Morgunblaðið - 19.10.1996, Síða 1
80 SÍÐUR B/C
239. TBL. 84. ÁRG. LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Kosningar undirbúnar
Dúman tekur
undir gagn-
rýni á Lebed
Moskvu. Reuter.
Kvefveiruafbrigði
Vopn gegn
illkynja
æxlum
Washington. Reuter.
BREYTT afbrigði ósköp venjulegrar
kvefveiru getur ráðið niðurlögum
krabbameinsfrumna sé þvj sprautað
í æxli. Hefur þetta komið í ljós við
tilraunir á músum og er nú farið að
prófa það á mönnum.
Vísindamenn segja í grein, sem
birtist í tímaritinu Science í gær, að
þegar búið sé að breyta erfðaeigin-
leikum algengrar kvefpestarveiru,
„adenovirus", geti hún drepið
krabbameinsfrumur, sem ekki hafa
genið P53. Um það bil heiming allra
krabbameinsfrumna í mönnum
skortir það.
Það sem gerist, þegar veirunni
er sprautað í æxli, er að hún breyt-
ir frumunum í eins konar verk’smiðju
þar sem fleiri veirur verða til. Eftir
einn eða tvo daga deyr fruman og
þá losnar um enn fleiri veirur, sem
sýkja nálægar krabbameinsfrumur.
Við tilraunir á æxlum úr mönnum,
sem höfðu verið grædd í mýs, hurfu
þau alveg í 60% músanna þegar
þessum aðferðum var beitt.
Heilbrigt P53-gen kemur í veg
fyrir krabbamein með því að greina
gallað DNA þegar fruman skiptir
sér. Ef um er að ræða afbrigðilegt
DNA gerir P53 annaðhvort að
stöðva skiptinguna eða drepa frum-
una. í mörgum krabbameinsgerðum
er það hins vegar ýmist, að P53 er
gallað eða vantar alveg og þá geta
krabbameinsfrumurnar skipt sér
stjórnlaust.
Þrífst ekki
í heilbrigðum frumum
Kvefveiran fyrrnefnda starfar
þannig óbreytt, að hún gerir P53
óvirkt og leggur undir sig frumuna
og drepur. Breytta fruman, sem þró-
uð var í Kaliforníuháskóla, lætur
hins vegar P53-genið ósnert og get-
ur því ekki þrifist í heilbrigðum
frumum, aðeins krabbameinsfrum-
um.
FYRRI umferð þingkosninga
verður í Litháen á morgun og á
myndinni sjást tveir drengir í
Vilnius líma upp áróðursspjöld.
Síðari umferðin verður 10. nóv-
ember en þá verður kosið milli
tveggja efstu í hverju kjördæmi
úr fyrri umferðinni hafi enginn
hlotið þar hreinan meirihluta.
Alls bjóða 24 flokkar fram en
kannanir benda til þess að
hægrimenn í flokki Vytautas
Landsbergis, sem var forseti er
landið lýsti yfir sjálfstæði frá
Sovétríkjunum, verði sigursælir.
I þingkosningunum 1992 sigraði
flokkur fyrrverandi kommún-
ista og ári síðar varð leiðtogi
þeirra, Algirdas Brazauskas,
forseti.
ALEXANDER Lebed, fyrrver-
andi yfirmaður öryggismála í Rúss-
landi, bar sig vel í gær, þrátt fyrir
valdamissinn, og virtist staðráðinn
í að komast til áhrifa á ný. Hann
er enn formaður samninganefndar
Rússa í viðræðum við uppreisnar-
menn Tsjetsjena en talsmaður Bor-
ís Jeltsíns forseta sagði að Lebed
yrði einnig vikið úr því embætti.
Forsetinn rak í gær bráðabirgðafor-
seta herráðsins, Míkhaíl Kolesn-
íkov, og virtist sem um væri að
ræða hreinsun meðal gamla valda-
kjarnans í varnarmálaráðuneytinu.
Á fundi í gær í neðri deild þings-
ins, Dúmunnar, þar sem kommún-
istar eru öflugasti flokkurinn, var
tekið vel undir gagnrýni keppinauta
Lebeds á hann. Kommúnistar og
aðrir andstæðingar hershöfðingjans
fyrrverandi hafa sakað hann um
að sýna Tsjetsjenum glæpsamlega
undanlátssemi í friðarsamningum
og hefur hann jafnvel verið kallaður
landráðamaður. Dúman lagði til að
hafin yrði opinber rannsókn um leið
og einhver yrði grunaður um að
æsa til uppreisnar og atlögu gegn
einingu ríkisins.
I samningum Lebeds og Tsjetsj-
ena er kveðið á um að beðið verði
í fimm ár með að taka á sjálfstæð-
iskröfunum. Er Lebed var sakaður
um að undirbúa valdarán í vikunni
var m.a. fullyrt að hann hefði feng-
ið fyrirheit um stuðning 1.500
manna sveitar þrautþjálfaðra her-
manna úr röðum Tsjetsjena.
Reynslu- og féleysi
Lebed var forkunnarvel tekið í
gær er hann fór að sjá leikrit um
dauða keisarans ívan grimma, aðrir
gestir klöppuðu
ákaft er þeir sáu
hver var á ferð.
Verkið fjallar
um baktjalda-
makk Kreml-
veija sem vilja
taka við af keis-
aranum. Lebed
var spurður
hvort hann hefði
lært eitthvað
nytsamlegt af sýningunni. „Ég
lærði hvernig á ekki að stjórna
landi,“ svaraði hann og brosti breitt.
Stjórnmálaskýrendur eru flestir
á því að staða Lebeds sé enn mjög
sterk, hann njóti vinsælda í hernum
og mikils trausts meðal almenn-
ings. Ljóst sé þó að hann skorti
mjög reynslu í stjórnmálum og hafi
enga mótaða stefnu í mörgum mik-
ilvægum málum. Það geti einnig
háð honum að hafa engin stjórn-
málasamtök á bak við sig og auk
þess sé óljóst hvort nokkrir fjár-
málamenn muni styðja hann.
Andstæðingar Lebeds, jafnt úr
herbúðum Jeltsíns sem meðal
kommúnista, ráða nær alveg yfir
fjölmiðlum landsins og hafa notað
þá óspart síðustu vikurnar í ófræg-
ingarherferð gegn Lebed. Margir
riíja á hinn bóginn upp að Míkhaíl
Gorbatsjov losaði sig við Jeltsín
árið 1987 og nafni hans brá ekki
fyrir í fjölmiðlum næstu árin. Árið
1991 var hann samt sem áður orð-
inn forseti Rússlands og varð þjóð-
hetja er hann afstýrði valdaráninu
sem varð upphafið að endalokum
Sovétríkjanna.
■ „Þegar köttur er króaður“/22
Alexander
Lebed
Albert Belgíukonungur um afleiðingar máls barnaníðinganna
Boðar rót-
tæk umskipti
Ri-uccol Rnnini'
Brussel. Rcuter.
ALBERT Belgíukonungur hvatti í
gær til þess að bamaklámsmálið og
morð í tengslum við það yrðu upp-
lýst að fullu. Sagði hann mistök hafa
verið gerð við rannsókn málsins en
bað fólk um að taka þátt í fyrirhug-
uðum mótmælafundi á morgun í
Brussel „með uppbyggilegu hugarf-
ari“. Tugþúsundir manna efndu í gær
til mótmæla í Ghent og Antwerpen
gegn stjórnvöldum sem sökuð eru
um að reyna að spilla rannsókninni.
Háskólanemar hrópuðu ókvæðisorð
að lögreglumönnum.
Konungur landsins skiptir sér að
jafnaði ekki af svo viðkvæmum deilu-
málum. Albert og Paola drottning
tóku í gær þátt í pallborðsumræðum
með dómsmálaráðherra Belgíu og
foreldrum fórnarlamba Marcs Dutro-
ux sem sakaður er um að hafa mis-
notað fjölda ungra stúlkna og myrt
nokkrar í slagtogi við aðra menn.
„Drottningin og ég erum sannfærð
um að þessi harmleikur verði að
hafa í för með sér siðferðilega end-
urnýjun og róttæk umskipti í landinu
okkar,“ sagði konungur.
Grunsemdir hafa verið um að hátt-
settir menn tengist bamaklámsmál-
inu og haldið sé yfir þeim hlífiskildi
í valdakerfinu. Reiði almennings hef-
ur enn færst í aukana eftir að virtur
embættismaður, Jean-Marc Conne-
rotte, var látinn hætta störfum sem
rannsóknadómari í máli Dutroux
Reuter
ALBERT Belgíukonungur (fyrir miðju) ásamt Paolu drottningu
og Stefaan De Clerck dómsmálaráðherra á fundi í gær með
foreldrum fórnarlamba barnaníðinganna.
vegna þess að hann hafði þegið
pastarétt á fundi með foreldrum
fórnarlambanna. Telja margir að um
tylliástæðu sé að ræða til að losna
við hann.
Mikill viðbúnaður er hjá lögreglu
vegna útifundarins á morgun sem
nefnd er Hvíta gangan. Gert er ráð
fyrir að allt að 100.000 manns muni
taka þátt í mótmælunum. Jean Luc-
Dehaene forsætisráðherra sagði að
aðgerðir til að krefjast réttlátara og
mannlegra samfélags mættu ekki
enda með ofbeldi.
Lili ógnar
Bahama-
eyjum
Havana. Reuter.
MIKILL viðbúnaður var um hríð á
Kúbu í gærkvöldi vegna fellibylsins
Lili sem í gærmorgun var talið að
myndi sneiða að mestu hjá eynni.
Hann skipti skyndilega um stefnu
og nálgaðist á ný en seint í gær-
kvöldi var bylurinn á leið til Bahama-
eyja, að sögn veðurfræðinga.
Vindhraði Lili var allt að 125 km
á klukkustund. Ríkisútvarp Kúbu
sagði að 176.000 manns hefðu verið
flutt úr varasömum húsum í land-
inu, einkum í Havana. Nokkurt
eignatjón varð í landinu, 20 hús
hrundu af völdum óveðursins í borg-
innj Matanzas.
Óveðrið olli miklum usla víða í
Mið-Ameríku áður en það náði strönd
Kúbu á leið sinni norður á bóginn,
var vitað um 10 manns sem létu lífið
af völdum hans undanfarna sólar-
hringa í Nicaragua og Costa Rica.