misst
andagiftina.
Carpenter hefur átt í nokkrum deilum
við samtök handritshöfunda um það
hvern eigi að telja hinn raunverulegan
höfund kvikmyndar, og hefur hann látið
nokkur þung orð falla í því sambandi.
„Ég er bæði handritshöfundur og leik-
stjóri, og handrit er langt fráþví að
vera kvikmynd. Það er aðeins orðaflaum-
ur. Leikstjórinn gerir myndina og allt
tal um annað er hreinlega þvættingur.
Aðrir hafa leikstýrt myndum eftir hand-
ritum sem ég hef skrifað, og þannig var
t.d. The Eyes of Laura Mars leikstýrt
af Irvin Kershner og hann er höfundur
þeirrar myndar en ekki ég. Sem leik-
sljóri er ég höfundur mynda minna. Ég
veit að þetta sjónarmið nýtur ekki vin-
sælda þjá handritshöfundum, en svona
er þetta bara því miður. Ef handritshöf-
undurinn heldur að hann sé höfundur
kvikmyndar þá ætti hann bara að þræða
handritið inn í sýningarvél og við skulum
sjá hvernig það kemur út,“ segir Car-
penter.