Morgunblaðið - 19.10.1996, Blaðsíða 10
10 LAUGARÐÁGUR 19. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
NYJAR IBUÐIR
3ja og 4ra HERBERGJA
Víkurhverfi er vel skipulagt þar sem umferðarþunga er haldið í
sem mestri fjarlægð frá byggðinni. Umhverfi allt er sérstaklega
skemmtilegt. íbúðirnar eru sérstaklega rúmgóðar með stórum
svölum á móti suðri.
Upplýsingar veitir Örn Isebarn, byggingameistari,
síma 896-1606.
FASTEIGN ER FRAMTÍD SIMI 568 77 68
FASTEIGNA * í JMIÐLUN
Suðurlandsbraut 12. 108 Reykjavik. Sverrir Ktistjansson £
fax 568 7072 lögg. fasteignasali I*
Þór Þorgeirsson, sölum., Kristín Benediktsdóttir, ritari, Kristjana Lind, ritari
OPIÐKL. 11—14
Engihlíð
Falleg og mikiö endurnýjuð 84 fm íb. á 2. hæð í fjórbýli. ib. er m.a. 2 stofur, 2
stór svefnherb. og nýtt eldhús. Allar raf- og pípulagnir eru endurn. Nýlegar
skólplagnir. Áhv. 3,7 byggingarsj., Verð 7,6 milljónir.
Tjarnarstígur - Seltjarnarnes
Sérhæð+bílskúr. Vel skipulögð 104 fm neðri sérhæð ásamt 32 fm jeppabílsk.
(b. skiptist í forstofu, gang, 3 svefnherb., stórar saml. stofur, eldhús og bað. Skipti á
3ja herb. íb. koma til greina. Áhv. 5,3 í húsbr.+byggingarsj. Verð 10,4. millj.
Hrafnhólar
3ja herb. ca. 80 fm íb. á 1. hæð I 3ja hæða fjölbýli. Ibúðin er stofa með góðum
svölum útaf og rúmg. eldhús, Parket. Húsið er nýviðgert og málað að utan. Stutt
í alla þjónustu. Áhv. 2,2 í byggingarsj., verð 5,9 milljónir.
Abyrg þjónusta í áratugi
Sími 588 9090 - Síðumúli 21.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Símatími í dag laugardag milli kl. 11 og 14
ata — lækkað verð
Vorum að fá í sölu þetta glæsilega hús í Vesturbænum. Húsið er um 280
fm auk 40 fm bílskúrs. Á miðhæð eru stórar stofur með mikilli lofthæð.
Á efri hæð eru 3 herb., bað, gufubað og hol. Glæsileg séríbúð í kjallara.
Einnig mætti hafa opið á milli hæða.
Hús þetta er nú á lækkuðu verði eða kr. 26,0 millj. 6700.
5521150-5521370
LARUS Þ. VALDIMARSSON,
Nýjar á fasteignamarkaðnum:
Skammt frá Árbæjarskóla
Glæsilegt raðhús á tveimur hæðum m. 6-7 herb. íb. og mjög góðu
vinnuhúsnæði í kj. Snyrting á báðum hæðum. Svalir á efri hæð og
stór sólverönd m. heitum potti á neðri hæð. Góður bílsk. Skipti
æskileg á 3ja-4ra herb. hæð m. bílsk. t.d. I Heimunum.
Einbhús - móti suðri og sól
Vandað og vel byggt steinh. 141,2 fm nettó auk geymslu og
föndurherb. í kj. Góður bílsk. 33,6 fm auk geymslu. Ræktuð lóð m.
sólverönd og heitum potti. Vinsæll staður v. Hrauntungu, Kóp.
Gjafverð.
Endurnýjuð - bílskúr - hagkvæm skipti
Sólrík 4ra herb. íb. um 90 fm á 3. hæð v. Hvassaleiti. Tvöf. stofa
skiptanleg. Parket. Vestursvalir. Föndur- og geymsluherb. í kj.
Góður bílsk. Sameign mikið endurn. Skipti mögul. á góðri 2ja herb.
ib.
í gamla góða austurbænum
Björt og vistleg 3ja herb. íb. á 3. hæð í reisul. steinh. Nýl. gluggar og
gler. Langtlán kr. 3,5 millj. Um helming af útb. má lána til nokkurra
ára. Tilboð óskast.
Skammt frá Sundlaug Vesturbæjar
Góð, sólrík 3ja herb. íb. á2- hæð 81,9 fm. Sólsvalir. Góð geymsla í kj.
Nýendurbætt sameign. Stór lóð m. leiktækjum. Vinsæll staður.
Fjöldi fjársterkra kaupenda
Sérstaklega óskast góðar eignir í Smáíbúðahv., Vesturborginni og
gamla bænum.
Ennfremur margar óskir um eignir sem þarfnast endurbóta einkum f
gamla bænum og nágrenni.
• • •
Opið í dag kl. 10 -14.
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Margs konar eignaskipti.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 552 1370
FRÉTTIR
Tillaga að fimm sitji í sam-
einuðum nefndum felld
BORGARSTJÓRN kaus sjö menn til
setu í atvinnu- og ferðamálanefnd á
fundi sínum á fímmtudag en hún var
mynduð úr tveimur nefndum, at-
vinnumálanefnd og ferðamálanefnd.
Kjör nefndarinnar er þáttur í að
framfylgja tillögum stjórnkerfis-
nefndar um fækkun og sameiningu
nefnda í stjórnkerfi Reykjavíkur-
borgar. Lagt var til að þeim yrði
fækkað úr 11 í 5 en þegar hefur
verið ákveðið að sameina ijórar
nefndir í tvær. Einnig á að sameina
skipulagsnefnd og umferðarnefnd í
eina nefnd.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram tillögu á fund-
inum um að áfram sætu fimm í stað
sjö í sameinuðum nefndum borgar-
innar. Töldu þeir að með því móti
væri verið að vinna verulega gegn
þeirri hagræðingu sem tillögur
stjórnkerfísnefndar miðuðu að.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri minnti á að jafnvel þótt
nefndarmenn yrðu sjö fækkaði
nefndarsætum. 20 fulltrúar sætu í
fjórum 5 manna nefndum en 14 í
tveimur 7 manna nefndum. Einnig
væri sú hætta fyrir hendi drægi úr
fjölbreytileika sjónarmiða sem fram
þurfi að koma ef fulltrúum væri
fækkað verulega.
Pétur Jónsson borgarfulltrúi R-
listans var kjörinn formaður nýju
nefndarinnar en hann var áður for-
maður atvinnumálanefndar. Aðrir
nefndarmenn voru kjörnir: Helgi
Pétursson, Guðrún Erla Gestsdótt-
ir og Stefanía Traustadóttir fyrir
R-lista og Árni Sigfússon, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson og Inga
Jóna Þórðardóttir fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn.
*
Islenskt líftæknifyrirtæki flytur út fyrir tugi milljóna króna
Markaður að opnast
í Bandaríkjunum
VELTA íslenska líftæknifyrir-
tækisins ísteka hf. sem flytur út
frjósemislyf fyrir sauðfé, er nú á
milli 30 og 40 milljónir króna á
ári. Fyrirtækið selur m.a. mikið
af framleiðslu sinni til Ítalíu og
Frakklands og stefnir á að færa
út kvíarnar, meðal annars með
sölu á fylprófi til Bandaríkjanna
þar sem markaður fyrir það er
sagður vera að opnast. ísteka er
deild í Lyfjaverslun Islands hf.
í grein í nýjasta hefti Lyfjatíð-
inda kemur fram að upphaf þessar-
ar starfsemi hérlendis megi rekja
um fimmtán ár aftur í tímann,
þegar fyrirtækið G. Ólafsson hf.
hóf að safna merarblóði og vinna
úr því blóðvökva sem seldur var
til dansks lyfjafyrirtækis.
Samið við leiðandi fyrirtæki
Danirnir unnu fijósemislyf úr
blóðvökvanum sem notað er til að
stýra frjósemi og fengitíma hjá
meðal annars sauðfé og svínum.
Eftir að lokaðist fyrir þennan
útflutning hóf G. Ólafsson að full-
vinna hormónið úr blóðvökvanum
og kom á fót verksmiðju í því skyni,
sem var kostnaðarsamt verkefni.
Framleiðsla hófst árið 1986 en
vegna hræringa hjá erlendum við-
skiptafyrirtækjum gekk útflutn-
ingurinn ekki eins _ vel og vonir
stóðu til og varð G. Ólafsson gjald-
þrota fyrir um sex árum.
Þróunarfélag íslands hf. var eitt
þeirra fyrirtækja sem sá sér hag
í að styrkja áframhaldandi starf-
semi á þessu sviði og var ísteka
hf. stofnað í kjölfarið árið 1990,
auk þess sem Norræni iðnaðarsjóð-
urinn lagði til áhættufé og Rann-
sóknarsjóður peninga til frekari
þróunar.
Árið 1994 var gerður samningur
til fímm ára við hollenska fyrirtæk-
ið Intervet, sem er leiðandi í sölu
á frjósemislyfjum og hefur um 70%
markaðshlutdeild í mörgum lönd-
um heimsins. í fyrra seldi Þróunar-
félag íslands hf. síðan fyrirtækið
til Lyfjaverslunar íslands hf.
30-50% aukning á ári
ísteka framleiðir fijósemislyf
sem hægt er að nota til að stýra
gangmálum hjá skepnum og auka
afkvæmafjölda þeirra. Lyfíð er unn-
ið úr blóði sem tekið er úr fylfullum
hryssum og er því safnað saman
frá lok júlí og fram í miðjan septem-
ber. Aðallega er safnað úr hrossum
í Landeyjum og eru teknir fímm
lítrar af blóði úr hverri hryssu.
Frá því blóðsöfnun hófst árið
1994 hefur orðið mikil aukning í
heildarmagni, eða úr 6-7 tonnum
það ár og um 30-50% á ári.
Auk fijósemislyfsins hefur fyrir-
tækið þróað fylpróf sem kallast
PregnaMare og hefur Útflutnings-
ráð styrkt markaðssetningu þess í
Bandaríkjunum, og einnig ery-
thropoetin-stungulyf sem hefur
áhrif á myndun rauðra blóðkorna
og er notað í fólk.
Morgunblaðið/Guðlaugur Wíum
Dræm ijúpnaveiði fyrsta daginn
Ólafsvík. Morgfunbladið
FYRSTI dagurinn gaf lítið af sér í rjúpnaveiði á Snæfellsnei. Þeir
sem fengu mest fengu 10 stykki og einhveijir fengu ekki neitt enda
veður óhagstætt fyrir skytturnar, þoka á fjalli og rigning. Hópur
manna kom af Reykjavíkursvæðinu en bar lítið úr býtum.
Ármúlð 1, síml 588 2030 - fax 588 2033
Starengi 36 og 40
Skemmtileg og vel hönnuð 145 fm
endaraðhús á einni hæð. Fullb. að
utan, fokh. að innan eða tilbúin til
innréttinga. Afhendist strax.
Verð frá 8,2 millj. Áhvílandi 4 millj.
Kirkjusands-
mál afgreitt í
borgarstjórn
MIKLAR en snarpar umræður
urðu um skipulagsmál, hljóðvist
og mengunarmál í tengslum við
byggingu íbúðarhúsa við Kirkju-
sand á fundi borgarstjórnar á
fimmtudaginn. Á fundinum var
blessun lögð yfir afgreiðslu borg-
arráðs um málið eftir að ásakanir
gengu á víxl um slælega fram-
göngu hvorrar fylkingar í málinu.
Sjálfstæðismenn gagnrýndu
meirihluta R-listans harkalega
fyrir samstöðuleysi, úrræðaleysi
og stefnuleysi við meðferð óskar
Ármannsfells um að fá að reisa
þijár íbúðablokkir við Kirkjusand.
Ólafur F. Magnússon borgar-
fulltrúi D-lista vakti sérstaka at-
hygli á því að umferðaröryggis
væri ekki gætt vegna fyrirhugaðs
hljóðtálma við Sæbraut. Sam-
kvæmt teikningum ætti hann að
vera aðeins 4 metrum frá götu.
Ólafur vitnaði í sænska öryggis-
staðla og fullyrti að samkvæmt
þeim þyrftu a.m.k. 10 metrar að
vera frá hljóðvegg að umferðaræð
þar sem umferð næði 90 km
hraða.
Meirihluti R-lista sakaði sjálf-
stæðismenn á hinn bóginn fyrir
ábyrgðarleysi með því að hafa
setið hjá við meðferð Kirkjusands-
málsins í fagnefndum, skipulags-
nefnd og heilbrigðisnefnd.
I
D
D
1
I
t
e
c.
t
L
1
í
t
í
I
L
c
t
i
í